13.04.1962
Sameinað þing: 55. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2639 í B-deild Alþingistíðinda. (2390)

Almennar stjórnmálaumræður

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Íslenzka þjóðin fær að ýmsu leyti hvorki góða né rétta mynd af störfum Alþingis með því að hlýða á útvarpsumræður héðan. Það er óspart látið fjúka, að þeir, sem með völdin fara, brjóti sjálfa stjórnarskrána, vinni skipulega að því að skerða lífskjör manna, spilli menningarlífi þjóðarinnar og skerði frelsi hennar og fullveldi. Þeim er jafnvel líkt við ofbeldissamtök suður í Alsír, sem stunda morð og rán og hvers konar ódæðisverk. Mér kemur ekki til hugar að nota ræðutíma minn hér til að munnhöggvast um atriði sem þessi. Hlustendum er í rauninni sýnd óvirðing með slíku tali.

Sérhver ríkisstj. skoðar það auðvitað skyldu sína að hlýða stjórnarskránni, gæta sjálfstæðis þjóðarinnar og efla menningu hennar. Sömuleiðis hljóta þeir, sem með völd fara hverju sinni, að skoða það sem eitt höfuðhlutverk sitt að stuðla að því, að þjóðarframleiðslan aukist sem mest. þannig að kjör manna geti orðið sem bezt. Auðvitað hafa allar ríkisstj., sem hér hafa setið, haft þetta takmark. Hitt er svo annað mál og algerlega eðlilegt, að mönnum getur sýnzt sitt hvað um það, hvaða ráð séu vænlegust til þess, og lagt mismunandi dóm á það, hver árangur hafi náðst.

Í þeim orðum, sem ég segi hér í kvöld, ætla ég fyrst að bera þá stefnu, sem nú er fylgt í efnahagsmálum, saman við þá, sem fylgt var áður. Síðan ætla ég að fara nokkrum orðum um það, sem ég tel vera fram undan, og að síðustu ræða nokkuð eitt helzta vandamálið, sem ég tel að nú bíði úrlausnar, afstöðu Íslendinga til Efnahagsbandalagsins.

Á þeim tiltölulega stutta tíma, sem liðinn er, síðan samstarf hófst milli Alþfl. og Sjálfstfl., hafa meiri tíðindi gerzt í íslenzkum þjóðmálum en nokkurn tíma áður á jafnskömmum tíma. Kjördæmaskipun landsins hefur verið gerbreytt og henni komið í réttlátt horf. Íslenzka krónan hefur verið rétt skráð, þannig að hún hefur tekið fullgilt sæti við hlið gjaldmiðils viðskiptaþjóða okkar, en niðurlægjandi og skaðlegt svartamarkaðsbrask á þessu sviði er úr sögunni. Innflutningur og gjaldeyrisviðskipti eru að miklu leyti orðin frjáls, og vöruúrval innanlands hefur aldrei í sögu þjóðarinnar verið meira en nú. Skattakerfið hefur verið endurskoðað frá grunni og sköttum létt af launamönnum. Almannatryggingar hafa verið stórauknar. Margvíslegar ráðstafanir hafa verið gerðar til eflingar vísindum og listum. Aðstaða námsmanna hefur verið stórbætt. Tvö vandasöm og viðkvæm deilumál við vinveittar þjóðir hafa verið farsællega til lykta leidd, og á ég þar við landhelgisdeiluna og handritamálið. Og ég hika ekki við að fullyrða, að atvinna hafi aldrei verið tryggari og lífskjör þjóðarinnar aldrei betri en nú um þessar mundir.

En hver er grundvallarmunurinn á þeirri stefnu í efnahagsmálum, sem nú er fylgt, og þeirri, sem fylgt var áður? Ef litið er á tímabilið frá stríðsárunum og til áramótanna 1959 og 1960 sem eina heild, má segja, að tvenns konar mein hafi þjakað efnahagslífið. Annars vegar var stöðug verðbólga innanlands, verðlag og kaupgjald hækkaði á víxl. Orslík þessa var röng stefna í bankamálum og fjármálum ríkisins, vísitölukerfið og ógætileg stefna launþegasamtaka í launamálum. Hins vegar var röng skráning á gengi krónunnar. Af henni leiddi útflutningsbætur og innflutningsgjöld og höft á innflutningi og gjaldeyrisviðskiptum. Sumar ríkisstj. réðust gegn verðbólgunni, aðrar gegn röngu gengisskráningunni. Árangur náðist um sinn, en meinið var aldrei læknað af því að engin ríkisstj. bar gæfu til þess að gera hvort tveggja í senn að skrá rétt gengi á krónunni, til þess að unnt væri að afnema uppbætur og höft, og skera samtímis fyrir rætur verðbólgunnar með réttri og ábyrgri stefnu í bankamálum og fjármálum ríkisins.

Það er þetta. sem núv. ríkisstj. ákvað að gera og hefur gert. Þær ríkisstj., sem hér hafa setið síðan stríði lauk, hafa allar gert ýmsar skynsamlegar ráðstafanir til úrbóta á öðru hvoru þeirra sviða. þar sem stefnunni hefur verið ábótavant, en engri þeirra tókst að koma verðbólgunni fyrir kattarnef og eyða greiðsluhallanum gagnvart útlöndum, af því að aldrei var gert samtímis allt það, sem gera þurfti. Það var ekki fyrr en samstarf tókst milli Alþfl. og Sjálfstfl. og þeirra einna, að samkomulag náðist um samræmda heildarstefnu, rétta gengisskráningu og ábyrga stefnu í bankamálum og fjármálum ríkisins. Fyrir þessar sakir hefur árangur af störfum þessarar ríkisstj. orðið meiri en þeirra, sem á undan fóru. Þessi góði árangur kemur fram á ýmsan hátt. S.l. ár er fyrsta árið, síðan styrjöldinni lauk, sem búskapur þjóðarinnar hefur verið hallalaus gagnvart öðrum þjóðum. Íslendingar eiga nú í fyrsta skipti um langan aldur nokkurn gjaldeyrisvarasjóð, þótt hann sé ekki orðinn eins mikill og hann þarf nauðsynlega að verða. Sparifé þjóðarinnar innanlands er nú miklu meira en það hefur verið nokkru sinni fyrr, og vöxtur þess er örari en dæmi eru til um áður, vöruframboð fjölbreyttara og viðskipti frjálsari en um áratugaskeið. Atvinna er mikil og trygg.

Nú kæmi mér ekki á óvart, þótt ýmsir spyrðu: En hvað um lífskjör fólksins, hafa þau ekki versnað á valdatíma núv. ríkisstj.? Höfum við ekki eignazt gjaldeyrisvarasjóðinn erlendis og sparifé innanlands einfaldlega vegna þess. að fólk hefur haft minni tekjur til að nota til neyzlu sinnar? Svarar ekki kjararýrnun hjá almenningi til eignaaukningarinnar erlendis og innanlands? Þar sem það var eitt höfuðmarkmið núv. ríkisstj., þegar hún var mynduð, að eyða greiðsluhallanum gagnvart útlöndum og efla innlendan sparnað, sagði hún af fullri hreinskilni við þjóðina, að hún gerði ekki ráð fyrir því, að unnt yrði að ná þessum markmiðum, án þess að þjóðin tæki á sig nokkra kjaraskerðingu í bráð, 3–5%. En þessi kjaraskerðing hefur, sem betur fer, ekki reynzt nauðsynleg. Skattaframtöl launþega sjálfra fyrir árið 1960 leiddu í ljós, að tekjur allra launþegastétta jukust á því ári meira en svaraði til hækkunar framleiðslukostnaðar. Meðalatvinnutekjur kvæntra verkamanna, iðnaðarmanna og sjómanna á öllu landinu reyndust t.d. um 79 þús. kr. og voru um 6% hærri en árið áður. Þær voru meira að segja 14% hærri en 1958. En framfærslukostnaður hækkaði hins vegar um tæplega 5% frá því á árinu 1958 til ársloka 1960. Samt leyfa menn sér að halda því fram, að allur vandi launamálanna væri leystur, ef lífskjörin væru nú jafngóð og 1958. Sannleikurinn er sá, að þau eru nú talsvert betri. Það er rétt að hluti þeirra tekna, sem ég nefndi, er fyrir yfirvinnu, sem æskilegt er að komast hjá, enda ber að stefna að því að afnema hana, án þess að sú skerðingar á launum komi. En yfirvinnan hefur ekki vaxið hin síðustu ár, svo að tekjuaukinn er ekki vegna þess, að menn hafi þurft að leggja meira að sér.

Á s.l. ári urðu tekjur allra stétta miklu hærri en árið 1960 vegna hinna almennu kauphækkana, sem samið var um. Þær námu 13–19%, að meðaltali líklega 14–15%. En siðan genginu var breytt % ágústbyrjun, hefur framfærslukostnaðurinn ekki hækkað nema um 9% og síðan í ársbyrjun 1961 ekki nema um 12%, svo að óhætt er að fullyrða, að síðan viðreisnarstefnan var tekin upp fyrst á árinu 1960, hafa tekjur launamanna og bænda aukizt meira en framfærslukostnaður hefur hækkað. Tekjur sjómanna hafa hækkað mun meira. Það er því beinlínis rangt, þegar því er haldið fram, að lífskjör almennings séu nú lakari en þau voru, áður en núv. ríkisstj. kom til valda. Tímakaup lægst launuðu Dagsbrúnarmanna er ekki réttur mælikvarði á raunveruleg lífskjör, heldur árstekjur launþeganna.

Með þessu er ég auðvitað ekki að segja, að ástand kaupgjaldsmálanna hafi á s.l. ári verið eða sé nú alveg eins og það eigi að vera. Ég er aðeins að andmæla þeirri röngu staðhæfingu, að kjör almennings hafi versnað undanfarin tvö ár. Ég held því ekki heldur fram, að þau hafi almennt batnað að nokkru ráði, enda ekki hægt að gera ráð fyrir því, að það gerist samtímis því, sem þjóðin er að koma fótum undir heilbrigt efnahagskerfi og koma sér upp nauðsynlegum varasjóðum innanlands og erlendis. í þessu sambandi verður hins vegar að geta þess, að 1. júní n. k. mun kaup hækka um 4%, og mun sú kauphækkun að mestu leyti verða raunveruleg kjarabót.

Ríkisstj. viðurkennir fullkomlega nauðsyn þess og réttmæti, að nokkur breyting eigi sér ávallt stað á kaupgjaldi einstakra starfshópa. Einmitt þess vegna hefur ríkisstj. nýlega lýst sig reiðubúna til að vinna að því, að lægst launuðu verkamenn fái nokkra kauphækkun. Af sömu ástæðum hefur ríkisstj. fyrir fáum dögum ákveðið að greiða kennurum nokkra þóknun fyrir aukastörf. Sama hugsun liggur að baki frv. því, sem ríkisstj. hefur flutt um samningsrétt opinberra starfsmanna, en á því sviði eru ýmsar breytingar eðlilegar og réttmætar. Er sérstaklega nauðsynlegt að taka í auknum mæli tillit til menntunar, ábyrgðar og sérhæfni við ákvörðun á launum opinberra starfsmanna. En ef breyting á launum einstakra starfshópa á að færa þeim kjarabót, þá verður hún að vera takmörkuð við ákveðinn hóp. Ef kaup allra stétta hækkar jafnt og umfram það, sem þjóðarframleiðslan vex, er þá ekki augljóst hverju mannsbarni, að verðlag hlýtur að hækka og gera að engu þá kauphækkun, sem er umframaukning þjóðarframleiðslunnar? Það er þetta, sem ríkisstj. vill umfram allt forða þjóðinni frá að gerist. Hún vill, að þeir starfsmenn, starfshópar, sem ýmist þarfnast þess mest eða helzt eiga það skilið vegna breyttra starfshátta, fái þann tekjuauka, sem aukning þjóðarframleiðslunnar getur staðið undir, án þess að til nýrra verðhækkana þurfi að koma af þessum sökum. En hún telur verulegar almennar kauphækkanir ekki geta leitt til annars en nýrrar verðbólguöldu. Engum ríður meira á því en einmitt launþegunum, að slíkt gerist ekki.

En nú kynni einhver einnig að spyrja, hvort batinn í þjóðarbúskapnum hafi þá ekki orðið vegna þess, að óeðlilega mikið hafi dregið úr framkvæmdum, en því er einmitt oft haldið fram.

Á árunum 1953—1958 nam fjárfesting í íbúðabyggingum 350 millj. kr. á ári að meðaltali, miðað við verðlag ársins 1954. En á árunum 1960 og 1961 nam hún 323 millj. kr. að meðaltati miðað við sama verðlag, eða var m.ö.o. mjög svipuð. Á báðum þessum tímabilum var fjárfestingin talsvert umfram það, sem þarf til að fullnægja þörfunum vegna fjölgunar fjölskyldna. Og hvernig skyldi fjárfestingu í fiskiskipum hafa verið háttað? Á árunum 1956–1958 nam sú fjárfesting að meðaltali 54 millj. kr. á ári, en á árunum 1960 og 1961 að meðaltali á ári 106 millj. kr., miðað við sama verð. Fjárfesting í fiskiskipum hefur m.ö.o. verið næstum tvöfalt meiri á starfstíma núv. ríkisstj. en hún var á árunum 1956–1958. Batinn í þjóðarbúskapnum á því ekki heldur rót sína að rekja til neins óeðlilegs samdráttar í framkvæmdum, heldur einfaldlega til skynsamlegrar heildarstefnu í efnahagsmálum.

Ég sagði áðan, að megintilgangur ríkisstj. hafi verið sá að koma verðbólgunni fyrir kattarnef og eyða greiðsluhallanum gagnvart útlöndum. Þetta hefur tekizt í aðalatriðum. En ríkisstj. var auðvitað frá upphafi ljóst, að þetta gat ekki verið nema fyrri þátturinn í starfsáætluninni. Síðari þátturinn hlaut að vera fólginn í því að efna til nýrra framkvæmda á þeim trausta grunni, sem fyrst þurfti að leggja. Af þessum sökum hefur ríkisstj. undanfarið unnið að undirbúningi framkvæmdaáætlunar og notið við það aðstoðar færustu sérfræðinga, erlendra og innlendra. Hlutverk slíkrar framkvæmdaáætlunar er að tryggja, að fyrst og fremst sé unnið að þeim verkefnum, sem eru arðvænlegust fyrir þjóðarbúið í heild, og stuðla að því, að fjárhagsgrundvöllur þeirra sé heilbrigður.

Í lítt numdu landi eins og Íslandi blasa verkefni við hvarvetna. Það hefur því miður viljað brenna við undanfarna áratugi, að við höfum ekki ávallt vandað okkur nógu vel við val þeirra framkvæmda, sem til hefur verið stofnað. Þess vegna hefur framleiðsluaukningin ekki orðið eins mikil og hún hefði getað orðið. Þetta þarf að breytast, og það er megintilgangur framkvæmdaáætlunarinnar, að þetta breytist. Við höfum fram til þessa fyrst og fremst grundvallað lífskjör okkar á auðæfum fiskimiða umhverfis landið og því að sjálfsögðu verið háðir duttlungum náttúrunnar. Við verðum í framtíðinni í sívaxandi mæli að byggja afkomu okkar á fullkomnari hagnýtingu þessara auðlinda sjávarins og hvers konar íðnaði öðrum. í því sambandi kemur ekki hvað sízt til greina hagnýting fallvatna okkar og jarðhita. Ísland er eitt af fáum Evrópulöndum, þar sem enn er um að ræða miklar ónotaðar orkulindir, sem hagnýta má til iðnaðarþarfa. Á þessum orkulindum má grundvalla nýjan iðnað, er framleiði til útflutnings og geri okkur því í vaxandi mæli óháða þeim framleiðslusveiflum, sem jafnan hljóta að eiga sér stað í fiskveiðunum.

En við getum hvorki hagnýtt orkulindirnar né komið á fót útflutningsiðnaði nema afla erlends fjármagns til landsins og eiga um tíma aðgang að erlendri tækniþekkingu og verkkunnáttu. Íslendingar hafa á undanförnum áratugum flutt mikið erlent fjármagn inn í landið, en þar hefur nær eingöngu verið um opinberar lántökur að ræða. Það er skoðun mín, að það, sem hér þurfi að gera á næstunni, sé ekki framkvæmanlegt, nema einkafjármagn verði jafnframt hagnýtt, ekki hvað sízt vegna þess, að ekki er völ á þeirri erlendu tækniþekkingu, sem okkur er nauðsynleg, nema í sambandi við hagnýtingu einkafjármagns. Efnahagslegu sjálfstæði okkar á engin hætta að þurfa að stafa af slíku, ef tryggilega er um búið, og er reynsla Norðmanna til vitnis um það. En áður en nokkrar ákvarðanir eru teknar í þessum efnum, er nauðsynlegt, að framkvæmdirnar séu vel undirbúnar og vel samræmdar. Einmitt Það er hlutverk framkvæmdaáætlunarinnar, sem ríkisstj. skoðar nú sem eitt höfuðhlutverk sitt að vinna að og mun á sínum tíma kynna Alþingi og þjóðinni.

Þá ætla ég að síðustu að fara nokkrum orðum um afstöðu Íslands til Efnahagsbandalagsins. En þar er um að ræða eitt mesta vandamál, sem Íslendingar munu hafa við að glíma á næstu árum. Það er nauðsynlegt, að allir Íslendingar geri sér ljóst, að Efnahagsbandalagið er staðreynd, hvort sem sumum okkar líkar hún betur eða verr. Í kjölfar stofnunar Efnahagsbandalagsins og þeirrar stækkunar þess, sem allar líkur benda til að muni eiga sér stað á næstunni, munu sigla víðtækar breytingar í efnahagsmálum Vestur-Evrópu. Innan vébanda Efnahagsbandalagsins munu verða ýmsar dýrmætustu auðlindir jarðarinnar, meira fjármagn en víðast hvar annars staðar, tækniþekking á borð við það, sem hún gerist bezt í heiminum, og þar verður um að ræða einn viðáttumesta markað heimsviðskiptanna. Enginn vafi er á því, að sú þróun, sem nú er hafin, mun bæta lífskjör almennings í Vestur-Evrópu mjög á næstu árum og áratugum. Grundvallarregla Efnahagsbandalagsins er sú, að innan þess skuli allur atvinnurekstur og öll viðskipti vera frjáls, en allur innflutningur tollaður til verndar framleiðslu bandalagsríkjanna. Til þeirra landa, sem líklegt er að innan skamms verði aðilar að Efnahagsbandalaginu, fluttum við um 60% af útflutningi okkar árið 1961. Tollar af útflutningsvörum okkar til efnahagsbandalagslandanna eru nú byrjaðir að hækka og munu nema um 11%, þegar öll hækkunin er komin fram, í stað 6%, eins og áður var, hvort tveggja að meðaltali.

Hagsmunir okkar af því að eiga aðgang að þessum stóra markaði án þess að þurfa að greiða þennan toll eru augljósir. Samt er það ekki aðalatriði þess máls, sem hér er um að ræða, að losna við þá hækkun tolls á meiri hluta útflutnings okkar, sem við yrðum að bera, ef við stæðum utan bandalagsins. Enn mikilvægara er hitt, að vegna nálægðar og gamalla tengsla við Vestur-Evrópu á sviði viðskipta, menningar og stjórnmála eru Vestur-Evrópulöndin eðlilegasta markaðssvæði Íslendinga og geta auk þess selt okkur flest það. sem við þurfum að flytja inn. Það er því Íslendingum langhagkvæmast, að sú mikla aukning á útflutningi, sem hér verður að eiga sér stað, ef lífskjör þjóðarinnar eiga að geta batnað jafnmikið og við hljótum að keppa að, beinist einmitt fyrst og fremst til þessara landa. Innan bandalagsins eru ýmsar þjóðir, sem framleiða sömu vörur og við gerum nú, og þær vörur, sem við væntanlega hefjum framleiðslu á til útflutnings. Ef við stöndum algerlega utan bandalagsins, verður aðstaða þeirra svo miklu betri en okkar, að við getum ekki keppt við þær. Þess vegna er hætt við, að við getum ekki selt framleiðsluaukningu okkar á þessum markaði, sem er okkur eðlilegastur og hagkvæmastur, og jafnvel einnig, að núverandi útflutningur okkar þangað hljóti að dragast saman og við verðum að beina honum að öðrum og áhagkvæmari mörkuðum. Þetta er meginvandinn í sambandi við það að standa algerlega utan bandalagsins.

Á hinn bóginn er okkur Íslendingum algerlega ómögulegt að taka á okkur fullar skyldur bandalagsríkjanna. Því veldur fámenni landsins og nauðsyn okkar á því að tryggja, að erlend stórfyrirtæki nái ekki tangarhaldi á atvinnulífi okkar og stofni þannig efnahagslegu sjálfstæði okkar í voða. Þetta hef ég ávallt tekið skýrt fram, þegar ég hef rætt um Efnahagsbandalagið. Það er tilhæfulaust, að ég eða nokkur annar talsmaður ríkisstj. hafi nokkurn tíma sagt annað. En ef Íslendingar ættu kost á þess konar tengslum við Efnahagsbandalagið, að þeir gætu selt útflutningsvörur sínar á hinum stóra markaði þess með sömu skilmálum og framleiðendur þeirra innan bandalagsins án þess að þurfa að stofna yfirráðarétti Íslendinga yfir atvinnuvegum sínum í hættu og án þess að skerða forgangsrétt Íslendinga til hagnýtingar á íslenzkum fiskimiðum, skil ég ekki í, að nokkur Íslendingur gæti verið því andvígur. Við vitum hins vegar ekki, hvort við eigum kost á slíku. Og við getum að sjálfsögðu ekki vitað það, fyrr en við höfum rætt málið við Efnahagsbandalagið.

Ríkisstj. hefur talið rétt að bíða átekta, þar til nánari vitneskja liggur fyrir um, hverjar undirtektir þær mörgu þjóðir fá, sem nú um þessar mundir sumpart hafa sótt um aðild að bandalaginu eða eru í þann mund að gera það. Ríkisstj. teldi það mjög æskilegt, að um afstöðu í þessu máli gæti tekizt sem víðtækust samstaða. Það mun reynast Íslendingum örlagaríkt um langa framtíð, að stefna sú, sem þeir marka, sé hvort tveggja í senn heilbrigð og þjóðholl. Við hljótum að leggja mikla áherzlu á að einangrast ekki frá þeim þjóðum, sem okkur er ekki aðeins hagkvæmast að eiga meginviðskipti okkar við, heldur viljum einnig vera í nánum menningar- og stjórnmálatengslum við. En jafnframt hljótum við að gæta þess að fórna ekki þeim yfirráðarétti yfir íslenzkum auðlindum og íslenzkum atvinnurekstri, sem er forsenda íslenzks sjálfstæðis í efnahagsmálum, menningarmálum og stjórnmálum og smæð okkar gerir okkur sérstaklega nauðsynlegt að vernda. Við hljótum að treysta því, að þær þjóðir, sem við höfum haft nánust samskipti við og ættu því að þekkja vandamál okkar bezt, skilji sérstöðu okkar. Íslendingar eiga ekki að biðja um neitt og þurfa ekki að biðja um neitt annað en að fá að stunda sem frjálsust viðskipti við þjóðir, sem þeir hafa skipt við og vilja skipta við. Þótt við séum fáir og smáir, þurfum við engir gustukamenn að vera og eigum ekki að vera það. Landið og hafið umhverfis það á gnótt gæða, og þjóðin er dugleg og vel menntuð. Við eigum því að geta séð okkur farborða á við aðra, ef við sjálfir kunnum fótum okkar forráð, og höfum heilbrigð skilyrði til sem frjálsastra viðskipta.

Tengsl við Efnahagsbandalagið geta skapað okkur skilyrði til vaxandi og frjálsra viðskipta á einum stærsta markaði veraldar og á þann hátt stuðlað að auknum framförum og bættum lífskjörum á Íslandi. Ef þetta getur gerzt án þess að stofna efnahagslegu sjálfstæði okkar í nokkra hættu, getur þá nokkur verið í vafa um, hvaða stefnu við eigum að fylgja?