13.04.1962
Sameinað þing: 55. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2651 í B-deild Alþingistíðinda. (2392)
Almennar stjórnmálaumræður
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Við höfum haft þann hátt á í þessum útvarpsumræðum, þingmenn Alþb:, að skipta með okkur verkum, þannig að hver geri skil aðallega einu eða tveimur málum. Hv. 6. þm. Sunnl. opnaði eldhúsið f.h. Alþb. með almennri gagnrýni á stjórnarstefnuna. Hv. 5. þm. Reykn. ræddi nær einvörðungu um Efnahagsbandalag Evrópu, og hv. 4. þm. Austf. mun aðallega gera skil gengislækkuninni og frammistöðu stjórnarinnar í atvinnumálum. Ég mun í þeim orðum, sem ég segi hér, aðallega ræða um tvo þætti í syndaregistri hæstv. stjórnar, þ.e. eymd hennar í húsnæðismálunum og afbrotaferil hennar í launamálum.
Ég mun í þeim orðum, sem ég nú segi, snúa mér fyrst að húsnæðismálunum. Ég heyrði í umr. í gærkvöld, að þeir hæstv. félmrh., hæstv. fjmrh. og hv. formaður húsnæðismálastjórnar, Eggert G. Þorsteinsson, gumuðu allmjög af því, sem þeir höfðu afrekað í húsnæðismálunum, alveg sérstaklega fyrir unga fólkið. Þessum herrum svara ég nú öllum í einu með dæmi, teknu úr daglegu lífi.
Það er varla til átakanlegri vitnisburður um það óstjórnlega dýrtíðarflóð, sem hæstv. ríkisstj. hefur nú magnað á landslýðinn, en Hagtíðindin, sem ríkisstj. sjálf gefur út. Ég hef hér fyrir framan mig janúarhefti Hagtíðindanna 1962. Þar segir, að vísitölufjölskyldan, þ.e. fjögurra manna fjölskylda, hafi þurft að kaupa matvörur fyrir 23 þús. kr. í marzmánuði 1959 eða um það leyti, sem núverandi stjórnarflokkar tóku við völdum og byrjuðu að framkvæma sína gengislækkun. En í jan. 1962 segir þessi sama heimild, að vísitölufjölskyldan þurfi að borga sama vörumagn með rúml. 30 þús. kr. Hækkunin er full 30%. Þegar með útgjöldum fjölskyldunnar eru taldar greiðslur vegna hita, rafmagns, fatnaðar, álnavöru og ýmiss konar nauðsynlegrar þjónustu, segja Hagtíðindin, að fjölskylduútgjöldin í marz 1959 hafi að þessu leyti verið 48 300 kr., en í jan. 1962 fyrir sömu vörur 63 800 kr., og nemur hækkunin þá 32%. Hagstofan telur, að opinber gjöld þessarar fjölskyldu muni vera um 8700 kr., en frádráttur hennar vegna fjölskyldubóta og niðurgreiðslna um 6600 kr. Eru útgjöld hennar að þessu leyti þá 65 900 kr. En nú hefur einn stór útgjaldaliður sérhverrar fjölskyldu þó enn þá ekki verið talinn, og það er húsnæðisliðurinn. Segjum nú, að þessi fjölskylda sé ung hjón með 2 börn og nú vilji þau færast það í fang að kaupa sér tveggja herbergja íbúð. Slik íbúð kostar nú a.m.k. 300 þús. kr. Gerum nú ráð fyrir, að ungu hjónin séu svo stálheppin, að þau fái 7% lán fyrir öllu kaupverðinu. Arsvextirnir eru þá 21 þús. kr. Gerum enn fremur ráð fyrir, að ungu hjónin séu svo lánsöm að fá lánið til 20 ára. Þá er árlega afborgunin samt 15 þús. kr. Segjum enn fremur, að skattar og tryggingagjöld af íbúðinni séu ekki nema 2500 kr. Allt er þetta hagkvæmara en almennt er fáanlegt, en samt er árlegur húsnæðiskostnaður ungu hjónanna 38 500 kr. og rúmlega 3200 kr. á mánuði. Þetta þýðir, að ungu hjónin þurfa að hafa 104 400 kr. árstekjur til að hafa tekjur á móti gjöldum. Er þá húsnæðisliðurinn áætlaður mjög varlega, eins og menn heyra, en öll önnur útgjöld eru tekin samkvæmt vísitöluútreikningi hagstofunnar. Sé ungi maðurinn nú verkamaður í Reykjavík og vinni hvern einasta virkan dag allan ársins hring, er honum þá ekki borgið? Nei, ekki aldeilis. Þá hefur hann 52 800 kr. í árslaun, og þá liggur manni við að svima, því að þá er þetta aðeins helmingur nauðsynlegra útgjalda. Hinn helminginn, um 52 þús. kr., vantar. Og hvar á að taka það? Um það munu mörg ung hjón brjóta heilann. Hann ákveður að tryggja sér tveggja stunda aukavinnu alla virka daga ársins, ef þess er nokkur kostur. Segjum, að þetta takist, og það gefur þá 1705 kr. aukatekjur á mánuði eða 20 460 kr. á ári. En samt vantar enn 32 þús. kr. á móti gjöldunum. Og hvað skal þá til ráða? Hann verður auðvitað að vinna alla sunnudagana líka. Það getur líklega gefið 18 þús. kr. Enn vantar ungu hjónin um 14 þús. kr. Annaðhvort verður nú unga konan að taka ákvörðun um að vinna úti eða ungu hjónin komast að þeirri niðurstóðu, að þau hafi blátt áfram ekki efni á að búa í húsi. Og svo sannarlega er það rétt niðurstaða, því að vitanlega er það ekkert líf að vinna 10 stundir á dag alla virka daga, auk þess 50 sunnudaga ársins frá morgni til kvölds, auk þess sem konan verður einnig að vinna úti. Ungu hjónin hafa ekki efni á að búa í tveggja herbergja eigin íbúð. Þau verða að leigja sér eitthvert ódýrt hreysi. Þetta eru lífskjörin, sem ungu vinnusömu fólki eru nú búin í landi voru. Þannig er komið ástandi launamála og verðlags undir núverandi stjórnarstefnu. Þetta er sönn saga um unga fólkið og húsnæðismálin.
Á seinustu röskum þremur árum hefur byggingarverð meðalíbúðar hækkað um rúmar 100 þús. kr. Hingað til hefur hámark lánsupphæðar á íbúð líka verið um 100 þús. kr. Lánsupphæðin öll fer því til að borga verðhækkun seinustu ára. Þá er þess að geta, að húsbyggjandinn borgar ríkinu í tolla og söluskatta af efni til vísitöluhússins fast að 100 þús. kr. Hafa þm. Alþb. lagt til, að lánsupphæðin á íbúð yrði hækkuð í 200 þús. og að söluskattur og tollur af byggingarefni íbúðarhúss yrði endurgreiddur til byggjandans og þannig dregið úr byggingarkostnaðinum. En skemmst er frá því að segja, að slíkar till. hafa enga náð hlotið fyrir augum stjórnarliðsins, hafa verið kolfelldar.
En er þá ekki byggingarstarfsemin í landinu í fullum gangi? Er þar um nokkurn samdrátt að ræða? Þarf nokkrar áhyggjur af þessu að hafa? Um verzlunarhúsnæði er það að segja, samkv. upplýsingum Fjármálatíðinda, sem Landsbankinn gefur út, að á árinu 1959 hafi verið til þess varið 50 millj. kr., en á árinu 1960 var byggt verzlunarhúsnæði fyrir 98 millj. kr. eða fyrir nálega helmingi hærri upphæð. Sú þróun bendir sannarlega ekki til samdráttar, og kemur það raunar engum á óvart. En það er svolitið aðra sögu að segja, þegar kemur að íbúðarhúsnæðinu. Þá líta tölur Fjármálatíðinda þannig út: Árið 1959 var hafin smíði á 1597 íbúðum, eða tæpum 1600, næsta ár, 1960, var hafin bygging 1008 íbúða. Talað hafði lækkað um rúman þriðjung. Og nú halda menn sjálfsagt að þetta hafi lagazt aftur á árinu 1961. En það er öðru nær, því að það ár var aðeins hafin smíði á 770 íbúðum, eða 827 íbúðum færri en árið 1959. Talið er, að enn dragi úr byggingu íbúðarhúsnæðis á þessu ári, og má samdrátturinn ekki verða mikill til þess, að íbúðir þessa árs verði þúsund færri en á árinu 1959. Þetta er skuggaleg þróun, því að árlega þarf að byggja vegna fjölgunar þjóðarinnar og húsnæðis, sem gengur úr sér, 1200–1300 íbúðir á ári. Við stefnum því ört að húsnæðisskorti, enda er nú svartamarkaðsverð á leiguhúsnæði, fyrirframgreiðsla leigu og aðrir óeðlilegir viðskiptahættir í húsnæðismálum aftur farnir að færast í aukana.
Sláandi er líka þróunin um byggingu verkamannabústaða seinustu árin. Á árunum 1957–59 voru veitt lán til 260 íbúða í verkamannabústöðum víðs vegar um land, en á árinu 1960 voru veitt lán til 8 íbúða í verkamannabústöðum og á árinu 1961 14 lán. Hví sagði formaður byggingarsjóðs verkamanna, Eggert G. Þorsteinsson, ekki frá þessari þróun, svo blómleg sem hún er? Starfsemi byggingarsjóðs verkamanna má því heita stöðvuð, siðan hin lamandi hönd núverandi stjórnarflokka lagðist yfir athafnalíf landsmanna.
Mig stórfurðar á gumi hv. þm. af endurskoðun laganna um húsnæðismálastofnun ríkisins og laganna um verkamannabústaði. Það er einhver vesælasta endurskoðun laga, sem um getur. í lögunum um húsnæðismálastjórn er tölunni 100 á tveim stöðum breytt í 150, án þess að það hafi hina minnstu praktíska þýðingu. Einum íhaldsmanni er bætt inn í stjórnina og kjörtímabilið er lengt um eitt ár. Tekjur stofnunarinnar eru hins vegar ekki auknar um einn einasta eyri. Annars hafa verkamenn aðallega lagt þessari stofnun til starfsfé úr atvinnuleysistryggingunum nú seinustu árin. Aðalbreytingin á verkamannabústaðalögunum er sú að hækka framlög ríkisins og sveitarfélaganna að krónutölu, þannig að verðgildi þeirra framlaga beggja verði svipað og í upphafi var ákveðið. Lögfest er, að lána megi allt að 90% af byggingarkostnaðinum, en það ákvæði er gert að engu með miklu lægra lánahámarki, enda engin tekjuöflun tryggð.
Þá kem ég að launamálunum. Það er engu líkara en núverandi hæstv. ríkisstj. hafi litið á það sem sína æðstu köllun að vera í látlausu stríði við allar launastéttir landsins. Það er síður en svo, að hún hafi látið sér nægja að berjast við verkalýð landsins og verkalýðssamtökin. Það mun hún þó telja heilagt stríð, því að það telur stjórnin og málgagn hennar alltaf vera stríð við kommúnismann. Nei, sá herskapur hefur henni ekki nægt: Hún hefur í fleiri horn að líta.
Frægt er orðið stríð ríkisstj. við kennarastéttina. Hún hefur lengst af verið lágt launuð stétt, en eftir tvær gengislækkanir var bókstaflega ólíft af kennaralaununum. En ekki vildi ríkisstj. láta sem hún sæi það. Menn hurfu úr stéttinni til hvers konar annarra starfa. Fáir nýir bættust við. Við marga stærri skóla var aðeins hálft kennaralið. Draga varð úr lögboðinni kennslu. Við marga smærri skóla var enginn kennari með kennaramenntun. Fullt útlit var fyrir, að kennarastéttin væri að hverfa vegna óviðunandi lífskjara. En það sá ríkisstj. Íslands ekki. Hún neitaði öllum launabótakröfum kennara. Og nú hefur til tíðinda dregið á þessum vígstöðvum. Kennarastéttin missti loks þolinmæðina, lét sér ekki lengur nægja loðin svör, undanbrögð og flækjur, vilyrði né loforð, sem alltaf voru svikin. Kennarar við framhaldsskólana ákváðu að segja upp stöðum sínum frá skólaársbyrjun næsta haust. Á skömmum tíma höfðu um 90 af hverju hundraði sagt upp starfi. Hið sama gerðu barnakennarar og með sama árangri. 90% þeirra ákváðu að segja embættunum lausum. Þá fyrst vottaði fyrir skilningsglætu hjá hæstv. ríkisstj. Hún skynjaði, að það yrði engin kennarastétt til að hausti. Og nú fyrir fáum dögum voru forustumenn kennarasamtakanna kvaddir á fund menntmrh. og þeim tilkynnt 9–11% kauphækkun, sem taki gildi 7 mánuði aftur fyrir sig, eða frá 1. okt. s.1., aðeins ef þeir taki nú uppsagnirnar aftur. Samkvæmt þessu tilboði hækka árslaun barnakennara um 9% eða um 6300 kr. á ári, árslaun framhaldsskólakennara um 9.5% eða 7500 kr. og árslaun menntaskólakennara um 11% eða 9500 kr. á ári. En þetta má bara ekki heita kauphækkun. Menntmrh. tilkynnti í útvarpinu í fyrrakvöld, að þetta væri greiðsla fyrir 4 aukatíma á viku vegna aukins undirbúnings við kennslu og vegna breyttrar vinnutilhögunar. Það má nefnilega heita allt annað en kauphækkun. Á liðnu ári fengu kennarar 13.8% kauphækkun, eins og aðrir opinberir starfsmenn, og frá 1, júní í sumar fá þeir hina almennu 4% hækkun, sem var árangur af verkföllunum s.l. sumar. Kennarastéttin hefur sýnt samheldni, sem er til mikillar fyrirmyndar öðrum stéttum. Hún hefur sigrað ríkisstj., og þegar stíflan sprakk, lá við sjálft, að ráðherrarnir yrðu undir flaumnum.
Barátta ríkisstj. við verkfræðingana er líka stórmerkileg. Þeir undu ekki launakjörum sinum og fengu enga lagfæringu. Þá leituðu ýmsir þeirra margfalt betri launakjara erlendis og flýðu land. Aðrir vildu þó umfram allt þrauka og vinna landi sínu og þjóð, ef nokkur kostur væri. Þeir beittu nú samtakamætti stéttarfélags síns og fóru í verkfall. Einkaatvinnureksturinn gekk að kröfum þeirra, en ríkisstj. sat við sinn keip og missti flesta verkfræðingana úr þjónustu sinni. Er svo var komið, aflýstu verkfræðingarnir verkfalli sínu, en auglýstu taxta í samræmi við kröfur sínar. Þannig hefur ríkisstj. komizt hjá því í orði að samþykkja nokkra kauphækkun til verkfræðinga, en borgar bara akkorðstaxta þeirra eftir þeirra eigin ákvörðun og álag á hann, þegar samið er við verktakafyrirtæki, sem ráðið hefur verkfræðinga í þjónustu sína samkv. þeirra kröfum.
S.l. sumar var ríkisstj, í hörðu stríði við læknastétt landsins. Þeir töldu laun sín, eins og aðrir, orðin óþolandi eftir gengisfellingarnar. Tugum saman höfðu þeir leitað sér atvinnu erlendis, flúið land vegna ástandsins í launamálunum. Þegar öll almenn læknaþjónusta var að stöðvast, var tvívegis gert bráðabirgðasamkomulag við læknana. Og síðan hefur ríkisstj. fengið afgreidd tvenn lög á Alþingi til launabóta fyrir lækna. Og nú er risinn harður slagur milli ríkisstj. og náttúrufræðinga og þarf enginn að efa, hvernig honum lyktar.
En ríkisstj. Íslands segir það vera eina sinna höfuðdyggða að vera stefnuföst. Hún stagast enn á þessu sama: Kaup má ekki hækka. En þó er engu líkara en einnig á þessu sviði slái út í fyrir henni við og við. Fyrir fáum dögum var t.d. frv. um hæstarétt til umr. á Alþingi. Þá ber einn þm. fram till. um nauðsyn þess að hækka laun hæstaréttardómara. Og þá stóð ekki á því, þá reis upp hæstv. dómsmrh. Bjarni Benediktsson, þakkaði þessa þörfu ábendingu og lýsti hátíðlega yfir, að hér þyrfti úr að bæta, því að hæstaréttardómarar væru mjög lágt launaðir.
En víkjum aftur að stríði ríkisstj. við almennu launastéttirnar. Landssamtök opinberra starfsmanna — Bandalag starfsmanna ríkis og bæja — hafa háð harða og þrautseiga baráttu fyrir bættum launakjörum sinna meðlima. En ríkisstj. hefur þverlega synjað um allar lagfæringar, nema hvað þeim var veitt 13.8% kauphækkun s.l. sumar, eftir að verkalýðsfélögin knúðu fram sína nýju kaupgjaldssamninga. Laun opinberra starfsmanna eru sem kunnugt er ákveðin með lögum — launalögunum — og hafa opinberir starfsmenn því hvorki samningsrétt um kjör sín né heldur verkfallsrétt. Hafa þeir hvors tveggja krafizt og háð langa og harða baráttu fyrir þessum réttindum. Loksins nú undir þinglok guggnaði ríkisstj. fyrir samtökum opinberra starfsmanna. Nú skulu þeir fá samningsrétt sinn viðurkenndan, en verkfallsréttinn fá þeir ekki. Fyrst um sinn verða þeir þó að sætta sig við gerðardóm, er skeri úr um launamál þeirra, ef samningar takast ekki, og eru slíkt miklir afarkostir. En athygli vekur það atriði í frv. um kjarasamninga opinberra starfsmanna, að launakjör ráðherra og hæstaréttardómara lúta ekki sáttameðferð eða samningum, heldur skulu þau ákveðin af kjaradómi, en í honum eru fjórir af fimm tilnefndir af ráðherra og hæstarétti. Ráðherrar og hæstaréttardómarar fá því einir manna sjálfdæmi um sín launamál. Þetta er anzi frjálslegt fyrirkomulag. Það svarar til þess, að Alþýðusambandið verði leyst frá öllu samningastússi við atvinnurekendur, en fengi að tilnefna 4 menn af 5 í dómnefnd til þess að ákveða verkafólki kaup hverju sinni. Það er ekki alveg sama, hvort maður heitir bara Jón eða séra Jón.
Samkv. frv. um samningsrétt opinberra starfsmanna eiga opinberir starfsmenn ekki að fá sinn kjarasamning fyrr en á miðju næsta ári, rétt eftir næstu alþingiskosningar. Þetta gæti fljótt á litið þýtt það, að opinberir starfsmenn hafi unnið það til samningsréttarins að bíða enn rúmt ár eftir launahækkun. Það hefðu þeir þó naumast séð sér fært, eins og launamálum þeirra flestra er nú komið, enda er það ekki svo. Aftan við frv. er nefnilega bráðabirgðaákvæði, og þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Nú verða almennar og verulegar kauphækkanir, þar til kjaraákvæði samkv. lögum þessum koma til framkvæmda, og getur Bandalag starfsmanna ríkis og bæja þá krafizt launahækkunar ríkisstarfsmanna í heild.“
Og hver efast um það stundinni lengur, að almennar og verulegar kauphækkanir verði fljótlega og opinberir starfsmenn öðlist þannig rétt til launabóta samkv. lögum sjálfrar kaupníðsluríkisstj.?
Af þessu, sem nú hefur verið sagt, er fullljóst, að botninn er gersamlega dottinn úr launamálapólitík ríkisstj. Hún er á öllum sviðum á undanhaldi, enda eru tvennar gengislækkanir óframkvæmanlegar, án þess að allt kaupgjald hækki í hlutfalli við þá dýrtíðaraukningu, sem ávallt fylgir í kjölfar gengisfalls.
Þessu næst skal vikið að orustu ríkisstj. við almenning. Eftir lögskipaða kauplækkun Emils Jónssonar 1959 og gengislækkun hans og Ólafs Thors 1960 sýndi verkalýðshreyfingin mikla þolinmæði, svo að árangur efnahagsaðgerða þeirra fengi að koma sem bezt í ljós. Mánuðum saman var reynt að semja við ríkisstj. um ráðstafanir til aukins kaupmáttar án kauphækkana. En sá tími fór til einskis. Öllum kauphækkunarkröfum var hafnað. Þegar út í verkföll var komið, leystu samvinnuhreyfingin og verkalýðshreyfingin mikinn vanda þjóðfélagsins með mjög hófsamlegum samningum, sem gátu tryggt vinnufrið í tvö ár. Við þá samninga fékk verkafólk bættan tæpan helming þeirrar kjaraskerðingar, sem það hafði orðið að þola. Kaupgjaldið náði því ekki að vera jafnhátt að krónutölu og það var haustið 1958. Kaupmáttur tímakaupsins, sem var 104 í des. 1958, var kominn ofan í 84, þegar verkalýðsfélögin létu til skarar skríða, og hann komst aðeins upp í 94 við samningana s.l. sumar. Nú er hann aftur kominn niður í 83. Varnarbaráttu verkalýðssamtakanna svaraði ríkisstj. með nýrri gengislækkun, en hún hefur af lærðustu þjóðréttarfræðingum sem öðrum verið talin skýlaust stjórnarskrárbrot, enda líka sannað með tölum, að hún studdist við engin efnahagsleg rök í mesta aflaári, sem yfir landið hefur komið, og við hækkandi afurðaverð. Hún var hefndarráðstöfun framin í heiftaræði þeirra manna, sem vildu, en gátu ekki komið í veg fyrir umsamda kauphækkun hinna lægst launuðu í landinu.
Ýmsir hafa álasað verkalýðssamtökunum fyrir að svara ekki ofbeldisverknaði ríkisstj. þegar í stað með víðtæku verkfalli. Vel má vera, að þessi gagnrýni sé réttmæt. Núv. ríkisstj. tekur nefnilega engin sanngirnistillit, hún virðir valdið eitt. En verkalýðshreyfingin er lýðræðisleg í öllu sínu starfi. Fjölmenn ráðstefna forustumanna verkalýðsfélaganna var kölluð saman, og hún var einhuga um þá kröfu sem algert lágmark að krefjast sama kaupmáttar vinnulauna og fengizt hafði í samningunum í júní s.l. Um þessar mundir hófu stjórnarblöðin magnaðan samsöng um, að verkafólkið ætti að tryggja sér aukinn kaupmátt án beinna kauphækkana. „Kjarabætur án kauphækkana og án verkfalla“, var kjörorðið, eins og oft áður. Enn vildi forusta Alþýðusambandsins sannprófa, hver alvara væri að baki þessum stjórnarboðskap. Hún kaus viðræðunefnd við ríkisstj. og lagði fyrir hana svo hljóðandi tillögur um kjarabætur án beinna kauphækkana:
1) Allir innlánsvextir lækki a.m.k. í það, sem þeir voru í árslok 1959, og verði jafnframt tryggt, að vaxtalækkun til atvinnuveganna komi öll fram í hækkuðum launum.
2) Söluskattar og tollar verði felldir niður á öllum nauðsynjavörum og ríkinu í staðinn tryggðar auknar tekjur með fullkomnara skattaeftirliti. Skattar og útsvör verði innheimt hjá launþegum jafnóðum og tekjur falla til.
3) Niðurgreiðslur á aðalnauðsynjavörum almennings verði eigi rýrðar frá því, sem nú er. 4) Aðflutningsgjöld og vátryggingargjöld verði lækkuð og tryggt, að sú lækkun komi öll fram í lækkuðu vöruverði.
5) Numið verði úr gildi bann við greiðslu verðlagsbóta á laun og tryggt, að samningsfrelsi og sjálfsákvörðunarréttur verkalýðsfélaganna verði ekki skertur.
6) 8 stunda vinnutími verði lögfestur sem hámarksvinnutími í þeim atvinnugreinum, sem slíkt þykri fært, og yfirvinna takmörkuð sem allra mest að öðru leyti, allt án skerðingar heildarlauna. Jafnframt verði yfirvinna barna og unglinga innan 16 ára umfram 8 stundir á dag bönnuð með öllu.
7) Að lokum var sú krafa borin fram við ríkisstj., að hún tryggði varanleik þeirra kjarabóta, sem samkomulag kynni þannig að nást um.
Enn fremur var það tekið fram af Alþýðusambandsins hendi, að þessar kröfur, ef þær yrðu framkvæmdar, væru metnar til jafns við beinar kauphækkanir og tekið yrði til gaumgæfilegrar athugunar, hvort ekki væri hægt, ef kröfunum væri fullnægt, að falla frá kauphækkunum fram til 1. júní 1962, er 4% kauphækkun á að koma til framkvæmda.
Hér var, eins og menn heyra, lögð aðaláherzla á almenna lækkun vaxta og lækkun söluskatta af nauðsynjum fólksins, lækkun vátryggingargjalda og aðflutningsgjalda, með það fyrir augum að lækka vöruverð og draga úr dýrtíð. Einnig var lögð mikil áherzla á styttingu vinnudagsins og takmörkun yfirvinnu og önnur menningarlega þýðingarmikil atriði. Þá var lýst yfir, að slíkar aðgerðir ríkisstj. yrðu metnar sem beinar kauphækkanir, og ef þeim yrði fullnægt, skyldi jafnvel fallið frá öllum kauphækkunum fram til 1. júní 1962, þegar 4% kauphækkunin kemur til framkvæmda. Einnig var óskað eftir hvers konar till. frá ríkisstj. sjálfri, sem launþegum mættu verða til kjarabóta og aukins kaupmáttar. Slíkar till. komu þó engar fram. Þessar viðræður hafa nú staðið fulla fjóra mánuði og lauk með bréfi forsrh. 10. þ.m. Þar segir forsrh., að till. um að ná kjarabótum hér á landi með lækkuðu vöruverði séu ekki raunhæfar, hér verði að fara kauphækkunarleiðina. Orð forsrh. um þetta voru svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Þá ítrekar ríkisstj., að hún telur rétt, að laun þeirra verkamanna, sem lægst eru launaðir, verði hækkuð, svo framarlega sem þetta getur átt sér stað, án þess að það hafi í för með sér hækkun annarra launa. Ríkisstj. er fús til þess að mæla með slíkri hækkun við samtök atvinnurekenda.“
Seinustu orð forsrh. eru sem sé þau, að ríkisstj. telji rétt, að kaup lægst launaðra verkamanna verði hækkað, og hann býðst til að mæla með slíkri hækkun við samtök atvinnurekenda, og það hefur hann væntanlega gert nú þegar. Þetta er þá útkoman af fjögurra mánaða viðræðum við ríkisstj.
Auðvitað var ekki minnsta vitglóra í því að ætla að standa gegn kauphækkun verkamanna eftir allt það, sem nú hefur gerzt. Enn betur visar það svo veginn, að hægt er nú að upplýsa, að ekki alls fyrir löngu sömdu nokkur stéttarfélög, þ. á m. Flugvirkjafélag Íslands og Félag íslenzkra atvinnuflugmanna, um allgóðar kauphækkanir og ýmsar kjarabætur aðrar. Samningsaðili gagnvart þessum félögum var Örn Johnson, en hann er jafnframt í stjórn Vinnuveitendasambands Íslands. Mun þar einnig hafa notið við öðlingsins Guðmundar Vilhjálmssonar, sem fram að Þessu hefur verið í stjórn Flugfélags Íslands og einnig verið varaformaður Vinnuveitendasambandsins. Hér fer því ekkert á milli mála, hægri höndin hlýtur að vita, hvað sú vinstri gerir. Þarf því ekki framar neinna vitna við. Sú óviturlega og mannúðarlausa stefna ríkisstj. að ætla að halda óbreyttu, já, lækkuðu kaupi þrátt fyrir tvennar gengislækkanir, er molnuð niður, allt viðnám komið á ringulreið. Stríð ríkisstj. við allar launastéttir þjóðfélagsins er tapað stríð. Verkamenn gerðu hóflegustu kröfur um kauphækkanir. Allar þær kjarabætur, sem þeir fengu s.l. sumar, hafa verið teknar aftur. Hver getur þá ætlazt til þess, að þeir einir búi áfram við óbreytt kaup. Þess getur víst enginn ætlazt til.
Verkalýðsfélögin hefja nú þegar — það er ég alveg viss um — samningaviðræður við atvinnurekendur. Lágmarkskrafan er: Ekki minni kaupmátt launa en í fyrra, þegar upp var staðið frá samningum. — Slík sanngirniskrafa á, eins og nú standa sakir, að fást, án þess að til verkfalla þurfi að koma. En sé henni neitað, hljóta verkalýðsfélögin að taka upp þann hátt, þar sem það á við, að skrá kaupið sjálf, og það er okkur miklu léttara í vöfum og á allan hátt auðveldara en ríkisvaldinu er að skrá gengið, þó að því dytti enn í hug að halda lengra áfram á þeirri vitfirrtu braut. Dagsbrún hefur þegar haldið trúnaðarmannaráðsfund og heldur félagsfund á sunnudaginn. Félag járniðnaðarmanna í Reykjavík hefur þegar hafið samningaviðræður við viðsemjendur sina. Nú eru allir frestir liðnir. Þróun mála liggur ljóst fyrir, og atvinnurekendur hafa fengið góðan umhugsunartíma. Launakjör verkafólks verða að breytast og batna í þessum og næsta mánuði. Gerið ykkur ljóst, verkamenn, að nú er kominn tími til að setja hnefann í borðið, eins og kennararnir gerðu, ef samningar fást ekki um sanngjarna kauphækkun.
Því miður er það staðreynd, að ágengni og óskammfeilni í garð verkalýðssamtakanna af hendi einstakra atvinnurekenda, sem treysta á ríkisvaldið á bak við sig, hefur um áratugi ekki verið neitt þvílíkt sem nú. Datt mönnum yfirleitt í hug, að slík fruntaárás sem nú hefur verið gerð á togaravökulögin væri hugsanleg? Ég held ekki. En fleira er þó á seyði. Síldveiðarnar á liðnu ári gáfu mörgum sjómönnum miklar tekjur, háa hluti — og þetta má auðvitað ekki endurtaka sig. Nú hafa útgerðarmenn um land allt sagt upp síldveiðisamningunum í þeim ákveðna tilgangi að rýra kjör sjómanna. Þeir hafa bundið flesta útgerðarmenn á einn streng, til þess að tryggja árangur atlögunnar, með því að láta þá hvern um sig skrifa upp á 300 þús. kr. tryggingarvíxil til tryggingar því, að þeir skerist ekki úr leik, þegar á herðir. Það er því mikið í húfi um, að sjómenn standi vel saman og láti ekki þrengja kjör sín um sanngirni fram.
Togaraverkfallið er þó ein áþreifanlegasta sönnun um viðhorfið til vinnandi fólks og gjaldþrots stjórnarstefnunnar. Tvær gengislækkanir hafa verið framkvæmdar til þess, eins og sagt er, að útgerðin gæti staðið á eigin fótum, án uppbóta og styrkja. Kjarasamningar sjómanna hafa verið óbreyttir frá því fyrir báðar gengislækkanir, svo að ekki hefur útgjaldaauki af þeim sökum orðið útgerðinni að falli. Togaraútgerðin væri sokkin djúpt í efnahagslega vesöld, þó að allir sjómenn hefðu unnið þar ókeypis. Og nú gefur á að líta ávöxt viðreisnarinnar. Stærstu atvinnutæki þjóðarinnar, 30 togarar, liggja í Reykjavíkurhöfn, hafa gert hana að kirkjugarði skipa. 5 togarar liggja við bryggju norður á Akureyri, svipuð tala í Hafnarfirði, rétt fram undan heimili sjútvmrh. Og svo er einn íslenzkur togari að sveima sem fyrirlitlegur verkfallsbrjótur við strendur Þýzkalands.
Er þetta allt ekki fullnægjandi sönnun þess, að viðreisnin gangi vel, efnahagsvandræðin séu komin í fastan farveg, eins og einn af snillingum stjórnarinnar orðaði það, og gangi bara ljómandi vel? Eða hver vefengir annars þetta sem talandi sönnun um fyrirmyndar stjórnarfar í landi voru? Hátt á þriðja ár var daufheyrzt við öllum kröfum togarasjómanna um kjarabætur. Fjárhagsleg aðstoð ríkisstj. við togaraútgerðina er svo öll við Það miðuð nú, að eigendur togaranna geti lækkað eitthvað skuldir sínar við bankana, en alls ekki við hitt, að leysa togaraverkfallið og koma togurunum af stað. 60 millj. verða réttar togaraútgerðinni, að sumu leyti á kostnað bátaflotans, og þó verða togararnir sennilega bundnir áfram. Enginn sér fyrir enda togaraverkfallsins. Sjómannafélag Reykjavikur dró að leggja út í verkfallsaðgerðir eins lengi og unnt var, enda forusta þess skipuð framámönnum beggja stjórnarflokkanna. Má því segja, að nú séu steinarnir farnir að tala, eins og í Biblíunni stendur, og þó öllu heldur að hrópa á viðnám og gagnráðstafanir gegn stjórnarstefnunni, eins og hún hefur verið til þessa í kjaramálum vinnandi fólks á sjó og landi.
Góðir hlustendur. Ég skírskota til reynslu launastéttanna af núv. stjórnarstefnu. Mér finnst það með ólíkindum, ef stjórnarflokkarnir, Sjálfstfl. og Alþfl., hafa skapað sér traust hjá launastéttunum með styrjöld þeirri, er þeir hafa háð gegn þeim öllum. Og aldrei mega launþegar láta hræða sig til undanhalds. Íslendingar, veitið þeim flokkum, sem þrengt hafa landhelgina og vinna nú ákaft að því að smeygja Íslandi inn í Efnahagsbandalag Evrópu, hvorki stuðning í sveitarstjórnarkosningum þeim, sem nú fara í hönd, né heldur til að fara áfram með ríkisvaldið. Núv. ríkisstj. hefur markvisst starfað að því að byggja upp þjóðfélag misréttis og ranglætis, suðs á höndum fárra og fátæktar sem hlutskiptis fjöldans. Og þetta hefur ekki verið gert af neinum óvitaskap. Fyrirgefið þeim því ekki, því að þeir vita vei, hvað þeir eru að gera.