13.04.1962
Sameinað þing: 55. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2692 í B-deild Alþingistíðinda. (2400)
Almennar stjórnmálaumræður
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það er áberandi í þessum umr., að talsmenn ríkisstj. telja það sérstakt atriði til að státa af, að ekki skuli vera skollið á almennt atvinnuleysi í landinu. En þeir eiga erfitt með að færa nokkuð það fram, sem megi réttlæta það, að mikil atvinna í landinu nú stafi frá ráðstöfunum viðreisnarstjórnarinnar. Eins og áður hefur verið bent á hér í þessum umr., verður því ekki neitað, að sá mikli afli, sem dreginn hefur verið á land á s.l. ári, og sú mikla atvinna, sem verið hefur í landinu, hefur byggzt á ráðstöfunum, sem gerðar voru í atvinnumálum þjóðarinnar, áður en viðreisnarstefnan tók við. Eða hvaða ný framleiðslutæki hafa verið keypt til landsins vegna forgöngu viðreisnarstefnunnar? Hvaða ný orkuver hafa verið byggð á landinu, síðan viðreisnarstjórnin tók við völdum? Hvernig stendur á því, að þessi nýju framleiðslutæki eru ekki nefnd? Nú hefur tekizt, segir hæstv. dómsmrh., að búa svo í haginn fyrir atvinnuvegi landsins, að búast má við aukinni framleiðslu. Það er annað en var á tímum vinstri stjórnarinnar 1958. —Já, gerum örlítinn samanburð á ástandinu í atvinnumálum nú og var 1958. S.l. ár lá í höfn óstarfræktur um þriðji hluti togaraflotans á Íslandi. Nú liggur allur togaraflotinn í verkföllum. Á s.l. ári lá nær allur bátaflotinn í janúarmánuði óstarfræktur vegna þess, að útgerðarmenn bátanna neituðu að stunda sjóróðra vegna deilna við ríkisvaldið, og mikill hluti bátaflotans var óstarfræktur einnig í febrúarmánuði, og svo komu til mánaðarverkföll á miðju sumri í mörgum bæjum landsins. Og nú sjá allir, að við blasa almenn verkföll, ef ríkisstj. vili ekki láta af kaupníðslustefnu sinni. En hvernig var þetta 1958? Þá var allur togarafloti landsmanna gerður út allt árið. Þá stanzaði bátafloti landsmanna aldrei einn einasta dag. Þá stóð aldrei á samningum, hvorki á milli sjómanna og útgerðarmanna né á milli útgerðarmanna og ríkisstj. Þá voru atvinnutæki landsins nýtt til fullnustu.
Hv. þm. Alþfl., Birgir Finnsson, sagði hér áðan, að Hannibal Valdimarsson hefði hreint ekkert gert í húsnæðismálunum, þegar hann hefði verið ráðherra þeirra mála í vinstri stjórninni. Á þeim tíma voru lögin um byggingarsjóð ríkisins sett, og þá voru þeim sjóði skapaðar sérstakar tekjur, þær einu tekjur, sem sá sjóður býr við í dag. Og þá voru þeim sjóði einnig ætlaðar meiri tekjur en hann meira að segja býr við nú í dag. Þá var ákveðið með lögum, að 2/3 hlutar stóreignaskattsins, sem lagður hafði verið á, skyldu renna til byggingarsjóðs ríkisins og ganga til útlána til þeirra, sem réðust í byggingar íbúðarhúsa. En hvernig hefur farið með framkvæmd þessara mála í tíð núv. ríkisstj., þeirrar sem Alþfl.- maðurinn Birgir Finnsson styður? Stóreignaskatturinn hefur verið tekinn af byggingarsjóði, og það vantar gersamlega þær tekjur til sjóðsins til útlána, sem þar hafði verið gert ráð fyrir. Á tímum vinstri stj. hafði byggingarsjóður verkamanna mikla starfsemi með höndum. Þá var lánað út á vegum þess sjóðs nokkuð á þriðja hundrað lána. En hvernig hefur þessu verið varið nú tvö s.l. ár, í tíð viðreisnarstjórnarinnar? Annað árið voru veitt aðeins 8 lán en hitt árið 14 lán.
Þessi hv. þm., Birgir Finnsson, vék hér að landhelgismálinu. Hann taldi, að gerður hefði verið samningur við Breta og aðrar þjóðir um viðurkenningu á 12 mílna landhelgi. Jú, það er rétt, að svo hét sá samningur, þegar hann birtist hér á Alþingi, að hann væri um viðurkenningu Breta á 12 mílna landhelgi við Ísland. En samningurinn var ekki um það. Hann var um það að hleypa brezkum togurum inn í fiskveiðilandhelgina upp að 6 mílum og heimila þeim veiðar þar í næstu þrjú ár á miðum bátanna. Og það var m.a. Alþýðuflokksmaðurinn Birgir Finnsson, sem samþykkti slíka aðgerð.
Þessi hv. þm. sagði, að kauphækkanirnar á s.l. sumri hefðu verið ótímabærar. Honum fannst það ótímabært, að verkamenn fengju 10—12% kauphækkun, eftir að stjórn Alþfl. hafði fyrst með stuðningi Sjálfstfl. á árinu 1959 lækkað kaup með lögum um 5.4%, síðan lækkað gengið með viðreisnarlöggjöfinni í febr. 1960 og komið kaupmætti tímakaupsins úr 99 stigum niður í 83 stig eða lækkað kaupmáttinn um 16%. Þegar þannig var búið með stjórnarráðstöfunum að lækka kaupmátt launanna um yfir 20%, þótti þessum hv. þm. það ótímabært, að launasamtökin í landinu leituðu eftir nokkurri kauphækkun.
Hér hefur í umr. í kvöld lítillega verið minnzt á Efnahagsbandalag Evrópu og hugsanlega þátttöku Íslands í því bandalagi. Hæstv. viðskmrh. vék nokkuð í ræðu sinni að þessu máli. En hver var afstaða hæstv. ráðh. til hugsanlegrar inngöngu Íslands í það bandalag? Veit nokkur um afstöðu hans? Hann sagði að vísu, að ef Íslendingar gætu fengið í Efnahagsbandalagi Evrópu að njóta allra fríðinda án þess að taka á sig nokkrar skuldbindingar, mundu menn hugsa sig um að ganga í bandalagið. Nei, það er ekki . þannig, sem þau mál liggja fyrir. Spurningin er: Eigum við að ganga í Efnahagsbandalag Evrópu og afsala okkur réttindum yfir íslenzkum málefnum, afsala raunverulega fullveldi landsins? Um það er spurningin, og það er við því, sem þurfti að fá svar. Það liggur ljóst fyrir, að stjórnarflokkarnir hafa á s.l. ári mjög unnið að því að undirbúa inngöngu Íslands í Efnahagsbandalagið. Þeir hafa dulið fyrir þjóðinni þær hættur, sem felast í slíkri þátttöku. En þeir hafa miskunnarlaust beitt blaðakosti sínum til að fegra þetta bandalag og telja fólki trú um, að okkur væri nauðugur einn kostur að ganga í það. Sú hætta vofir sannarlega yfir, að núv. stjórnarflokkar reyni að koma íslenzku þjóðinni á einn eða annan hátt inn í bandalagið, því að enn er afstaða þeirra þannig, að þeir læðast með löndum og vilja ekki gefa upp sína réttu stefnu.
Umr. þessar eru nú að komast á lokastigið. Ég ætla, að þær hafi glögglega leitt í ljós, hvernig meginlínurnar í íslenzkum stjórnmálum liggja í dag. Annars vegar er hægri stefna núv. ríkisstj., sem er í öllum höfuðatriðum mótuð af forustuliði Sjálfstfl. Hins vegar er sú vinstri stefna, sem við stjórnarandstæðingar erum sammála um í ýmsum veigamiklum atriðum. Stefna ríkisstj. er greinilega stefna hinna ríku í þjóðfélaginu, þeirra, sem vilja láta afskrifa skuldir sínar við banka þjóðarinnar með endurteknum gengislækkunum, og þeirra, sem heimta aukið frjálsræði um verzlunarálagningu og lækkun skatta á félögum og eignamönnum. Stefna ríkisstj. hefur ljóslega komið fram í því að auka söluskatta og tolla á almennum nauðsynjum, en lækka jafnframt beina skatta hátekjumanna og gróðafélaga. Stefna ríkisstj. hefur leitt til samdráttar í atvinnulegri uppbyggingu í landinu. Hún hefur leitt til stöðvunar í framleiðslu. Hún hefur leitt til skertra lífskjara bænda, sjómanna og verkamanna. Og hún hefur leitt til undanhalds í sjálfstæðismálum þjóðarinnar og varðandi erlendra áhrifa í atvinnu- og menningarmálum. Það er þessi undanlátssemi við hið erlenda vald, sem leiddi til svikanna í landhelgismálinu og til hermannasjónvarpsins, sem heimilað hefur verið.
Í dag er sá háski mestur í íslenzkum þjóðmálum, að ríkisstj. svíki þjóðina á einn eða annan hátt inn í Efnahagsbandalag Evrópu. Auðvitað yrði ákvörðun um slíkt tekin undir yfirskini þess, að verið væri að bjarga hagsmunum þjóðarinnar. Frá hinu yrði ekki sagt, að verið væri með þátttöku í bandalaginu að glata Íslenzku sjálfstæði. Frá því yrði ekki greint, að með aðild að bandalaginu mundi Ísland ekki eitt ráða lengur sínum efnahagsmálum, stefnunni í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum, og ekki heldur frá því, að erlendir aðilar fengju þá hér á landi sama rétt og landsmenn sjálfir til hvers konar starfsemi.
Þeir tveir flokkar, sem saman skapa hér á Alþingi stjórnarandstöðuna, eru auðvitað ekki sammála í öllum málum. En þeir hafa sýnt með afstöðu sinni á Alþingi að undanförnu, að þeir eru sammála um mörg stórmál. Þeir ættu því að geta staðið saman um að hnekkja valdi núv. ríkisstj. Þeir ættu t.d. að vera sammála um eftirfarandi meginatriði:
1) Að hækka kaup launþega, bænda og sjómanna a.m.k. til jafns við það, sem raunverulegur kaupmáttur launa var fyrir gengisfellinguna s.l. sumar.
2) Að lækka vexti almennt og þó sérstaklega á íbúðalánum og lánum til framleiðsluatvinnuveganna.
3) Að stórauka stuðning við íbúðabyggjendur.
4) Að hefja að nýju atvinnulega uppbyggingu um land allt og treysta í þeim efnum fyrst og fremst á aðalatvinnuvegina: sjávarútveg, landbúnað og iðnað.
5) Að lækka söluskatta og tolla á brýnustu nauðsynjavörum, en standa gegn lækkun skatta á hátekjum og gróðafélögum.
6) Að beita sér fyrir gagnkvæmu samstarfi á milli samtaka bænda og verkamanna annars vegar og ríkisvaldsins hins vegar.
7) Að endurheimta hið fyrsta óskerta 12 mílna fiskveiðilandhelgi.
8) Að standa gegn því, að erlendir aðilar fái atvinnurekstraraðstöðu í landinu.
9) Að vinna að brottför hersins úr landinu.
10) Að standa gegn þátttöku Íslands að Efnahagsbandalagi Evrópu.
Við Alþýðubandalagsmenn teljum höfuðnauðsyn á því, að allir íhaldsandstæðingar sameinist um þessi mál og standi óhikað við stefnu sína. Við vitum, að innan Framsfl. eru skiptar skoðanir til sumra þessara mála og jafnvei þeirra, sem mikilvægust eru. En Framsfl. verður að velja á milli hægri og vinstri. Hann getur ekki staðið hikandi með óljósa stefnu, t.d. varðandi afstöðuna til Efnahagsbandalagsins. Það er auðvitað engin stefna að segjast vilja bíða og athuga málið. Og sá flokkur, sem samþykkt hefur, að hann vilji vinna að því, að herinn fari úr landinu sem fyrst, getur ekki látið þingmenn sina elta Heimdallarstráka íhaldsins á Varðbergsfundum og heimta þar með þeim auknar hervarnir í landinu, enda enginn vafi á því, að mikill hluti framsóknarmanna er andvigur slíku stefnuleysi. Og Framsfl. verður að taka afstöðu milli hægri og vinstri einnig í innanlandsmálunum. Hægri fylkingin er staðreynd, íhaldið ræður þar öllu. Eina ráð vinstri aflanna í landinu er að standa líka saman og reka óhikaða og ákveðna stefnu. Nú eru að hefjast almennar bæjar- og sveitarstjórnarkosningar. Í þeim munu vinstri menn í landinu þjappa sér saman gegn íhaldinu og hafa þegar gert það með mörgum sameiginlegum framboðum víða á landinu. Látum þá samstöðu verða upphaf að almennu samstarfi vinstri manna í landinu til þess að knýja fram breytta stjórnarstefnu landsmönnum til hagsældar. — Góða nótt.