10.11.1961
Neðri deild: 16. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2699 í B-deild Alþingistíðinda. (2405)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Einar Olgeirsson:
Hæstv. forseti. Hæstv. utanrrh, hefur gefið hér upplýsingar, sem eru vissulega þess virði, að Alþingi athugi þær dálítið betur. Það er upplýst hér, að einn embættismaður í ríkisbákninu hafi talað við annan embættismann og síðan hafi þessir embættismenn með samþykki utanrrn, gert ráðstafanir, sem þverbrjóta í bága við öll íslenzk lög og allan þann hátt, sem hér hefur verið hafður á um útvarpsrekstur og annað slíkt fram að þessu. Það er lesið hér upp úr bréfi frá póst- og símamálastjóra, þar sem hann segist mannlega hafa talað við útvarpsstjóra, og í yfirlýsingu hæstv. utanrrh, er þetta látið heita, að póst- og símamálastjóri hafi talað við ríkisútvarpið. Samtímis er það upplýst af þeim. sem sæti eiga í stjórn útvarpsins af hálfu Alþingis og kosnir eru til þess að sjá um það mál allt, að þetta mál hafi aldrei verið borið undir ríkisútvarpið. Framkvæmdastjóri ríkisútvarpsins er ekki ríkisútvarpið, og það er tími til kominn, að embættismenn íslenzka ríkisins átti sig á því, að þeir ráða ekki þeim stofnunum, sem þeir eru yfir, og geta farið með þær rétt eins og það væri þeirra prívateign, þó að það séu slíkar tilhneigingar með sumar stofnanir. Alþ. er þó enn þá til og ekki alveg búið að þurrka það út, og stjórnir, sem Alþingi hefur sett yfir þessar stofnanir, eru yfirstjórnir þeirra og eru sérstaklega til settar, eins og stjórn ríkisútvarnsins, að varðveita lög og rétt í landinu og hlutleysi ríkisútvarpsins, og það er þetta, sem er verið að brjóta með þeim leyfum, sem með aðstoð utanrrn. þarna eru veitt.
Ég vil algerlega mótmæla þeim hætti, sem þarna er hafður á, að einstakir embættismenn taki sér slíkt vald, og ég vil mótmæta því, að utanrrn. aðstoði þá við þetta. Þegar um svona mál er rætt, á að ræða það við þær stjórnir, sem eru yfir viðkomandi greinum íslenska ríkssins. Það er þá póst- og símamálastjóri, og ég trúi því vart, að póst- og símamálastjóri hafi gert svona hluti án þess að ræða þetta við sína ráðherra. Og sömuleiðis á að vera um útvarpsstjóra, hann á að ræða þetta við stjórn útvarpsins, bæði þá þingkjörnu stjórn þess og við sinn ráðherra. Svo framarlega sem embættismenn ríkisins eru farnir að haga sér svona, þá er tími til kominn að láta þá embættismenn fara frá. Það verða að vera einhver takmörk fyrir því, hvaða vald þessir embættismenn taka sér í hendur og hvernig þeir ganga á þann rétt, sem Alþingi og þess stjórnir hafa, og þann rétt, sem þessir stjórnir eiga að hafa lögum samkvæmt. Jafnvel þó að þeir noti stuðning rn. eins og utanrrn. eða ríkisstj. um það, þá er það auðsjáanlega farið að tíðkast fullmikið hér, að farið sé að höggva alloft í þann knérunn að ganga þannig á vald Alþingis og þingkjörinna stjórna í okkar þjóðfélagi.
Viðvíkjandi hins vegar valdi utanrrn. til að samþykkja þetta, — fyrir utan að véfengja vald embættismannanna til þess að gera þetta, sem þeir hafa gert, — þá vil ég líta svo á, að það sé a.m.k. ákaflega mikið spursmál, ég hef ekki það nýlega athugað lagagreinina, að ég þori að fullyrða, en ég álít það vera ákaflega mikið spursmál, hvort hægt er að veita svona leyfi eins og til útvarpsrekstrar á Keflavíkurflugvelli og sjónvarpsrekstrar þar án lagabreytinga, vegna þess að með lögum hefur ríkisútvarpið þennan einkarétt. Og það er ekki þarna um að ræða einhverjar smábátastöðvar eða eitthvað slíkt, sem verið er að reka þar suður í Keflavík. Að svo miklu leyti hins vegar, — um það mætti sem sé deila, þegar lögin væru athuguð betur, hvort þetta er lagabrot eða ekki, en mér er nær að halda það, — að svo miklu leyti hins vegar sem utanrrn. álítur þetta koma undir sitt valdsvið, þá virðast a.m.k. vera tvær nefndir, sem utanrrn. þá ætti að ráðfæra sig við, utanrmn., ef veigamikil atriði er þarna um að ræða, og svo minnir mig hálfpartinn, að það sé alltaf til einhver nefnd. annaðhvort varnarmálanefnd eða — ég veit ekki, hvort hún hefur nokkurn tíma komizt á laggirnar, það var einhver enskur titill á henni, ef ég man rétt, einhver highlevel-nefnd, sem menn voru alltaf í vandræðum með að þýða á rétta íslenzku og voru að lokum víst búnir að þýða sem ,.nefnd ábyrgra manna.“ Ég veit ekki, hvort ábyrgðartilfinningin hjá þeim ábyrgu mönnum hefur verið það mikil, sem í þá nefnd voru settir, að hún hafi nokkurn tíma komið saman. En hvernig sem það kann nú að vera, þá eru a.m.k. ótal nefndir, sem við höfum öðru hverju verið upplýstir um, þm., sem eigi að starfa að því, að þessi samskipti við varnarliðið færu fram með eðlilegum hætti og ekki sé gengið þar á rétt Íslendinga. En ég álít nú, að allur sá rekstur, sem á sér stað á Keflavíkurflugvelli, bæði viðvíkjandi útvarpinu og viðvíkjandi sjónvarpinu, sé bein lögbrot og sé þar að auki alveg óþolandi aðstaða fyrir íslenzkt þjóðfélag.
Í fyrsta lagi er það viðvíkjandi útvarpsrekstrinum. Ég álít, að það hefði fyrir löngu átt að vera búið, ef það leyfi hefur verið veitt, að taka það aftur og láta loka þeirri stöð. sem þar er. Þegar við sköpum hér fyrir rúmum 30 árum ríkisútvarp, ætlumst við til þess, að það sé í fyrsta lagi mikið menningarfyrirbrigði, til þess að efla íslenzka menningu. Og við ætlumst í öðru lagi til þess, að það sé sökum þess gífurlega áróðursmáttar, sem í því felst, þá sé það hlutlaust, þannig að það skýri eðlilega og hlutlaust frá deilumálum, sem uppi eru, og gefi hinum ýmsu skoðunum þar jafnan rétt. Það útvarp, sem rekið er á Keflavíkurflugvelli, er, að því er ég bezt veit og held. — ég hlusta yfirleitt ekki á það, — en eftir því sem ég heyri af útvarpi látið. Þá virðist það vera lítið menningarfyrirbrigði, sízt af öllu fyrir íslenzka menningu, og hafa ekki góð áhrif á okkar sérstöku þjóðmenningu, heldur þvert á móti. Í öðru lagi er það alveg greinilegt, að það útvarp, sem rekið er á Keflavíkurflugvelli, er svo langt frá því að fullnægja þeim kröfum, sem gerðar eru til hlutlauss útvarps, að það er þvert á móti mjög svo hlutdrægt, einhliða áróðursútvarp þess ríkis, sem seilzt hefur til yfirráða hér á Íslandi, reynt að sölsa hér undir sig herstöðvar og hefur sem stendur her í þessu landi. M.ö.o.: þetta er beint árásartæki á almenningsálitið á Íslandi til þess að reyna að breyta því í hag þessa hernámsríkis, sem þarna á hlut að máli og rekur þetta útvarp. M.ö.o.: þetta er beint áróðurstæki í þjónustu framandi valds og brýtur þar með öll þau lög, sem sett hafa verið um útvarpsrekstur á Íslandi. Þess vegna vil ég eindregið mótmæla þessum útvarpsrekstri sem brjótandi í bága við íslenzk lög og allan þann tilgang, sem er með útvarpsrekstri á Íslandi, og enn fremur alveg sérstaklega mótmæla því, að með Þessu er verið að reka beinlínis áróðursútvarp til þess að hafa áhrif á almenningsálit á Íslandi.
Hæstv. utanrrh. gat um það út af því, sem hv. 7. þm. Reykv. sagði hér um, hvort Íslendingar gætu fengið aðstöðu til að ráða um þetta útvarp, og upplýsti, að slík aðstaða hefði verið fyrir hendi, ef menn hefðu viljað nota hana, en menn hefðu ekki kært sig um það. Þar er ég hæstv. utanrrh. algerlega sammála, að það sé rétt, að það hafi ekki verið gert. Þannig skildi ég hans meiningu, fyrst það hefur ekki verið gert. Ég álít það, sem hv. 7. þm. Reykv. stakk upp á, að við Íslendingar ættum að hafa eitthvað með þetta útvarp að gera, vera rangt. Við eigum ekki að koma nærri þessu. Við eigum enga ábyrgð á því að bera. Við eigum þvert á móti að banna, að þetta útvarp sé rekið í okkar landi. Ég get máske skilið það, að út af fyrir sig væru kannske þeir flokkar, sem eru fylgjandi Atlantshafsbandalaginu, hlynntir áróðri Bandaríkjanna fyrir herstöðvum hér á Íslandi og áhrifum á íslenzku þjóðina, þeir væru kannske mjög fylgjandi því að fara að taka þátt í því að reka áróðursútvarp fyrir hernámið á Keflavíkurflugvelli. En ég held, að svo lengi sem slíkt útvarp er rekið, þá er bezt, að Ameríkumenn séu einir um það og beri einir skömmina af því og öllum þeim ómenningarblæ, sem á því er, en að Íslendingar komi þar ekki nærri, og þegar þeir komi þar nærri, þá banni þeir það.
Ég vildi annars leyfa mér að spyrja þá menn, sem hefur dottið í hug, að við Íslendingar færum að taka einhvern þátt í útvarpi á Keflavíkurflugvelli, hvernig hafa þeir hugsað sér þá þátttöku okkar? Ættum við Íslendingar að fara að tala þar á ensku kannske? Venja okkur við herraþjóðarmálið? Eða var meiningin að gera Keflavíkurútvarpið að íslenzku útvarpi, að fara að útvarpa í þágu Bandaríkjamanna á íslenzku frá Keflavíkurflugvelli? Mér er ekki kunnugt um, hvort það er gert núna, en ég hef haft þá hugmynd, að það væri ekki.
Ég held, að það sé tími til kominn að stinga við fæti í þessum efnum. Ég tók eftir því nýlega í ríkisútvarpinu, þegar sagt var frá för forseta lýðveldisins til Kanada, að það hafði einn gamall Vestur-Íslendingur sagt, sem þó talaði ekki íslenzku, að við gætum verið góðir Íslendingar á ensku. Ég hef ekki þá hugmynd, að við getum verið góðir Íslendingar á ensku. Ég held, að það sé bezt fyrir okkur að fara sem fyrst að hindra það útvarp á Keflavíkurflugvelli og sjónvarp, sem er stórskaðlegt íslenzkri þjóðmenningu og íslenzkri tungu, svo að ég tali ekki um áróðurinn, sem í því er, — að hindra, að það sé starfrækt áfram. Og ég vildi eindregið, fyrst þessar umr. urðu hér, skjóta því til hv. þingdeildar og til hæstv. ríkisstj., að þetta mál sé tekið þeim tökum, að jafnt sjónvarpsrekstri sem útvarpsrekstri á Keflavíkurflugvelli sé hætt.