14.11.1961
Efri deild: 15. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2705 í B-deild Alþingistíðinda. (2407)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Forseti (EggÞ):
Varðandi þau orð, sem þm. lét falla í upphafi um boð utanrrh. á þennan þingdeildarfund, þá vildi ég í fullri vinsemd benda honum á, að hann hefur eðlilega samkv. 31. gr. þingskapanna fullan rétt til að bera fram fyrirspurnir á venjulegan hátt, og er ráðh. þá skyldugur til að svara, þó að ég dragi ekki heldur í efa þann rétt, sem hann hefur þegar notað sér hér.
Ég skal bera ráðherra þær niðurstöður í hans ræðu, sem hann lagði mesta áherzlu á.