24.11.1961
Neðri deild: 25. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2710 í B-deild Alþingistíðinda. (2410)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég get ekki annað en látið uppi áhyggjur mínar út af ræðu hv. síðasta ræðumanns, 3. þm. Reykv. Það er sök sér, þó að dagblað í bænum birti að tilefnislausu árás á stjórnmálaandstæðinga, og ættu menn þó að kunna sér það hóf í slíkum árásum að gera þær ekki á þann veg, að þær gætu orðið skaðsamlegar langt fyrir utan íslenzka landsteina, og allra sízt, að þær gætu orðið skaðsamlegar þjóð, sem mjög á í vök að verjast og allir Íslendingar eða a.m.k. flestir óska friðar og frelsis. Það er sök sér, þó að slík árás sé gerð í blöðum að tilefnislausu. Hitt er þeim mun alvarlegra, að jafnmerkur þm. og hv. 3. þm. Reykv. skuli að efni til taka undir þennan gersamlega tilhæfulausa áburð hér í sinni ræðu. Hann hefði orðið maður að meiri, ef hann hefði viðurkennt, að hér væri um gersamlegaástæðulausar getsakir að ræða. En því fór fjarri, að hann viðurkenndi það. Þvert á móti reyndi hann með öllu móti að gefa í skyn, — hann færði ekki rök fyrir, en gefa í skyn, að frásögn Þjóðviljans væri rétt. Þetta er þeim mun vítaverðara og hlýtur að vekja þeim mun meiri áhyggjur hjá öllum góðviljuðum mönnum, þegar það er hugleitt, hvernig á stendur nú fyrir Finnlandi, og enginn hefur ýtarlegar en Þjóðviljinn hér á landi rakið það, að Finnland væri sett í hættu með ágengni Þjóðverja á Norðurlöndum. Nú er þar að vísu um mjög mikið mishermi að ræða. En hitt er rétt, að sovétstjórnin hefur í kröfum sínum gegn Finnum fyrst og fremst stutt þær með því, að Þjóðverjar væru að koma sér upp bækistöðvum á Norðurlöndum. Það getur því naumast verið tilviljun, að Þjóðviljinn skuli einmitt sama daginn og viðræður Kekkonens og Krúsjeffs hefjast birta með sínu stærsta letri og á mest áberandi hátt fregn um það, að Vestur-Þjóðverjar séu í þann veg að fá herstöðvar á Íslandi. Þarna er um að ræða óskiljanlegt frumhlaup, — frumhlaup, sem ég hefði ekki með nokkru móti trúað fyrir fram, að hv. 3. þm. Reykv. gæti verið samþykkur eða gæti haft annað en fulla andúð á. En í staðinn fyrir að firra Finna vandræðum af áburði Þjóðviljans og taka undir neitun utanrrh., þá heldur þessi hv. þm. hér langa ræðu, eins og ég sagði, til þess að gefa í skyn, að áburðurinn væri réttur, og getur þó ekki farið fram hjá hv. þm., hversu alvarlegar afleiðingar slíkur áburður mundi hafa, ef hann væri tekinn alvarlega af valdamönnum Sovétríkjanna. Þá mundi hann verða notaður sem enn ein og e.t.v. úrslitarök fyrir því, að þeir yrðu að fá kröfum sínum gagnvart Finnum framgengt. Þess vegna verður að spyrja hv. þm. að því, og hann verður að svara íslenzku þjóðinni og raunar miklu fleirum: Trúir hann virkilega á, að hér sé satt frá sagt? Og ef svo er: Hvaða rök hefur hann fyrir máli sínu? Eða er hér um beina, skipulagða herferð að ræða, sem íslenzkir menn hafi léð sig til, til þess að svikjast aftan að okkar finnsku bræðraþjóð á hennar neyðarstundu?