24.11.1961
Neðri deild: 25. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2724 í B-deild Alþingistíðinda. (2419)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Lúðvík Jósefsson:

Hæstv. forseti. Ég vil aðeins mótmæla því, að þingmenn séu beittir slíkum rangindum að fá ekki að taka þátt í almennum umr., sem hér eru utan dagskrár. Ég hef aldrei vitað til þess fyrr, að þm. hafi ekki fengið að verða við áskorun ráðh. um að fá að svara, og fyrst ekki einu sinni á að slíta þingfundi nú, heldur taka fyrir annað mál á dagskrá, þá mótmæli ég því, og það er algert gerræði, sem ég hef ekki þekkt hér fyrr í þingsögunni, að þm., sem aðeins hefur talað einu sinni stutt um jafnalvarlegt mál sem þetta, fái ekki að svara eftir sérstakri áskorun ríkisstj. Ég vænti, að hæstv. forseti endurskoði þetta og leyfi mér að tala.