28.03.1962
Sameinað þing: 46. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2728 í B-deild Alþingistíðinda. (2430)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að kveðja mér hljóðs hér utan dagskrár til þess að bera fram fyrirspurn til hæstv. ríkisstj., vegna þess að stórvirkustu atvinnutæki þjóðarinnar eru nú að stöðvast og hafa nú þegar mörg stöðvazt. Þegar svo alvarlegt ástand hefur skapazt, er það of seinvirk leið að bera fram skriflega fsp. samkv. þingsköpum, því að venjulega líður hálfur mánuður, frá því að slíkar fyrirspurnir eru fram bornar og þar til þeim fæst svarað.
Það er ömurlegt ástand, sem nú blasir við mönnum í Reykjavíkurhöfn. Þar liggja nú bundnir 25 togarar við landfestar, og á næstu dögum mun tala þessara fjötruðu fiskiskipa fara yfir 30. Þetta eru atvinnutæki um það bil eitt þúsund sjómanna og enn fleira fólks í landi, ef aflinn er unninn á fiskvinnslustöðvum. Samningafundir milli deiluaðila liggja niðri, og allt virðist vera látið reka á reiðanum um það, hvort nokkur lausn fæst á togaraverkfallinu næstu vikur eða mánuði. Ef verkfallið dregst á langinn, getur svo farið, að yfirmenn skipanna yfirgefi þau ásamt hásetunum, og er þá vandséð, hvað yrði um togaraútgerð hér á landi í næstu framtíð, þó að samningar kynnu að takast um sjálf kjaramálin. Þetta verkfall er skollið á, af því að skotið var skollaeyrum hátt í tvö ár við öllum sanngjörnum kröfum togarasjómanna um bætt kjör. Verkfallið gat engum komið á óvart. Sama óviturlega undanbragðaleiðin í kaupgjalds- og kjaramálum verkafólks er líka að leiða til vinnustöðvana, áður en varir. Vikum saman hafa verkalýðssamtökin beðið eftir svörum ríkisstj. um vaxtalækkanir og aðrar ráðstafanir ríkisvaldsins til aukins kaupmáttar vinnulauna með verðlækkunum. En engin svör hafa fengizt. Og nú er biðtíminn auðvitað liðinn, og þá hljóta hinar lægst launuðu stéttir að fylgja fram kröfum sinum um hækkað kaupgjald. Um önnur úrræði getur naumast verið að ræða. Verkfallahættan vofir því einnig yfir á vinnumarkaðinum í landi.
Það er hárrétt, sem aðalmálgagn stjórnarflokkanna sagði í forustugrein á sunnudaginn var, að „að því verður að vinda bráðan bug að bæta í senn kjör launþega og hag atvinnuveganna. Á þessu má enginn dráttur verða,“ sagði blaðið. Og því spyr ég: Hvað hyggst hæstv. ríkisstj. gera til lausnar togaradeilunni? Það er hennar mest aðkallandi vandamál. Ég trúi því ekki, að hæstv. ríkisstj. hafi ekki gjörhugsað þetta vandamál, og þess vegna tel ég víst, að hún muni vera reiðubúin til að skýra hv. Alþingi frá aðgerðum sínum væntanlegum. Ég get ekki séð, að Alþfl. geti setið áfram í ríkisstj. yfir bundnum togaraflota. Ég fæ ekki séð, að gamall Kveldúlfsforstjóri geti setið sem forsrh. yfir togaraflotanum bundnum, og því síður, að formaður Alþfl. geti setið sem sjútvmrh. yfir fjötruðum togaraflota við bryggjur og sjómönnunum flúnum frá borði vegna óviðunandi lífskjara.