28.03.1962
Sameinað þing: 46. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2728 í B-deild Alþingistíðinda. (2431)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Það er náttúrlega ekkert nýtt í sögunni, þótt átök verði á milli launþega og vinnuveitenda eða sjómanna og togaraeigenda. Slíkt hefur oft komið fyrir áður, og slíkt heldur sjálfsagt áfram að ske, á meðan frjálsir samningar eru við lýði, sem mér skilst að hv. 4. landsk. þm. telji enga ástæðu til að breyta. En átök þessi, sem orðið hafa á undanförnum árum, hafa verið að því leyti öðruvísi en þau átök, sem nú eiga sér stað á milli togarasjómanna og togaraeigenda, að fyrr á árum var þó einhver von um, að úr væri hægt að bæta af eigin fé atvinnurekendanna. Nú liggur sú staðreynd aftur fyrir, að togaraeigendur hafa á undanförnum árum gert út sín skip með halla og miklum halla, — halla, sem er svo mikill, að það hefur orðið að leita aðstoðar ríkisvaldsins til þess að reyna að bæta úr honum. Það liggur þess vegna í augum uppi, að það er ekki auðvelt að uppfylla kröfur togarasjómanna um hækkun, þegar það liggur fyrir, að skipin eru gerð út, hafa verið gerð út og verða væntanlega gerð út áfram með tapi, ef ekki breytist um aflabrögð. Hins vegar hef ég átt tal og það alveg nýlega við bæði fulltrúa sjómanna og fulltrúa togaraeigenda um gang málsins, og ég vænti þess, að haldið verði áfram til hins ýtrasta að reyna að finna lausn. Mér er það ekki síður ljóst en hv. 4. landsk. þm., hvað við liggur, ef togaraútgerðin stöðvast atveg. En hér liggur nú fyrir í Alþingi frv. til laga um nokkra aðstoð við togaraútgerðina í landinu, en þó að hún verði samþykkt, þá nægir hún aðeins til að greiða nokkurn hluta upp í töpin, sem orðið hafa á árunum 1960 og 1961. Málið er þess vegna allmiklu flóknara, en svo. að það sé hægt fyrir togaraeigendur að ganga skilyrðislaust að þeim kröfum, sem gerðar eru. Það verður þá um leið að finna einhverja aðferð til að auka tekjumöguleika þeirra.
Annað og meira hef ég ekki að segja um málið að þessu sinni. Ég vænti, að samningaumleitunum verði haldið áfram, og vonandi tekst að greiða úr því. En ég vil aðeins undirstrika, að lausn þessarar vinnudeilu er kannske erfiðari en lausn nokkurrar annarrar vinnudeilu, sem átt hefur sér stað hér á landi, vegna þess, hve algerlega ómegnugir atvinnurokendurnir og eigendur togaranna eru til að greiða úr þeim kröfum, sem gerðar hafa verið.