07.04.1962
Sameinað þing: 51. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2743 í B-deild Alþingistíðinda. (2464)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Fram. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman til fundar og tekið fyrir bréf Það frá forseta Nd., er áðan var hér upp lesið. Fyrir fundinum lá einnig kjörbréf til handa Guðjóni Jósefssyni bónda á Ásbjarnarstöðum frá yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis vestra.

Nefndin samþykkti að taka kosningu Guðjóns Jósefssonar gilda og mælir með samþykkt kjörbréfsins.