16.12.1961
Sameinað þing: 28. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2743 í B-deild Alþingistíðinda. (2469)
Framkvæmdastjóri Söfnunarsjóðs
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Mér skilst, að það sé talið, af því að hér á að kjósa aðeins einn mann, að þá þurfi það að vera skriflegt kjör. Mig minnir að vísu, að það hafi ekki verið áður, þegar þetta hefur verið gert. Það kann að vera misminni. En ég vildi leyfa mér að beina því til hæstv. forseta, hvort það þá leyfðist ekki að gera uppástungu, og ef það teldist svo, þá vildi ég leyfa mér að leggja til, að frú Gunnlaug Briem yrði kjörin í þetta starf.
Ekki voru aðrir tilnefndir. Samkv. því lýsti forseti yfir, að kjörin væri án atkvgr.:
Gunnlaug Briem.