26.02.1962
Neðri deild: 55. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í C-deild Alþingistíðinda. (2528)

81. mál, húsnæðismálastofnun

Fram. minni hl. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Snemma í haust tók Ingi R. Helgason sæti á þingi vegna fjarveru minnar um stundarsakir og flutti þá ásamt hv. 3. þm. Reykv., hv. 11. landsk. og hv. 7. landsk. frv. til l. um breyt. á l. nr. 42 frá 1957, um húsnæðismálastofnun, byggingarsjóð ríkisins, sparnað til íbúðabygginga, breyt. á I. kafla l. nr. 36 frá 1952 o.fl. Frv. þetta er flutt til þess að létta nokkuð ofurþungar byrðar þess fólks, sem á undanförnum árum hefur ráðizt í að reyna að koma upp íbúð yfir sig og sína og færist slíkt í fang nú. Allt það fólk, sem ráðizt hefur í byggingarframkvæmdir og ekki er því betur efnum búið, verður að leggja á sig nálega yfirmannlegt erfiði, þota langa bið eftir þeim lágu og dýru lánum, sem húsbyggjendum eru veitt í lánastofnunum, ganga fyrir Pétur og Pál í hópi frænda og skylduliðs til þess að biðja þá um skyndilán, þreyta göngu milli bankanna til að slá sér víxillán að fengnum ábyrgðarmönnum, sem gildir séu teknir, og síðan, og það er þungbærast af öllu — að lifa í stöðugum ótta við, að þrátt fyrir allt verði svo einhver skuldheimtumaðurinn eða lánastofnunin til þess að ganga að, ef vanskil verða, og íbúðin fari svo eftir allan þrældóminn og allar þjáningarnar undir hamarinn. Það eru því miður þúsundir manna, flest ungt fólk, sem við þessi lífskjör búa nú í þjóðfélagi okkar, og þetta er íkjulaus og orðfá lýsing á lífskjörum þessa fólks. Það mun því enginn geta neitað því, að full þörf sé á að létta byrðar þessa fólks. Þess eru því miður sannanlega mörg dæmi, að ungir menn hafa gengið svo fram af sér við þetta byggingarstrit, að þeir bíða þess aldrei bætur. En samt sem áður hafa allar tilraunir til að fá fram hér á hv. Alþingi einhverjar lagfæringar á gildandi löggjöf húsbyggjendum í hag átt litlum skilningi að mæta á hv. Alþingi. Hvort sem frv. stjórnarandstæðinga hafa fjallað um að hækka hámark lána, um að lengja lánstíma, um lækkun vaxta eða um útvegun aukins fjár til húsnæðismála, hafa þau öll verið svæfð eða felld. Það hefur aldrei verið neitt hik á fylgjendum stjórnarflokkanna í þessum efnum. Þeirra lokasvar hefur alltaf verið þetta sama: Við leggjum til, að frv. verði fellt.

Erfiðleikar húsbyggjenda, sem voru ærnir fyrir vegna lágra lána og hárra vaxta og of stutts lánstíma, hafa aukizt og margfaldazt á seinustu tveimur árum. Byggingarkostnaður hefur stórhækkað vegna tveggja gengislækkana og margfaldaðra söluskatta á allt byggingarefni eins og á allar aðrar vörur og þjónustu. En lánin út á hverja íbúð hafa ekki verið hækkuð, lánstíminn ekki verið lengdur og vextir ekki verið lækkaðir. Nei, eins og kunnugt er, hafa þeir verið stórhækkaðir, svo að vaxtabyrðin hefur aukizt af tveim ástæðum: af hækkuðum byggingarkostnaði og hækkuðum vaxtafæti. Nú mun gersamlega óhugsandi, að hægt væri að koma upp vandaðri þriggja herbergja íbúð í sambyggingu fyrir minna en 400 þús. kr., en til hennar fæst í langmesta lagi 100 þús. kr. lán. Nokkur hluti þess láns eru B-lánin svokölluðu með 5% ársvöxtum og vísitölulánskjörum. Það eru því fremur dýr lán við þá verðlagsþróun, sem hér hefur verið. Þessi lán eiga að borgast upp á 15 árum. Hinn hluti lánsins, A-lánin svokölluðu, var upphaflega með 7% ársvöxtum, en núv. ríkisstj, taldi það vera lífsnauðsynlegan lið í viðreisnarráðstöfunum sínum að hækka vexti þessara lána upp í 9%. Sennilega hefur hún þó ekki þolað þjáningar þeirra og kveinstafi, sem við áttu að búa, því að í þessu efni varð hún. að láta ofur lítið undan síga og lækkaði vextina af A-lánunum úr 1% niður í 8%, og þannig eru vaxtakjör þessa lánaflokks nú. Það eru 8%. Það eru nákvæmlega sömu vextir og í íslenzkri löggjöf hétu okurvextir allt fram að viðreisn. Lánatími þessara lána er 20 ár.

Hvernig fara þeir menn nú að, sem fengið hafa 100 þús. kr. lán, þeir sem bezt eru settir, hafa fengið það seint um síðir og í mörgum smápörtum, — hvernig fara þeir með hinar 300 þús. af verði íbúðarinnar? Þeir berjast flestir við að koma íbúðinni upp á þremur árum, og hjá sumum tekur það lengri tíma. Ofan á 10 stunda vinnudag sinn bæta þeir á sig tveggja tíma næturvinnu alla virka daga. Þetta eru 400 vinnustundir á ári, og með því að verðleggja þær á dagvinnukaupi, verða það rúmar 8 þús. kr. á ári, sem þeir geta aflað sér með þessari viðbótarvinnu. En með þriggja ára látlausu stríði er það, eins og menn sjá, 24–25 þús. kr., sem þeir geta þannig aflað sér til viðbótar. En lítið hrekkur það upp í 300 þús. Þá er að taka til sunnudaganna líka, til þess að þræla í íbúðinni í aukavinnu. Með 10 stunda vinnu 52 sunnudaga fást 520 vinnustundir, eins og menn sjá. Á ári getur það gefið um 10400 kr., og við þriggja ára þrældóm alla sunnudaga skilar það, sem sjá má, tæpum 32 þús. kr. Þarna eru þá fengnar 57—60 þús. kr. ýtrast reiknað. En samt eru eftir um 240 þús. kr. 9% ársvextir af þeirri upphæð eru 21600 kr. Og ef upphæðin á að borgast á 10 árum, eru afborganirnar um 24 þús. kr. Kostnaðurinn af þessari lántöku, vextir og afborganir, er því allt að 45600 kr. Vextir og afborgun af 100 þús. kr. láninu eru auk þess allt að 12800 kr. Verður þá heildargreiðslubyrðin á ári á þeim manni, sem þrælað hefur eins og hér hefur verið lýst, a.m.k. 58 þús. kr. vegna þriggja herbergja íbúðar. Það er hátt á 5. þús. kr. á mánuði eða nokkru meira en öllum árstekjum verkamanns nemur, sem vinnur átta stundir á dag alla virka daga. Slík vinna gefur með núv. kaupi 55 þús. kr., 8 stunda vinna alla virka daga. Það, sem hann hefur þá fyrir sig og fjölskyldu sína að leggja til að draga fram lífið, eru tekjurnar af tveggja stunda eftirvinnu á dag, en það getur ýtrast orðið um 13600 kr. á ári. Af því má sjá, að ekki dugir það, og það þýðir auðvitað, að konan verður líka að vinna úti og taka fullan þátt í byggingarþrældóminum með manni sínum í viðbót við vinnuna utan heimilis til þess að afla tekna, enda er það orðið mjög algengt fyrirbæri. En samt fer því fjarri, að stritinu og fjárhagsáhyggjunum sé af létt, þegar húsið er búið, því að næsti áratugurinn a.m.k. verður áframhaldandi strit og stríð, sífelld barátta fyrir því að forða íbúðinni frá því að fara undir hamarinn. Og samt virðist stjórnarliðið á hv. Alþingi enn sem fyrr ætla sér að verða samhent og samtaka um að fella allar tillögur um að létta eitthvað hlutskipti þessa fólks. Við leggjum til, að frv. sé fellt, segja þeir, og svo verður sennilega einnig gert nú. En engar aðrar tillögur koma þeir þó með heldur en þær, sem í frumvörpunum felast, sem þeir eru samtaka um að fella, engar tillögur frá þeirra hendi, sem verða mættu húsbyggjendum til einhverrar hjálpar.

Þetta mál var rætt á tveimur fundum heilbr.- og félmn., og þótti brátt sýnilegt, að ekki mundi fást samkomulag um afgreiðslu þess. Meiri hl. n., þ.e.a.s. fulltrúar stjórnarflokkanna, þeir Gísli Jónsson, hv. 1. þm. Vestf., Birgir Finnsson, hv. 5. þm. Vestf., og Guðlaugur Gíslason, hv. 3. þm. Sunnl., leggur til, að frv. verði fellt, en minni hl., Jón Skaftason, hv. 4. þm. Reykn., og ég, leggur til, að frv. verði samþ. Jón Skaftason hefur þó skrifað undir nál. okkar með fyrirvara og mun gera nánari grein fyrir því, í hverju sá fyrirvari felst.

Í frv. þessu er lagt til, að ársvextir af A-lánum hins almenna veðlánakerfis verði lækkaðir úr 8% í 4% og að lánstíminn skuli lengdur úr 20 árum í 25 ár og lánin verða jafngreiðslulán. Ef þetta fengist fram, væri húsbyggjendum mikill léttir að breytingunni. Þetta er það mikil vaxtalækkun, að um það munaði verulega. Einnig væri þeim nokkurt hagræði í lengingu lánstímans.

Annað aðalefnisatriði frv. er það að lækka ársvexti af lánum til verkamannabústaða um helming, eða í 2%, eins og vextir af þeim lánum voru upphaflega ákveðnir, en núv. ríkisstj. hækkaði vexti af þessum lánum um helming skv. heimild í lögum um efnahagsmál frá 19. febr. 1960. Í þessu frv. er til þess ætlazt, að vaxtalækkun sú, sem í því felst, nái til allra lánssamninga byggingarsjóðanna, einnig þeirra, sem gerðir voru fyrir gildistöku laganna með öðrum og hærri vöxtum, allt upp í 9%. Á sama hátt skulu lækka ársvextir bankavaxtabréfa veðdeildar Landsbankans og byggingarsjóðs verkamanna.

Það er, held ég, viðurkennt af öllum, að þau lán, sem hér eru veitt til íbúðabygginga, eru allt of lág. Ég held, að ágreiningur sé ekki um það. Miðað við núv. byggingarkostnað eru þau oftast nær innan við 20% af byggingarkostnaðinum. Og þegar við lítum á málið nánar, þá kemur það í ljós, sem kannske kann að virðast ótrúlegt, þegar menn heyra það fyrst sagt, en það er samt rétt, að lánin eru lægri en innflutningstollar og söluskattar eru nú orðnir af byggingarefni í meðalíbúð. Þetta þýðir því, að ríkissjóður íþyngir húsbyggjendum í stað þess að hjálpa þeim, þ.e.a.s. hann tekur meira í tollum og sölusköttum af byggingarefni en hann lætur í lánsformi. Hér er því heldur lagður steinn í götu þess, að byggt sé viðunandi húsnæði yfir fólkið í landinu, heldur en þjóðfélagið geri þá skyldu sína að greiða fyrir framgangi þessara nauðsynjamála.

Í þessu frv. er, og það tel ég þriðja meginefnisþátt þess, lagt til, að tollar og söluskattar verði endurgreiddir í einu lagi af hverri íbúð, þegar byggingu er lokið, — ég tek það fram, ekki samkvæmt efnisreikningi húseigandans, heldur eftir útreikningi húsnæðismálastjórnar á grundvelli þess efnismagns, sem fer í vísitöluhúsið. Uppgjör þetta og endurgreiðslur skulu fara fram í samráði við fjmrn. í hvert sinn.

Ég vil nú þessu næst víkja nokkrum orðum að afstöðu hv. meiri hl. heilbr: og félmn.

Þau rök, sem meiri hl. heilbr.- og félmn. færir fyrir þeirri skoðun sinni, að fella beri frv., eru aðallega þrenn:

1) Að A-lánaskuldabréfin mundu falla í verði og verða óseljanleg á almennum markaði nema fyrir sáralítið verð, ef þau bæru aðeins 4% vexti. Þetta eru að minni hyggju fánýt rök, þegar af þeirri ástæðu, að A-lánabréfin hafa aldrei verið á hinum almenna verðbréfamarkaði, og er ekki ætlazt til þess, að þau verði það. Veðdeild Landsbankans hefur keypt þau affallalaust, og er til þess ætlazt, að svo verði áfram.

2) Gegn ákvæði 3. gr. frv. um, að vextir af þeim bankavaxtabréfum A-flokks, sem veðdeild Landsbankans hefur gefið út fyrir gildistöku láganna, skuli einnig lækka í 4% og lánin verða jafngreiðslulán, ber meiri hl. n. fram þau rök, að þetta muni brjóta í bága við ákvæði stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttarins. Meiri hl. talar í nál. sínu um bótalausa fjártöku í þessu sambandi og fullyrðir, að þetta ákvæði frv. sé þess vegna óraunhæft. En hvað er hér um að ræða? Jú, það er um að ræða að lækka vaxtaákvæði skuldabréfa. Ég held, að þessi fullyrðing styðjist ekki við nokkur rök. Í fyrsta lagi nefndi enginn eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar, þegar vextir þessara sömu A-bréfa voru hækkaðir, en sú breyting skerti vissulega hagsmuni ákveðinna aðila, en að vísu annarra aðila en þeir í meiri hl. bera fyrir brjósti. En það, sem úr sker um þetta atriði, er, að með ákvæði frv, er einskis manns eign skert. Skuldabréfið er og verður sama eignin áfram, þó að frv. verði að lögum. Það er einungis arðsemi eignarinnar, sem segja má í þessu tilfelli að breytist með lögfestingu frv. En það er öllum kunnugt, að hér á hv. Alþingi gerist það dögum oftar, að arðsemi eigna er breytt með lagaákvæðum. Um það verður því tæpast deilt, að hinn almenni löggjafi er bær um að setja reglur um arðsemi eigna og tekna og um tekjur manna af eignum, án þess að það brjóti í bága við stjórnarskrána. Sú eign, sem hér um ræðir, er peningaeign bundin í skuldabréfi, og það er hafið yfir allan vafa, að löggjafinn getur sett hvaða reglur sem honum þóknast um arðsemi þeirrar eignar. Hann getur einnig markað samningsfrelsi manna um slíka arðsemi bás eftir vild sinni og gerir það iðulega.

3) Endurgreiðslum tolla og söluskatta mótmætir meiri hl. heilbr.- og félmn. með þeirri röksemd, að með því væri þegnum þjóðfélagsins veitt misjöfn aðstaða til að standa undir þeim kostnaði, sem bygging íbúða hefur í för með sér, og muni af því leiða, að aðrir mundu bera fram jafnréttháar kröfur á ríkissjóð um endurgreiðslur tolla og söluskatta frá sama tímabili og þannig skapa ranglæti, ef slíkum kröfum væri aftur á móti hafnað. Um þetta er ég ekki sammála meiri hl. n. Ég tel, að húsbyggjendur hafi orðið svo harkalega fyrir barði tveggja gengislækkana, að á fáa eða enga aðra þegna þjóðfélagsins væri hallað, þó að tollar og söluskattar af byggingarefni yrðu endurgreiddir frá því í febrúar 1960, eins og frv. gerir ráð fyrir, enda sé ekki um óhóflega stóra íbúð að ræða, aðeins verið að svara íbúðaþörf húsbyggjenda.

Ég get hér skotið því inn í, að það er til fordæmi, þar sem komið hefur verið til móts við menn, sem vinna að íslenzkum skipaiðnaði, íslenzkri fiskiskipabyggingu. Ég flutti fyrir mörgum árum tillögu um það, að tollar væru endurgreiddir af byggingarefni til skipa, og efnislega var sú till. samþykkt og er — vænti ég — í framkvæmd enn. Ég vona, að það sé rétt, sem ég hermi, að enn þá séu endurgreiddir tollar af efni til skipa. Og að hjálpa húsbyggjendum, sem í slíkum nauðum eru staddir sem ég hér hef gert grein fyrir, væri nákvæmlega hliðstæða við þetta. Ef ég man rétt, var ágreiningslaust samþ. á Alþingi að taka upp endurgreiðslu á tollum af byggingarefni og tækjum í þau skip, sem væru byggð hér innanlands. Þetta finnst mér því vera fánýt röksemd gegn frv. alveg eins og tvær hinar fyrrnefndu.

Þá klykkti meiri hl. heilbr.- og félmn. út með þeirri röksemd, ef röksemd skyldi kalla, að fjarstæða sé að gera svo viðtækar breytingar á lögunum um húsnæðismálastofnun og byggingarsjóð ríkisins, eins og þetta frv. gerir ráð fyrir, áður en vitað sé, hvað sú nefnd, sem ríkisstj. hafi skipað til þess að endurskoða lögin, leggi til um breytingar á þeim. Já, einmitt það. Alþ. á sem sé ekki að leyfa sér að gera breytingar á neinum þeim lögum, sem ríkisstj. hefur falið gæðingum sínum að athuga. Það á bara að bíða eftir tillögum þessara útvöldu brjóstmylkinga ríkisstj. Nei, eftir mínum skoðunum hefur Alþingi allt öðru hlutverki að gegna en bíða eftir aðgerðum og tillögum slíkra herra. Ég leyfi mér að kalla þetta móðgun við Alþingi. Því ber sannarlega engin skylda til að bíða eftir slíkum laumunefndum. Og í sambandi við þetta vil ég leyfa mér að taka fram, að ég tel það raunar ósvinnu hina mestu, sem nú er að verða opinbert smám saman, að ríkisstj. hefur raðað öllum þingmönnum stjórnarflokkanna í launaðar nefndir og hefur þannig ákveðið þeim í reyndinni allt annað og hærra þingfararkaup en stjórnarandstæðingum. En hins vegar er staðið fast á því að hreyfa í engu í samkeppnisátt hinu viðurkennda kaupi þingmanna. Þessu leyfi ég mér harðlega að mótmæla og veit, að allir viðurkenna raunar, að þetta er ósæmilegt með öllu. Með þessu er undirbúningi lagabreytinga komið í svo hlutdrægt horf, að ekki verður við unað, sízt af öllu eftir að farið er að beita þeim rökum, að Alþingi eigi ekki að leyfa sér að breyta neinum þeim lögum, sem þessar laumunefndir séu að athuga.

En meiri hl. heilbr.- og félmn. botnar einmitt nál. sitt með þessari röksemd, með orðunum: „Með tilvísun til þessa leggur meiri hl. nefndarinnar til, að frv. á þskj. 104 verði fellt,“ — einkanlega og sér í lagi af því, að nefnd úr hópi stjórnarþingmannanna er að athuga þessa löggjöf. En við í minni hl. fáum hins vegar ekki skilið, að háir vextir á íbúðarhúsalánum séu sú víðtæka allsherjarblessun, sem megi ekki frá neinum taka, og þess vegna leggjum við til, að frv. verði samþykkt.

Fyrir flm. þessa frv. vakir það og það eitt að létta ofur lítið drápsbyrðar hárra vaxta, of stutts lánstíma og stórhækkaðs byggingarkostnaðar af herðum þess fólks, sem hefur lagt út í þá þrekraun að reyna að koma upp viðunandi húsnæði yfir sig og sína. Ég teldi það vera þjónustu við framtíðina að reyna nú þegar með skynsamlegum lagabreytingum að koma í veg fyrir það, að bygging íbúðarhúsnæðis stöðvist að mestu. En í þá átt stefnir nú. Það er talandi vottur, að nú hefur notkun íslenzks sements minnkað um rúmlega þriðjung, og þar hefur mest dregizt saman bygging íbúðarhúsnæðis. Það er líka hin fyltsta og brýnasta ástæða til þess, að það fólk, sem staðið hefur í byggingu að undanförnu og er að ráðast í slíkt nú eftir tvær gengislækkanir og mjög hækkaða söluskatta, fái hjálp til þess að geta haldið íbúðum sínum, svo að erfiðislaunin verði ekki eftir allt saman þau að missa þessar íbúðir undir hamarinn, rétt þegar verið er að ljúka þeim. Mér finnst rök þeirra hv. þm., sem leggja til, að þetta frv. sé fellt, vera mjög léttvæg, og legg áherzlu á það, að þingmenn láti nú réttinn fremur en fylgispektina ráða afstöðu sinni til þessa máls.