06.03.1962
Neðri deild: 60. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í C-deild Alþingistíðinda. (2540)
81. mál, húsnæðismálastofnun
Fram. minni hl. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Það er nokkuð langt um liðið, síðan 2. umr. um þetta mál hófst, og hafa orðið um það miklar umræður, sem vonlegt er, því að málið er að mínu áliti og sjálfsagt margra annarra þingmanna athyglisvert. Hv. frsm. meiri hl. n. hefur talað a.m.k. tvisvar í málinu, síðan ég flutti mína framsöguræðu, hæstv. félmrh. hefur rætt um málið, og hv. 4. þm. Reykn. einnig tekið til máls í þessum umræðum.
Hæstv. félmrh. ræddi um ástand húsnæðismálanna yfirleitt og komst að þeirri niðurstöðu, að ekki væri um mikinn samdrátt að ræða að því er snerti byggingu íbúðarhúsnæðis, og vildi hann m.a. styðja þá skoðun sína við niðurstöður, sem lesa mætti út úr síðasta hefti Fjármálatíðinda, og vitnaði hann í það rit. Ég hef þetta rit hér fyrir framan mig og kemst, einmitt með því að styðjast við það, að nokkuð annarri niðurstöðu en hæstv. ráðherra. Ég fæ ekki betur séð en að á bls. 189 í þessu tilvitnaða riti, þar sem rætt er um húsbyggingar, birtar töflur um þróun þeirra mála og í textanum skýrt frá húsnæðismálunum, en að þar sé játað beint og afdráttarlaust, bæði í tölum og lesmáli, að um samdrátt sé að ræða og hann verulegan að því er snertir byggingu íbúðarhúsnæðis. Í þessu riti segir t.d., með leyfi hæstv. forseta, það sem hér segir: „Hér er miðað við verðlag viðkomandi árs, en raunveruleg aukning varð lítil sem engin, eða um 0.2%, þar eð byggingarkostnaður jókst um 5.7% á árinu 1960. Eins og sjá má í 27. töflu, þá drógust íbúðarhúsabyggingar allmikið saman á árinu 1960. Aðrar byggingarframkvæmdir jukust hins vegar nokkuð og þá sérstaklega verzlunarbyggingar:
En í þeirri töflu, sem þarna er vitnað til, eru byggingarframkvæmdirnar flokkaðar niður í eina 6 liði: útihús í sveitum, byggingar í þjónustu framleiðslu, iðnaður, verzlun, opinberar byggingar og íbúðarhús. Þegar maður nú lítur á fyrsta liðinn, útihús í sveitum, þá lítur samanburðurinn á árunum 1959 og 1960 í þúsundum talið þannig út: Útihús í sveitum 83 þús., þ.e. árið 1959, og 93 þús. árið 1960, eða 83 og 93 milljónir. Í þjónustu framleiðslu 1959 48 millj. og 1960 49 millj., 1 millj. aukning. Iðnaðurinn hins vegar 1959 43.3 millj. kr., en 59 millj. kr. 1960. Þar er fyrst um verulega aukningu að ræða á byggingum í þjónustu iðnaðar. Svo kemur að verzluninni og húsnæði í þjónustu verzlunar. Þar hafa byggingar aukizt úr 50.8 millj. árið 1959 í 98.4 millj. 1960. Það er nærri því tvöföldun. Opinberar byggingar hafa ekki aukizt verulega, en þó dálítið, þ.e. úr 117 millj. kr. í 138. En íbúðarhús 1959 627 millj. kr., en 1960 589 millj. kr. Þar er, eins og í textanum segir, um verulegan samdrátt að ræða. Heildaraukningin er 0.2%, og eina aukningin, sem máli skiptir og er stórkostleg, það eru byggingar í þjónustu iðnaðar og verzlunar, — bein lækkun hins vegar að því er snertir íbúðarhúsnæði, og um það vorum við hér að ræða. Í textanum segir hins vegar um þessa aukningu til verzlunarinnar: „Aðrar byggingarframkvæmdir jukust hins vegar nokkuð og þá sérstaklega verzlunarbyggingar.“ Áfram segir síðan, með leyfi hæstv. forseta: „Tala nýrra íbúða, sem lokið var við á árinu, lækkaði um 47 íbúðir eða 3.1% frá 1959: Í ársbyrjun 1960 er talið, að í smíðum hafi verið 3644 íbúðir, en 3173 í árslok. Hafin var smíði á mun færri íbúðum 1960 en árið áður, eða 1008 íbúðum á móti 1597 íbúðum. Lækkunin er um þriðjung frá 1959. Og það eru vissulega byrjunartölurnar í báðum tilfellum, sem segja mestan sannleika í þessu máli. Lækkunin er úr 1597, sem var byrjað á 1959, niður í 1008 á árinu 1960. Þessar skýrslur ná ekki lengra. En það er hald manna, að enn hafi sigið á ógæfuhliðina í þessum efnum á árinu 1961, og fer það varla 3 milli mála. En bezt er það sjálfsagt að bíða með fullyrðingar um það, þangað til áframhald kemur af skýrslum Fjármálatíðinda Landsbankans, Seðlabankans, um það ár.
Ég hygg, að það þurfi ekki að ræða meira um þetta atriði. Það liggur fyrir skjallega sannað einmitt með hagfræðiriti þjóðbankans, að úr byggingum íbúðarhúsnæðis hefur stórkostlega dregið þegar á árinu 1960 frá því, sem var 1959. Eins þó að litið sé yfir lengra tímabil, þá kemur það sama út, eins og hv. 4. þm. Reykn. sannaði með tölum frá Framkvæmdabankanum á seinasta fundi, þegar þetta mál var rætt.
Hæstv. ráðherra minntist líka á það, að nú legði ríkisstj. til, að hámark lánveitinga á íbúð yrði hækkað úr 100 þús. í 150 þús., eða hækkunin yrði um 50 þús. kr., og sæi hann því ekki betur en að þarna yrði í öllum tilfellum, þegar íbúð kostaði minna en 400 þús. kr., bætt að fullu það, sem verð íbúðar hefði hækkað í verði, síðan fyrra hámarkið var ákveðið, en viðurkenndi hins vegar, að þegar íbúð kostaði meira en 400 þús. kr., þá hrykkju þessar 50 þús. kr. ekki til — eða tæplega til — til þess að mæta verðhækkuninni. Þetta þýðir auðvitað það, að 50 þús. krónurnar duga í engum tilfellum til að mæta verðhækkun íbúðar, af því að engar þriggja herbergja íbúðir verða nú byggðar fyrir minna en 400 þús. kr. Og það er viðurkennt sem sé af ráðherrum líka, að þær íbúðir, sem kosta nú meira en 400 þús. kr., það verður erfiðara fyrir húsbyggjandann að standa undir þeim, jafnvel þótt hann fengi 150 þús. kr. lán. Þær voru um það bil 300 þús. kr. áður, og hefði því þurft hið minnsta 100 þús. kr. hækkun, til þess að sú lánveiting dygði á móts við það, sem þá var, og yrði jafnnotadrjúg.
Hæstv. ráðherra var sérstaklega að afsaka núverandi stjórn með því, að þetta væri ekkert verra en það hefði verið á tímum vinstri stjórnarinnar. Jú, tölurnar sýna nú einmitt það, að byggingarframkvæmdir voru þá miklu meiri að því er snertir íbúðarhúsnæðið en á tímabilinu síðan, enda er vitað, að erfiðleikar húsbyggjenda hafa stórkostlega aukizt síðan, án þess að úr hafi verið bætt af stjórnarvöldunum. Vinstri stjórnin, sem Alþýðuflokkurinn átti fulltrúa í, lét þessi mál ekki afskiptalaus. Hún bætti úr miklu öngþveiti, sem var í húsnæðismálunum, þegar hún tók við völdum, svo að það fór ekkert á milli mála, að ýmsar meinsemdir höfðu þá verið læknaðar. Það minnkuðu mjög kröfur húseigenda um fyrirframgreiðslur, það minnkaði líka, að þeir gætu komið sér við um það að heimta allt aðra greiðslu en þeir kvittuðu fyrir, af því að eftirspurnin minnkaði um húsnæði, og þetta byggðist á því, að byggingarsjóður ríkisins hafði verið stofnaður með 118 millj. kr. framlagi, að tvöfölduð hafði verið lánsupphæðin til verkamannabústaðanna, bæði ríkisframlagið og framlag sveitarfélaganna hækkað framlagið til útrýmingar heilsuspillandi íbúða úr 4 millj. í 5 millj. kr. á ári og skyldusparnaðurinn tekinn upp og með því fengið til húsnæðismálanna nokkurt fjármagn í viðbót við það, sem áður var. Enn fremur hafði verið bannað að taka íbúðarhúsnæði úr notkun hér í Reykjavík til annarra nota, og það hafði sýnt sig, að það voru mjög margir tugir íbúða, sem á hverju einasta ári höfðu verið teknir úr íbúðarnotkun og til annarra nota, aðallega verzlunar og iðnaðar, á undanförnum árum. Þetta gerði það að verkum, að fleiri íbúðir héldust í sinni upphaflegu notkun við þetta bann. En skömmu eftir að vinstri stjórnin lét af völdum, var þetta bann við að taka íbúðarhúsnæði til annarra nota í Reykjavík numið úr lögum.
Meginefni þessa frv. er um það að lækka stórlega vexti á lánum til íbúðarhúsnæðis, lækka sem sé vaxtafót A-lána húsnæðismálastofnunarinnar úr 8% í 4% og að lækka vaxtafótinn á lánum til verkamannabústaða niður í það, sem hann var upphaflega ákveðinn, eða 2%. Einnig um það að lengja lánstímann nokkuð og gera A-lánin að jafngreiðslulánum og létta þar með nokkru á lántökum í byrjun lánstímans, svo að afborganabyrðin og vaxtabyrðin jafnist þannig betur á allan lánstímann.
Hv. meiri hl. heilbr.- og félmn. leggst á móti framgangi þessa máls af tvennum röksemdum: í fyrsta lagi með þeirri röksemd, að þessi vaxtalækkun komi ekki að gagni húsbyggjendum, og í annan stað, að lækkun vaxtanna aftur fyrir sig sé stjórnarskrárbrot. Hv. 3. þm. Reykv. hefur í viðbót við þann rökstuðning, sem ég flutti í minni framsöguræðu, gert því atriði, þeirri fásinnu, að hér sé um stjórnarskrárbrot að ræða, rækileg skil, og sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða meira um það. Ég vil þó í viðbót við þá staðhæfingu mína í framsöguræðu minni, þar sem ég sagði að það gerðist dögum oftar hér á Alþingi, að arðsemi eigna væri breytt með ákvörðun Alþingis og það ætti ekki að koma neitt í námunda við stjórnarskrána, nefna dæmi, þar sem aðrir aðilar en Alþingi geta með einfaldri fundarsamþykkt gerbreytt verðmæti og arðsemi eigna í eigu einstaklinganna. Segjum t.d., að eitt bæjarfélag, Reykjavík eða einhver kaupstaður landsins, geri um það samþykkt í bæjarstjórnarfundi að breyta skipulagi þannig, að lóð, sem einstaklingur á og hefur legið að götu og er þannig mjög mikils virði vegna opinberra framkvæmda, lendir við ákvörðun um breytt skipulag á baklóð. Þá er búið að gerbreyta arðsemi þessarar eignar hjá einstaklingnum, og enginn hefur mér vitanlega tekið það í mál, að þetta varðaði neitt við stjórnarskrána, ákvæði hennar um friðhelgi eignarréttarins. Og þannig mætti nefna mýmörg dæmi, auk þess sem hér hefur verið sagt, að Alþingi breytir oft og tíðum með einfaldri löggjöf arðsemi eigna með ákvörðunum síntam.
En hin röksemdin, að lækkun vaxta, svo stórfelld lækkun vaxta sem hér er um að ræða, komi ekki húsbyggjendum að gagni, — ég veit sannast að segja ekki, hvernig hv. stjórnarlið hugsar sér yfirleitt að koma húsbyggjendum í landinu til hjálpar, ef það forkastar alveg þeirri hjálp, sem felst í að lækka vexti af lánum til húsnæðismála, lengja lánstímann og hliðra þannig til um, að menn geti staðið undir þeim lánum, sem veitt eru. Það er hrein fásinna að ætla sér að berjast á móti þessu frv. á þeim grundvelli, að það væri húsbyggjendum ekki til gagns að samþykkja það, þar sem það felur í sér bæði beina lækkun vaxta og lengingu lánstíma til húsnæðismála.
Ákvæðið í frv. um það, að vaxtalækkunin skuli ná til 19. febr. 1960, er auðvitað við það miðað, að þá var framkvæmd hin stórkostlega gengislækkun og við það hækkaði allt verðlag á byggingarefni svo mikið, að byrðar allra þeirra, sem þá voru byrjaðir á byggingarframkvæmdum og hafa átt þátt í þeim síðan, jukust stórkostlega, og þess vegna þykir flm. frv. ástæða til að láta þessa vaxtalækkun ná fram að þessum tíma, að þessu tímamarki, og tímabilið, sem liðið er síðan, hefur verið húsbyggjendum enn þá þyngra í skauti en nokkru sinni fyrr.
Mér er það ljóst, að þeir menn, sem ætla sér að halda þeim röksemdum til streitu, að vaxtalækkun og lenging lánstíma sé ekki hagsbótaatriði fyrir húsbyggjendur, og bera fyrir sig stjórnarskrárbrot, ef breytt er ákvæðum um arðsemi eigna eins og skuldabréfa, þeir eru í rökþroti, og það að taka afstöðu til þessa máls á þann hátt að leggja til, að það sé fellt, en viðurkenna þó í öðru orðinu, að mikil þörf sé á að hjálpa húsbyggjendum, það er að komast strax, umsvifalaust í mótsögn við sjálfan sig. En hv. frsm. meiri hl. hefur hins vegar alltaf í öðru orðinu játað, að það sé þörf á því að hjálpa húsbyggjendum, en það verði alls ekki gert með þessum hætti. Hann hefur haldið því fram, að einhver verði að bera þau útgjöld, sem af því leiði að lækka vaxtafótinn á þeim bréfum, sem þegar er búið að gefa út, og er það rétt. En ég sé ekki annað en það sé ákaflega eðlilegt, að Seðlabankinn, sem hefur verið látinn frysta nokkur hundruð milljóna af sparifé landsmanna og er þannig orðinn stærsta frystihús þessa lands, — að eitthvað sé tekið af þessu frysta sparifé og því varið til hjálpar húsbyggjendum, og þar ætlast ég sannarlega til að þetta komi niður.
Hv. frsm. meiri hl. heilbr.- og félmn. sneri mjög máli sínu til hv. 4. þm. Reykn. og komst að þeirri niðurstöðu, að eiginlega hefði hann frekar átt að skrifa undir nál. með meiri hl. en með minni hl., og gerði honum upp skoðanir í því efni, og ekki nóg með það, heldur taldi hann, að hv. 3. þm. Reykv. (EOl), sem talaði líka gegn honum og málflutningi meiri hl., hefði líka verið á sama máli og meiri hl., og vildi alls ekki viðurkenna, að þeir hefðu á neinn hátt verið á öndverðri skoðun við sig. Þá stóð það eitt eftir, að ég væri að vísu með aðrar skoðanir um afgreiðslu þessa máls, því að honum tókst ekki að leiða nein rök að því, að ég hefði líka verið sammála sér, en það hefði hann eiginlega alveg eins getað, eins og með hina tvo. Ég heyrði ekki betur en hv. 4. þm. Reykn. gerði fullglögga grein fyrir því, að hann væri því fylgjandi, að húsbyggjendum væri hjálpað með lengingu lánstíma og lækkun vaxta, og væri þannig fylgjandi meginefni málsins. Þar af leiðandi hefði hann fylgt nál. mínu með fyrirvara um það, að hann efaðist um, að rétt væri að láta koma til framkvæmda endurgreiðslu á tollum og sölusköttum, taldi réttara, að það væri gert með hækkuðu lánsfé, hækkaðri lánsupphæð, og að fyrirvari hans næði einnig til vaxta, hann efaðist um, að rétt væri, að vaxtalækkunin næði aftur fyrir sig. Það var vitað í nefndinni, að um þetta var fyrirvari hv. þm., og mér kom það því ekkert á óvart og gerði beint ráð fyrir því í minni framsöguræðu, að hann mundi skýra sinn fyrirvara, og vissi fullvel frá nefndarstarfinu um þetta. Hv. 4. þm. Reykn. var þó ekki fyrr á þessu þingi andvígur endurgreiðslu söluskatta í vissu tilfelli og taldi ásamt hv. þm. Framsfl. hana yfirleitt framkvæmanlega, þ.e. þegar um var að ræða endurgreiðslu á tollum og sköttum í sambandi við landbúnaðarvélar. Var ég þeim alveg sammála um það, að sú leið væri framkvæmanleg og það ætti að hjálpa bændum, eins og þeirra högum er komið, til þess að geta keypt slíkar vélar, með því að lækka verð þeirra með slíkri endurgreiðslu. Og ég fæ ekki séð, að það sé neitt erfiðara að koma endurgreiðslu við í þessu tilfelli en í hinu fyrra. Ég get hins vegar vel skilið, að hv. stjórnarmeirihluti hér á Alþingi sé andvigur endurgreiðslu tolla og söluskatta af byggingarefni til íbúðarhúsnæðis, af því að stjórnarflokkarnir báðir tóku þá afstöðu illu heilli á þessu þingi, að ekki mætti endurgreiða bændum söluskatta og tolla af landbúnaðarvélum. Í þeirri afstöðu er samræmi. En ég álít, að þeir hafi gert rangt, það hafi átt að hjálpa bændum í nefndu tilfetli með slíkri endurgreiðslu.
Um fordæmi, sem áður séu til um endurgreiðslu söluskatta og tolla, er það nú upplýst, að slík endurgreiðsta er framkvæmd af byggingarefni til skipa, sem smíðuð eru innanlands, og hefur reynzt fullframkvæmanleg í mörg ár. Auk þess minntist hv. frsm. meiri hl. n. á, að það hefðu verið endurgreiddir tollar af hinum svokölluðu sænsku húsum, sem voru flutt inn á tímabili, vildi hins vegar efast um, að ráðh. sá, sem það framkvæmdi, hefði gert það með fullri heimild, því að sú heimild, sem á sínum tíma hefði verið til þess veitt, hefði af þeim ráðh., sem þá sat, ekki verið notuð. En þetta var sem sé gert og var gert til þess að hjálpa húskaupendum í því tilfelli, af því að þessi sænsku hús þóttu verða óhóflega dýr. Til þessa úrræðis hefur því verið gripið í húsnæðismálum áður til að hjálpa þeim, sem voru að eignast þak yfir höfuðið og þetta hefur verið framkvæmt og er framkvæmt enn til þess að hjálpa íslenzkum skipabyggingariðnaði. Hins vegar játa ég það og lét þess getið í minni framsöguræðu í upphafi þessarar umr., að þetta væri önnur hugsanleg leið. Hin leiðin væri sú að hækka lánsupphæðirnar. Það væri um tvennt að ræða: annaðhvort að hækka lánsupphæðirnar ellegar lækka byggingarkostnaðinn, t.d. með þessu úrræði, og ég held því enn fram, að þetta sé framkvæmanleg leið, enda er hún í framkvæmd hjá hæstv. ríkisstj. að því er snertir skipabyggingarnar.
Ég held, að ég hafi nú svarað því helzta, sem fram hefur komið í andmæla átt gegn þessu frv., síðan ég talaði seinast, og hef gert grein fyrir því, að ég tel vaxtalækkunina mjög mikilsverða fyrir húsbyggjendur. Ég tel það marghrakta fásinnu að halda því fram, að endurgreiðsla vaxtanna stangist á við ákvæði stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttarins. Ég tel sjálfsagðan hlut, að þjóðbankinn sé látinn hlaupa undir bagga með hinu frysta sparifé, ef með þyrfti vegna endurgreiðslu vaxtanna, og ég tel endurgreiðslu söluskatta og tolla af byggingarefni vera framkvæmanlega leið, ef ekki er fallizt á að hækka lánsupphæðirnar, og hef vitnað til dæma um það, að slíkt hefur verið framkvæmt og er framkvæmt. Ég undirstrika því, að ég teldi mjög mikilsvert fyrir húsbyggjendur, sem eru sannarlega í nauðum staddir vegna þeirrar þróunar verðlagsmála, sem í landinu hefur átt sér stað, að þeim verði hjálpað með því, að þetta frv. verði samþykkt.