07.11.1961
Neðri deild: 14. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 178 í C-deild Alþingistíðinda. (2603)
56. mál, hafnarbótasjóður
Flm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Eins og ég tók fram í framsöguræðu minni, komu mér ekkert á óvart slik mótmæli sem hér komu fram frá hv. 4. þm. Austf. En ég tel, að hann hafi ekki fylgzt með þeim rökum, sem ég færði fyrir því, að hér væri raunverulega ekki verið að leggja skatt á útveginn, heldur væri verið að krefja um fé, sem kæmi margfalt aftur og létti undir með útveginum, eins og ég tók skýrt fram í minni ræðu. Ef hann hefði hlustað á það og metið þau rök eins og vera ber, þá hefði ræða hans orðið allt önnur. Þetta er einmitt einn liðurinn í því að byggja upp framtíð útvegsins, lækka útgjöldin við viðgerðir, tjón o.s.frv., og mig furðar eiginlega á, að h,ann skuli láta þau orð sér um munn fara nú, að hann gerði ekki ráð fyrir, að það verði mikill árangur af þessu fyrst um sinn. Ég held, að það væri heppilegt fyrir hv. fjvn. að hafa þetta í huga, þegar á að svara óskum um fjárframlög til hafnarbóta í kjördæmi hv. 4. þm. Austf., það þurfi ekki að flýta afgreiðslu þess máls, því að það sé álit hv. 4. þm. Austf., að það verði ekki mikill árangur fyrst um sinn, þó að það séu látnar nokkrar milljónir í hafnir þar. Annars væri hann ekki samkvæmur sjálfum sér í málflutningnum.
En þó voru það einkum aðdróttanir til Reykjavíkurhafnar, sem ég vildi segja hér um nokkur orð. Ég teldi ranglátt, ef þetta gjald ætti að tögfestast, að láta ekki helminginn af því gjaldi fara til Reykjavíkurhafnar, og það er ekki gert að óathuguðu máti. Að sjálfsögðu mundi þetta gjald tekið af þeim skipum, sem flutt yrðu inn til Reykjavíkur, svo sem af nærri öllum verzlunarflotanum, og það gjald gæti vel verið engu minna en það, sem tekið er af fiskiskipaflotanum. Og það væri frá mínu sjónarmiði algerlega rangt, að gjald, sem tekið væri af skipum, hvort sem það væri fiskiskip eða flutningaskip, út gerðum héðan frá Reykjavík, gengi að fullu og öllu til þess að bæta hafnir úti á landinu og styðja ekkert þá aðkallandi þörf, sem ég hef rætt hér um að þurfi að styðja í Reykjavík. Ætlazt er til, að helmingur gjaldsins fari beint til Reykjavíkur til þess að leysa ákveðinn vanda, en hinn helmingurinn út um landið eða í hafnir utan Reykjavíkur. Og ég hygg, að ef væru teknar upp skýrslur um það, hvað hefur verið flutt inn til Reykjavíkur á undanförnum — segjum 20 árum, þá sé það bróðurparturinn af öllum innflutningi til landsins. Og væri það nokkur sanngirni að láta reykvíska eigendur borga þetta gjald í hafnarbótasjóðinn og njóta einskis aftur? Þetta teldi ég alveg fráleitt. Ég tel og, að þurrkví sem byggð yrði í Reykjavík, væri ekki byggð fyrir Reykjavík eina. Hún væri engu síður byggð fyrir þá menn utan af landinu, sem þurfa og verða að nota slíkt mannvirki, og þess vegna sé ekki heldur eðlilegt, að ekki sé látið renna til þeirra framkvæmda það gjald, sem hér um ræðir.
Ég skal ekkert segja um það, hvort andstaða Reykjavíkur við þetta mál stafar eingöngu af því, að hún telji sér þetta ekki skylt. Ég hygg, að það stafi miklu frekar af því, að hún hefur þurft í mörg horn að lita um hafnarframkvæmdir, og það sanna bezt ummæli hv. 4. þm. Austf., þegar hann segir, að enn þá sé þó Reykavíkurhöfn lélegasta höfnin á landinu. Og þá sýnir það, hve nauðsynlegt er að verja til hennar stórkostlegum fjárupphæðum, en til þeirra framkvæmda hefur Reykjavík aldrei tekið einn einasta eyri úr ríkissjóði, nema þær 800 þús. kr., sem ég gat um í upphafi. Þau rök hv, þm., að ekki megi verja helmingi fjárins til Reykjavíkur, fá því ekki staðizt frekar en ummæli hans um, að hér sé verið að leggja nýjan skatt á útveginn. Hvorug af þessum rökum fá staðizt. Ég vildi því óska þess, að hann, sem hefur haft mjög með sjávarútvegsmál að gera, vildi endurskoða afstöðu sína til þessa máls og fylgja frv., þegar það kemur aftur úr nefnd.