09.04.1962
Neðri deild: 87. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í C-deild Alþingistíðinda. (2605)
56. mál, hafnarbótasjóður
Gísli Jónsson:
Hæstv. forseti. Snemma á þessu þingi bar ég fram frv., 56. mál, á þskj. 73. frv. til l. um breyt, á l. nr. 93 16. des. 1943, um hafnarbótasjóð. Málið var tekið til 1. umr, hér hinn 7. nóv. og þá vísað til hv, sjútvn.
Ég hef síðan margsinnis rætt við hv. form. n. um að afgreiða málið frá n., án þess að mér hafi orðið nokkuð ágengt.
Nú er sýnilegt, að liðið er svo langt á þingið, að vart verður hægt að koma þessu máli í gegn, þó að það hefði nægilegt fylgi í deildinni. En með því að hér er um ákaflega veigamikið atriði að ræða fyrir íslenzkan sjávarútveg, tel ég það vera óverjandi, að hv. sjútvn. skuli ekki hafa gefið út nál., skýrt afstöðu sína til málsins og birt þær umsagnir, sem komið hafa til n. um þetta atriði.
Ég vil því mælast til þess við hæstv. forseta að taka málið á dagskrá hér á næsta fundi, svo að hægt sé þannig að knýja fram þær ástæður, sem liggja til þess, að hv. sjútvn. hefur tekið sér það einræðisvald að halda hér merku máli hjá sér án þess að skila um það nál. svo langan tíma, en það er algerlega óverjandi af þn. að taka sér slíkt vald.
Ég vænti þess, að hæstv. forseti sjái sér fært að taka málið til umr. og knýja þannig fram þær ástæður, sem liggja fyrir því, að málið hefur ekki verið tekið fyrir.