17.04.1962
Neðri deild: 98. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í C-deild Alþingistíðinda. (2609)
56. mál, hafnarbótasjóður
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Snemma á þessu þingi bar ég fram frv. til 1. um breyt. á l. um hafnarbótasjóð. Í frv. er í meginatriðum kveðið svo á, að leggja skyldi 2% gjald á þau skip, sem væru byggð, eftir að lögin tækju gildi. Liggur frv. nú fyrir hér til 2. umr., eftir að sjútvn. hefur sagt um það álit sitt. Mér er ljóst, að þetta þing, sem nú er að ljúka störfum, hefur afgreitt mörg og stór mál og sjálfsagt erfitt að finna þess dæmi í þingsögunni, að jafnmörg mál hafi verið afgreidd eins og gert hefur verið á þessu þingi. En ég hika ekki við að segja, að þetta mál, þó að það hafi ekki fengið afgreiðslu, er eitt af merkustu málunum, sem þingið hefur haft til umr., því að svo mikil er þörfin fyrir hafnarbótasjóð að fá auknar tekjur. Ég hef hér engar ádeilur, hvorki á hv. nefnd né Alþingi, fyrir að hafa ekki afgreitt málið fyrr. Það er skiljanlegt um svo stórt mál, að það þurfi víðtækrar athugunar við. Í rökstuddri dagskrá er tekið fram, að það hafi verið stjórnskipuð nefnd að athuga og endurskoða lög um hafnarbótasjóð og málið sé til athugunar hjá hæstv. ríkisstj., og verður ekki skilið annað en hún hafi í huga að bera fram brtt. við lögin um hafnarbótasjóð á næsta þingi. Vildi ég þá mega vænta þess, að hæstv. ríkisstj. tæki það til athugunar, á hvern hátt hægt sé að auka tekjur hafnarbótasjóðs allverulega. Og þá kemur til greina um leið, hvort hægt sé að taka til athugunar mínar tillögur að öllu eða einhverju leyti. Ég sætti mig því við afgreiðslu málsins á þessu stigi og vænti, að það leiði til þess, að þetta mál verði leyst á næsta Alþingi svo sem nauðsynlegt er.