20.02.1962
Neðri deild: 52. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í C-deild Alþingistíðinda. (2612)
149. mál, almannatryggingar
Flm. (Gunnar Jóhannsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. 4. þm. Austf. að flytja frv. til l. um breyt. á lögum um almannatryggingar. Á síðasta þingi flutti Margrét Sigurðardóttir, varaþm. Alþb., samhljóða frv. Málið var þá tekið fyrir til umr. hér í hv. deild og því vísað til heilbr.- og félmn., en þar dagaði málið uppi. Nú er frv. endurflutt óbreytt ásamt grg. í trausti þess, að hv. alþm. sjái sér fært að veita því brautargengi á þessu þingi. Frv. fylgir mjög ýtarleg grg., og má segja, að óþarft sé að fara mörgum orðum um frv., þar sem í grg. er skýrt og ákveðið sagt frá efni og tilgangi þess. Ég vil þó leyfa mér með nokkrum orðum að skýra frá aðalatriðum frv.
Í 1. gr. þess kveður á um, að í stað tveggja fyrstu málsgr. 5. gr. laga um almannatryggingar frá 1960 komi: „Fjölskyldubætur skulu greiddar með öllum börnum innan 16 ára aldurs. Fjölskyldubætur greiðist foreldrum barna, en séu þau ekki samvistum, þá því foreldri, sem foreldraréttinn hefur:
Í lögunum, eins og þau eru nú, eða eftir breytingarnar á lögunum frá 30. marz 1960, segir svo í 5. gr., með leyfi hæstv. forseta:
„Fjölskyldubætur skulu greiddar foreldrum með hverju barni, þar með talin stjúpbörn og kjörbörn, sem eru á fullu framfæri foreldra. Við ákvörðun fjölskyldubóta skulu ekki talin með þau börn í fjölskyldunni, sem eiga framfærsluskyldan föður utan hennar.“
Með orðalagi því, sem er á 2. málslið 5. gr. í lögunum frá 30. marz 1960, eru framfærendur, sem eru í flestum tilfellum einstæðar mæður, sviptir fjölskyldubótum, Það hljóta allir að sjá, að hér er um hróplegt ranglæti og um leið mjög mikið misræmi að ræða. Ég tel rétt að athuga þetta dálítið nánar.
Ef við athugum bætur þær, sem greiddar eru af almannatryggingunum, svo sem mæðralaun, barnalifeyri og fjölskyldubætur, kemur í ljós, að barnalífeyrir og mæðralaun greiðast sem bætur vegna þess, að þriðja aðilann í fullmótaðri fjölskyldu vantar til að inna af hendi framfærsluskyldu, þ.e. föðurinn vantar til að inna framfærsluskyldu sína af hendi. Bætur til einstæðra mæðra og barna þeirra byggjast eingöngu á því, að þau njóta ekki fyrirvinnu föðurins, eins og konan og börnin í svokallaðri eðlilegri fjölskyldu gera. Ef menn hafa þetta í huga, hlýtur að liggja ljóst fyrir mönnum, að það sé sanngjarnt og réttlátt, að fjölskyldubæturnar séu greiddar vegna allra barna, hvort sem þau eru skilgetin eða óskilgetin eða hvort sem móðirin er fráskilin eða býr í hjónabandi. Að láta fjölskyldubætur einungis koma til góða hinni eðlilegu fjölskyldu, sem hlýtur í langflestum tilfellum að vera betur sett í lífsbaráttunni en t.d. einstæð móðir, getur ekki talizt annað en þjóðfélagslegt ranglæti, sem Alþingi ætti sem fyrst að leiðrétta.
2. gr. frv. þessa er um, að a-liður 59. gr. l. frá 1956 orðist svo: „Fjölskyldubætur og hvers konar aðrar bætur — þ.e. að orðið dagpeningar falli burt.
Hér er um breytingu að ræða, sem leiðir af 1. gr. frv. Eins og lögin eru nú, mega fjölskyldubætur aðeins fara saman með dagpeningum, en engum öðrum bótum. Hér er í þessu frumvarpi aftur á móti lagt til, að fjölskyldubætur megi fara saman með hvers konar bótum, sem á annað borð eru greiddar af almannatryggingunum. Yrðu þær breytingar, sem í frumvarpinu felast, samþykktar, mundu fjölskyldubætur falla í hlut eftirtalinna aðila, auk þeirra, sem áður hafa notið þeirra: einstæðra mæðra, ekkna og annarra, þar sem faðir barna þeirra er látinn, mæðra ófeðraðra barna, elli- og örorkulífeyrisþega, sem taka barnalifeyri, og að lokum til þeirra mæðra, sem taka endurkræfan barnalifeyri, þ.e. barnalifeyri, sem Tryggingastofnun ríkisins greiðir barnsmæðrum, en á endurkröfurétt á hendur barnsföður. Ég tel rétt að lesa hér orðréttan kafla úr grg., sem frv. fylgir, þar sem rætt er um endurkræfan barnalífeyri, en þar segir svo m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Það hefur þegar verið tekið fram, en skal þó endurtekið og undirstrikað, að réttkræfur barnalífeyrir getur á engan hátt skoðazt bætur frá almannatryggingum, enda þótt Tryggingastofnun ríkisins annist milligöngu um greiðslu hans til mæðranna. Þær bætur, sem greiddar eru vegna þessara barna, eru einungis mæðralaunin. En mæðralaunin eru háð tekjuhámarki. Sé móðirin að dómi Tryggingastofnunarinnar vel sett fjárhagslega, t.d. hafi milli 60 og 70 þús. kr. árslaun, eru henni ekki greidd mæðralaun.
Þessir foreldrar annast þá framfærslu sins barns eða barna án nokkurs tilstyrks almannatrygginganna, en hjón, sem samvistum dveljast, fá sínar árlegu fjölskyldubætur, — þar kemur ekkert tekjuhámark til skerðingar. Að vísu mun reyndin sú, að þessu skerðingarákvæði á mæðralaun sé ekki mikið beitt, en það mun fyrst og fremst byggjast á því, að konur hafa yfirleitt lágar tekjur, og þær fáu konur, sem eru raunverulega tekjuháar eða búa við allgóðar fjárhagslegar ástæður, vita um þessi skerðingarákvæði og sækja þar af leiðandi ekki um mæðralaun. Hins vegar mun þessum skerðingarákvæðum vera beitt skilyrðislaust, ef ástæður konunnar eru þannig, að hún er gift eða býr með karlmanni eða barn hennar eða börn eru stjúpbörn hans. Með þessum börnum eru engar bætur greiddar frá tryggingunum. Barnið nýtur áfram hins tilskilda meðlags föður sins, það er látið útiloka fjölskyldubætur vegna þessara barna, enda þótt, eins og áður er fram tekið, þar sé ekki um að ræða bætur frá almannatryggingunum, heldur aðeins hið eðlilega og sjálfsagða meðlag föðurins með barni sínu. Gegnir furðu, að svo augljós rangsleitni skuli vera látin viðgangast og samþykkt af löggjafarþingi þjóðarinnar, ekki einu sinni, heldur oft. En jafnvel þótt mæðralaun séu greidd, gætir harla undarlegs viðhorfs löggjafans til aðstöðu hinnar einstæðu móður annars vegar og hinnar „eðlilegu“ fjölskyldu hins vegar, sem bezt sést á einföldu dæmi. Hugsum okkur, að kona búi ásamt barni sínu. Hún fær til framfærslu þess 600 kr. mánaðarlega frá barnsföður sínum, en hún annast sitt barn, býr því heimili og verður auk þess að vinna fyrir framfæri sínu og þess. Sem stuðning þjóðfélagsins í sinni hörðu lífsbaráttu fær hún mæðralaun. Í sama húsi búa hjón með eitt barn. Faðirinn er fullvinnufær og umhyggjusamur heimilisfaðir, móðirin annast barnið, býr fjölskyldu sinni heimili og vinnur því það, sem hún má. Hvort barnið þykir mönnum líklegt að búi við betri kjör? Löggjafinn virðist ekki vera í neinum vafa um það. Hann ætlar fjölskyldunni 2600 kr. árlegar bætur frá almannatryggingum, en hinni einstæðu móður 1400 kr.“
Það er enginn vafi á því, að þegar lögin um almannatryggingar voru sett, þá var stigið eitt merkasta spor, sem stigið hefur verið í því að koma á viðunandi tryggingafyrirkomulagi hér á landi. Áður höfðu verið mjög litlar og lélegar tryggingar. Hinu ber svo ekki að neita, að í ljós hefur komið ýmislegt, sem betur hefði mátt fara. Þannig er vitanlega um öll nýmæli, og er ekkert við því að segja. Löggjafinn hefur séð þetta, og á almannatryggingunum hafa verið gerðar margar umbætur til bóta frá því, sem áður hefur verið. En samt sem áður hefur sézt yfir t.d. þetta atriði ásamt nokkrum öðrum, og væri fyllsta ástæða til þess að fara nánar í gegnum lögin, þannig að ekki kæmi til með að gæta jafnmikils misræmis og fram kemur, sbr. það frv., sem við hér flytjum.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess á þessu stigi málsins að fjölyrða frekar um þetta frv., en við flm. væntum þess, að hv. alþm. sjái sér fært að veita því brautargengi á þessu þingi og samþykkja það sem lög.
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og til heilbr: og félmn.