14.12.1961
Neðri deild: 36. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í B-deild Alþingistíðinda. (262)

106. mál, lántaka hjá Alþjóðabankanum

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Hæstv. forseti. Þetta frv. fjallar um heimild fyrir ríkisstj. til lántöku hjá Alþjóðabankanum til stækkunar hitaveitu Reykjavíkur. Frv. hefur gengið í gegnum hv. Ed. og liggur nú hér fyrir til 1. umr. það var á árunum 1951–53, sem tekin voru nokkur lán, eða fimm að tölu, hjá Alþjóðabankanum af hálfu Íslands, en Ísland er meðlimur í Alþjóðabankanum. Þessi lán voru til Sogsvirkjunar, til Laxárvirkjunar, til áburðarverksmiðju, til landbúnaðarframkvæmda og eitt þeirra til bygginga á vegum útvarpsins. En nú í rúm 8 ár hafa engar lántökur átt sér stað frá Alþjóðabankanum til Íslands. Ég skal ekki fara út í ástæður til þessa, en meginástæðan er sú, að efnahagsástandið, sem hér hefur verið á Íslandi, verðbólga og jafnvægisleysi í efnahagsmálum, hefur verið með þeim hætti, að Alþjóðabankinn, sem lánar til meðlimaríkja sinna eftir ströngum og föstum reglum með hliðsjón af efnahagsástandi landanna, mun ekki hafa talið efnahagsástand Íslendinga með þeim hætti, að rétt væri eða fært að lána hingað.

Í fyrrahaust ákvað ríkisstj. að leita hófanna að nýju eftir þetta 7–8 ára hlé og freista þess við bankann, að hann tæki aftur upp lánveitingar til framkvæmda á Íslandi. Ríkisstj. virtist, að efnahagsaðgerðirnar ættu að hafa skapað grundvöll fyrir því, að slíkar lánveitingar yrðu teknar upp að nýju.

Þegar ársfundur Alþjóðabankans var haldinn í septembermánuði á s.l. ári í Washington, hófu fulltrúar ríkisstj. Þar viðræður við bankann og fóru þess á leit, að lánveitingar yrðu teknar upp að nýju. Ríkisstj. hafði þá ákveðið, að þó að margar framkvæmdir væru nauðsynlegar og margar kæmu til greina varðandi umsóknir til Alþjóðabankans, mundi vera hyggilegast, að fyrsta málið, sem sótt yrði um lán til, væri stækkun hitaveitunnar í Reykjavík. Lágu til þess þær ástæður, að hitaveitan er ákaflega glæsilegt fyrirtæki fjárhagslega, ber sig vel, og auk þess að veita mikil þægindi fyrir þá bæjarbúa, sem verða hennar aðnjótandi, er hún þjóðhagslega mjög gott fyrirtæki, sparar gjaldeyri í stórum stíl. Fyrir því var það lagt fyrir Alþjóðabankann þannig, að þess var óskað, að fyrsta lánið yrði veitt til stækkunar hitaveitunnar í Reykjavík. Þessu máli var vel tekið og hefur síðan verið athugað og undirbúið, bæði af sérfræðingum bankans og fulltrúum ríkisstj. og Reykjavíkurbæjar.

Nú standa yfir samningaviðræður í Washington um lán til hitaveitunnar, og vinna að þeirri samningagerð af hálfu ríkisstj. Thor Thors sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og Þórhallur Ásgeirsson, einn af forstjórum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Frá hendi Reykjavíkurbæjar voru svo sendir sérstakir fulltrúar til þess að taka þátt í þessari samningagerð.

Eftir að Alþjóðabankinn hafði bæði kynnt sér efnahagsástand og áhrif efnahagsaðgerðanna hér á Íslandi og auk þess látið tæknilega sérfræðinga sína kanna hitaveitufyrirætlanirnar, hefur hann nú tjáð sig reiðubúinn til þess að veita lán til þessara framkvæmda, og er gert ráð fyrir, að það lán verði fyrir erlendum kostnaði vegna þessara framkvæmda, eða að upphæð milli 1½ og 2 millj. dollara. Um lánskjörin er ekki endanlega ákveðið, en um það er nú rætt á þessum samningafundum. Hins vegar er það að sjálfsögðu ljóst, að lánið verður til langs tíma og með mjög hæfilegum og viðráðanlegum vöxtum.

Varðandi hitaveituna í Reykjavík er það auðvitað kunnugt, að hitaveitan er eitthvert hið merkasta fyrirtæki, sem hér hefur risið á Íslandi. Þessi nýting hitaorkunnar til upphitunar í húsum er einstök í sinni röð og hefur fært íslenzku þjóðinni mjög mikinn hagnað. Það er nú um það bil helmingur bæjarbúa, sem nýtur hitaveitunnar, eða um 40 þús. manns. Áætlanir hafa verið gerðar um stækkun hennar, og sumt af því er þegar í framkvæmd. Stækkun sú, sem ráðgerð er á næstu fjórum árum, 1962–65, er gert ráð fyrir að nái til allra bæjarbúa, þeirra sem ekki hafa enn orðið aðnjótandi hitaveitunnar, eða um 35 þús. manns. Þessar framkvæmdir er gert ráð fyrir að kosti um 245 millj. kr., en af því er erlendur kostnaður um það bil þriðjungur. Varðandi innlenda kostnaðinn er gert ráð fyrir því, að hitaveitan sjálf geti lagt fram af tekjum sínum um 70 millj. kr., en að öðru leyti fara nú fram athuganir á því, hvernig megi afla hans með lánsútboði með fulltingi lánsstofnana, og hefur borgarstjórinn í Reykjavík átt viðræður við bankastofnanir hér innanlands í því skyni. Varðandi erlenda kostnaðinn er svo ætlunin sú að reyna að fá hann að öllu leyti eða að mestu leyti að láni frá Alþjóðabankanum.

Varðandi þetta mál er þess fyrst að geta, að hér er um að ræða lántöku til mjög góðs fyrirtækis, sem er þjóðinni mjög hagkvæmt, og á hinn bóginn er það mjög mikils varðandi, að nú opnast eftir 8 ára hlé möguleikar til þess að fá lán með hagkvæmum kjörum til langs tíma frá þessari miklu alþjóðabankastofnun. Það ber þess að sjálfsögðu vott, að þessi bankastofnun hefur það traust á efnahagsmálum Íslendinga, að hún telur rétt nú að hefja lánveitingar að nýju til íslenzku þjóðarinnar. Það er að sjálfsögðu von okkar, að á því verði framhald og á næstunni getum við orðið aðnjótandi hagkvæmra lána til margvíslegra þjóðnytjaframkvæmda hér á Íslandi frá þessari stofnun.

Ég legg svo til, að frv., sem hlaut einróma samþykki í hv. Ed., verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn. Ég vildi beina því til hv. fjhn., að það mun æskilegt að breyta orðalagi á hluta 1. gr. frv., þannig að í stað þess að ríkisstj. sé heimilt að endurlána þessa fjárhæð Hitaveitu Reykjavíkur gegn ábyrgð bæjarsjóðs Reykjavíkur, mun réttara að orða þetta þannig: að endurlána Reykjavíkurborg til stækkunar hitaveitunnar, m.ö.o. þetta er aðeins formsatriði, þannig að gagnvart ríkissjóði yrði þá Reykjavíkurborg lántakandi, en ekki hitaveitan sjálf sem stofnun. Ég vænti þess, að þetta frv. hljóti eins og í Ed. einróma samþykki deildarmanna.