09.02.1962
Efri deild: 44. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í C-deild Alþingistíðinda. (2628)
136. mál, vegagerð á Vestfjörðum og Austurlandi
Flm. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er þessari hv. þingdeild kunnugt, því að svipað frv. hefur verið flutt tvívegis áður. Og það hefur sýnt sig á þessu tímabili, sem liðið er, síðan frv. var fyrst flutt, að það hafa ekki fengizt leiðréttingar á því atriði, sem ætlunin er að reyna að leiðrétta með þessu frv., ef það verður að lögum. Það eru að mínu áliti engar líkur til þess heldur, að það fáist önnur lausn á þessu máli en sú, sem hér er lögð til, og þess vegna allar líkur til þess, að ef svo færi, að þetta frv, yrði ekki samþykkt, sem ég þó vona, þá verði þetta frv. af einhverjum tekið upp aftur, vegna þess að ég sé ekki betur en það sé hægt að færa að því sterkar líkur, næstum sannanir, að málið fær ekki leiðréttingu, nema valin verði sú leið, sem hér er bent á.
Það verður ekki um það deilt, að vegakerfið er byggðum þessa lands ein hin mesta nauðsyn. Það má segja, að þeir bændur og þau byggðarlög, sem hafa ekki veg heim til sín, séu eða finni til eins og eins konar utangarðsmenn í þessu þjóðfélagi og það ekki að ástæðulausu. Með nútíma vélvæðingu í búskap — en annar búskapur er naumast hugsanlegur hér á landi er eitt fyrsta skilyrðið að koma að sér verkfærum. Bændur, sem hafa ekki vegi heim til sín, eru því útilokaðir frá því að geta notað vélar, a.m.k. í sama mæli og aðrir bændur, og þar með útilokaðir frá nútímabúskap. Þar sem vegi vantar, segir það fljótt til sín, að bændur flýja byggðina, og hefur þetta orðið til þess, að viða hafa heil byggðarlög lagzt í auðn, og má alveg tvímælalaust rekja það til vegleysis, a.m.k. oft og einatt. Þetta er skiljanlegt, því að eins og ég benti á áðan, þá búa þessir bændur við allt önnur búskaparskilyrði en aðrir bændur landsins. Það er því ekki litið réttlætismál, að þessum þægindum, sem þjóðfélagið kostar úr sameiginlegum sjóði þjóðarinnar, sé réttiátlega skipt milli þegnanna.
Það hefur verið gerð nokkur athugun á því, hvernig þessum þægindum er skipt milli hinna einstöku landsfjórðunga, og kemur það fram í skýrslum, sem vegamálastjóri hefur látið gera 1959 um vegakerfi landsins. Þó að þessi skýrsla sé að nokkru tekin upp í grg., get ég ekki stillt mig um að lesa örstuttan kafla úr henni, með leyfi forseta, og hygg ég, að ekki verði betur skýrt fyrir hv. þingd., hve mikið misrétti ríkir milli hinna einstöku landsfjórðunga í þessum málum.
Vegunum, sem vegamálastjóri tekur upp í skýrslu sína, er skipt í þrjá flokka. Það eru lagðir vegir, þ.e. fullgerðir vegir, ruddir vegir, þ.e. bráðabirgðavegir, og óbílfærir vegir, þ.e. veglaust. Af þjóðvegum í Vestfjarðakjördæmi voru 22.2% óbílfærir. Í Austfjarðakjördæmi voru 10% af þjóðvegum óbílfærir, en í öðrum kjördæmum voru 1.9–5.9% óbílfærir. Fullgerðir vegir voru í Austfjarðakjördæmi 37.2% af þjóðvegunum þar, en í Vestfjarðakjördæmi reyndust það 46.6%, en í öðrum kjördæmum 67 og upp í 82% fullgerðir. Óbílfærir þjóðvegir í Austurlands- og Vestfjarðakjördæmum báðum voru 479.3 km. En í hinum kjördæmunum fimm utan Reykjavíkur voru þeir 251.2 km samtals. Ruddir þjóðvegir voru í Austurlands- og Vestfjarðakjördæmum samtals 1304.4 km, en í hinum kjördæmunum fimm utan Reykjavíkur 1179.5 km.
Þessi skýrsta talar svo skýru máli, að það þarf litlu við hana að bæta. Það verður að gera ráð fyrir því sem meginreglu, þó að hún sé kannske ekki ófrávíkjanleg, að vegir séu teknir í þjóðvegatölu vegna þess, að nauðsynlegt er talið að leggja þá og ef að líkum lætur álíka nauðsynlegt að leggja þá og aðra þjóðvegi, sem teknir eru upp í þjóðvegatölu, einnig á Vestfjörðum og Austfjörðum. En af hverju stafar það þá, að þessi tvö kjördæmi hafa orðið svo harkalega út undan? Þetta stafar af því, að þær kröfur hafa alltaf verið uppi á Alþingi og undan þeim hefur einatt orðið að láta, að nokkurn veginn jafnhá fjárveiting væri ætluð til vega í kjördæmunum. Þótt nokkru meira hafi verið ætlað til vega á Vesturlandi og Austurlandi, hefur það alls ekki verið nægilegt til þess að vega upp á móti því, hvað vegalengdir voru þar miklu meiri og hvað landslag var miklu erfiðara til vegalagningar og vegalagningin þar af leiðandi dýrari. Þess vegna hafa fullgerðir þjóðvegir verið lagðir heim á svo að segja hvern bæ í hinum minni kjördæmum og þar sem landslagið er þannig, að vegagerðin er tiltölulega ódýr, meðan Vestfjarðakjördæmi og Austfjarðakjördæmi hafa orðið út undan vegna vegalengda og vegna þess, hve erfitt er að leggja vegi þar viða vegna landslagsins. hað er ekki útlit fyrir, að breytt kjördæmaskipun lagfæri þetta misrétti. Fjárveitingar til vegagerðar síðustu árin sýna og sanna, að það er vonlaust, ef framlög til vega á fjárlögum eru í svipuðum hlutföllum og áður hefur verið veitt til hinna ýmsu kjördæma. Ég sé því ekki betur en eina leiðin til þess að leiðrétta þetta misrétti, sem orðið er, sé að taka lán, eins og lagt er til í þessu frv., til þess að vinna upp þetta misrétti, sem orðið er, af þessum ástæðum, sem ég tel mig hafa rakið og má telja að ýmsu leyti ekki óeðlilegar með tilliti til þeirrar togstreitu, sem alltaf hefur verið á milli kjördæmanna og virðist halda áfram, um jöfn framlög til vegalagningar.
Lánaleiðinni, sem stungið er upp á í þessu frv., hefur verið mótmælt á þeim grundvelli, að reglan hafi verið sú að taka ekki lán til vegagerðar. Ég hef verið einn af þeim, sem hafa álitið mjög vafasamt að leggja mikið fé til malbikaðra vega og steyptra vega í námunda við þéttbýlið, — sérstaklega kemur það til greina í námunda við Reykjavík, — meðan aðrir landshlutar hafa lélega eða enga vegi. Ég verð þó að viðurkenna, að það er nokkurn veginn sannað, að malarvegi er ekki hægt að nota, þegar umferðin kemst yfir vissan bílafjölda á sólarhring. Og því er ekki hægt að neita, að það verður að teljast sannað, að malarvegirnir hér nálægt Reykjavík eru svo mikið notaðir, að raunverulega er málið komið á það stig, að ekki verður komizt hjá því að steypa eða malbika vegi, þar sem umferðin er mest. En nú hefur einmitt verið gripið til þess ráðs í því skyni að leggja steyptan eða malbikaðan veg hér í nágrenninu að taka lán, sem að lokum verður allt að 50 millj. kr., að því er álitið er, til þess að leggja veg til Keflavíkur, þó að vegur sé þar fyrir. Ég verð að segja það, um leið og þessi regla er upp tekin, sem er ekki óeðlileg, vegna þess að hún er til að flýta fyrir framkvæmd og koma veginum í notkun, og er ekki annað en vaxtaspursmál um að ræða sem aukin útgjöld, að ef og þegar svona lán er tekið til vegalagningar hér í námunda við Reykjavík, sem ég tel engan veginn ósanngjarnt, þá teldi ég það ósanngirni á háu stigi, fyrst farið er inn á þessa leið á annað borð, ef neitað yrði um að taka 10 millj. kr. lán til þess að vinna upp það misrétti í vegamálum, sem orðið er af þeim ástæðum, sem ég hef greint, á Vestfjörðum og Austfjörðum. Eg vænti þess, að sú nefnd, sem fær þetta til meðferðar, samgmn. sennilega, athugi þetta mál af gaumgæfni, því að ég er alveg sannfærður um rað, að ef þetta mál er athugað með sanngirni og þau rök athuguð, sem ég hef fært fyrir þessu máli, er naumast hægt annað en verða við því að samþykkja þetta frv.