27.03.1962
Efri deild: 71. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 195 í C-deild Alþingistíðinda. (2633)
136. mál, vegagerð á Vestfjörðum og Austurlandi
Frsm, meiri hl. (Bjartmar Guðmundsson):
Herra forseti. hað eru aðeins örfáar aths. út af ræðu hv. 4. im. Vestf. Hann sagði, að í nál. okkar meirihlutamanna stæði, að við teldum jafna þörf á vegaframkvæmdum í öllum kjördæmum. Í nál, stendur aðeins, að þörf sé fyrir auknar vegaframkvæmdir um allt land, þörf um auknar vegaframkvæmdir væri í öllum kjördæmum landsins, og ég þarf ekki að deila við hann um þetta. Það mun hafa komið fram í þessum fáu orðum, sem ég sagði hér áðan, að ég byggist við því, að þessi kjördæmi væru að því er snertir vegaframkvæmdir á eftir flestum öðrum kjördæmum í landinu. En það er ekki þar með sagt, að það sé ekki jöfn þörf a.m.k. á pörtum í sumum öðrum kjördæmum eins og er á Vestfjörðum og Austfjörðum. Þó að hann flytji hér tölur um það, að það sé mikið ólagt af þjóðvegum á Austfjörðum og Vestfjörðum, þá sannar það ekki alla hluti, vegna þess að þjóðvegakerfið er mjög misjafnlega teygt út um hinar einstöku byggðir. Hann nefndi SuðurÞingeyjarsýslu, — það er kannske búið að vinna þar meira í þeim vegum, sem búið er að taka inn á þjóðvegakerfið, hlutfallslega heldur en t.d. í Vestfjarðakjördæmi. En það getur alveg eins verið eftir stór hluti að taka þar inn í þjóðvegakerfið. Þessar tölur segja þess vegna ekki nema bara brot úr því, sem rétt er. Það hefur mjög komið í ljós við endurskoðun þessara hluta í þeirri n., sem ég á sæti í, að það er mjög misjafnt, hvað þjóðvegir hafa verið teygðir langt út í hinum einstöku kjördæmum. Það fer nokkuð eftir því, hvað einstakir þm. hafa verið duglegir að ota fram vissum vegarspottum.
Hv. þm. taldi, að það væri fjarstæða að vitna í það, að það væri verið að vinna að þessum málum í veganefnd, því að það væri augljós hlutur, að þarna væru viss landssvæði á eftir öðrum landssvæðum. En ég vil segja honum það og hv. þingdeild, að fyrst og fremst er megintilgangur þessarar endurskoðunar að finna leiðir til þess að jafna þau met og það misræmi, sem er í vegalagningu um ýmsa hluta landsins. Ég segi ekkert um það, að þetta takist, en þetta er tilgangurinn með því, að þessi nefnd starfar, og einnig það að reyna að finna leiðir til þess að afla aukins fjár til veganna.
Þá minntist hann á það og lagði raunar fyrir mig spurningu, hvernig stæði á því, að tekið hefði verið lán til Reykjanesvegar. Því er aðeins til að svara, að sú lántaka var ákveðin áður en þessi vegaendurskoðun var ákveðin. Þar af leiðandi er hún utan við það svið, sem endurskoðunarnefnd fjallar um, og þessu máti því ekki viðkomandi. Það er ekki hægt að bera þetta saman.
Hér á hv. Alþingi hefur verið víkið til hliðar mörgum till. um breyt. á vegakerfi, þangað til eitthvað lægi fyrir frá þessari n. og hún legði eitthvað ákveðið til um vegalagabreytingar, og það er eins um þetta mál og önnur mál, sem vísað hefur verið til vegamálanefndarinnar, að það er að mínu áliti ekki tímabært að afgreiða það, fyrr en heildartillögur um þessi atriði liggja fyrir