27.03.1962
Efri deild: 71. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í C-deild Alþingistíðinda. (2634)
136. mál, vegagerð á Vestfjörðum og Austurlandi
Hermann Jónasson:
Herra forseti. Ég ræddi um þetta mál, þegar það var til 1. umr., og tók þá fram í aðalatriðum það, sem ég taldi að máli skipti, og ég skal reyna að endurtaka litið af því.
Það, sem liggur fyrir í þessu máli, er afleiðing þeirrar stefnu, sem verið hefur í vegamálum og brúargerðum, en það er fyrst og fremst eðlilegt reiptog milli kjördæmanna um það, að fjárframlög séu sem jöfnust í hvert kjördæmi, og undan þessu hefur Alþingi orðið að láta fyrir þrýsting frá þm., hvaða stjórn sem farið hefur með völd. Þessi jöfnunarregla hefur verið meginreglan í fjárveitingum. Og þegar við lítum á þetta mál, sjáum við greinilega, hver árangur þessarar stefnu hefur orðið. Það er vegna þessarar stefnu, að tveir landsfjórðungar hafa orðið alveg sérstaklega útundan, og fyrir því hafa verið færð rök, — skýrsla vegamálastjóra, sem eru alveg óvefengjanleg. Það er svo miklu minna lagt af þjóðvegum í þessum tveimur landsfjórðungum en í nokkrum öðrum, að þegar skýrslan birtist, þá vöknuðu menn upp við þann vonda draum, afleiðinguna af þeirri reglu, þeirri stefnu, sem ég minntist á áðan og hefur verið fylgt. Ástæðan til þess, að þetta hefur farið svona, er sú, eins og ég benti á við 1. umr. þessa máls, að vegalengdir vegna mjög vogskorinnar strandlengju eru meiri á þessu svæði en annars staðar, og í annan stað, að þessir landsfjórðungar eru þannig að landslagi að öðru leyti, fjöllóttir, að erfiðleikarnir við vegalagningu og kostnaðurinn við vegalagningu er þar meiri en annars staðar. Það er því hvort tveggja vegalengdir og landslag, sem valda því, að meiri fjárframlög þarf til þessara landsfjórðunga til þess að koma vegunum áleiðis, samanborið við önnur kjördæmi, heldur en í öðrum kjördæmum og öðrum landsfjórðungum. Það er meira að segja þannig, að menn hafa gert sér litlar vonir um, að á sumum þessum svæðum, þar sem landslag er þannig, sem ég nú hef lýst, væri hægt að leggja vegi. Nú hefur opnazt greiður möguleiki til þess með hinum stórvirku verkfærum.
Því er nú borið við, að það þurfi að gera áætlun um þessi mál. Ekki er ég því mótfallinn, að það séu gerðar áætlanir um þau verk, sem á að framkvæma, og það er ekki nema gott um það að segja. En auðvitað er þetta ekki annað en fyrirsláttur, það verð ég að leyfa mér að segja, það er ekkert annað en fyrirsláttur, að það þurfi áætlanir um þessa vegagerð, því að það liggur fyrir, að það er búið að löggilda þjóðvegi, það er búið að lögfesta þjóðvegi á þessum svæðum, sem engar líkur eru til að verði afnumdir, þjóðvegi, sem eru ólagðir að mestu leyti eða að miklu leyti. Það væri þá ekki áætlun um annað en það að leggja niður eitthvað af þessum þjóðvegum, sem búið er að tögfesta.
Ég get nú satt að segja ekki séð, eins og ég hef áður sýnt fram á, að það sé nein leið til þess að jafna metin milli þessara landsfjórðunga og annarra kjördæma, neinn möguleiki annar en sá að taka lán til þessara framkvæmda. Það er vitað mál, að þeirri reglu, sem ég minntist á í upphafi þessa máls, er svo fast fram fylgt, að það verður aldrei þolað af þm., að það sé tekin sérstaklega miklu hærri fjárveiting á fjárl. til Austfjarðakjördæmis og Vestfjarðakjördæmis heldur en annarra kjördæma, að það eru engar líkur til, að málið verði leyst á þann veg. Þessi regla hefur verið reynd til hlítar. Ég er ekki að segja það, að þeir hafi á Austfjörðum eða Vestfjörðum haft á neinn hátt duglegri þm. en aðrir. En ég vil halda því fram, að þeir hafi ekki haft óduglegri þm. en aðrir í því að afla fjárveitinga. Sumir þeir, sem hafa verið þm. á Vestfjörðum, hafa verið ötulir í þessum efnum, þó að ég væri sjálfur ekki með talinn. En það hefur bara ekki hrokkið til, af þessum ástæðum, sem ég hef gert grein fyrir. Það þarf miklar fjárveitingar t.d. í Norður-Ísafjarðarsýslu, sem er veglaus, Strandasýslu og Barðastrandarsýslu til þess að koma vegunum í svipað horf og annars staðar og í það horf, sem er viðunandi, ef á að stunda búskap í þessum kjördæmum á þessum svæðum. Það eru þess vegna engar líkur til, að það sé hægt að leiðrétta málið á annan veg, og það er raunverulega farið inn á þessa leið, sem við bendum á, eins og hefur verið tekið fram af hv. frsm. minni hl. í þessu máli.
Það er alveg auðsætt mál og vitað, að þegar á malarvegum nálægt kaupstöðum er umferð yfir visst mark, þá eru þeir raunverulega ónothæfir. Og ég geri ráð fyrir, að það sé rétt, að umferð um Keflavíkurflugvöll sé orðin slík, að það borgar sig ekki og er raunverulega ófært að hafa malarveg, því að það er sama, hve oft hann er sléttaður, hann kemst í svipað horf á svipstundu aftur. Eftir reglunni, sem hefur verið fylgt, hefði ekki átt að mega leggja meira í þetta kjördæmi en annars staðar. Ef ætti að leysa þetta eftir þeirri reglu að leggja meira fram á fjárl. en annars staðar, þá er ég ekki í neinum vafa um það, að þessi fjárveiting hefði aldrei fengizt. Það hefði engum dottið í hug að leggja 10 millj. aukalega á fjárl. Það hefði komið upp metingur á milli kjördæma eins og endranær, ef það hefði átt að leggja fram 10 millj. á fjárl., og þess vegna er tekið lán. Það er gert vegna þess, að hitt er ekki fær leið. Þess vegna er lánið tekið, að svona sérstaklega stendur á. Og ég vil nú halda því fram, að þegar þessi regla er tekin upp einu sinni, sem ég álit að sé ekkert óeðlileg, þá er vitanlega ekki minni ástæða, að ekki sé meira sagt, að taka lán til þess að koma bæjunum í Vestfjarðakjördæmi í þolanlegt vegasamband heldur en að leggja steyptan veg hér nálægt Reykjavík.
Raunverulega hefur þessi regla um jöfn fjárframlög til kjördæmanna verið brotin áður. Það er þar sem brýr hafa verið sérstaklega kostnaðarsamar, stórfljót hafa verið brúuð. Þar hefur ekki verið metingur um það milli kjördæma. Til þess að koma í veg fyrir meting milli kjördæma hefur verið veitt með sérstökum hætti, eins og allir vita um, stórfé til þeirra brúagerða, vegna þess að þessi fljót þurfti að brúa. Og þetta er í raun og veru hliðstætt því, að á Vestfjörðum og Austfjörðum er sérstakt landslag, — þar er ekki um stórfljót að ræða, en þar er sérstakt landslag, sem veldur því, að þessi kjördæmi hafa orðið alveg sérstaklega út undan.
Ég geri nú ráð fyrir því, að menn geri sér þetta mál sæmilega ljóst. Það er aðeins spurning um vilja fyrir því, hvort við viljum hér í þessari hv. þd. og hér á Alþingi koma því til vegar, að þessir menn, sem þarna búa, séu svipað settir og þeir, sem annars staðar búa í landinu. Þessi afgreiðsla á málinu, að vísa því til stjórnarinnar, er auðvitað ekkert annað en að fella málið, og sá fyrirsláttur, að það þurfi sérstaka rannsókn í nefnd, er, eins og ég hef sýnt fram á, ekki handbær rök. Þjóðvegirnir eru til, þeir eru ólagðir. Það þarf enga áætlun um annað en það að útvega fé til að leggja þessa vegi. Ég geri ráð fyrir því, að það verði ekki gert nema að þeirri leið, sem hér er lögð til. Og ég verð að segja það, að ég verð fyrir ákaflega miklum vonbrigðum og tel það bera vott um litla réttlætiskennd hjá hv, þd., ef hún fellir þetta mál með því að vísa því til stjórnarinnar.