27.03.1962
Efri deild: 71. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (2636)

136. mál, vegagerð á Vestfjörðum og Austurlandi

Frsm. meiri hl. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Það rifjaðist upp fyrir mér, að ég gleymdi einu atriði, sem ég ætlaði að minnast á í sambandi við fyrri ræðu hv. 4. þm. Vestf. (SE). Hann sagði, að ég hefði sagt, að gert væri ráð fyrir lántöku í tíu ár. Það er sennilega rétt. En þar hafa mér algerlega orðið mismæli, því að mér var vel ljóst, til hve langs tíma þetta var. Ég vildi leiðrétta þetta, því að ég ætlaði ekki að fara skakkt með þetta.

En úr því að ég er hér kominn, vil ég bæta því við, að þó að þm. vitni í það, hvenær þáltill. var samþ. í Sþ. í fyrra um endurskoðun vegalaga, þá stendur það óhaggað, að þá var búið að ákveða þessa lántöku í Reykjanesveg, áður en hún var samþ. Það getur hann ekki borið ofan í mig, því að ég er þeim málum það kunnugur, og hef ég þá ekki meir um það að segja.

Ég tel það ekki mitt mál að ræða hér um lántöku í Reykjanesveg, því að ég hef á engan hátt að því máli staðið. En ég hygg, að það sé einmitt sú lántaka í Reykjanesveg, sem hefur komið því af stað, að hafizt var handa og sú till., sem ég flutti ásamt nokkrum öðrum þm., var samþ. hér á Alþingi í fyrra um að endurskoða vegalögin og öll ákvæði varðandi vegi og leggja eitthvað raunhæft fyrir Alþingi í tillöguformi, sem nú er komið á það stig, að það verður gert á næsta hausti, að því er ég bezt veit. Og það er vel hægt að viðurkenna það, að framlög til vega hafa verið mjög af handahófi að undanförnu og mjög verið bundin við það að toga sem jafnastar upphæðir í kjördæmi, án þess kannske að á það; væri litið, hvar þörfin væri mest aðkallandi. Og ég vil aðeins bæta því við, að það styður það, að þessi regla virðist hafa verið nokkuð gildandi undanfarið, að þessi kjördæmi hafa fengið það litið, Vestfjarðakjördæmi og Austfjarðakjördæmi, undanfarið, að þau eru á eftir með sínar vegagerðir. Þau hefðu náttúrulega þurft að vera búin að fá aukin fjárframlög fyrir löngu, en ekki hafa þessir hv. þm. komið með till, hér á Alþingi um það að taka lán til þessara vega fyrr en nú. (SE: Tvisvar sinnum.) Já, ekki fyrr en núv. ríkisstj, tók við völdum, ekki meðan þeir sjálfir höfðu þau völd, að þeir áttu að geta komið slíkum lántökum áfram og fengið það samþ. hér á Alþingi.