09.04.1962
Neðri deild: 87. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í C-deild Alþingistíðinda. (2650)

27. mál, vegalög

Frsm. minni hl. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Við því hafði ég aldrei búizt, að hv. 2. þm. Vesturl. (SÁ) hefði þá ofurgnægð af ósvífni að standa upp og neita því, að ég hefði beðið hann að halda fund í nefndinni. Ég gekk til hans þarna, sem hann er nú að setjast, að þessum stól, sem hann nú situr í, og óskaði eftir fundi í nefndinni. Vitni hef ég auðvitað engin, nema ef svo skyldi hafa viljað til, að sessunautar hans hafi heyrt það. En í því skjóli skákar hann sjálfsagt, að þeir hafi ekki hlustað eftir því. En þetta er sannleikur málsins, sem hann svo leyfir sér að koma og kalla mig ósannindamann fyrir. Hins vegar játaði hann afleiðingarnar af þessu, og þær voru þær, að þegar hann svo nokkru seinna fór til Ameríku án þess að hafa haldið fundinn, þá bað hann sérstaklega þann, sem settist í sæti hans, að halda fundinn og hann gerði það, en tilefnið var það, að ég hafði óskað eftir því, að form. n. héldi fundinn, og svo þrætir hann fyrir það og er lítill karl fyrir.

Ég hefði ekkert við það að athuga, ef hv. nefnd hefði bara sagt hreinlega: Ég tel ekki þörf á að opna vegalögin núna, því að það er á nóga vegi að ganga í sérhverju kjördæmi, — og hv. form. hefði síðan rökstutt það með sínum ólögðu vegum. En það var ekki gert. Það var skotið fyrir sig rökum, sem voru fyrirsláttur, eins og með störf þessarar endurskoðunarnefndar, sem fjallar um allt annað en það, hvaða vegir eigi að takast í þjóðvegatölu á hverjum tíma, og síðan í enn fráleitara skjól, að tala um, að það væru ekki peningar til að leggja nýja þjóðvegi og þess vegna ætti ekki að opna vegalögin. En Alþingi hefur aldrei séð strax fyrir fjármagni til að byggja þá vegi, sem var verið að taka á hverjum tíma í þjóðvegatölu, og málið á ekkert skylt við það, það kemur aftur til við afgreiðstu fjárlaga.

Ég þakka svo hæstv. forseta fyrir, að mér gafst tækifæri til að hnekkja þeim brigzlum, sem á mig voru borin, og a.m.k. endurtaka það enn þá einu sinni, að hv. þm. var beðinn að boða fund, gerði það ekki, en fól sínum staðgöngumanni það.