30.10.1961
Efri deild: 9. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í C-deild Alþingistíðinda. (2657)
41. mál, jarðgöng á þjóðvegum
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Hv. 3. þm. Norðurl. v. hefur gert ýtarlega grein fyrir þessu máli, gangi þess á fyrra þingi og þeim till., sem nú eru fluttar. Hann ræddi allmikið um Siglafjarðarveg, hvaða þýðingu það hefði að koma þar á jarðgöngum, og þarf ég ekki að endurtaka neitt um það. En það er annar staður, sem er svipað ástatt um, og það er á Vestfjörðum. eins og hann að vísu nefndi, það er Breiðadals. heiði, sem liggur á milli Önundarfjarðar og Ísafjarðar. Þessi heiði er álíka há eða litlu lægri yfir sjávarmál heldur en Siglufjarðarskarð, 610 m há, en Siglufjarðarskarð 630, og það má segja sömu sögu um Breiðadalsheiði og Siglufjarðarskarð, að þar lokast vegir jafnvel um mitt sumar, þegar svo vill til um veðráttu, og er náttúrlega með öllu lokuð sú leið frá því á haustin og þar til komið er fram á næsta sumar. Það er því flest það sama að segja um Breiðadalsheiði og Siglufjarðarskarð.
Löggjöf, sem gæti tryggt það, að hafizt yrði handa um það að koma á jarðgöngum á þessum tveimur stöðum, er því ekki þýðingarlitil fyrir alla þá, sem þurfa á þessum samgöngum að halda. Það hefur einnig verið gerð nokkur kostnaðaráæt[un um jarðgöng þar, alveg eins og fyrir norðan, svo að það má búast við, að þessar tvær framkvæmdir verði það fyrsta, sem gert verður af þessu tagi, þegar fé er fyrir hendi í þessu skyni, Þegar búið væri að brúa þennan þröskuld fyrir vestan, þ.e. að gera jarðgöng yfir hæsta hrygginn á Breiðadalsheiði, er verulegum hindrunum rutt úr vegi á leiðinni vestur til Ísafjarðar, því að aðrar heiðar eru snjóléttari og miklu lægri, og auk þess er gert ráð fyrir, að Þingmannaheiðin leggist fljótlega niður og vegurinn verði þar lagður meðfram sjó, en engin jarðgöng þarf þar. Þetta er því áreiðanlega, hvað snertir þessa tvo landshluta, ákaflega þýðingarmikið mál, að það komist á rekspöl, fjáröflun og reglur um jarðgöng á þessum stöðum.
Hv. 6. þm. Norðurl. e. hefur frekar, að mér skildist, andmælt þessu frv., og mér er það nokkurt undrunarefni. Ég bjóst við, að hann mundi verða öruggur stuðningsmaður þess, þar sem hann var sjálfur flm. að svipuðu frv. á síðasta þingi. En það frv. var þó að því leyti gerólíkt, að þar var ekki séð fyrir neinum tekjum til þessara verka. Hann afsakar þessa afstöðu sína og þeirra flm. þá, sem vildu ekki vera flm. nú, með því, að nú séu vegalög í endurskoðun. Því er að svara í fyrsta lagi, að það er ekki verið að breyta neinum vegalögum með þessu frv. Þetta frv. er um það að auka hlutverk brúasjóðs, ætla honum að gera hin stærri jarðgöng og ætla honum tekjur til þess. Ég veit ekki til, að það sé nokkuð verið að endurskoða lög um brúasjóð, svo að þetta getur ómögulega fallið undir slíka endurskoðun, a.m.k. ekki að það þurfi að hindra þetta frv. með því. Þar að auki veit ég ekki, hvað hún á að standa lengi yfir, þessi endurskoðun á vegalögum, sem samþ. var till. um í fyrra. Ég vil þó benda á, að þá var verulegur ágreiningur um afgreiðslu þeirrar ályktunar, þar sem stjórnarflokkarnir felldu till. um það, að þingið kysi sjálft menn til þessarar endurskoðunar. Ég veit ekki einu sinni, hverja hv. ríkisstj. hefur valið til þessarar endurskoðunar eða hvað hún er komin á leið eða hvort hún er nokkuð komin á stað, mér er ókunnugt um það. Ef það er svo, að þessir menn eigi líka að fara að endurskoða hlutverk brúasjóðs, þá gæti ég trúað, að sú endurskoðun drægist allríflega. Og þá mætti lengi bíða eftir framförum í þessum efnum, ef ekkert má samþykkja af neinu tagi, sem þetta snertir, þangað til henni er lokið. Ég vil benda hv. þm. á, að það lítur ekki út fyrir, að þm. almennt séu þeirrar skoðunar, að þeir telji ekki réttmætt að flytja till. um vegi, þó að þessi þátill. í fyrra hafi verið samþykkt. Ég sé ekki betur en þm. úr flestum eða öllum flokkum séu búnir að flytja till. í báðum deildum þessa þings nú um nýja þjóðvegi. Hvað kemur til, að mennirnir gera þetta, fyrst þessi endurskoðun stendur yfir? Nei, það er áreiðanlegt, að þm. sjá fulla nauðsyn á því bæði að fá nýja vegi í þjóðvegatölu og eins t.d. að koma þessu máli fram, sem hér er flutt, þrátt fyrir þessa endurskoðun. Ég sé ekki heldur, að það þurfi að trufla neina endurskoðun, þó að slíkt sé gert, bæði að taka inn nýja þjóðvegi og eins að samþykkja þetta frv., hún getur verið í fullu gildi jafnt fyrir það. Og mér finnst fremur vera tylliástæða að þurfa að andmæla þessu frv. eða till. um nýja þjóðvegi með því, að þessi endurskoðun fari fram, sem getur staðið yfir næsta lengi. Það eru nú liðin 6 ár, síðan vegalögum var breytt, og menn úr flokki hv. 6. þm. Norðurl. e. hafa flutt á hverju einasta þingi í sex ár till. um nýja þjóðvegi. Þeir sjá ekki neina sérstaka annmarka á því, þó að ekki sé búið að framkvæma neina heildarendurskoðun á vegalögum landsins.