12.04.1962
Neðri deild: 90. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í C-deild Alþingistíðinda. (2683)
41. mál, jarðgöng á þjóðvegum
Frsm. meiri hl. (Sigurður Ágústsson):
Herra forseti. Ég er dálítið undrandi yfir málflutningi hv. 11. landsk. þm. Hann túlkar mál sitt þannig, að okkur, sem skipum meiri hl. samgmn., vanti áhuga og skyldurækni til að sýna þessu máli þann sóma, sem því ber. Þetta er mjög röng túlkun. Það er sameiginlegt áhugamál allra hv. þm. strjálbýlisins, að þeir vilja vinna af alhug að bættum samgöngum á landi. Við í meiri hl. teljum rétt, að þar sem verið er að framkvæma endurskoðun á vega- og brúalögum, þá komi þetta mál að sjálfsögðu þar undir. Og ég efast stórkostlega um, að það sé rétt hjá hv. alþm., að þetta muni tefja lagningu Siglufjarðarvegar um Stráka. Ég tel, að það sé síður en svo ástæða til að halda það, og ég er þess fullviss, eins og ég benti á í ræðu minni áðan, að eftir að vegalaganefnd hefur lokið störfum sínum, sem gert er ráð fyrir að hún hafi gert fyrir næsta þing, þá muni verða lagt fyrir Alþ. frv. til laga um stórauknar framkvæmdir á sviði vega og brúa, eins og ég hef margtekið fram í málflutningi mínum og kemur einnig fram í nál. okkar í meiri hl.
Ég tel, að þetta sé sú rétta afgreiðsla málsins, og ég heiti vissulega á alla hv. þm. strjálbýlisins, að þegar væntanlegt frv., sem verður lagt fyrir næsta þing, kemur hér til afgreiðslu á Alþ., þá verði reynt að standa að því, að unnt verði að fá stóraukið fjármagn til þessara framkvæmda.
Þó að þetta frv., sem borið var fram í Ed. og hlaut samþykki þar, hefði verið samþ. hér í d., þá er ég þess fullviss, að það hefði ekki gefið þær tekjur, sem þyrfti með til að leggja Siglufjarðarveginn, því að vissulega eru margir vegir, bæði Múlavegur, Ennisvegurinn o.fl. vegir, sem eru mjög aðkallandi fyrir viðkomandi byggðarlög og þarf stóraukið fjármagn til, ef þeir eiga að vera framkvæmdir,
Ég get þess vegna ekki fallizt á málflutning hv. 5. þm. Norðurl. v. eða hv. 11. landsk. þm., að nál. það, sem minni hl. samgmn. hefur lagt fram, sé ekki fært fram af fullri sanngirni og með ósk um það, að þessi mál fái góða afgreiðslu á næsta þingi.