31.10.1961
Neðri deild: 10. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í C-deild Alþingistíðinda. (2746)
22. mál, áburðarverksmiðja
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er ánægjulegt að heyra það, að allir þessir hv. þm., sem hafa rætt hér í dag um áburðareinkasöluna og frv. það, sem fer fram á, að hún verði lögð niður, leggja áherzlu á, að þeir geri þetta fyrst og fremst til þess að tryggja hagsmuni bænda, og þá ekki sízt hv. 7. þm.. Reykv. (ÞÞ), sem hafði miklar áhyggjur af því, að bændur fengju ekki eins góð kjör með áburðinn, ef áburðareinkasalan yrði lögð niður.
Ég vil upplýsa þessa hv. þm.. um það, ef þeir hafa ekki vitað það áður, að það er þetta sjónarmið, sem ræður hjá mér, að ég vil stuðla að því, að bændurnir fái sem ódýrastan áburð. Það er einnig hægt að upplýsa þessa hv. þm.. um það, að bændur spyrja ekki um, hvort þeir kaupa áburðinn af áburðareinkasölunni, áburðarverksmiðjunni eða einhverjum öðrum aðila. Bændurnir spyrja að því, hvað áburðurinn kostar og hvort þeir eigi kost á að fá þann áburð, sem reim hentar. Það er þetta, sem bændurnir spyrja um, og ef mögulegt er að tryggja, að áburðurinn verði ódýrari en hann hefur verið og að þjónustan verði ekki lakari en áður, þá verða bændurnir ánægðir, og þá höfum við gert skyldu okkar, hvað það snertir að tryggja landbúnaðinum ódýran áburð. En það verður ekki gert með því að hafa marga aðila, sem verzla með áburð. hað verður ekki gert með því að hafa óþarfa milliliði. En það gæti tekizt með því að hafa frjálsa samkeppni eða undirbúa það góða aðstöðu á einhverjum ákveðnum stað, að dreifingin og öll aðstaða yrði hagkvæmari en áður hefur verið.
Í fyrra var flutt frv. um að gefa áburðarverksmiðjunni einkarétt á að flytja inn áburð. Það var gert vegna þess, að sú skoðun var ráðandi, að áburðarverksmiðjan hefði betri aðstöðu en nokkur annar aðili til þess að gera þetta með ódýru móti. Áburðarverksmiðjan hefur sína bryggju og hún hefur sínar vörugeymslur og er að byggja vörugeymslu núna, — ég vil taka það fram, af því að það var spurt eftir því áðan, — skrifstofur, sem þarf ekki að auka, og skrifstofufólk, sem þarf ekki að bæta við, þótt nokkru sé bætt við starfið. Þetta leiðir til þess, að þarna er hægt að vinna þau verk, sem áburðareinkasalan gerir nú með sérstöku fólkshaldi í sérstöku húsnæði, sem tekið er á leigu. En vegna þess að hv. þm. mörgum líkaði ekki að gefa áburðarverksmiðjunni einkaaðstöðu með lögum til innflutnings á áburði, er þessu frv. breytt í það horf, að um leið og fram er tekið, að ríkisstj. geti falið áburðarverksmiðjunni að sjá um innflutning á áburði, er ekki lokað fyrir það, að aðrir geti einnig flutt inn áburð í samkeppni við áburðarverksmiðjuna. Og má þá ætla, að þetta frv. fái meira fylgi en frv. í fyrra, þar sem áburðarverksmiðjunni er ekki gefinn með lögum einkaréttur. En ég hef þá skoðun, að áhurðarverksmiðjan muni með þeirri aðstöðu, sem hún hefur, geta gert þetta á það ódýran og hagkvæman hátt, að aðrir geti ekki keppt við hana.
Það kom fram hér áðan hjá einum hv. þm., hv. 3. þm.. Reykv., að það væri óviðeigandi fyrir mig að vera að ræða um áburðarverksmiðjuna eins og ég geri, þar sem ég væri hluthafi í áburðarverksmiðjunni, að vísu lítill hluthafi, sagði þessi hv. þm.. Mér hafði aldrei dottið í hug, að ég væri minntur á það, að ég væri hluthafi í áburðarverksmiðjunni, að það ætti kannske að reyna að fara að stimpla mig sem einhvern braskara í sambandi við það fyrirtæki. Ég hafði ekki búizt við því. En þetta sýnir, að flest getur fram komið í umr., sérstaklega þegar menn eru að ræða mál eins og áburðarvinnslu og áburðarinnflutning, mál, sem þeir hafa aldrei komið nálægt áður.
Stjórn áburðarverksmiðjunnar eða meiri hluti hennar hefur látið gera athugun á því, hvort mögulegt væri fyrir áburðarverksmiðjuna að annast innflutning og dreifingu á áburði á ódýrari og hagkvæmari máta en verið hefur. Verksmiðjustjóri verksmiðjunnar og aðrir verkfræðingar hafa gert athugun á þessu, og fleiri aðilar hafa komið þar við sögu, og niðurstaðan hefur sýnt það, að áburðarverksmiðjan getur gert þetta á ódýrari og hagkvæmari hátt en gert hefur verið. Og það er þess vegna, sem áburðarverksmiðjunni hefur með bréfi, dagsettu í gær, en undirskrifuðu klukkan eitt í dag, verið falið samkv. heimild í lögum að taka að sér rekstur áburðareinkasölunnar. Það er ekki verið að leika neinn skrípaleik á Alþ. með þessu móti. Áburðareinkasalan verður ekki lögð niður nema með lögum. Þess vegna er jafnnauðsynlegt að flytja það lagafrv., sem hér er verið að ræða um, þótt heimild sé í lögum um áburðareinkasölu samkv. 4. gr. Þar segir: „Ríkisstjórnin getur falið Sambandi ísl. samvinnufélaga eða öðrum aðila, ef henta þykir, rekstur áburðareinkasölu ríkisins:
Það er rangt, sem hv. 1. þm.. Norðurl. v. sagði hér áðan: „eða öðru verzlunarfyrirtæki,“ það stendur ekki í lögunum. Og þá er það einnig rangt hjá þessum hv. þm.., að það hafi ekki verið lögum samkvæmt, þegar áburðarverksmiðjunni var falið að annast sölu á sinni eigin framleiðslu. Sýnir það, að málstaður hv. þm.. er ekki sterkur, þegar hann getur ekki haft orðrétt upp úr 4. gr. l. um áburðareinkasölu ríkisins frá árinu 1935.
Það bréf, sem stjórn áburðarverksmiðjunnar var skrifað, hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Með bréfi Áburðarverksmiðjunnar h/f, dags. 7. f.m., býðst áburðarverksmiðjan til þess að annast kaup og innflutning á erlendum áburði á næsta vori. Jafnframt skuldbindur áburðarverksmiðjan sig til að selja innfluttar áburðartegundir 100 kr. lægra verði hverja smálest en Áburðarsala ríkisins gerði á yfirstandandi ári, miðað við sama gengi í ísl. krónu og var á s.l. vori og að óbreyttu innkaupsverði í erlendum gjaldeyri á þessum tegundum áburðar, sekkjuðum af sömu framleiðendum og keypt var af síðast, og að óbreyttum vinnulaunum frá því, sem nú er. Út af þessu vill ráðuneytið hér með, samkv, heimild í 4. gr. l. nr. 51 28. jan. 1935, fela Áburðarverksmiðjunni h/f rekstur Áburðarsölu ríkisins frá 1. nóv. 1961 að telja með þeim skilyrðum, sem að framan greinir. Samráð ber að hafa við ráðuneytið um allar meiri háttar ákvarðanir í sambandi við áburðarsöluna. Rekstrarfé Áburðarsölu ríkisins má ekki festa í nýjum áburðarkaupum án samþykkis ráðuneytisins. Loks skal á það bent, að ekki má leigja erlend skip til áburðarflutninga án samþykkis viðskmrn.“
Eins og sjá má af þessu, er Áburðarverksmiðjunni h/f falinn rekstur áburðareinkasölu ríkisins frá 1. nóv. þ.á. að telja með þeim skilyrðum, að hún — áburðarverksmiðjan — útvegi ódýrari áburð en áburðareinkasalan hefur gert og gæti gert. Nú hafa hv. þm.. heyrt því haldið fram, að áburðarverksmiðjan geri þetta til þess að ná áburðarsölunni undir sig, þetta eigi að gera með því að falsa reikninga og með því að láta framleiðslu áburðarverksmiðjunnar borga með innflutta áburðinum. Vitanlega verða þarna sérreikningar á innflutta áburðinum. Og þó að nokkrir hv. þm., leyfi sér að tala um áburðarverksmiðjuna og stjórn áburðarverksmiðjunnar eins og nokkurs konar misindismenn, sem þar ráða, þá vil ég eigi að síður segja það sem mína óbifanlegu skoðun, að þarna verður alveg sérstakt bókhald og það eitt vakir fyrir stjórn áburðarverksmiðjunnar að gera þessa hluti á hagkvæmari og hentugri hátt en áður. Og ég veit, að sem betur fer, þá er það nú meiri hluti okkar þm., sem trúir því, að þessu sé þannig varið. En það er óskiljanlegt kapp, sem nokkrir hv. þm.. hafa lagt á að gera stjórn áburðarverksmiðjunnar tortryggilega, og það ekki síður hv. þm.. úr þeim þingfl., sem á tvo fulltrúa í stjórn áburðarverksmiðjunnar af fimm. Ég held, að þessi hv. þingflokkur, Framsfl., verði að athuga sinn gang betur og fela þeim mönnum að fara með stjórn í verksmiðjunni, sem hann treystir, því að eins og fram hefur verið tekið, hefur ákvörðun um afskriftir í verksmiðjunni verið tekin af allri stjórninni ágreiningslaust, eftir að umsögn lögfræðinga kom til. Það hefur einnig verið í sambandi við verðlagningu áburðarins ágreiningstaus tillaga, sem hefur verið staðfest af landbrn. í þau tvö ár, sem ég hef haft með það að gera.
Hv. 1. þm.. Norðurl. v. sagði hér áðan, að það væri ljóst, að ég teldi, að það væri vafasamt, að stjórnin hefði lagaheimild til þessara afskrifta, þar sem farið væri fram á að lögfesta þær í því frv., sem um er að ræða. Ég hef áður sagt, að það væri ekki ágreiningur um þetta meðal hinna lögfróðu manna. En það er greinilega ágreiningur um það á meðal hinna ólöglærðu manna, eins og t.d. hv. 1. þm.. Norðusl. v. og hv. 3. þm.. Reykv. Og til þess að koma í veg fyrir stöðugar umr. árlega og brigslyrði í sambandi við þetta mál hér á Alþingi hefur verið talið rétt að lögfesta þetta ákvæði á svo ótvíræðan hátt, að hinir ólöglærðu menn skilji þetta einnig. Af þessari ástæðu er farið fram á það ákvæði, sem er í 2. gr. frv.
Annars er það fátt, sem ástæða er til að svara af því, sem hv. 1. þm.. Norðurl. v. sagði hér áðan. Hann endurtók aðeins fullyrðingar sínar um það, að hin ólöglega afskrift hefði byrjað á árinu 1959 og árið 1959 hefði verið byrjað að verðleggja áburðinn á ólöglegan hátt og taka af bændum hærra verð en leyfilegt er, og af þessari ástæðu telur hann sjálfsagt, að áburðarverksmiðjan endurgreiði bændum það, sem of mikið hefur verið af þeim tekið. Hv. þm.. telur, að það hafi verið ljótt að tala um. blekkingar í sambandi við þennan málflutning hér, þegar þetta var síðast rætt. En ef það er ljótt að nefna blekkingar í sambandi við þetta, þá veit ég ekki, hvaða orð hæfir því betur, því að eitt er víst, að þessi hv. þm.. veit betur en fullyrðingar hans gefa til kynna. Hann veit, að áburðurinn hefur verið verðlagður á löglegan og réttmætan hátt, en hann gerir sér vonir um, að þessar fullyrðingar og þessi blekkingastarfsemi geti leitt til þess að skapa tortryggni meðal bænda og úlfúð. Og hann gerir sér ef til vill vonir um það að geta fengið eitt eða tvö atkv. út á þessa blekkingastarfsemi. Ég þekki ekki annað orð heppilegra í íslenzku máli um slíkan málflutning, eins og viðhafður var af hv. 1. þm.. Norðurl. v., heldur en blekkingar af verstu tegund. Og ég hygg einnig, að nú síðustu dagana hafi þessi sami þm.. lesið lög um áburðareinkasölu ríkisins, 4, gr., og hann hafi vitað það hér áðan, að það er ekki minnzt á, að það skuli vera verzlunarfyrirtæki, sem ríkisstj. geti falið starfsemi einkasölunnar. En hann leyfði sér að nota orðið verzlunarfyrirtæki og byggja svo rök sín og fullyrðingar um það, að áburðarverksmiðjan hafi ekki haft leyfi til að verzla með eigin vörur, á því, að það hafi þurft að vera verzlunarfyrirtæki, sem ríkisstj, hafi heimild til að fela þá starfsemi. Þessi hv. þm.. hefur leyft sér við þessar umr. að viðhafa þá mestu blekkingastarfsemi, sem dæmi eru til hér í þingsölunum, og það er ljótt, vegna þess að það er vitað, að þm.. vissi miklu betur en hann lét í veðri vaka, og það er leitt, að þessi hv. þm.., sem oft er hógvær og hefur langa þingsögu, skyldi nú leyfa sér að koma þannig fram, og óskiljanlegt, vegna þess að hann bætir ekki sinn málstað með því.
Hv. 3. þm.. Reykv. endurtók mest af því, sem hann sagði fyrir nokkrum dögum, þegar málið var hér til umr., endurtók það, sagði, að áburðarverksmiðjan hefði ekki haft heimild til þess að afskrifa eins og hún gerði, vitnaði í Sogsvirkjunina og sagði, að Sogsvirkjunin hefði ekki heimild til þess. En þessi hv. þm.. veit, að hér er ekki um sams konar lög að ræða. Lög um Sogsvirkjun kveða á um álagningu á rafmagnið, það er talað um ákveðna prósentu, 5% af verði, en í lögunum um áburðarverksmiðju er talað um að vísu ákveðna prósentu, en það stendur „eftir þörfum“ í lagagreininni, og það er það, sem lögfræðingarnir byggja sinn úrskurð á. Það er ótvírætt þörf á að afskrifa eitt fyrirtæki svo ríflega, að það sé mögulegt að halda því starfshæfu. Og nú er það svo, að áburðarverksmiðjan hefur verið rekin um 9 ára skeið, og það er gert ráð fyrir, að vélarnar fyrnist á 10–12 árum. Í áburðarverksmiðjunni eru dýrar vélar og margar vélar, og þær hafa a.m.k. þrefaldazt í verði, síðan þær voru keyptar upphaflega. Ef afskriftirnar væru miðaðar við innkaupsverðið, er ljóst, að verksmiðjan gæti ekki endurnýjað vélakostinn, eins og ætlazt er til, og ég segi það enn, að ég hef ekki talað við nokkurn lögfræðing, en þeir eru þó orðnir margir, — sem ekki staðfesti það, að stjórn áburðarverksmiðjunnar hafi haft heimild til þeirra afskrifta, sem gerðar hafa verið.
Nú kom það hér fram hjá einum hv. þm.., að það væri kannske ekki rétt að byggja á úrskurði lögfræðinga í þessu, það væri eðlilegra að fara eftir því, sem hinir ólöglærðu segðu og staðfestu þar um.
Hv. 3. þm.. Reykv. talaði um það áðan, að áburðarverksmiðjan ætti nú sennilega að fara að taka að sér verkefni einkasölunnar. Það hefur verið upplýst með því bréfi, sem lesið var hér áðan. Hv. þm.. fullyrti, að ef þetta væri gert, þá væri það ekki samkvæmt lögum. Ég trúi því, að hv. 3. þm. Reykv. hafi ekki verið búinn að lesa 4. gr. laga um áburðareinkasölu ríkisins, þegar hann viðhafði þessa fullyrðingu. Ég trúi því, að það hafi verið sagt í ógáti, en ekki vísvitandi skrökvað því, og þá er ekki um það að fást. Menn geta í hita dagsins talað af sér, eins og þar stendur, og það er unnt að fyrirgefa.
Þessi hv. þm.. spurði að því, hvort verið væri að byggja í Gufunesi vörugeymslur og eitthvað fleira. Það er rétt, það er verið að byggja vörugeymslur. Vörugeymslurnar í Gufunesi hafa verið of litlar. Verksmiðjan hefur orðið að senda áburð út á land í oft lélegar geymslur, ef til vill á miðjum vetri, þegar illa hefur staðið á, vegna þess að geymslurnar í Gufunesi hafa verið of litlar.
Ég hygg, að stjórn áburðarverks:miðjunnar hafi verið sammála um, að það væri þörf á að byggja vörugeymslu í Gufunesi, það væri þörf fyrir rekstur þessarar verksmiðju, og þá ekki síður ef starfsemi verksmiðjunnar yrði aukin, t.d. með því að fara að framleiða fjölbreyttari áburðartegundir. Þessi vörugeymsla stendur þess vegna í fullu gildi. Og það má þá líka segja, að hún komi sér vel að því leyti í vor, þegar áburðarverksmiðjan fer að flytja inn áburð, því að eitthvað af þessum áburði verður flutt í Gufunes, þótt ef til vill eitthvað af áburðinum verði flutt beint á aðrar hafnir.
Það var spurt að því, hvort áburðarverksmiðjan mundi flytja áburðinn inn lausan eða sekkjaðan. Ég get ekki fullyrt um það. Ég býst við, að það verði gerð athugun á því, hvort heppilegt sé að flytja inn lausan áburð. En ég er sannfærður um, að stjórn áburðarverksmiðjunnar gerir í þessu efni það, sem er praktískast, og það, sem er ódýrast. Ef það borgar sig að flytja inn lausan áburð, þá verður það gert. Ef það borgar sig ekki, þá verður það ekki gert.
Og þá kem ég aftur að því, að hv. þm.. minnti á það, að ég væri hluthafi í verksmiðjunni, en að vísu mjög lítill hluthafi. Ég ætla ekki að orðlengja neitt um það. En hv. þm.. geta haft hvaða skoðun sem þeir vilja á því, hvort hér er um eiginhagsmuni að ræða frá minni hendi eða hvort þessi stjórnarráðstöfun er gerð vegna þess, að það er verið að stuðla að því, að áburðurinn geti orðið ódýrari en ella. En ég þakka hv. þm.. fyrir að taka það fram, að ég sé lítill hluthafi.
Ég veit ekki, hvort þörf er á að svara nokkru af því, sem hv. 7. þm.. Reykv. sagði hér áðan um áburðarverzlun, áburðarverksmiðjuna og áburðareinkasöluna. Ég held, að mér hafi verið ljóst, áður en þessi hv. þm.. kom hér upp í ræðustólinn að tala um áburðarverzlunina, að hann hafi ekki nálægt slíku áður komið, og það, sem hann sagði hér, bar a.m.k. þess ljóslega vitni. Af því að mér er nú meinlaust við þennan hv. þm.., þá harma ég það, að hann, án þess að vera fáfróðari en gerist, en fáfróður á þessu sviði, skyldi leyfa sér að fullyrða, að þessi ráðstöfun, að fela áburðarverksmiðjunni innflutning og dreifingu áburðarins, verði til þess, að bændur verði að kaupa dýrari áburð en áður. Það er leitt, þegar hv. þm.. eru með fullyrðingar í málum, sem þeir hafa ekki nokkra þekkingu á, og það hefur ekki þessi hv, þm.., hann hefur enga þekkingu á þessu máli, ekki nálægt því komið, og hefði þess vegna verið sæmst fyrir hann að minnast ekki á áburðarsölu eða áburðarverzlun.
Hv. þm.. gerði hér að umtalsefni einn mætan mann, dr. Björn Jóhannesson, og talaði um, að hann hefði skrifað um þetta mál. Ég efast ekkert um fræðimennsku dr. Björns Jóhannessonar um jarðveg og hvaða áburðartegundir eigi að bera á. Ég efast ekkert um það. Og ef ég ætlaði að fara að bera einhvers staðar á blett, þá mundi ég leita ráða hjá honum. En um það, hvernig á að dreifa áburðinum, hvernig á að haga innflutningi á áburðinum, um það dytti mér aldrei í hug að leita ráða hjá dr. Birni, því að nálægt slíku hefur hann aldrei komið, og það var leitt, að sá mæti maður skyldi fara langt út fyrir sitt verksvið og fara að skrifa um mál, sem hann hafði aldrei komið nálægt. Nei, það er alveg sitt hvort að ákveða um það, hvaða áburðartegund eigi að fara í jörðina og hvernig jarðvegurinn er, eða um það, hvernig beri að annast innflutning og dreifingu á áburði. Það er alveg sitt hvað, og það hefði verið miklu betra fyrir dr. Björn Jóhannesson, að hann hefði aldrei skrifað þessa grein.
Ég undrast það ekkert, þótt hv. 7. þm.. Reykv. hafi verið búinn að fá fréttir af bréfinu, sem var sent núna eftir hádegið, því að hann hefur haft samband við forstjóra áburðareinkasölunnar eða einn mann úr stjórn áburðarverksmiðjunnar, þann eina, sem hefur nokkurt traust af stjórnendum áburðarverksmiðjunnar hjá þessum hv. þm.., og það er ekkert undarlegt. En bréfið, þótt það hafi verið dagsett í gær, þá er það ekki undirskrifað fyrr en klukkan eitt í dag og ekki sent fyrr en eftir hádegi í dag. Og þar sem ég tel, að það hafi nú verið svarað flestu af því, sem fram hefur komið hjá þessum hv. þm.., sem endilega vilja halda í áburðareinkasöluna og ekki trúa áburðarverksmiðjunni fyrir þessu verkefni, þá vil ég aðeins segja það, að það er sannfæring mín, að þessi ráðstöfun leiði til raunverulegrar lækkunar á áburðarverðinu, þetta leiði til þess að gera meðferð á áburði, verzlun með hann og dreifingu á honum hentugri og ódýrari en verið hefur, og ég er viss um, að það þarf ekki að spyrja bændur um, hvort þeir séu því samþykkir. Það er það, sem þeir vilja. Þeir vilja, að áburðurinn verði á hverjum tíma seldur eins ódýrt og mögulegt er og að dreifingunni verði þannig háttað, að það sé sem þægilegast fyrir þá. Og það er þetta, sem hefur vakað fyrir mér í sambandi við þessa ráðstöfun. Það er ekki verið að leika neinn skrípaleik hér á Alþingi í sambandi við það að fela áburðarverksmiðjunni rekstur einkasölunnar, því að það er ótvíræð lagaheimild til þess, en áburðareinkasalan verður ekki lögð niður nema með lögum, og þess vegna var jafnmikil þörf á því að flytja þetta frv., ef um það er að ræða að leggja áburðareinkasöluna niður. Það, sem nú hefur verið gert, er að fela öðrum aðila rekstur áhurðareinkasölunnar, á meðan lög um þá einkasölu eru til.