02.11.1961
Neðri deild: 11. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í C-deild Alþingistíðinda. (2752)

22. mál, áburðarverksmiðja

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara að blanda mér mikið inn í þessar umræður, en af því að þær eru af hendi hæstv. landbrh. orðnar svo miklar lögskýringar, að það nálgast kennslustund, þá langar mig til þess að fá nokkrar frekari skýringar frá hæstv, ráðh., því að ég efast ekki um, að hann kunni skil á því, sem ég kann að spyrja um. Ég mun síðar geta rætt við hann um nefndaskipanir af hálfu hæstv. ríkisstj. Það gefst tækifæri til þess að ræða um það mál síðar. En ég veit ekki, hvort. hæstv. ríkisstj. hefur efni á því að tala um nefndaskipanir.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvar er það í grein dr. Björns Jóhannessonar, sem hann minnkar sjálfan sig að dómi hæstv. ráðh.? Hvar er þær takmarkanir að finna, að hann megi ekki eins og aðrir þegnar í þessu þjóðfélagi ræða um þetta mál?

Í öðru lagi: Af hverju framkvæmdi ekki stjórn Áburðarverksmiðjunnar h/f fyrningarafskriftirnar með þeirri lögskýringu, sem nú er gefin, fyrr en 1959? Vanrækti hún þá að framkvæma lögin nm áburðarverksmiðju?

Í þriðja lagi: Liggja fyrir útreikningar hjá Áburðarverksmiðjunni h/f um það, að framkvæmanlegt sé að lækka verðið á áburðinum eins og nú er lýst yfir?

Í fjórða lagi: Hvar stendur það í lögum um áburðarverksmiðju, að hún megi eða skuli reka verzlun með áburð?

Í fimmta lagi: Af hverju er verið að breyta 3. gr. áburðarverksmiðjulaganna og heimila henni að reka verzlun með áburð, ef það er heimilt nú? Hæstv. ráðherra hefur sjálfur lýst því yfir hér í umræðum, að tilgangur þessa frv. um áburðarverksmiðjuna, sem hér er til umræðu, sé sá fyrst og fremst að leggja niður áburðareinkasöluna. Ég spyr: Af hverju er þá verið að breyta tveim greinum í lögunum um áburðarverksmiðju, fyrst tilgangurinn er sá einn að leggja áburðareinkasöluna niður?