10.11.1961
Efri deild: 13. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í C-deild Alþingistíðinda. (2766)

71. mál, meðferð einkamála í héraði

Alfreð Gíslason læknir:

Herra forseti. Það er aðeins eitt atriði í ræðu hæstv. ráðh., sem mig langaði til þess að vekja athygli á. Ég tók eftir, að hann sagði, að ýmsir hefðu tæpast talið tímabært árið 1955 eða 1956 að breyta löggjöfinni frá 1936, og mér skildist, að það hefði verið m.a. ástæðan fyrir því, að málið gekk ekki fram á þinginu 1955–56. Nú langaði mig til þess að spyrja hæstv. ráðh. að því, af því að hann er nú líka lögfróður maður, hvort að sé tímabærara nú að koma þessu máli í gegn og hvort sérstakar breytingar hafi á orðið, sem geri þann mun á, að það sé tímabært nú frekar en 1936, hvaða ástæður liggi þá til þess. Í þessum orðum mínum felst að sjálfsögðu engin gagnrýni, ég hef mjög lítið vit á þessu, en ég tel, að það væri ágætt að fá að heyra um það fyrir þá n., sem fær málið til meðferðar, hvort hér væri um að ræða einhverja veigamikla breytingu, sem hvetti til þess, að málið fengi afgreiðslu á þessu þingi.