10.11.1961
Efri deild: 13. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í C-deild Alþingistíðinda. (2767)

71. mál, meðferð einkamála í héraði

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Í sambandi við þessa athugasemd, sem fram hefur komið, er á það að líta, að ég gat þess áðan, enda kemur það fram í grg., að við meðferð málsins hjá Lögmannafélaginu hafi ekki verið álitið tímabært að fella úr gildi lögin þá. Nú var það að vísu aðeins einn aðili, sem þar var um að ræða, en hins vegar mikilsverður aðili. En 1952 hefur það þótt tímabært, því að annars hefði ekki verið stofnað til þessarar heildarlöggjafar af þáv. dómsmrh. og í samráði við hæstaréttardómara að endurskoða löggjöfina frá 1936, miðað við þá reynslu, sem fengin var hjá okkur. Einnig er á það að líta, að hæstaréttardómararnir kynntu sér og gerðu mjög ýtarlega grein í frv. þá fyrir löggjöf annarra þjóða, einkum Norðurlandanna, á þessu sviði og þeim breytingum, sem á henni hefðu orðið og mættu teljast þess eðlis, að þær féllu vel inn í okkar löggjöf og gætu orðið til bóta.

Ég sá ekki ástæðu til þess hér að fara að víkja að þeim allmörgu nýmælum í þessu frv. Það er t.d., að um sáttanefndirnar og sáttameðferðina eru töluvert miklar grundvallarbreytingar í þessu efni. En það er hins vegar rétt, að af sumu í þeim tillögum, sem Lögmannafélagið hefur bent á, hefur verið höfð hliðsjón og tekið til athugunar, en annað ekki. Þetta gengur nokkuð vítt og breitt í gegnum frv., en kemur að vísu í ljós undir meðferð málsins, þegar menn við yfirlestur frv. geta borið saman hinar einstöku greinar eða till., sem fram hafa komið, og ég vona, að það sé í því formi, að þingnefndin eigi auðvelt með að átta sig á þeim hreytingum, sem hér er um að ræða.

En aðalatriðið er þó, eins og ég sagði, að þótt komið hafi fram þetta sjónarmið hjá Lögmannafélaginu, þá er það ekki nema einn aðilinn að þessu. Héraðsdómararnir t.d. voru annarrar skoðunar í þessu efni, og það kemur ekkert í þá átt fram hjá lagadeildinni, og undir meðferð málsins er það greinilegt, að þeir hæstaréttardómarar, sem að þessu hafa unnið, og fyrrv. dómsmrh. hafa lagt á það mikla áherzlu að koma þessari löggjöf fram. En þetta er ekki svo að skilja, að hér sé um nýja löggjöf á þessu sviði að ræða, heldur er þetta endurskoðun, eins og ég sagði í upphafi, á heildarlöggjöfinni um meðferð einkamála í héraði frá 1936, svo það kann nú að vera, að það reynist í sjálfu sér kannske minni nýmæli en ég hef verið að gefa í skyn, þegar á allt er litið.