14.11.1961
Neðri deild: 18. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í C-deild Alþingistíðinda. (2792)
23. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins
Flm. (Þórarinn Þórarinsson):
Herra forseti. Efni þessa frv. er að fella niður einkaleyfi eða einkarétt ferðaskrifstofu ríkisins til þess að taka á móti erlendum ferðamönnum.
Á undanförnum árum hafa risið hér upp nokkrar ferðaskrifstofur, sem einstaklingar reka, sem vinna að því að greiða fyrir ferðalögum Íslendinga erlendis. Þessar ferðaskrifstofur, a.m.k. sumar þeirra, hafa unnið sér gott orð. Það er augljóst, að ef þær hefðu leyfi til að greiða fyrir komum útlendinga hingað, gæti það tvímælalaust orðið mjög til þess að örva ferðalög útlendinga til Íslands. Þess vegna væri eðlilegt, að þessar ferðaskrifstofur fengju ekki síður leyfi til þess að taka á móti ferðamönnum erlendum heldur en ferðaskrifstofa ríkisins. Það gæti tvímælalaust orðið til þess að örva komur útlendinga hingað, en eins og kunnugt er, keppa nú allar þjóðir að því að örva ferðalög útlendinga og fá þannig gjaldeyristekjur.
Annað, sem er og ekki síður athyglisvert í þessu sambandi, er það, að ýmsar erlendar ferðaskrifstofur, sem eru stórir aðilar á þessu sviði, hafa nú engin viðskipti við Ísland vegna þess, að þær vilja hafa sinn sérstaka umboðsmann hérna, en ekki sama umboðsmann og aðrar erlendar ferðaskrifstofur hafa. Þetta leiðir til þess m.a., að í stórum ferðabókum, sem þessar ferðaskrifstofur gefa út, er engar upplýsingar hægt að fá um Ísland eða ferðalög hingað, og það á að sjálfsögðu sinn þátt í því að draga úr komum útlendinga hingað. Ef þessar erlendu ferðaskrifstofur gætu fengið sína eigin sérstöku umboðsmenn hér á landi, mundi það verða til þess, að þær mundu hefja starfsemi í þá átt að fá útlendinga til þess að koma hingað til lands. Það er tvímælalaust mjög mikilvægt atriði í sambandi við að örva hingað komur erlendra ferðamanna að fá hinar erlendu ferðaskrifstofur til að gera mun meira í þessum efnum en þær hafa gert hingað til. Og þetta á einmitt að vera auðvelt, síðan hinar nýju einkaferðaskrifstofur komu til sögunnar hér á landi. Það er völ umboðsmanna hér, sem geta greitt fyrir hinum erlendu ferðaskrifstofum í sambandi við þessi ferðalög.
Ég tel af þeim ástæðum, sem ég hef nú greint, að það ætti að vera verulegur ávinningur að því að afnema einkaleyfi ferðaskrifstofu ríkisins í þessum efnum og gefa þetta frjálst, — ávinningur í þá átt, að hingað kæmu fleiri erlendir ferðamenn en ella, og af því mundum við fá auknar gjaldeyristekjur og aukna ýmsa atvinnustarfsemi í landinu.
Það þarf ekki að taka það fram, því að það er öllum kunnugt, að aðrar þjóðir vinna nú mjög að því að greiða fyrir komum erlendra ferðamanna og bæta aðstöðu þeirra á þann hátt, að þeir leiti til landa viðkomandi þjóða. Við eigum það á hættu að dragast aftur úr í þessari samkeppni, ef við gerum ekki allt það, sem hægt er, til þess að greiða fyrir slíkum ferðalögum hingað til lands.
Því hefur verið haldið fram, að ef þetta einkaleyfi ferðaskrifstofunnar yrði afnumið, mundi það verða til þess að draga úr þeim tekjum, sem hún hefur nú af komum erlendra ferðamanna til landsins. Ég tel, að þetta sé misskilningur. Ferðaskrifstofa ríkisins hefði áfram nægum verkefnum að sinna, þó að fleiri aðilar bættust við á þessu sviði. Þetta mundi ekki verða til þess að taka verkefni frá henni, heldur mundi verða aukið það verkefni, sem þarf að vinna í þessum efnum, og það mundu einkaferðaskrifstofurnar taka að sér. Auk þess hefur ferðaskrifstofa ríkisins mörg önnur verkefni en að taka á móti erlendum ferðamönnum og hefur þess vegna ærið verk að vinna, jafnvel þó að einhver samdráttur verði hjá henni á því sviði, sem ég reikna ekki með að þyrfti að verða.
Ég tel ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þetta mál að þessu sinni, en leyfi mér að leggja til, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til samgmn.