08.12.1961
Neðri deild: 33. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í C-deild Alþingistíðinda. (2806)

54. mál, sjúkrahúslög

Flm. (Björn Fr. Björnsson):

Hæstv. forseti. Frv. það, sem hér er til umr. og fjallar um breyt. á lögum um sjúkrahús, er endurflutt. Það lá fyrir þessari hv. deild á s.l. þingi og var vísað til heilbr.- og félmn, d. og þar dagaði málið uppi. Í fyrra stóðum við fjórir þm.. Sunnl. að þessu frv., en nú hefur einn helzt úr lestinni, hv. 3. þm. Sunnl., og er mér ekki fyllilega ljóst, hvers vegna þessi hv. þm.. telur sér ekki fært að vera samflm. að frv. í þetta sinn.

Í fyrra gerði ég allýtarlega grein fyrir málinu og stefnu frv., þannig að ég get sparað mér að hafa í þetta sinn mörg orð um málið, en vil þó leyfa mér að drepa á helztu atriði þess.

Frv. gerir ráð fyrir þeirri breytingu á sjúkrahúsalögum, að Vestmannaeyjakaupstaður fái sömu fyrirgreiðslu af hálfu ríkissjóðs, bæði að því er varðar stofnkostnað og rekstrarstyrk, eins og fjórðungssjúkrahúsum er ætluð í lögum. Í Vestmannaeyjum ríkir mikill áhugi á því, að byggt verði sem fyrst nýtt sjúkrahús, sem hæfi svo sem bezt má verða nútímakröfum. Sjúkrahús það, sem nú er í Eyjum, hafa Vestmanneyingar búið við yfir 30 ára tímabil. Það er talið mjög úr sér gengið og ófullnægjandi og erfitt að koma við nauðsynlegum endurbótum. Það var á sínum tíma byggt af hinum mesta myndarskap. og víðsýni.

Hér þarf ekki að rekja, hversu læknavísindum hefur fleygt fram á síðustu áratugum og jafnframt hversu kröfur til læknis- og sjúkrahjálpar hafa aukizt. Það er eðlilegt, að fólkið sætti sig ekki í þessu efni við annað en það, sem bezt er eftir atvikum. Hitt er svo annað mál, að margs og víða er mikil þörf í sjúkrahús- og læknamálum. Framkvæmdir í þessum efnum eru fjárfrekar og ríkissjóður hefur oft verið vanmegnugur og ekki síður hin einstöku héruð og bæjarfélög, sem að sinum hluta eiga að standa að sjúkrahúsmálum. En þó verður að leggja til atlögu um sjúkrahúsbyggingar, þar sem þörfin er rík og ekki sízt þar sem fólkið sjálft er reiðubúið af áhuga og fórnfýsi að leggja sinn hlut fram og hefur um langt skeið lagt á sig fjárhagabyrðar, til þess að ekki standi á, að hlutur þess verði lagður fram til fulls, en svo er í Vestmannaeyjum.

Hvers vegna er farið þess á leit, að sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum njóti sömu kjara og fjórðungssjúkrahús? Svo sem alkunna er, hafa Vestmanneyingar lengst af verið mjög afskiptir í afstöðu til annarra byggðarlaga og einangrunin verið hlutskipti þess fólks, sem þar býr. Þessi einangrun hefur að vísu verið rofin að nokkru og í mörgu verið reynt að bæta um eftir föngum. En þrátt fyrir greiðari samgöngur er auðsætt, að bæjarfélagið verður í sjúkrahúsmálum sem og mörgum öðrum efnum að búa sem mest að sinu, og er því um algera sérstöðu að þessu leyti að ræða. Það er ljóst, að enda þótt fjórðungssjúkrahús kunni að rísa upp á Suðurlandsundirlendinu, eins og vikið er að í sjúkrahúslögum, kæmi það sjúkrahús engan veginn að neinu haldi fyrir Vestmannaeyjar, — sjúkrahús í Reykjavík að mjög takmörkuðu leyti oft og tíðum. Sýnist flm. þessa frv., að slík aðstaða hljóti að skera úr um réttmæti þeirrar tilhögunar, sem frv. gerir ráð fyrir. Annað kemur einnig til, sem styður stefnu frv. Íbúatala Vestmannaeyja er um 4700. Á vetrarvertíð sækir þangað fjöldi manna víðs vegar að, sennilega hátt á annað þúsund manns, til hvers konar starfa. Fjöldi skipa úr ýmsum verstöðvum og einnig kaupskip, innlend og erlend, leita þangað með hundruð manna innanborðs, sem þurfa á ýmiss konar þjónustu í Eyjum að halda og m.a. sjúkrahjálp. Minnast má þess, þó að alvitað sé, að Vestmanneyingar vinna að meginhluta í þágu sjávarútvegsins og störf Eyjabúa þannig hin áhættusömustu. Verulegur hluti af útflutningsverðmætum þjóðarinnar mun koma úr Eyjum. Heyrt hef ég því fleygt, að sá hluti hafi jafnvel mjög nálgazt 20%, og væntanlega er þar ekki ólíklega til getið, að hann hafi komizt svo hátt og ætið þó verið mikill. Einnig í þessu efni eiga Vestmannaeyjar nokkra sérstöðu.

Þann aðstöðumun, sem Vestmanneyingar búa við í því máli, sem hér greinir, ber að sjálfsögðu þjóðfélaginu að jafna, og þá ekki siður þegar til hins er litið, hvern hlut bæjarbúar draga árlega í sameiginlegan sjóð landsmanna. Hér er því að áliti okkar flm. bæði rétt og skylt að koma til móts við hófsamlegar og eðlilegar óskir. Svo hljóðandi ályktun hefur bæjarstjórn Vestmannaeyja fyrir nokkru samþykkt:

„Bæjarstjórnin beinir áskorun til þingmanna Suðurlandskjördæmis um að flytja frumvarp á komandi þingi um fjárframlag til sjúkrahúsbyggingar í Vestmannaeyjum, og njóti sjúkrahúsið hliðstæðrar fyrirgreiðslu um fjárframlög og réttindi eins og fjórðungssjúkrahús hafa notið eða kunna að njóta.“

Þessari ályktun bæjarstjórnar hafa fylgt athafnir af hálfu bæjarbúa. Þeir hafa safnað drjúgu fjármagni þegar í sinn sjúkrahússjóð. Er mér tjáð, að fjárhæðin sé allt að því ein milljón og þessir peningar handbærir. Þannig fylgir hugur máli af hálfu bæjarbúa, að til athafna dragi sem allra fyrst um byggingu fullkomins sjúkrahúss í kaupstaðnum. Um það verður ekki villzt og ekki heldur um hitt, að mikið er í húfi og mikils um vert, að bæði vel og fljótt takist til að koma þessu byggingarmáli þeirra fram.

Við flm. frv. eigum enn þess von, að vel verði tekið á þessu máli og að það megi nú á þessu yfirstandandi þingi ná fram að ganga. Ég veit ekki ljóslega, hvað hefur valdið því, að það dagaði uppi í heilbr.- og félmn. Það getur kannske margt, valdið því. Það er á okkar allra vitorði, að í þessum málum, sjúkrahúsmálum, er mikils fjármagns þörf og erfitt að leysa allan vanda í þeim efnum. En ég held, að ég megi halda því fram, án þess að rengt verði, að Vestmannaeyjakaupstaður hafi algera sérstöðu í þessum efnum og það geti enginn eða mjög fáir landshlutar verið lagðir þar að jöfnu, þar sem Vestmannaeyjar eru. Þess vegna á ég og við fim. fyllilega von þess, að Alþingi gangi frá þessu mál og í þá stefnu, sem greinir í frv., sem hér liggur fyrir.

Mér þykir ekki ástæða til þess að rekja málið frekar, en þykist hafa gert sæmilega grein fyrir þeim höfuðatriðum, sem við teljum að styðji frv. Vil ég svo að lokum óska þess, að mátinu verði visað til 2. umr. að lokinni þessari og til heilbr.- og félmn. deildarinnar.