08.12.1961
Neðri deild: 33. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í C-deild Alþingistíðinda. (2809)

54. mál, sjúkrahúslög

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Hæstv. forseti. Ég skal ekki hafa mörg orð um þetta mál, en það er vissulega ánægjulegt, hversu mjög það er sótt af kappi af flm. málsins, þótt að vísu hefði mátt skilja á hv. síðasta ræðumanni, að í aðra röndina þætti honum ekki svo gott að þurfa að vera að bjástra við mál eins og þetta, því að það væri ekki svo ánægjuleg sú breyting, sem orðið hefði á kjördæmaskipuninni. En vissulega hefði hann ekki verið flm. þessa máls nema vegna þeirrar breytingar.

Það er svo, eins og fram hefur komið í umr., að Vestmanneyingar sækja nú eftir því að fá leyfi til að hefjast handa um sjúkrahúsbyggingu, þ.e.a.s. að endurbyggja sitt gamla sjúkrahús, og ég er sammála þeim skoðunum, sem fram hafa komið, að þess er mikil þörf og nauðsyn, og að mörgu leyti hafa Vestmanneyingar sína sérstöðu í þessu efni. Hins vegar er heilbrigðisstjórninni sá vandi á höndum um að veita leyfi til sjúkrahúsabygginga nú, að mjög miklar framkvæmdir eiga sér stað á sviði þessara mála með byggingu, hinna stóru sjúkrahúsa, bæði landsspítalans og bæjarsjúkrahússins í Reykjavík, og enn fremur stendur enn mjög upp á ríkissjóð að inna af höndum greiðslur til annarra sjúkrahúsa, sem byggð hafa verið á síðustu árum og eru þegar tekin til afnota.

Hv. 3. þm.. Sunnl. hefur átt viðræður við mig sem heilbrmrh. og landlækni um hina nýju sjúkrahúsbyggingu og leyfisbeiðni þeirra Vestmanneyinga að fá að hefjast handa í því sambandi. Það mál er enn í athugun, m.a. vegna þess, að það hefur þurft að koma til nánari skoðunar um fyrirhugaða stærð þessa sjúkrahúss en áður lágu fyrir tillögur um, og verður nú tekin til nýrrar endurskoðunar beiðni Vestmanneyinga um að reisa þetta sjúkrahús. Ég vil lýsa yfir fyrir mitt leyti, að mér þykir mjög eðlilegt, að gert sé hið ýtrasta til þess, að þeir fái leyfi til þess að hefjast handa í þessu sambandi, en það verður þó aðeins að hafa fyrirvara á í því sambandi, að möguleikarnir til greiðslna af hálfu ríkissjóðs eru mjög takmarkaðir á næstu árum eða a.m.k. á næsta ári og ef til vill fram á árið 1963 og kannske 1964. En það þarf sennilega ekki að hindra, að þetta leyfi verði veitt, vegna þess að aðstaða Vestmanneyinga er slík, að þeir munu geta hafizt handa af eigin rammleik, enda þótt ekki sé gert ráfi fyrir fjárveitingum á næsta ári, eins og sakir standa.

Flutningur þessa máls er auðvitað að því leyti ekki til þess að greiða fyrir því, að veitt verði leyfi til sjúkrahúsbyggingarinnar, að það leggur þyngri byrðar en ella mundi verða á ríkissjóð, meiri greiðslur í stofnkostnaðinn eða hærri hlutföll af hálfu ríkissjóðs og einnig í rekstrarkostnaðinn, svo að að því leyti hefði kannske verið skynsamlegt að leggja ekki svo mjög kapp á þetta í bili og hefði mátt sækja þetta mál að því leyti með meiri forsjá.

Það er rétt, sem fram kom og ég viðurkenni, að Vestmanneyingar hafa að sumu leyti sérstöðu í þessum efnum og þá einkum og sér í lagi vegna sinnar einangrunnar. Önnur rök, sem flutt voru fyrir því, að þetta ætti að verða fjórðungssjúkrahús með meiri fjárframlögum frá ríkinu, fá ekki staðizt, því að það eru í sjálfu sér ekki rök fyrir því, að ríkið eigi að leggja meira af mörkum til byggingar sjúkrahúss í Vestmannaeyjum en á ýmsum öðrum stöðum, að þetta sé ein stærsta verstöð landsins og hafi um 20% af útflutningsverðmætum þjóðarinnar, og mætti þá segja heldur, að þeir gætu hjálpað sér sjálfir, enda hafa þeir Vestmanneyingar alltaf getað hjálpað sér sjálfir og jafnvel ekki þurft að sækja hjálp upp á Suðurlandsundirlendið, þótt alltaf hafi verið gott samband að vísu þar á milli — (Gripið fram í: Og stofnfé komið þaðan.) og stofnfé komið þaðan, svo að þar kannske rennur blóðið til skyldunnar hjá hv. þm.. En það er sem sagt þetta atriði, sem ég benti á, sem er í sjálfu sér ekki kannske til þess að greiða fyrir leyfisveitingu til sjúkrahússins. En það mun hins vegar á engan hátt hafa nein áhrif af minni hálfu, hvort þetta leyfi verði veitt eða ekkí. Þetta er annað mát, og er eðlilegt að taka afstöðu til þess alveg sjálfstætt og óháð því, hvort þeir fá leyfi til þess að byrja á hinni nýju sjúkrahúsbyggingu.