23.11.1961
Neðri deild: 24. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í C-deild Alþingistíðinda. (2824)
58. mál, húsnæðismálastofnun
Flm. (Jón Skaftason):
Hæstv. forseti. Ég hygg, að flestir hv. þdm., sem voru hér í deildinni, þegar hv. 1. þm.. Vestf. flutti sína síðari ræðu áðan, geti verið mér sammála um, að hann var allmjög hógværari í orðum og ályktunum en hann var í þeirri frumræðu, sem hann flutti um þetta sama mál, og tel ég það ljósan vott um, að ýmislegt, sem hann sagði í fyrri ræðu sinni, hefði hann betur látið ósagt, og skal ég ekki ræða frekar um það núna.
En til viðbótar þeirri staðhæfingu minni áðan í frumræðu og eins þeim orðum, sem er að finna í grg, um, að löggjöfin frá 1957 um húsnæðismálastofnun ríkisins hafi verið merkasta sporið, sem stigið hafi verið á þessu sviði, síðan efnt var til almenns, opinbers veðlánakerfis til húsbygginga hér á landi, vil ég aðeins nefna eftirfarandi:
Ég hef hér skýrslu fyrir framan mig um tekjur byggingarsjóðs ríkisins, sem nær til áranna 1959—61. Á árinu 1959 hefur það gerzt, að veðlánakerfið og byggingarsjóðurinn hafa fengið tekjur af þeim þrem nýju tekjustofnum, sem lagðir voru kerfinu til með löggjöfinni frá 1957, er námu samtals 26.3 millj. kr. Ég gat um það í upphafi, að samkvæmt áætlun sjóðsstjórnar a sínum tíma hefði verið gert ráð fyrir, að um 40 millj. kr. tekjur mundu fást til byggingarsjóðsins á hverju ári. 26.3 millj. kr. af 40 millj. kr. eru um 2/3 hlutar af heildartekjum sjóðsins. Það er þetta atriði, sem ég á við og ég undirstrikaði sérstaklega í ræðu minni hér áðan, þegar ég tala um, að merkasta skrefið á þessu sviði hafi verið stigið með setningu laganna frá 1957. Og ég hygg, að það sé erfitt að mótmæla því með nokkrum rökum, að löggjöf, sem tryggir lánasjóðnum um 2/3 hluta þeirra tekna, sem hann hefur, marki ekki spor og tímamót í þeim málum. Ég tel því, að um þetta atriði þurfi ég ekki að deila við hv. 1. þm.. Vestf. frekar.
En það er annað atriði, sem mig langar til að koma lítillega að og hæstv. félmrh. gaf mér tilefni til að fara örlítið inn á með þeim fáu orðum, sem hann sagði áðan. Ég sé, að ráðh. er farinn úr salnum, þannig að þessi orð mín ná ekki til hans a.m.k. að sinni, en hæstv. ráðh, vildi halda því fram, að þær tölur um útlán úr byggingarsjóðnum, sem er að finna á bls. 2 í frv. og ná til áranna 1957–61, séu dálítið blekkjandi upp settar. Þessu vil ég algerlega mótmæla.
Við samanburð á útlánum byggingarsjóðsins frá ári til árs er nauðsynlegt, að sömu reglunni sé fylgt, og þá er um tvær reglur að ræða: annars vegar að miða við afgreiðslu lána hjá húsnæðismálastjórninni sjálfri eða miða við afgreiðslu lána, þegar þau eru greidd út úr veðdeild Landsbankans. Ég hef í þeim dæmum, sem ég hef nefnt hér í grg., fylgt síðari reglunni. Tölurnar, sem þar eru nefndar, eru byggðar á heildarlánum afgreiddum frá veðdeild Landsbankans á þessum árum. Þegar því hæstv. ráðh. er að láta liggja að því hér í ræðu sinni áðan, að við þau útlán, sem átt hafi sér stað á árunum 1960 og 1961, megi bæta að mér skildist um 20 millj. kr. hvort áranna, þá er hann að rugla þá uppsetningu á dæminu, sem ég hef hér fylgt, og gera allan samanburð rangan, því að þá miðar ráðh, við afgreiðslu á lánaumsóknum hjá húsnæðismálastofnun ríkisins. hað er t.d. augljóst um þá lánveitingu, sem nú var verið að afgreiða hjá húsnæðismálastofnuninni og hæstv, ráðh. telur hafa numið um 20 millj. kr., að sumt af þeim lánum, ef byggja má á fyrri reynslu í þessum efnum, kemur ekki til afgreiðstu frá bankanum fyrr en á næsta ári. Í heildarlánsfjárhæð ársins 1960, eins og hún kemur fram í grg. hjá mér, er nokkur fjárhæð af lánum, sem afgreidd voru hjá húsnæðismálastjórninni á árinu 1959, og eins er í tölunni 1961 nokkur hluti lána, sem afgreidd voru hjá húsnæðismálastjórninni 1960. Það er því alveg rétt, sem ég hef sagt og haldið fram, bæði í ræðum mínum áðan og eins í grg., að útlán þessara ára hafa sannanlega numið þeim fjárhæðum, sem þar eru nefndar. Það skal að vísu viðurkennt, að sennilega mun talan 1961 eitthvað hækka, vegna þess að sennilega verði eitthvað afgreitt af lánum frá veðdeildinni vegna síðustu úthlutunar nú fyrir áramót, en það verður, ef að líkum lætur, ekki mjög stór upphæð, sem kemur þar til viðbótar.
Hæstv. ráðh. vildi einnig halda því fram, að ástandið í lánamálum húsbyggjenda hefði oft verið verra en það er núna. Um þessa staðhæfingu hans vil ég ekki fullyrða neitt afdráttarlaust nú, þó að ég dragi réttmæti hennar mjög í efa.
Í grg. með frv. okkar framsóknarmanna er getið um það, að þann 15. ágúst s.l. hafi um 1557 óafgreiddar lánsbeiðnir legið hjá húsnæðismálastofnuninni. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef getað fengið, hefur sú tala hækkað nokkuð verulega fram til þessa tíma. Því sagði ég í frumræðu minni áðan, að hjá húsnæðismálastofnuninni lægju núna fast að 2000 lánaumsóknir, sem ekkert væri búið að sinna eða að mjög óverulegu leyti. Ég held, að ég megi fullyrða, að síðan löggjöfin var sett 1957, hafi ekki verið stærri hali lánsumsókna hjá húsnæðismálastofnuninni en núna. Ég held, að ég megi fullyrða það. En auk þess kemur svo margt fleira til, sem dekkir myndina enn meira og hv. síðasti ræðumaður vék einnig að. Það eru svo fjöldamörg önnur atriði, sem áhrif hafa á aðstöðu manna til að byggja sómasamlegar íbúðir yfir sig, heldur en þau fjárráð, sem byggingarsjóðurinn einn hefur. Að sjálfsögðu hefur allt verðlag í landinu útslitaáhrif í þessum efnum, og ég hygg, að um það þurfi ekki að deila, að byggingarkostnaður hafi aldrei verið jafnhár og nú er. Hæstv. ráðh. nefndi tölur úr grg. minni sem dæmi um hækkun byggingarkostnaðar. Hann sagði, að húsbyggingarvísitalan hefði verið 1079 stig 1957, en 1418 stig 1961. En eftir gengisfellinguna í ágúst s.l. hækkar þessi vísitala úr 1418 stigum í 1562, þannig að ef hann hefði tekið þá hækkun með í reikninginn, þá hefði hann fengið prósentuhækkunina töluvert meiri en hann nefndi áðan.
Ég skal ekki lengja þessar umr. meira. En ég tel, að það hljóti öllum að vera ljóst og raunar ekki umdeild sú þörf, sem er á því, að þarna sé myndarlega gripið á málum og ríkisvaldið beiti sér fyrir aðgerðum, er kynnu að létta húsbyggjendum byggingaraðgerðir sínar. Það er ekki farið fram á mikið með þessu frv. í raun og veru. Það er aðeins farið fram á það, að ríkisvaldið færi þá opinberu lánaaðstoð í sama horf og hún var ákveðin með löggjöfinni frá 1955. Það er farið fram á það að hækka lánsupphæðina um helming, til samræmis við þá hækkun á byggingarkostnaði, sem á þessu tímabili hefur orðið, og aðrar þær aðstæður í þjóðfélaginu, sem verka á byggingarkostnaðinn beint og óbeint.