26.02.1962
Neðri deild: 55. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í C-deild Alþingistíðinda. (2864)

101. mál, hafnargerðir og lendingarbætur

Flm. (Karl Guðjónsson):

Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér frv. til l. um breyt. á l. um hafnargerðir og lendingarbætur. Sú breyt., sem ég legg til að gerð verði með samþykkt þessa frv., er sú ein, að inn í þá upptalningu laganna um verk eða framkvæmdir, sem teljast skulu framlagsskyldar úr ríkissjóði eins og þau lög gera ráð fyrir, skuli bætt sjómannastofum.

Lögin um hafnargerðir og lendingarbætur munu upphaflega aðeins hafa tekið til þess, að ríkissjóður væri að sínum hluta skyldur að greiða visst framlag af því, sem kostaði að gera hinar nauðsynlegustu hafnarbætur, þ.e.a.s. hafnargarða, bryggjur og dýpkanir. En á síðari árum hefur öll þróun farið í þá átt, að þetta hefur orðið ófullnægjandi. Það þarf fleira en bryggjur, hafnargarða, dýpkanir, til þess að höfn geti verið þess umkomin að leysa hlutverk sitt af hendi með þeim hætti, sem nútíminn krefst. hess vegna hefur síðar verið bætt inn í framlagsskyldan kostnað t.d. bryggjukrönum, dráttarbrautum o.fl., og er þetta að sjálfsögðu allt saman í rökréttu framhaldi af því, sem upphaflega var. Nú er sem sagt svo komið, að flest það, sem þarf til þess, að skip geti fengið sig afgreidd með nútímahætti í einni höfn, er framlagsskylt úr ríkissjóði að 2/5 hlutum eða að hálfu í hinum minni höfnum, þar sem kostnaðurinn er líka ekki mjög mikill. Fyrir þörfum skipanna hefur þannig verið séð að verulegu leyti og nokkurn veginn í samræmi við það, sem þörfin kallar á.

Á hinn bóginn hefur hlutur sjómannanna, sem á skipunum eru, nokkuð legið eftir í þessu efni. Ríkisvaldið hefur þó að sínu leyti viðurkennt einmitt í hafnalögunum, að sjómennirnir á skipunum séu ekki óviðkomandi uppbyggingu hafna, t.d. með því, að sem framlagsskyldar framkvæmdir af ríkisins hálfu eru taldar verbúðir í viðleguhöfnum, og er það einnig síðari tíma breyting á lögunum um hafnargerðir og lendingarbætur. En nú er svo komið málum, að í allmörgum höfnum landsins safnast á vissum árstíðum saman fjöldi skipa, þó að þau eigi þar ekki heimahöfn, og á þeim er fjöldi sjómanna, sem þar af leiðandi á ekkert heimili í landi. Það hefur ekki farið fram hjá neinum, hvorki yfirvöldum viðkomandi sveitarfélags né heldur yfirvöldum ríkisins, að með þessu skapast nokkurt vandamál. Hér á Alþingi höfum við t.d. orðið varir við það um allmörg undanfarin ár, að sífellt er sótt á um hækkaðan lögreglukostnað og fangahúsbyggingar í verstöðvum landsins, vegna þess að það dregur þar stundum til óspekta, þegar margir menn eru saman komnir, sem engan samastað eiga í landi eða þá mjög takmarkað olnbogarúm til eðlilegs skemmtanahalds og eðlilegs lífernis yfirleitt. Alþingi hefur líka orðið við ýmsum þessum beiðnum, og er þess skemmst að minnast, að á fjárlögum fer framlag ríkisins til löggæzlu á slíkum stöðum hækkandi ár frá ári. Það er skoðun mín, að hægt væri að verulegu leyti að komast hjá því, að slík þróun þyrfti að halda áfram, ef lögð væri við það veruleg rækt af ríkisins hálfu að sjá til þess eða stuðla að því, að í viðleguhöfnum landsins og höfnum landsins yfirleitt yrði komið upp góðum aðbúnaði fyrir sjómenn og annað það fólk, sem vegna atvinnuhátta safnast þar saman á vissum árstíðum, ef því væri séð fyrir verulega góðum húsakosti til heilbrigðs skemmtanahalds og til afdreps, þar sem það gæti setið við bóklestur eða skriftir. En slíkar sjómannastofur, sem nútímanum tilheyra, kosta að sjálfsögðu mikið fé og verða hreint ekki hristar fram úr erminni af máske fátækum sveitarfélögum eða bæjarfélögum, sem undantekningarlaust, þar sem svo stendur á, að mikill fjöldi manna safnast saman til vinnu, hafa í ákaflega mörg horn að líta um uppbyggingu varðandi þá atvinnuvegi, sem fólkið er einmitt komið til þess að vinna við á þeim stöðum.

Nútíma sjómannastofa þarf að hafa t.d. möguleika til þess að geta veitt gestum sínum gott úrval bóka, gott næði til að skrifa bréf eða hvað annað, sem menn kunna að vilja skrifa. Þar þarf að vera aðbúnaður til þess, að menn geti iðkað léttar íþróttir inni, þar sem svo hagar til, að fjölmennið á viðkomandi stað er að vetrarlagi. En þar þarf að fylgja útileikvangur, þar sem hagar til með þeim hætti, að um sumardvöl fólks er að ræða. Það þarf einnig að vera aðstaða til þess að sýna kvikmyndir o.s.frv., sem allir hljóta að kannast við að tilheyrir menningu okkar aldar.

Það eru ekki miklar líkur til þess, að ráðizt verði í það með myndarlegum hætti og með þeim hætti, sem fullnægjandi má telja, að koma upp nútíma sjómannastofum, nema því aðeins að ríkið geri sitt til þess að greiða fyrir því, að svo megi verða. Því er hér lagt til, að slíkar sjómannastofur verði byggðar eða komið á fót undir yfirstjórn vita- og hafnarmálaskrifstofunnar og þess ráðuneytis, sem með hennar málefni fer. Uppbygging slíkra sjómannastofa yrði háð samþykki þessara aðila eins og aðrar framkvæmdir í slíkum höfnum. En að því tilskildu, að myndarlega sé til hlutanna stofnað, þá vænti ég þess, að hv. alþm.. þyki ekki til of mikils mælzt, þótt slíkar framkvæmdir yrðu framlagsskyldar úr ríkissjóði að 2/5 hlutum, eins og hverjar aðrar framkvæmdir, sem nú eru gerðar í höfnum landsins. Það er með öllu óséð, hvort þetta mundi nokkuð auka kostnað ríkissjóðs, því að eins og ég hef áður bent á, þá er allsendis óséð, hver lögreglukostnaður kann að verða á ríkinu, því að hann fer stöðugt vaxandi, til þess að halda í skefjum siðferði manna, þar sem ekkert er gert til þess að veita mönnum hæfilegan aðbúnað. En líklegt er, að uppbygging nútímafyrirtækja, eins og ég hér hef nefnt, mundi geta heft þá þróun, stöðvað hana og máske snúið henni við.