11.12.1961
Neðri deild: 35. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í B-deild Alþingistíðinda. (287)

107. mál, verðlagsráð sjávarútvegsins

Frsm. 2. minni hl. (Geir Gunnarsson):

Hv. forseti. 1. umr. um frv. Það, sem hér liggur fyrir um verðlagsráð sjávarútvegsins, var hespuð af sama daginn og það var lagt fram á Alþ., hinn 8. þ.m., án þess að þm. gæfist nokkur kostur á að kynna sér efni þess áður. Fer þó ekki á milli mála, að hér er um mikilvægt mál að ræða, sem aðstaða þyrfti að gefast til að athuga vel og íhuga, áður en samþykkt yrði. Ætlunin mun hafa verið, að sjútvn. tæki frv. fyrir einnig sama daginn og það var lagt fram. Það tókst þó ekki, en fundur var haldinn daginn eftir, þ.e.a.s. s.l. laugardag. Á þeim fundi kom í ljós, að enginn frekari frestur fékkst til að athuga frv. og bera undir viðkomandi þingflokka þær brtt., sem fram kynnu að koma í nefndinni, eða reyna til þrautar, hver samstaða gæti orðið í henni, heldur var sýnt, að ekki var ætlunin, að nefndin héldi nema þennan eina stutta fund um frv. Og þegar var ákveðið, að það skyldi tekið fyrir á næsta þingfundi. Það er því skoðun mín, að sjútvn. hafi engan veginn athugað þetta frv. sameiginlega svo sem þurft hefði og viðhlítandi væri.

Á hinum stutta fundi n. kom í ljós, að fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna, meiri hluti nefndarinnar, vildu samþykkja frv. að mestu óbreytt, gera á einum stað orðalag ótvíræðara en það er í frv. og setja eitt skilyrði, sem fulltrúar í yfirnefnd þyrftu að uppfylla. Hins vegar var svo að sjá, að jafnvel sá nm., sem við 1. umr. vildi fjölga fulltrúum sjómanna í nefndinni og lýsti því yfir, að hann mundi flytja brtt. þess efnis, væri nú fallinn frá þeirri kröfu sinni og að ríkisstj. ætlaði sér ekki að heimila neinar breytingar, sem máli skiptu. Þá kom það enn fremur fram á fundinum, að minni hl. vill gera á frv. veigameiri breytingar. Ekki er þó hægt að segja, að þær brtt. hafi verið ræddar í nefndinni.

Þar sem hér er um mjög veigamikið og mikilsvert mál að ræða, hlýtur það að vekja furðu, hversu mjög afgreiðslu þess er hraðað í þinginu og hversu lítið tóm er gefið til þess að kanna til hlítar, hverjir möguleikar eru á samstöðu um óhjákvæmilegar breytingar á frv. Reyndar mætti e.t.v. segja fremur, að málsmeðferðin styðji þá skoðun, að sú regla sé að verða föst og óhagganleg hér á hv. Alþ., að sá tími, sem veittur er til afgreiðslu mála, sé í öfugu hlutfalli við mikilvægi þeirra. Sú nefnd, sem undirbjó frv., virðist hafa skilað af sér störfum fyrir s.l. mánaðamót, en málið er þó 8 daga að taka á sig það mót, sem það hefur í frv., en þeim, sem endanlega eiga að staðfesta það og móta lagasetninguna, er ekkert tóm gefið til athugunar í málinu. Nú hefur það verið tekið til 2. umr., en nál. mitt og brtt. eru enn í prentun og verður naumast útbýtt fyrr en einhvern tíma seinna í dag eða jafnvel þegar lokið verður 2. umr.

Svo sem alþjóð er kunnugt, hefur það á ákveðnum tímabilum verið eitt einkenni á útgerðarmálum þjóðarinnar, að flotinn hefur í upphafi vertíðar legið óhreyfður í höfn, stundum tímum saman, vegna ágreinings um fiskverð milli fiskkaupenda og fiskseljenda. Aðilar að þeim deilum voru til skamms tíma annars vegar fiskkaupmenn eða fiskkaupendur og hins vegar útgerðarmenn sem fiskseljendur. Eftir að sú skipan komst á launamál sjómanna, að hlutur þeirra reiknast af sama verði og útgerðarmenn fá fyrir fiskinn, hafa eðlilega orðið háværari kröfur þeirra um, að þeir fengju beina aðild að samningum um fiskverð, þar sem hagsmunir þeirra í launamálum eru beint tengdir fiskverðinu, sem um semst milli fiskseljenda og fiskkaupenda. Þetta frv. er m.a. flutt til þess að ákveða, hver skuli vera hlutdeild sjómanna í þessum samningum.

Þegar við 1. umr. kom í ljós, að ýmsum þykir hlutur sjómanna fyrir borð borinn í þessum efnum, þar sem þeim eru ætlaðir færri fulltrúar í samninganefndinni en útgerðarmönnum. Jafnvel einn fylgismaður ríkisstj. lýsti því yfir, að hann mundi ekki sætta sig við svo skarðan hlut sjómanna. Því miður virðist nú sem kippt hafi verið í taumana á æðri stöðum og fylgjendur ríkisstj. verði undantekningarlaust að sætta sig við, að hlutdeild sjómanna í samningum um fiskverðið verði ekki meiri en frv. gerir ráð fyrir.

Í aths. við frv. er tekið fram, að það sé flutt í þeim tilgangi að koma verðákvörðunum á ferskum sjávarafla í fastari skorður en verið hefur um mörg undanfarin ár, „svo að komizt verði hjá ágreiningi, sem leitt getur til hins alvarlegasta ástands í útgerðarmálum þjóðarinnar,“ eins og þar segir orðrétt. Um það verður ekki deilt, að ágreiningur um fiskverð milli útgerðarmanna og fiskkaupenda hefur margsinnis valdið stórfelldu tjóni. Um skeið mátti það heita föst regla, að róðrar hæfust ekki í stærstu verstöðvum landsins, fyrr en allmjög var tekið að líða á vertíð ár hvert. Þetta einkenni á útgerðarmálum hvarf með öllu á tíma vinstri stjórnarinnar, þó að ekkert verðlagsráð hafi verið stofnað. Þá leystust þessi mál án þess, að flotinn stöðvaðist, og öll stjórnarár vinstri stjórnarinnar var fiskiskipaflotinn gerður út án þess að stöðvast einn einasta dag vegna ágreinings um fiskverð eða kjaramál sjómanna eða útgerðarmanna. Eftir að núv. ríkisstj. tók við, sótti strax í sama horfið og fyrir tíma vinstri stjórnarinnar. Það er því svo að sjá, að helztu forsvarsmenn „frjálsra viðskipta“ í efnahagslífinu eigi erfitt með að útfæra kenningar sínar án þess að lenda í strandi.

Eitt hið fyrsta, sem núv. ríkisstj. lýsti yfir við valdatöku sína, var það, að stefna hennar væri sú, að viðskiptaaðilar og aðilar að samningum um kjaramál skyldu leysa mál sín án afskipta opinberra aðila. Það hefur hins vegar komið í ljós, að framkvæmd þessarar kenningar leysir ekki þann ágreining, „sem leitt getur til hins alvarlegasta ástands í útgerðarmálum þjóðarinnar“. Þeim, sem nú fara með stjórn sjávarútvegsmála, hefur reynzt algerlega um megn að haga svo málum sjávarútvegsins, að verðlags- og kjaramál þessarar atvinnugreinar leysist án sérstakra aðgerða opinberra aðila. Þess vegna er í frv. Þessu gert ráð fyrir því, að opinber aðili höggvi á hnútinn með gerðardómi, ef á þarf að halda. Þannig á að ná þeim tilgangi frv. að leysa úr ágreiningnum.

Frv. þetta er undirbúið af nefnd fulltrúa fiskkaupenda og fiskseljenda, útgerðarmanna og sjómanna, og því hefur verið haldið fram, að það byggist á víðtæku samkomulagi þessara ólíku aðila. Svo er þó ekki, eins og kemur í ljós, þegar athuguð eru störf nefndarinnar. Í tilhögun veigamestu atriðanna byggist frv. á meirihlutaákvörðunum innan nefndarinnar, þar sem fjölmennustu stéttasamtök þjóðarinnar eru andvíg þeim einstöku tillögum, sem gerðar eru og teknar eru upp í frv. Annars vegar er um að ræða samkomulag þessara aðila, samkomulag um nauðsyn þess, að stofnun með hlutdeild fiskkaupenda og fiskseljenda, útgerðarmanna og sjómanna, hafi með höndum verðlagningu á sjávarafla. Hins vegar eru hin fjölmennustu stéttasamtök svo aftur á móti andvíg frv. í heild óbreyttu.

Samkv. frv. er gert ráð fyrir, að sérstök stofnun, verðlagsráð sjávarútvegsins, ákvarði verð á sjávarafla. Eru sjómönnum ætlaðir 3 af fulltrúum fisksöluaðila í verðlagsráði, en útgerðarmönnum 4. Þessi mismunur er algerlega óeðlilegur og óviðunandi fyrir sjómenn, sem eiga sem næst helming þess afla, sem ráðið verðleggur. Á síldveiðum eiga sjómenn að fá í sinn hlut rúmlega helming aflans. Á smærri bátum, sem öfluðu nær 20% af heildarfiskaflanum, öðrum en síld, eiga sjómenn meiri hluta aflans. Og einn hv. þm. taldi hér á þingi fyrir skömmu, að eitt af því, sem gerði togaraútgerð ókleifa, væri sú staðreynd, að áhöfnin fengi 51% af aflanum í sinn hlut.

Það er því sýnilegt, að við ákvörðun á hlutdeild sjómanna að verðlagsráði, þar sem þeim eru ætlaðir 3 menn, en útgerðarmönnum 4, ræður eitthvað annað en sanngirni og vilji til að leysa ágreining. Það hlýtur á allan hátt að teljast eðlilegt og sjálfsagt, að fulltrúar sjómanna í verðlagsráði séu ekki færri en útgerðarmanna. Viðbrögð aðila úr liði hæstv. ríkisstj. við 1. umr. um þetta mál sýna líka ljóslega, að menn finna strax, hversu hér er ósanngjarnlega að farið, þótt nú kunni að hafa tekizt að bæla niður alla viðleitni til sanngirni í þeim herbúðum.

Ég flyt hér á þskj., sem enn hefur ekki verið útbýtt, tillögu um, að fulltrúum fiskseljenda í verðlagsráði verði fjölgað úr 7 í 8, þannig að fulltrúar sjómanna verði 4 og fulltrúar Alþýðusambands Íslands 2 í stað eins. Að öðrum brtt., sem ég flyt við frv., mun ég koma síðar. Ég tel það algert skilyrði, til þess að lög um verðlagsráð sjávarútvegsins geti náð tilgangi sínum, að þau njóti trausts þeirra, sem eiga launakjör sín að miklu leyti undir ákvörðunum þess. Ef fulltrúatala sjómanna á að verða lægri í verðlagsráði en fulltrúatala útgerðarmanna, þótt sjómenn eigi aflann fyllilega að hálfu, hlýtur það að verða til þess að draga úr trausti þeirra á verðlagsráði og getur jafnvel orðið til þess, að þeir álíti, að þessari stofnun sé beinlínis komið á fót til þess að hlunnfara þá. Þess ber sérstaklega að gæta í þessu sambandi, að útgerðarmenn, sem samkv. frv. eiga meiri hluta fulltrúa fisksöluaðila í verðlagsráðinu, eru margir hverjir að meira eða minna leyti fiskkaupendur, jafnhliða því sem þeir gera út og selja fisk. Tel ég, að ekki verði hjá því komizt að setja undir þennan leka með einhverju móti, og flyt því brtt. þess efnis, að það skilyrði sé sett fyrir setu fulltrúa útgerðarmanna í verðlagsráði, að þeir séu ekki félagsbundnir í samtökum fiskkaupenda og hafi engra hagsmuna að gæta varðandi fiskkaup, sem andstæðir geti talizt hagsmunum fiskseljenda. Samkomulag mun að líkindum vera með sjávarútvegsnefndarmönnum um, að þetta skilyrði skuli gilda varðandi fulltrúa í yfirnefnd. Ég fyrir mitt leyti tel fullkomlega eðlilegt og sjálfsagt, að það gildi gagnvart öllum fulltrúum útgerðarmanna í verðlagsráðinu sjálfu. Erfitt mun að vísu reynast að tryggja í framkvæmd, að þessu skilyrði sé fullnægt, þótt takast kunni að orða skilyrðið svo, að vel fari. Og einmitt það, hversu erfitt mun í framkvæmd að tryggja, að fulltrúar útgerðarmanna eigi ekki einhverra hagsmuna leynt eða ljóst að gæta í sambandi við fiskkaup, styður enn frekar og gerir eðlilegri kröfur sjómanna, að þeir fái jafnmarga fulltrúa í verðlagsráðið og útgerðarmenn.

Svo sem ég gat um áðan, tel ég, að því aðeins komi verðlagsráð að því gagni, sem því er ætlað, að það njóti trausts allra þeirra, sem eiga hagsmuni sína undir ákvörðunum þess. Gagnvart sjómönnum a.m.k., sem eiga erfitt um vik vegna starfa sinna að fylgjast nógu vel með kjaramálum sínum, tel ég, að nauðsyn beri til, að útreikningar verðlagsráðs séu birtir þegar að lokinni verðákvörðun, og flyt ég brtt. við 6. gr. þess efnis. Í 6. gr. eru ýmsir aðilar skyldaðir til þess að viðlögðum dagsektum að láta verðlagsráði í té allar upplýsingar varðandi sölu eða vinnslu sjávarafurða, sem að gagni mega koma við störf verðlagsráðs. Ég tel eðlilegt, að verðlagsráði sé skylt að birta opinberlega sundurliðaða útreikninga þá, sem liggja til grundvallar verðákvörðunum hverju sinni. Launþegar hafa haft ástæðu til þess að draga í efa gildi þeirra útreikninga, sem atvinnurekendur hafa birt um getu atvinnuveganna til greiðslu launa, og er þar skemmst að minnast, að atvinnurekendur lýstu því yfir alllöngu fyrir síðasta verkfall, að atvinnuvegirnir gætu engar kauphækkanir á sig tekið. En ríkisstj. lýsti því yfir, er verkfall var hafið, að 3% kauphækkun gætu atvinnuvegirnir borið, og síðar, er á leið verkfallið, að 6% kauphækkun gæti orðið raunhæf kjarabót. Í útreikningum verðlagsráðs þurfa að koma fram þeir kostnaðarliðir, sem mestu ráða um verðlagningu sjávarafurða: vinnulaun, vextir, veiðarfærakostnaður, viðhald, afskriftir, tryggingar, farmgjöld, svo og markaðsverð afurða.

Þá flyt ég brtt. þess efnis, að aflaverð breytist sjálfkrafa í réttu hlutfalli við breytingu á gengi íslenzkrar krónu. Í frv. virðist vera miðað við, að ákvarðanir verðlagsráðs gildi jafnan í eitt ár í senn og aldrei skemur en eitt veiðitímabil. Ég tel sjálfsagt, að ef til kemur röskun á gengi íslenzkrar krónu og þar með um leið breyting á útflutningsverði sjávarafurða og erlendum kostnaði, þá taki verð á ferskum sjávarafla hliðstæðum breytingum.

Í 9. gr. frv. er gert ráð fyrir því, að náist ekki fullt samkomulag í verðlagsráði um verð á ferskum sjávarafla, sé ágreiningsatriðum vísað til sérstakrar yfirnefndar, sem skipuð sé tveimur fulltrúum fisksöluaðila, tveimur fulltrúum fiskkaupenda og einum aðila, sem viðsemjendur komi sér saman um, en verði tilnefndur af hæstarétti, ef yfirnefnd kemur sér ekki saman um skipun hans. Þannig skipuð felli yfirnefndin fullnaðarúrskurð um ágreiningsatriðin. Þetta ákvæði tel ég óviðunandi og flyt brtt. í þá átt, að lögin verði í samræmi við tillögur fulltrúa Alþýðusambands Íslands í þeirri viðræðunefnd fiskseljenda og fiskkaupenda, sem undirbjó frv. Í þeirri brtt. er gerðardómi hafnað, en þess í stað lagt til, að náist ekki samkomulag í verðlagsráði í tæka tíð fyrir vertíð, skuli ríkissáttasemjari taka upp störf með ráðinu og hafa heimild til að bera fram miðlunartill., sem félög fiskkaupenda og fiskseljenda greiði atkvæði um í félagssamtökum sínum.

Í frv. er gert ráð fyrir því, að gerðardómur eða yfirnefnd verði þannig skipuð, að það er undir hælinn lagt, hvort Alþýðusamband Íslands kemur til með að eiga þar fulltrúa. Getur því svo farið, að ákvörðun yfirnefndar fjalli um fiskverð á svæðum, þar sem sjómenn eiga enga aðild að fulltrúunum í yfirnefnd. M.a. með tilliti til þess, hvernig gert er ráð fyrir að yfirnefnd sé skipuð, má búast við því, að slík ákvæði um gerðardóm við ákvörðun aflaverðs leiði til þess, að sjómannafélög treystist ekki til þess að eiga neitt á hættu um, að ákvörðun gerðardómsins verði endanleg ákvörðun um launakjör þeirra, og þau muni því grípa til þess að hafa samninga lausa, þegar verðákvörðun fer fram, svo að þau eigi þess kost að jafna of lágt fiskverð með því að fá hækkaða hlutfallstölu af aflaverðmæti til sjómanna.

Fulltrúi Alþýðusambands Íslands í samninganefndinni, sem vann að undirbúningi þessa frv., getur þess sérstaklega í séráliti sínu, að í þeim viðræðum, sem fram hafi farið milli fulltrúa sjómannasamtakanna innan Alþýðusambands Íslands og fulltrúa Landssambands íslenzkra útvegsmanna um sameiginlega nefnd þessara félagasamtaka til að semja við fiskkaupendur um fiskverð og skírskotað er til í grg. með frv., hafi aldrei verið minnzt á gerðardóm til ákvörðunar á fiskverði. Sú ákvörðun kemur því inn á síðara stigi málsins, þegar víðtækari nefnd fjallar um málið. Ákvörðunin um gerðardóm hlýtur að kalla á þau viðbrögð sjómannafélaganna, sem ég hef að framan lýst, og verður því engan veginn til þess að stuðla að því að leysa úr ágreiningi, heldur má við því búast, að hann komi fram, eftir að úrskurður yfirnefndar hefur fallið, í mynd kjaradeilu sjómanna og útgerðarmannafélaga um aflaprósentuna. En e.t.v. er ætlun ríkisstj. að komast hjá þeim ágreiningi með sérstökum ráðstöfunum, sem bíða þá síns tíma. A.m.k. eru orðnar háværar raddir innan stjórnarliðsins um breytingar á vinnulöggjöfinni í þá átt, að sjómannafélögunum verði ekki heldur unnt að rétta hlut sinn með kjarabaráttu við atvinnurekendur.

Með brtt. minni við 9. gr. frv. er gert ráð fyrir, að úrslit um verðlagningu sjávarafurða verði ekki ráðin með gerðardómi, heldur verði miðlunartillaga, sem fram kæmi í yfirnefnd, lögð fyrir viðkomandi félög fiskkaupenda og fiskseljenda til ákvörðunar í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu. Ég lít svo á, að til þess að komið verði í veg fyrir ágreining eða úr honum dregið, þurfi þeir aðilar, sem hætta er á að deili, að búa við jafnrétti í samningum og yfir þeim eigi alls ekki að vofa hótun um bindandi valdboð. Til þess að tryggja betur jafnréttið hef ég því lagt til, að fulltrúar sjómanna og útgerðarmanna verði jafnmargir í verðlagsráði, og til lausnar á ágreiningnum tel ég að fara eigi að till. fulltrúa Alþýðusambands Íslands um starf sáttasemjara í deilum um fiskverð og lýðræðislegar kosningar í stéttarfélögum.

Þar sem búast má við, að sú skipun fáist ekki samþ. af þeim aðilum, sem meirihlutavald hafa á Alþingi, legg ég til til vara, að ótvírætt skuli frá því gengið, að fulltrúi sjómanna í yfirnefnd skuli vera fulltrúi Alþýðusambands Íslands í verðlagsráði, annar þeirra, ef þeir verða tveir. Fulltrúi Alþýðusambands Íslands getur komið fram fyrir hönd allra sjómanna, en hins vegar tekur Farmannasambandið til mjög takmarkaðs hóps og Sjómannasambandið aðeins til mjög takmarkaðs svæðis sunnan- og suðvestanlands, og við ákvarðanir á fiskverði varðandi önnur svæði ættu sjómenn þar enga aðild að ákvörðun yfirnefndar, ef Alþýðusamband Íslands á þar ekki fulltrúa.

Ef ekki fást fram þær breytingar, sem hér hafa verið tilgreindar, a.m.k. varðandi fulltrúatölu sjómanna í verðlagsráði og svo varðandi gerðardóminn í 9. gr., þá tel ég, að frv. verði svo gallað, að ekki sé unnt að samþ. það. Á því er hin brýnasta þörf að tryggja sjómönnum aðild að fiskverðssamningum, en sú ráðstöfun verður að byggjast á jafnrétti þeirra á við aðra fiskseljendur. Og á því er brýn nauðsyn, að aflaverð sé ákveðið, áður en vertíð hefst, róðrar þurfi hvorki að falla niður, vegna þess að ekki hafi náðst samkomulag um verð, né heldur róið án þess að samkomulag hafi náðst um fiskverð, því að erfitt mun sjómönnum reynast að fá sanngjarnt verð á þann afla, sem þegar hefur verið á land dreginn án þess að vera verðlagður fyrir fram.

Lög um verðlagsráð sjávarútvegsins gætu orðið til báta, ef þau stuðluðu að skilningi milli þeirra aðila, sem verið er að forðast að deili, og til þess að þau lög, sem eiga að stuðla að því, að komizt verði hjá ágreiningi, nái þeim tilgangi sínum, má á engan aðilann halla. Eins og frv. er úr garði gert, tel ég, að það nái ekki yfirlýstum tilgangi. Misrétti um fulltrúatölu í verðlagsráði stuðlar ekki að því, að komizt verði hjá ágreiningi, og gerðardómur dregur ekki heldur úr ágreiningi og stuðlar ekki að því, að tilgangur laganna náist. Gerðardómur er valdboð, en ekki lausn á ágreiningi.

Ég legg því til, að samþ. verði brtt. Þær, sem ég flyt á sérstöku þskj., og frv. síðan samþ. Þannig breytt, en fellt, ef þær ná ekki fram að ganga.