22.03.1962
Neðri deild: 71. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í C-deild Alþingistíðinda. (2897)

194. mál, tollskrá

Flm. (Daníel Ágústínusson):

Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér að flytja frv. á þskj. 438 um breyt. á l. nr. 90 frá 25. nóv. 1954, um tollskrá o.fl. Frv. er um það, að í 77. kafla tollskrárinnar komi sú aths., að fjmrn. sé heimilt að fella niður aðflutningsgjöld af sýningarvélum fyrir kvikmyndir, sem fluttar eru inn af félagsheimilum í sveitum eða kauptúnum með 500 íbúa eða færri, þó ekki nema af einni vél í hvern stað. Frv. er byggt á þörf hinna nýju og myndarlegu félagsheimila að eignast tæki til þess að gera starfsemina fjölbreyttari og þeirri algeru sérstöðu í hinum fámennu byggðarlögum, þar sem kvikmyndahúsrekstur getur aldrei orðið arðvænlegur.

Það er mjög um það rætt, að menningargjöld hinna nýju félagsheimila, svo stór og glæsileg sem þau eru, sé ekki í hlutfalli við þann kostnað, sem í þau hefur verið lagður. Ég skal ekki fullyrða, hvað hæft er í þessu, en það er vitanlega augljóst mál og ættu allir að geta verið um það sammála, að það er ekki nóg að byggja glæsileg hús, það verður einnig að hlutast til um, að starfsemin í þessum húsum hafi menningarlegt og félagslegt gildi fyrir viðkomandi byggðarlög.

Í sambandi við kvikmyndasýningar í félagsheimilunum, þá mun einkum hafa verið um að ræða hinar svonefndu 16 mm fræðslukvikmyndir, sem einstakir menn hafa ferðazt með um landið, og félagsheimilin sjálf hafa eignazt litlar sýningarvélar og getað sýnt slíkar myndir og annað ekki. Fólkið í hinum fámennari byggðarlögum hefur þess vegna yfirleitt ekki átt þess kost að sjá hinar algengu kvikmyndir, 35 mm kvikmyndir, í sinni heimabyggð, og hefur orðið að fara lengra til þess að sækja sér þá fræðslu og skemmtun, sem þær veita, og það er af þeirri einföldu ástæðu, að þessar kvikmyndasýningarvélar hafa verið ákaflega dýrar og fólkið fátt og enginn hagnaður af kvikmyndarekstrinum og því óhugsandi, að hin fámennu byggðarlög geti staðið undir slíkum kaupum, enda kemur það skýrt í ljós, að 35 mm kvikmyndavélar eru eingöngu til í hinum þéttbýlustu hlutum landsins.

Í öllum kaupstöðum landsins eru starfandi kvikmyndahús, eitt eða fleiri. Kauptún landsins teljast rúmlega 62, þar af eru aðeins 18 þeirra og vitanlega þau fjölmennustu, sem eiga 35 mm sýningarvélar en 44 kauptún njóta þeirra ekki. Í 52 sveitarfélögum, þar sem eigi eru nein kauptún, eru hvergi til 35 mm sýningarvélar, að undanteknu einu, sem komizt hefur yfir gamlar vélar af sérstökum ástæðum. Þetta segir vitanlega sína sögu. Tæki þessi eru hvergi keypt, nema þar sem mannfjöldinn er svo mikill, að reksturinn verði arðvænlegur. Í flestum sveitum og hinum smærri þorpum með 500 íbúa eða færri getur ekki verið um venjulegan kvikmyndahúsrekstur að ræða.

Það má því segja, að rúmlega 1/4 hluti þjóðarinnar, sem nú býr í þeim byggðum, er ekki hafa eignazt 35 mm sýningarvélar, hafi enga möguleika til að eignast þær að óbreyttum aðstæðum. Í þessum byggðum búa 46 þús. menn og fara að mestu á mis við þá skemmtun og fræðslu, sem góðar kvikmyndir geta veitt. Sá þrándur, sem hér er í götu, er fyrst og fremst kaupverð vélanna. Og það er ekki von til þess, að þær verði keyptar að óbreyttu verðlagi á þeim. Sýningarvélar, sem hér er um að ræða, kosta í innkaupi með sýningartjaldi og öðrum nauðsynlegum útbúnaði rúmlega £1000, sem verður í íslenzkum krónum með núverandi gengi rúmlega 121 þús. kr. Til viðbótar fob-verði þessara véla kemur verðtollur 50%, sem gerir 60800 kr., tollstöðva- og byggingarsjóðsgjald, sem gerir 1260 kr., innflutningssöluskattur, sem er 16.5%, gerir 30100 kr., og viðskiptasöluskattur 3.3%, sem gerir 7054 kr. Kaupverð vélanna verður þá með þessum aðflutningsgjöldum og söluskatti 220804 kr., og það er áreiðanlega hærri upphæð en svo, að líklegt sé, að fámenn byggðarlög rísi undir kaupunum á svo dýrum sýningarvélum.

Þess skal þó getið, að á s.l. hausti var samþ. hér á Alþingi nokkur breyting á þessum kafla tollskrárinnar, þannig að verðtollur á sýningarvélum var lækkaður úr 90% niður í 50% og 16.5% innflutningsgjald var fellt niður. Við þessa breytingu varð veruleg lækkun á þessum innflutningi, sem vert er að meta og virða, en gengur bara ekki nógu langt, og í þessu tilfeili er ekki tekið tillit til þeirrar geysilegu sérstöðu, sem hin fámennari byggðarlög hafa í þessu sambandi.

Með þessu frv., ef að lögum verður, er ekki gefið neitt nýtt fordæmi, sem gæti verið hættulegt. Í lögum um tollskrá er að finna heimild fyrir fjmrn, til að veita undanþágu fyrir hljóðfæri í skóla, kirkjuhljóðfæri, hljómplötur með verkum íslenzkra höfunda og sitthvað fleira. Tel ég vafalaust, að undanþáguákvæði þessi hafi mjög stuðlað að því, að fátækir skólar og fámennir söfnuðir hafi eignazt hljóðfæri til mikillar ánægju og menningarauka, sem annars hefðu aldrei verið keypt. Það er því mjög sanngjarnt og eðlilegt, að þessum þætti sé bætt við undanþáguákvæði í tollskránni, ef það gæti stuðlað að því, að kvikmyndirnar næðu með því móti til atlrar þjóðarinnar. Fyrir ríkissjóð verður þetta ekki tekjurýrnun, því að engar líkur eru til þess, að hin fámennu byggðarlög, sem gert er ráð fyrir að njóti undanþágunnar, hafi minnstu möguleika til að eignast sýningarvélar þessar við því verði, sem nú er á þeim, eftir að aðflutningsgjöldin hafa bætzt við. Tekjur af rekstri þeirra yrðu alltaf sáralitiar í hinum fámennu byggðarlögum, eins og áður hefur verið drepið á.

Með samþykkt þessa frv. er stuðlað að því, að notagildi hinna mörgu og myndarlegu félagsheimila víðs vegar um landið verði stóraukið og rúmlega fjórðungi þjóðarinnar auðveldað að njóta kvikmynda á borð við aðra þegna þjóðfélagsins.

Að lokinni þessari umr. legg ég til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn. deildarinnar.