29.03.1962
Neðri deild: 79. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í C-deild Alþingistíðinda. (2900)
201. mál, félagsheimili
Flm. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Það fer ekki á milli mála, að með framkvæmd laganna um félagsheimili var stigið heilladrjúgt spor, sem hefur haft mikla þýðingu fyrir dreifbýlið og bætt og aukið aðstöðu þess til félagslegs og sameiginlegs menningarlegs starfs.
Þegar lögin um félagsheimili tóku gildi, var algengt, að í sveitum landsins væru fundarhúsin lítil, gömul og léleg og á allan hátt óvistleg og úr sér gengin, — hús, sem um aldamót höfðu verið þakksamlega þegin, en samsvörðuðu ekki lengur kröfum tímans um þægindi né aðra aðstöðu. Og þótt enn sé skortur á, að í öllum sveitarfélögum landsins sé hér bót á ráðin, þá hefur þó í skjóli félagsheimilalaganna orðið mikil breyting til batnaðar í þessu efni. Mörg glæsileg og vel búin félagsheimili hafa á seinni árum risið upp, þar sem hvers konar menningar og hagsmunasamtök byggðarlaganna hafa fengið viðunandi aðstöðu, auk þess sem fólkinu eru þar veittir möguleikar til ýmiss konar mannfagnaðar.
Í stórum dráttum má segja, að félagsheimilunum megi skipta í þrjá stærðarflokka, og munu flest húsin teljast undir miðflokkinn. Húsin í minnsta stærðarflokknum eru ekki mörg, enda ekki við hæfi nema allra smæstu sveitarfélaga. Yfirleitt mun heimaþörfin hafa ráðið mestu um stærð félagsheimilanna. En í fjölbyggðum héruðum, þar sem sveitarfélög eru og svo hagar til, að auðvelt er vegna góðra samgangna og annarra aðstæðna að fá utansveitarfólk til að sækja skemmtanir, sem haldnar eru í félagsheimili hlutaðeigandi sveitar, hefur sums staðar verið brugðið á það ráð að hafa húsin svo stór, að þau gætu hýst auk hreppsbúa fleira eða færra utansveitarfólk. En segja má, að ef mörg slík hús eru byggð í sama héraði, geti hlotizt af nokkur vandkvæði. Húsin verða dýrari og því erfiðara en ella að láta reksturinn bera sig, og afleiðingin getur orðið m.a. óæskileg samkeppni um skemmtanahald, án þess þó að rekstrargrundvöllurinn fáist viðunandi, ef mörg hús í sama héraði eiga hlut að máli. Segja má því, að í slíkum tilfellum séu húsin ekki af heppilegri stærð, óþarflega stór fyrir hlutaðeigandi sveitarfélag, en of lítil til að geta tekið á viðunandi hátt á móti héraðsbúum, þegar þeir vilja stofna til sameiginlegs mannfagnaðar.
Með hliðsjón af þessari reynslu og af fleiri ástæðum hefur á undanförnum árum nokkuð verið unnið að því í sumum héruðum landsins og einnig af stjórn félagsheimilasjóðs að mynda samtök allra sveitarfélaga innan hlutaðeigandi héraðs um byggingu sameiginlegs heimilis, héraðsheimilis, sem væri um stærð og búnað við hæfi alls héraðsins, gæti verið sameiginleg menningar- og samstarfsstöð fyrir það. Og þess er þá að sjálfsögðu gætt, að slíkt héraðsheimili sé þar staðsett, sem bezt hentar til sóknar öllum héraðsbúum. Samhliða er svo fyrirhugað, að óbyggð félagsheimili sveitanna innan héraðsins séu aðeins reist með þörf sveitarfélaganna fyrir augum.
Ég tel, að hér sé um merkilegt mál að ræða, sem stefnir að meiri hagkvæmni um byggingu félagsheimila og afnot. Það hefur verið reiknað út af fróðum mönnum, að ef í 10 hreppa héraði væri byggt eitt sameiginlegt héraðsheimili af þeirri stærð, sem fullnægir þörfum héraðsins, og síðan byggðu sveitarfélögin sér félagsheimili miðað við eigin þörf, mætti spara mikið í stofnkostnaði og þannig létta á hreppsfélögunum og félagsheimilasjóði. Þetta er auðvitað mikilsvert atriði. En á það ber ekki síður að líta, að íbúar flestra eða allra sveitarfélaga innanhéraðs, þótt búsettir séu í hinum ýmsu hreppum, eiga sameiginleg ótalmörg og þýðingarmikil hagsmunamál, bæði í félags- og menningarmálum. Það ber því mikla nauðsyn til þess, að til sé í héraðinu samkomuhús, sem þeir geta allir átt aðgang að til fundarhalda og mannfagnaðar. Það er því augljóst mál, hversu æskilegt það er fyrir héraðsbúa að geta sameiginlega haft möguleika til að njóta t.d. þeirra beztu skemmtikrafta innanhéraðs og utan, sem á boðstólum eru, t.d. í leik og hljómlist og öðru því, sem til menningar- og gleðiauka getur orðið. Og reynslan hefur sýnt, að í fæstum tilfellum geta hin einstöku félagsheimili sveitanna veitt í þessu efni viðunandi aðstöðu. Veldur þar um, að þau eru sjaldnast nógu stór eða heppilega staðsett til slíkra nota.
Ég skal nú víkja að meginástæðunum fyrir því, að við þm.. Austf. í þessari hv. þd. höfum leyft okkur að bera fram það frv., sem hér er til umr., og þær meginástæður eru um leið gott almennt dæmi um nauðsyn þess, að slíkt ákvæði verði lögfest. Fljótsdalshéraði er skipt í 10 sveitarfélög. Þau eiga, eins og að líkum lætur, mörg sameiginleg hagsmunamál, og er Egilsstaðakauptún miðstöð þeirra í öllu slíku, enda liggur það miðsvæðis og þar mætast allar samgönguæðar héraðsins. Á þessum stað eru staðsett öll aðalfélagsmálasamtök héraðsins, bæði í verzlun, landbúnaði og iðnaði, að því leyti sem vísir að honum er kominn á fót. Í sumum efnum ná þessi heildarsamtök yfir stærra svæði en Fljótsdalshérað, og nefni ég þar til Búnaðarsamband Austurlands. En öll félagssamtökin eiga við þá sameiginlegu erfiðleika að stríða, að þau eru algerlega á hrakhólum með fundarstað og annað, sem slíku tilheyrir. Öll 10 sveitarfélögin á Fljótsdalshéraði hafa því bundizt samtökum um að reisa sameiginlegt héraðsheimili að Egilsstöðum og skapa þannig viðunandi aðstöðu fyrir félagsmálasamtök héraðsins, auk þess sem þá verður mögulegt ýmislegt annað, sem til gagns má horfa. Þar er þeim vísi, sem til er nú að minjasafni Austurlands, ætlað að vera til húsa og ætlað þar til meiri vaxtar og meiri afnota fyrir fólkið, og þar ættu líka að skapast skilyrði fyrir sameiginlegt bókasafn héraðsins. Hér er því um framkvæmd að ræða, sem varðar Fljótsdalshérað allt, bæði í nútíð og framtíð. Héraðsbúum er ljóst, að þeir taka á sig miklar fjárhagslegar byrðar með því að ráðast í byggingu þessa héraðsheimilis, en þeir treysta því, að umbeðin breyting fáist á félagsheimilalögunum og að þannig verði lítils háttar léttur þunginn í þessu máli.
Ég gat þess, að það væri álit fróðra manna, að hægt eigi að vera að koma við verulegum sparnaði í stofnkostnaði, ef um byggingu félagsheimila í stóru héraði er að ræða, með því að byggja eitt sameiginlegt héraðsheimili og síðan byggi hlutaðeigandi sveitarfélög sín félagsheimili þannig, að þau séu aðeins miðuð við heimaþörf.
Vera má, að einhverjir vilji því álykta sem svo, að ef þetta er rétt, þá sé enginn aukinn vandi á höndum í þessu efni. En málið er ekki svo einfatt. Veldur þar mestu um, að við byggingu héraðsheimilis verður ekki hægt að styðjast við þegnskylduvinnu einstaklinga né fjárframlög félaga hinna einstöku sveita. Allir slíkir möguleikar eru eðlilega fullnýttir heima fyrir við byggingu félagsheimilanna þar, og er þó öllu til skila haldið, að til hrökkvi. Sveitarfélögin, sem standa að byggingu héraðsheimilis, hafa því ekki önnur úrræði til að afla þess fjár, sem þeim ber að leggja af mörkum til héraðsheimilis, en að taka það með útsvörum, en víðast munu slíkar álögur þykja nú þegar fullþungar, en þó verður svo að vera, að hér komi slíkar álögur til. Það verður því að teljast eðlilegt, að hið opinbera mildi svolítið þessar óhjákvæmilegu álögur á fólkið, ekki sízt ef rétt má teljast, að þessi aðferð leiði til fjármunalegs sparnaðar fyrir heildina og þar á meðal fyrir félagsheimilasjóð og með þessu fyrirkomulagi náist enn betur það markmið, sem stefnt er að í heild með félagsheimilalögunum.
Aðalatriðið í tillögum okkar þm.. Austf. er, að félagsheimilasjóði sé heimilað að greiða allt að 50% af stofnkostnaði héraðsheimilis, ef innanhéraðssamtök eru mynduð um að byggja slíkt heimili og að samtökunum standa minnst 80% af sveitarfélögum héraðsins, en aldrei færri en þrjú. Þá leyfum við okkur einnig að leggja til, að síðasta málsgr. 2. gr. félagsheimilalaganna falli niður, en þar er fram tekið, að ef félagsheimili nýtur sérstaks byggingarstyrks frá ríkissjóði, skuli þó sá styrkur og framlag félagsheimilasjóðs aldrei nema meira samtals en 40% af byggingarkostnaði. Þetta ákvæði hefur reynzt í nokkrum tilfellum óheppilegt. Það hefur komið fyrir, að ríkið hefur séð sér hag í að öðlast viss réttindi í félagsheimilum, og veit ég þess dæmi, að það hefur með sérstöku fjárframlagi tryggt barna- og unglingaskóla frambúðarrétt til leikfimikennslu innan félagsheimilis og sparað þannig byggingu leikfimihúss. Þótt umrætt ákvæði sé fellt niður, veldur það ekki neinum auknum fjárhagslegum byrðum fyrir félagsheimilasjóð, en opnar aðeins eðlilega leið fyrir hið opinbera til samninga, þegar það telur sér slíkt hagkvæmt.
Ég held, að það sé ekki ástæða til að hafa um þessa till, okkar fleiri orð, en vil að lokum bæta því við, að ég vænti þess, að hv. þingdeild taki málinu með skilningi og velvilja og afgreiðslu í nefnd verði hraðað svo, að það geti fengið fullnaðarafgreiðslu á þessu þingi. Að lokinni þessari umr. legg ég til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.