15.02.1962
Efri deild: 47. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í C-deild Alþingistíðinda. (2953)
145. mál, Ræktunarsjóður Íslands og Byggingarsjóður sveitabæja
Flm. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Við framsóknarmenn í þessari hv. d. fluttum á þinginu 1959–60 frv. unt, að ríkissjóður tæki að sér að greiða fyrir Ræktunarsjóð Íslands fimm erlend lán og fyrir Byggingarsjóð sveitabæja tvö erlend lán, sem á þessum sjóðum hvíla og sýnilegt var að sjóðunum mundi verða ofraun að standa straum af, eins og komið var. Þetta var í samræmi við það, sem áður hafði verið gert. Sjóðir þessir, sem reknir eru á ábyrgð ríkissjóðs og lána með lágum vöxtum til langs tíma, geta ekki staðið nema stutta stund undir lánsfé fyrir sig með hærri vöxtum oft til styttri tíma en útlán sjóðanna eru, það segir sig sjálft. Sama máli gegnir, þegar gengislækkanir verða og sjóðirnir verða fyrir gengistapi á erlendum lánum. Um þetta geta ekki verið skiptar skoðanir.
Árið 1953 ákvað Alþingi af framangreindum ástæðum með lögum, að ríkissjóður skyldi taka á sig ca. 14.4 millj. kr. fyrir ræktunarsjóð og aðra eins fjárhæð fyrir Byggingarsjóð sveitabæja. Eftir 4 ár, eða 1957, ákvað Alþingi aftur með heimild í fjárlögum, að ríkissjóður skyldi létta af ræktunarsjóði um 32.3 millj. kr. og af byggingarsjóði um 4.3 millj. kr.
Frv. okkar var því ekkert nýmæli. Það fól í sér endurtekningu sögunnar. En frv. fékkst ekki afgreitt, því var haldið föstu í nefnd, það sem eftir var þings.
Á þinginu í fyrra fluttum við hinir sömu þm.. aftur sama frv. Það hlaut sömu örlög sem hið fyrra frv. Látið var þá í veðri vaka við umr., að vandamál sjóðanna væri í athugun hjá hæstv. ríkisstj. og þaðan mundi einhverra úrræða vera að vænta fljótlega.
Við flm. höfum beðið átekta síðan þetta var. Það eru orðnir æði margir mánuðir — eða hátt í ár. Umbótatillögur frá hæstv. ríkisstj. hafa ekki sézt við sjónarrönd, hvað þá nær. Gengisfellingin s.l. sumar hækkaði enn erlendar skuldir ræktunarsjóðs um 22.3 millj. kr. og skuldir Byggingarsjóðs sveitabæja um 3.8 millj.,kr. Þessi hækkun skuldanna herðir enn á nauðsyn ráðstafana vegna sjóðanna, og var nauðsynin þó ærin áður. Í árslokin síðustu vantaði ræktunarsjóð reikningslega 52.6 millj. kr. til þess að eiga fyrir skuldunum, með gengisskráningunum báðum 1960 og 1961 höfðu erlend lán ræktunarsjóðs hækkað um samtals 100.6 millj. kr. Byggingarsjóður sveitabæja átti hins vegar 17.9 millj. kr. fram yfir skuldir við síðustu áramót. Gengisskráningarbreytingin 1960 og 1961 hafði hækkað erlendar skuldir hans alls um 22.5 millj. kr. Þessar fjárhæðir eru gengistap sjóða þessara og samtals að upphæð um 123.1 millj. kr.
Nú er það till. okkar flm. samkvæmt þessu frv., að ríkissjóður taki að sér greiðslu gengistapsins hjá sjóðunum. Það er augljóst mál, að honum ber að gera það, og þegar gengistapið er tekið út af fyrir sig, er þetta mjög einfalt mál og óþarft um það að þræta. Ætlazt er til, að ríkissjóður greiði sinn hluta lánanna, það er gengistapið, árlega í réttu hlutfalli við lánin og gjöld þau afborganir og vexti — sem greiða þarf af þeim ár hvert til hinna erlendu lánardrottna. Mun árgjald ríkissjóðs verða sem næst vegna ræktunarsjóðs 8.5 millj. og vegna byggingarsjóðs 2 millj., eða samtals 10.5 millj. kr.
Það bar til fyrir stuttu, að hæstv. ráðherra þessara mála lýsti því aðspurður yfir í umr. í sameinuðu þingi, að hann telji, að ríkissjóður eigi að bera gengisáhættu erlends lánsfjár, sem stofnlánasjóðir landbúnaðarins fá til að endurlána bændum. Faldi hann, að ríkissjóður hefði átt að taka lánin og endurlána féð í ísl. krónum til stofnlánasjóðanna án gengisábyrgðar af þeirra hálfu. Öllum má ljóst vera af þeirri yfirlýsingu hæstv-. ráðherra, að hann hlýtur að geta fallizt á þetta frv., sem hér er nú fram borið, af því að það gerir ráð fyrir því einu, að ríkissjóður borgi gengistapið vegna lánanna. Niðurstaðan er nákvæmlega sú sama og hann gaf til kynna í ræðu sinni að hann vildi vera láta, ábyrgð ríkisins og þátttaka hvorki meiri né minni.
Frv. gerir ráð fyrir, að árgjöldin nái til áranna 1960 og 1961 svo og til yfirstandandi árs, enda er það sjálfsagt. Hins vegar voru þessi gjöld auðvitað ekki tekin á fjárlög áranna 1960 og 1961 og ekki heldur á fjárlög þessa árs. Hrökkvi tekjuafgangur nefndra ára ekki til þess að borga þessi árgjöld, tel ég opna leið með gengistapið í reikning ríkissjóðs hinn vaxtalausa hjá Seðlabankanum, sem stofnaður var til öryggis með efnahagslögunum 1960. Skírskota ég til grg. frv. um þetta. Annars er það ekkert aðalatriði, hvernig straumur verður staðinn af þessum þrennum árgjöldum sjóðanna. Hitt er aðalatriðið, að láta ekki gengistapið lengur vera eins og átumein í sjóðunum.
Ég leyfi mér að vænta þess, að hv. þm. fallist á þetta frv. eða komi ella hið snarasta fram með annað, sem jafngott sé eða betra fyrir sjóðina, þá skal ég fyrir mitt leyti fallast á það, enda væri þá tilganginum með flutningi þessa frv. náð, en hann er sá einn að koma því til leiðar, að bættur verði hagur umræddra sjóða. Það hefur þegar dregizt allt of lengi.
Herra forseti. Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn. að lokinni þessari umr.