27.10.1961
Sameinað þing: 10. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í D-deild Alþingistíðinda. (2970)
48. mál, mótmæli gegn risasprengju Sovétríkjanna
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Hæstv. forsrh. talaði hér nokkur orð í þessum umræðum. Hann reyndi að réttlæta þá till., sem hér hefur komið fram um það að afgr. þetta mál án þess, að það fari til nefndar, á þann hátt, að fordæmi væri fyrir slíku frá árinu 1954, þegar hv. 3. þm. Reykv., Einar Olgeirsson, hefði þá lagt til um afgreiðslu svipaðrar till. og þeirrar, sem hér liggur fyrir, að hún yrði afgr. án þess að vísa málinu til nefndar. Ég efast ekki um, af því að ég veit, að hæstv. forsrh. hafði kynnt sér Alþingistíðindi frá þessum tíma, að hann veit mætavel, að hér er algerlega ólíku saman að jafna, í fyrsta lagi vegna þess, að hv. 3. þm. Reykv. sagði í sinni ræðu þá, að hann óskaði eftir samkomulagi um það, að hægt mætti vera að afgr. málið án þess, að það færi til nefndar. Á því er grundvallarmunur, hvort samkomulag getur orðið um það í þinginu að afgr. mál á þann hátt, að það gangi ekki til nefndar, eða hvort einhverjir þm., sem óska eftir því, fá að athuga málið í nefnd, þar sem ekki er fyllileg samstaða um málið. Og í öðru lagi var það, að þessi ósk árið 1954, þegar till. okkar lá fyrir um þetta mál, var fram komin af þeirri sérstöku nauðsyn, að þinginu var að ljúka, þegar till. loksins var tekin fyrir á Alþingi. Það átti að ljúka þingi daginn eftir eða svo. Og till. var tekin fyrir mjög seint á degi eða raunar var byrjaður nýr dagur, klukkan var farin að ganga eitt um nótt. Þá var tillagan fyrst tekin fyrir, þó að hún væri búin að liggja fyrir þinginu nokkurn tíma, en þingi átti að ljúka daginn eftir eða svo. Það var því ákaflega eðlilegt, að flm. till. óskaði eftir því undir slíkum kringumstæðtum, að samkomulag mætti verða um það í þinginu að afgr. þetta mál án þess, að það færi til nefndar. Þetta veit ég, að hæstv. forsrh. hefur allt vitað. En hann hefur ekki kosið að skýra hér frá því, að svona bar málin að þá. Og svo vitum við allir, hvernig málin ber að nú. Nú er um það að ræða, hvort á að þvinga það fram, rétt eftir að stórmál hefur verið lagt fram sem menn eru ekki á einu máli um, hvernig æskilegast væri að orða till. um, hvort á að þvinga það fram nú í byrjun þings að afgreiða málið á algerlega óvenjulegan hátt í þinginu, þannig að menn fái ekki að skoða tillöguna og ræða um hana í þingnefnd. Ég vil fullvissa flutningsmenn um, að það stendur ekkert á okkur Alþýðubandalagsmönnum að standa að því, að málið mætti afgreiðast út úr þinginu á morgun. En það væri eigi að síður hægt að athuga tillöguna í nefnd og reyna að koma sér saman um orðalag, þannig að þingið mætti allt standa að samþykktinni.
Nei, það er eins og ég sagði áður í þessum umræðum, það er ótrúlega margt, sem bendir til þess, að þeir, sem standa að þessari tillögu, óski eftir einhverju öðru en að þingmenn geti allir staðið að þeirri samþykkt, sem gerð er um þetta alvarlega mál, að þeir séu beinlínis að leita eftir einhverju öðru. Það er ekki aðeins eitt dæmi, sem hleypir rökum undir þá skoðun, heldur eru þau dæmi mörg, eins og ég mun víkja að nánar.
Ég lagði á það allmikla áherzlu í minni fyrri ræðu um þetta mál, að við Alþýðubandalagsmenn hefðum þá afstöðu til þessara mála, að víð vildum lýsa yfir andstöðu okkar og mótmæla öllum kjarnorkusprengingum, hvort sem þær fara fram fyrir austan eða vestan, af hverjum sem þær eru sprengdar, þessar kjarnorkusprengjur, og við teldum, að við ættum að forðast að taka þátt í því kalda stríði í veröldinni, sem einmitt magnar hættuna á því, að kjarnorkuvopnum verði beitt gegn mannkyninu. En á því er hins vegar enginn vafi, að þeir menn eru til, bæði hér á landi og annars staðar, sem hafa tekið drjúgan þátt í því að magna kalda stríðið.
Þegar ég hef nú spurt um það hér, sérstaklega flutningsmenn þessarar tillögu, hvort þeir geti ekki fallizt á, að það komi alveg skýrt og ótvírætt fram í till., að við Íslendingar lýsum yfir mótmælum okkar gegn öllum kjarnorkusprengingum, hvert er þá svarið? Eftir að ég lagði fram þessa spurningu mína, hefur annar flutningsmaðurinn talað hér tvisvar og flutt langt mál. Hverju svaraði hann þessu? Ekki einu einasta orði, nema þá því, að hann taldi, að það þyrfti ekki að gera neinar breytingar á tillögunni. Getur það verið svo, að flm. till. séu andvígir því að lýsa yfir andstöðu sinni gegn öllum kjarnorkusprengingum? Vilja þeir endilega hafa það eftir, að þeir leggi blessun sina yfir kjarnorkusprengjur, þegar vissir aðilar sprengja þær? Ég hélt, að það ætti að vera hægt að fá samstöðu um að taka af allan vafa í þeim efnum og lýsa því afdráttarlaust yfir, um leið og við mótmælum sprengingum Sovétríkjanna, að við séum á móti öllum kjarnorkusprengingum. Hv. 5. þm. Vesturl. reyndi í sinni fyrri ræðu að snúa þannig út úr orðum mínum, að þessi skoðun mín, að við ættum að mótmæla kjarnorkusprengingum yfirleitt og almennt, þýddi það, að ég þyrði ekki að heyra það nefnt í tillögu, að kjarnorkusprengingum Sovétríkjanna væri mótmælt. Þetta bjó hv. þm. algerlega til. Þetta sagði ég aldrei, heldur þveröfugt og skal endurtaka það enn, að það stendur ekkert á mér afi samþykkja tillögu, þar sem kjarnorkusprengingum Sovétríkjanna er mótmælt. En það virðist vera, að það standi á þessum hv. þm. að samþ., að öðrum kjarnorkusprengingum sé mótmælt.
Hér kemur það sama fram og í hinu fyrra tilfellinu, að það virðist vera höfuðtilgangurinn hjá flutningsmönnum að koma fram mótmælum eingöngu gegn Sovétríkjunum, það sé aðalatriðið, fleiri megi ekki nefna. Eða m.ö.o.: þeir virðast vera að taka þátt í þeim gráa leik að reyna að æsa eins mikið upp og mögulegt er til að taka þátt í kalda stríðinu í heiminum. Við vitum það mætavel, að stórveldin ásaka hvert annað um það, hvert þeirra beri mesta ábyrgð á því, hvernig málin standa nú í þessum efnum í veröldinni. Er það aðalatriði málsins, að við gerumst dómarar í því, hvert þeirra sé sekast? Snýst þetta mál um það? Eða snýst það um það að reyna að leggja sig fram um það að hafa áhrif á, að kjarnorkusprengingum verði yfirleitt hætt af öllum.
Nei, ræður þær, sem hv. 5. þm. Vesturl. hefur haldið hér, sanna mér alveg ljóslega, að tilgangur hans með flutningi þessarar till. er ekki sá að vinna gegn beitingu kjarnorkuvopna eða að vinna gegn því, að kjarnorkusprengjur verði sprengdar. Það er ekki tilgangur hans, það er alveg augljóst mál. Hann eyðir hér meginhluta af ræðutíma sínum í að tala um stefnu heimskommúnismans og hina hræðilegu stefnu Sovétríkjanna og barnalega trú íslenzkra sósíalista á afstöðu þeirra o.s.frv., o.s.frv.
Við vitum það mætavel, að skoðanir okkar tveggja t.d. fara ekki saman í heimspólitík og reyndar ekki í innanlandspólitík heldur. Ég veit t.d. mætavel, að hann er ákaflega dyggur þjónn Atlantshafsbandalagsins og er tilbúinn að syngja því lofsöngva, hvar sem er. Eins og hann kallar mig agent heimskommúnismans, get ég kallað hann agent NATOs. Þetta vitum við mætavel, að skoðanir okkar fara ekki saman í þessum efnum. En snýst það mál, sem hér hefur verið flutt á Alþingi, um þetta, eða snýst það um hitt, hvort við getum eitthvað gert til að koma í veg fyrir, að kjarnorkusprengjur verði sprengdar, okkur og öðrum í heiminum til háska? Ég held, að aðalatriðið sé það, sem ég hef lagt áherzlu á. Við eigum ekki að taka þátt í kalda stríðinu í heiminum. Við eigum ekki í þessum efnum að stilla okkur sérstaklega upp í öðru liðinu og ásaka hitt, heldur eigum við að sýna það einmitt í þessum efnum, að við viljum leggja hér alveg hlutlausan dóm á. Við erum á móti beitingu allra kjarnorkuvopna, og við erum sérstaklega á móti öllum kjarnorkusprengingum. Við fordæmum þær allar. Og við skulum gjarnan taka það sérstaklega fram, að við fordæmum risasprengjur Sovétríkjanna, sem sprungið hafa síðustu dagana.
Það væri auðvitað freistandi að ræða hér um nokkur atriði, sem hv. 5. þm. Vesturl. dró inn í þessar umræður og vissulega má segja að séu þessum málum tengd, þegar er farið að ræða þau á mjög breiðum grundvelli. Hann taldi t.d., að það væri með öllu óþarft að lýsa nokkru yfir hér á Alþ. um það, að við vildum ekki hafa nein kjarnorkuvopn í landi okkar og að frá stöðvum hér á landi yrði ekki beitt neinum kjarnorkuvopnum. Það sýndist þó mjög eðlilegt, að við gæfum hér alveg skýlausar yfirlýsingar um slíkt, á sama tíma og við erum að mótmæla kjarnorkuvopnum almennt. Hv. þm. færði það fram sem rök fyrir skoðun sinni í þessum efnum, að hér á landi væri ekki um neinn hernaðarundirbúning að ræða nema í sambandi við varnir og þar af leiðandi gæti ekki hér verið um að ræða nein kjarnorkuvopn. Þetta er auðvitað í grundvallaratriðum rangt, því að ekki veit ég annað betur en a.m.k. stórveldin í heiminum hafi haldið því fram hvað eftir annað, að þau ætli að nota ýmis kjarnorkuvopn í varnarskyni. Auk þess má svo benda á það, að öll vitum við, að hér á landi hafa verið, á vegum þess herliðs, sem hér er, sprengjuflugvélar af stærstu gerð, sem vissulega geta flutt slíkar sprengjur sem þessar. Hv. þm. getur því ekki sannfært neinn um það, meðan hann og aðrir færast undan því að gefa ótvíræðar yfirlýsingar um það hér á Alþ., að við munum ekki samþykkja það eða við munum ekki leyfa það að hafa kjarnorkuvopn á Íslandi, að það kunni ekki að vera gert. En hér eins og áður beygist krókurinn alltaf í sömu áttina. Það er gott einnig að hafa kjarnorkuvopn, einnig að segja ekkert um afstöðu sína gagnvart þeim í sambandi við herstöð á Íslandi, ef það kynni að vera öðrum aðilanum í hag.
Í fyrri ræðu sinni hér í dag sagði hv. 5. þm. Vesturl., að ég hefði farið hér rangt með upplýsingar um það í minni ræðu, hvernig það bar að, að stórveldin hættu 1958 sprengingum á kjarnorkusprengjum. Hann vildi halda því fram, að það væri rétt, að fyrst hefðu Bandaríkin og Bretar hætt, en síðan hefðu Sovétríkin hætt á eftir. Ég hef nú kynnt mér þessi mál á nýjan leik, en taldi mig þó hafa lesið þetta allgreinilega fyrir stuttu og ég myndi það rétt. Hið rétta er það, að 31. marz 1958 lýstu Sovétríkin yfir, að þau mundu hætta kjarnorkusprengingum einhliða, þó að ekki hafi þá tekizt samkomulag við Bandaríkin og Bretland um að hætta þessum sprengingum. Síðan hófust — og var skýrt frá því opinberlega í öllum blöðum — allmikil skrif á milli forustumanna Sovétríkjanna og forustumanna Bandaríkjanna og Bretlands um það, hvort ekki væri hægt að gera samning á milli þessara stórvelda um að hætta þessum sprengingum. Frá því var opinberlega skýrt líka, að samkomulag hefði ekki tekizt, þar sem bæði Bandaríkin og Bretland neituðu, en Sovétríkin stóðu áfram við sina yfirlýsingu um það, að þau væru hætt einhliða. Bæði Bandaríkin og Bretland hófu þá að nýju sprengingar einhliða í aprílmánuði, og sprengdu Bandaríkin eftir sínum eigin tilkynningum 40 kjarnorkusprengjur sumarið 1958 og Bretland eftir eigin tilkynningum 8 kjarnorkusprengjur. Það var svo aftur um haustið, í októbermánuði, að á ný hófust umr. á milli þessara stórvelda um að hætta þessum sprengingum, og í lok októbermánaðar varð samkomulag um það, að allir skyldu hætta, eða niðurstaðan a.m.k. varð sú, að þá hættu allir.
Þetta var gangur málsins, hvað sem hv. þm. segir um það, og það er auðvelt að fletta upp á því, að svona var þetta. Hitt er svo alveg rétt, sem ég sagði hér líka fyrr í minni ræðu, að þegar Frakkland, eitt af Atlantshafsbandalagsríkjunum, hóf sínar kjarnorkusprengingar á ný 1960 og 1961, þá lýstu Sovétríkin yfir hvað eftir annað, að ef Frakkland héldi áfram þessum sprengingum, mundu þau neyðast til að taka upp sprengingar á ný. Ég sagði í minni fyrri ræðu: Ég afsaka ekki Sovétríkin á neinn hátt í sambandi við þessa endurupptöku á sprengingum nú, ég er þeim andvigur, þrátt fyrir það að Frakkland hafi hagað sér á þessa lund.
En það vekur líka athygli í sambandi við flutning þessa máls og allan málflutning, að þeir, sem að till. standa, sáu enga nauðsyn í grg. till. eða í flutningi málsins hér á Alþ. að minnast einu orði á það, að Frakkland hafi eitt kjarnorkuveldanna tekið upp þessar sprengingar, eftir að hlé var komið á. Yfir það var stokkið, á það mátti ekki minnast, af því að hér var um eitt Atlantshafsbandalagsríkið að ræða. En hins vegar var sagt með allsterkum orðum, að Sovétríkin hafi rofið það samkomulag, sem var í þessum efnum. Það er svo sem alveg greinilegt, hver er tilgangurinn og hver er tilhneigingin í þessum efnum, alltaf er verið að leita að því, að reyna að sakfella Sovétríkin og reyna svo t leiðinni að ráðast á okkur íslenzka sósfallsta. Til þess eru refirnir skornir. Og það er hart, að alvarlegt mál fyrir íslenzku þjóðina skuli vera misnotað af mönnum á þennan hátt.
En þessir menn, sem þannig haga vinnubrögðum sínum í slíku máli sem þessu, munu ekkert vinna á, því að afstaða okkar Alþb.- manna er alveg skýr í þessum efnum, hún er nefnilega óbreytt allan tímann. Þegar við fluttum till. hér á Alþ. að skora á Bandaríkin 1954 að hætta sínum sprengingum og að samningar yrðu þá teknir upp á milli allra stórveldanna, sem talið var að réðu þá yfir svona sprengingum, þá voru það einmitt þeir, sem mest standa nú að þessari till., sem sýndu á sér hik. Þá töldu þeir ekki fært að nefna orðið kjarnorkusprengingu á nafn í samþykkt Alþ. Þá varð að leggja slíkt til hliðar. Þetta var slíkt deilumál í heiminum, sagði aðaltalsmaður þeirra, sem vildi breyta okkar till. Frsm. meiri hl. í utanrmn. lagði þá sérstaka áherzlu á, að kjarnorkusprengingar og það mál allt væri slíkt höfuðdeilumál í heimspólitíkinni, að við ættum ekki að blanda okkur í það, og af því væri réttara að sveigja till. inn á þá braut að leggja áherzlu á allsherjarafvopnun og þar með auðvitað um leið að koma í veg fyrir notkun kjarnorkuvopna. Við vorum 1954 á þeirri skoðun, að við ættum að lýsa afdráttarlaust yfir, að við værum á móti þessum sprengingum, og við ættum að skora á þá, sem réðu yfir þeim, að hætta að framleiða þær, eyðileggja öll slík vopn. Við erum enn á nákvæmlega sömu skoðun. En við höfum aldrei verið á þeirri skoðun, að það væri höfuðatriðið í þessu alvarlega máli að taka þátt í kalda stríðinu í heiminum og hrópa og kalla í liði annars aðilans, sem ræður yfir kjarnorkusprengjum, því að slíkt gerir aðeins illt verra, eykur á hættuna.
Hv. 5. þm. Vesturl. hefur endurtekið það hér hvað eftir annað í ræðum sínum, að sú till., sem hér lægi fyrir, væri aðeins 2 mgr., sú fyrri væri fordæming á sprengjum Sovétríkjanna og sú síðari væri almenn áskorun til kjarnorkuveldanna um að koma sér saman um að banna slík vopn. Eru það nokkur rök fyrir því, að ekki megi breyta till. eða gera hana fyllri, þó að hún sé bara 2 mgr.? Er nokkur nauðsyn á því að hafa mgr. þannig, að þar sé aðeins sveigt að einum aðila, en það megi ekki koma fram, að við fordæmum kjarnorkusprengingar yfirleitt? Er einhver nauðsyn á því? Raskar það nokkuð því, sem er verið að mótmæla? Ég get ekki séð það. Ekki nema tilgangurinn með flutningi till. sé sá, sem ég hef nú vikið hér nokkuð að, að miklar líkur, svo að vægilega sé til orða tekið, séu til þess að liggi til grundvallar flutningi till.
Við Alþb.- menn munum flytja hér brtt. við till. Við munum óska eftir því, að það fái að koma hér alveg skýrt fram, hvort flm. till. og þeir, sem að henni standa, treysti sér til þess að samþ. eindregin mótmæli, ekki aðeins gegn sprengingum Sovétríkjanna, heldur gegn öllum kjarnorkusprengingum í heiminum. Við óskum eftir því, að þetta komi alveg skýrt fram. Þeir munu fá tækifæri til þess að greiða atkv. um slíka till. Slík till. er að mínum dómi prófsteinn á það, hvað fyrir flm. vakir, hvert þeir eru að fara. Við munum líka flytja hér brtt. í þá átt, að Alþ. lýsi því yfir, að það muni aldrei leyfa staðsetningu neins konar kjarnorkuvopna á íslenzku landi né að slíkum vopnum verði nokkurn tíma beitt frá stöðvum hér á landi. Það sýnist vera í rauninni lágmark, að Alþ. lýsi því yfir, um leið og það mátmælir notkun kjarnorkuvopna almenat og yfirleitt. Ég skil hins vegar þá afstöðu, að þeir, sem undir niðri eru á þeirri skoðun, að sumar kjarnorkusprengjur eigi rétt á sér í höndunum á ákveðnum aðilum og á ákveðnum svæðum í heiminum, þeir vilji auðvitað ekkert segja um það, hvort hér skuli vera kjarnorkusprengjur á Íslandi eða ekki. Þeir vilja hafa frían sjó með það. En þeir, sem raunverulega eru á móti kjarnorkuvopnum og beitingu þeirra, á móti kjarnorkusprengingum almennt, þeir hljóta að lýsa yfir, að á þeirra land skuli þessi vopn ekki vera og héðan skuli þau ekki notuð.
Það hefur verið mjög um það rætt nú síðustu daga, að það megi búast við því, að Bandaríkin taki nú upp á því að sprengja risasprengjur líka í andrúmsloftinu, og helztu sérfræðingar þeirra í þessum efnum hafa lagt höfuðáherzlu á slíkar till. nú síðustu dagana. Ættum við að mótmæla slíkum sprengingum, ef þær skyldu nú koma á eftir? Eða ættum við aðeins að afgreiða það á þann hátt, sem hér kom fram í ræðu hv. 5. þm. Vesturl., að mér skildist helzt, að e.t.v. yrðu þeir bara neyddir til að gera þetta og það væri aðeins eðlilegt, vegna þess að hinir hefðu byrjað? Er það meiningin? Vill hv. 5. þm. Vesturl. lýsa því hér yfir, að hann muni einnig flytja hér till. á Alþ. um að mótmæla slíkum sprengingum, verði þær gerðar? Mér sýnist allt benda til þess um þá, sem færast undan því nú, um leið og þeir mótmæla sprengingum Sovétríkjanna, að mótmæla kjarnorkusprengingum yfirleitt, að það muni koma hik á þá, þegar góðir menn sprengja.
Ég vil svo enn einu sinni endurtaka þá beiðni okkar, að till. fái að ganga til n. og mönnum gefist þar kostur á að athuga okkar brtt. og okkur þá einnig kostur á því að athuga um það, hvort samræma megi okkar skoðanir og annarra, þeirra, sem að till. standa: Við viljum gjarnan stuðla að því, að till. megi fá afgreiðslu á morgun. Sá fyrirsláttur kom fram í ræðu hv. 5. þm. Vesturl., að við eigum að venjast því hér, að nefndir geti tafið málin í langan tíma, og þá gætu Sovétríkin og aðrir verið búnir að sprengja yfir tuttugu sprengjur. Í hverra höndum er að sjá um það, að nefnd ljúki fljótlega störfum? Býst ekki hv. þm. við því, að það sé meiri hluti alþm. með þessari till.? Og ef við Alþb.- menn lýsum því yfir, að við viljum vinna að því, að till. verði afgreidd frá nefnd á morgun, treystir hann þá ekki öðrum alþm. úr öðrum flokkum til þess að stuðla að því líka? Eða er þetta bara einber fyrirsláttur til þess að reyna að þvinga það í gegn, sem er óþinglegt og óvenjulegt hér og óþarfi með öllu?
Ég tók eftir því, að hæstv. forsrh. sagði hér í sínum fáu orðum, að það væri ekki heldur þörf á því að skjóta þessari till. til nefndar, því að hér væri í rauninni ekki um neitt annað að ræða en að segja já eða nei. Telur hæstv. forsrh. þetta frambærileg rök? Það má auðvitað segja það um allar till., sem eru fluttar hér á Alþ., að það sé í rauninni ekkert um þær að segja annað en já eða nei. En það hefur nú hingað til þekkzt, að bæði hann og aðrir þm. hafi þurft að gera orðalagsbreytingar á tillögum eða efnisbreytingar og flutt um það brtt. Ætli hæstv. forsrh. gæti nú ekki gert sér í hugarlund, að það mætti orða till. betur og skýrar en hér er gert? Jú, ég efast ekkert um, að hæstv. forsrh. sér, að það eru og voru til margar leiðir að orða þessa till., og af því er líka fullkomlega eðlilegt, að skoðanir annarra séu metnar á sanngjarnan hátt í sambandi við það, hvernig þessa till. skuli orða. Nei, þeir, sem reka mál sitt á þennan hátt, að hér sé ekki um neitt annað að ræða en að segja já eða nei, strax eða ekki, þeir virðast vera að leita að því, að hér geti ekki orðið um samstöðu að ræða í sambandi við afgreiðslu málsins. Þeir virðast vera að leita að því að reyna að gera sér pólitískan mat úr þessu í sambandi við andstæðinga sína í pólitík.
Ég vil nú enn einu sinni endurtaka þá fyrirspurn mína til flutningsmanna og þeirra, sem hér hafa talað með þessari till., eins og hún liggur fyrir: Geta þeir ekki hugsað sér að breyta till. þannig, að í henni felist ótvíræð mótmæli gegn öllum kjarnorkusprengingum? Ég vona, að þeir treysti sér til að svara þessari spurningu. Það segir allavega mikið, ef þeir treysta sér ekki til að láta það felast í tillögunni.
Ég vona, að það liggi alveg skýrt fyrir hér, að afstaða okkar Alþb.- manna er alveg afdráttarlaus í málinu, sem sé varðandi það að vera á móti kjarnorkusprengingum, hver sem að þeim stendur. Sú skoðun okkar er afdráttarlaus, og við erum tilbúnir að nefna nafn Sovétríkjanna jafnt sem annarra, þegar þau eiga þar í hlut, og mótmæla sprengingum á þeirra vegum. En hins vegar er hitt jafnskýrt í okkar afstöðu, að við munum ekki taka þátt í þeim leik, þeim hráskinnsleik í sambandi við þetta alvarlega mál, sem er eingöngu byggður á pólitískum áróðri, til þess að reyna að mynda sér sérstöðu í slíku máli sem þessu og deila við sína pólitísku andstæðinga í öðrum efnum hér og til þess að reyna að koma sérstökum óhróðri á eitt ríki. Ég vona, að þessi afstaða liggi hér alveg skýrt fyrir og að það hafi verið talað þannig fyrir henni hér, að það geti ekki leikið neinn vafi á því, hver okkar afstaða er. Ég hef lýst hér brtt., sem ég hef ekki getað lagt fram enn þá.