14.12.1961
Neðri deild: 36. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í B-deild Alþingistíðinda. (300)
107. mál, verðlagsráð sjávarútvegsins
Frsm. meiri hl. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Við fyrri umr. þessa máls benti ég á nauðsyn þess, að jöfnuð væri tala útgerðarmanna og sjómanna í verðlagsráði, ekki vegna þess, eins og ég tók fram líka við fyrri umræðu, að ég teldi ekki, að réttur sjómanna væri tryggður, sérstaklega þó ekki eftir þá breyt., sem gerð var á 9. gr. frv. við 2. umr., heldur, eins og ég tók fram, vegna þeirrar tortryggni, sem mætti blása upp út af þessu atriði, eins og á daginn hefur komið.
Ég get, eins og ég hef líka bent á við fyrri umr., fallizt á sum rök útgerðarmanna fyrir því að eiga þarna 4 menn, meðan sjómenn ættu 3. En einmitt vegna þeirrar breyt., sem gerð var á 9. gr. frv., sem tryggði ekki aðeins sjómönnum þann rétt, sem felst í því að hafa neitunarvald í verðlagsráði, heldur og öllum öðrum aðilum, sem í því eiga sæti, þá tel ég, að þeir megi jafnvel fórna nokkru frá því, sem þeir hafa talið rétt vera, og eins og má vissulega fallast á í sambandi við fjöldann í ráðinu, gegn því að útiloka þann möguleika, að af þessari ástæðu gæti verið um tortryggni í garð ráðsins að ræða.
Það hefur gefizt, frá því að 2. umr. lauk, nokkurt tóm til þess að kynna sér skoðanir bæði einstakra útgerðarmanna og framámanna í þeim samtökum, sem koma til með að eiga aðild að verðlagsráði, og í ljós kemur, að það virðist vera miklu minna atriði í þeirra augum en í augum sjómanna, að útgerðarmenn hafi 4 aðila, meðan sjómenn hafi 3 aðila í verðlagsráði eða í þeim hluta þess, sem fiskseljendur eru. Mér hefur verið bent á það af einum af þeim nú orðið mörgu þm., sem eiga sæti á þingi Landssambands íslenzkra útvegsmanna, að þar hafi komið fram till. um að kjósa þegar í þetta ráð, en þá hafi einn af þessum þm. staðið á fætur og bent á, að það væri í fyrsta lagi ekki neitt búið að ráða úr um það, hve margir kæmu til með að eiga setu í því, og við þessu komu ekki fram nein mótmæli á þeirri samkundu.
Sá meiri hl., sem skapaðist við 2. umr. þessa máls, hefur komið sér saman um að gera brtt. við frv., eins og það liggur fyrir eftir 2. umr. Þessum brtt. okkar hefur 2. minni hl., hv. 7. landsk. (GeirG), talið sig vera samþykkan. Því miður hefur ekki enn unnizt tími til þess að útbýta þessum brtt., svo að ég mun fara nú nokkrum orðum um, í hverju þær séu fólgnar.
Við leggjum til, að í 1. gr. á A-lið verði sú breyt. gerð, að í stað fjögurra fulltrúa tilnefndra af Landssambandi ísl. útvegsmanna komi þrír fulltrúar, og í B-liðnum, að í stað tveggja fulltrúa tilnefndra af Sölusambandi íslenzkra fiskframleiðenda verði einn fulltrúi, í stað þriggja fulltrúa tilnefndra af Félagi síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi verði tveir fulltrúar og í stað tveggja fulltrúa tilnefndra af verksmiðjueigendum á Suður- og Vesturlandi komi einn fulltrúi.
Þetta er gert til þess að ná jöfnuði á móti þeim sex fulltrúum, sem við leggjum til, að verði skipaðir af hálfu fisksöluaðila í þetta verðlagsráð. Samkvæmt þessu gerum við einnig till. um, að á 2. gr. verði sú breyt., að í stað 14 komi 12, og í 3. gr. komi 6 fulltrúar fisksöluaðila og 6 fulltrúar, — breytum þarna einu orði, sem virðist vera prentvilla, þar stendur aðilar, á þetta atriði benti hv. frsm. 1. minni hl. við 2. umr., og það þykir eðlilegra að láta þarna koma einnig inn orðið „fulltrúi“ í staðinn fyrir „aðili“, — og það verði þá 6 fulltrúar frá fiskkaupendum, og önnur breyting í þeirri grein verði sú, að í stað tveggja frá Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda verði einn. Samsvarandi breytingar verði og gerðar á 4. gr. Þar verði 6 fulltrúar fisksöluaðila og 6 fulltrúar fiskkaupenda og breytingin þar verði, eins og ég hef þegar getið um, að í stað þriggja frá Félagi síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi verði þeir tveir, og samsvarandi í seinni hluta þeirrar greinar, sem fjallar um, þegar ákveða eigi verð á síld, sem veidd er við Suður- og Suðvesturland, að þá verði þar einnig 6 fulltrúar fiskseljenda og 6 fulltrúar fiskkaupenda og að þar falli þá burt annar fulltrúi frá eigendum síldarverksmiðja á Suðvesturlandi. Með þessum breytingum á fyrri og síðari mgr. 4. gr. verður nokkurt samræmi í fulltrúatölunni frá síldarsaltendum. Annars vegar eru í fyrra tilfellinu tveir frá Félagi síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi, og þá eru og tveir frá Félagi síldarsaltenda á Suðvesturlandi, þegar fjallað er um verð á því svæði. Eins verður þá einn frá samtökum síldarverksmiðja á Norður- og Austurlandi í fyrra dæminu, en einn frá eigendum síldarverksmiðja á Suðvesturlandi í seinna dæminu.
Ég tel mig ekki þurfa að hafa fleiri orð um þetta. Þessar brtt. eru í prentun og mun verða dreift um þingsalinn meðal þdm. innan skamms, að ég vona. En eins og ég tók fram í máli mínu, þá er sá meiri hl. sjútvn. hv. d., sem skapaðist hér við 2. umr., meðmæltur þessum brtt., svo og annar minnihlutaaðilinn, hv. 7. landsk., Geir Gunnarsson, og þessar brtt. eru bornar fram í okkar nafni.
Hv. 3. Þm. Norðurl. e., Gísli Guðmundsson, hefur borið fram sérstakar tillögur, sem hann að sjálfsögðu gerir grein fyrir, en ég tel samt eftir viðtöl, sem við höfum átt við hann, að að frágengnum þeim tillögum muni hann ekki vera mjög andstæður þeim brtt., sem við höfum lagt fram.