14.12.1961
Neðri deild: 36. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í B-deild Alþingistíðinda. (304)
107. mál, verðlagsráð sjávarútvegsins
Frsm. meiri hl. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá atriði úr ræðum hv. fyrri ræðumanna, sem ég vildi víkja að.
Það mátti heyra á máli hv. 3. Þm. Norðurl. e., að hann væri nokkuð hræddur um, að ákveðin svæði landsins bæru skarðan hlut frá borði, eins og hann orðaði það. Ég held, að hann hafi ekki nógsamlega veitt því athygli og ekki heldur hv. 4. þm. Austf., að þau sambönd, sem um er getið að eigi aðild að verðlagsráði, eru landssambönd, nema þau, sem eiga aðild fyrir hönd síldarsaltenda og síldarverksmiðjueigenda, þar er bundið annars vegar við Norðausturland, en hins vegar við Suðvesturland. Hitt eru allt landssambönd, það er Landssamband ísl. útvegsmanna, það er Alþýðusamband Íslands og það er Sjómannasambandið. Og einmitt út af þeim orðum hv. 4. þm. Austf., er hann sagði, að Sjómannasambandið væri aðeins fyrir lítinn hluta sjómanna, þá vil ég mótmæla þessu og benda honum á þá réttarstöðu, sem Sjómannasambandið hefur innan Alþýðusambands Íslands og var samþykkt á þingi Alþýðusambandsins að veita því. Þetta er landssamband sjómanna, sem ber nafnið Sjómannasamband Íslands, og það er opið öllum sjómannafélögum eða deildum sjómanna innan verkalýðsfélaganna. Og er það kannske öllu meira en segja mætti um Alþýðusamband Íslands, a.m.k., ef maður hugsar til síðasta Alþýðusambandsþings, en út í það skal ég ekki fara nánar að svo stöddu, nema frekara tilefni gefist til.
Út af hinu langa máli hv. 4. þm. Austf. um það, að frystihúsaeigendur og fiskkaupendur komi til með að eiga aðild að eða setu í hópi fiskseljenda, þá vil ég benda honum á það, að í 9. gr. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Yfirnefndin skal skipuð fimm mönnum, tveimur tilnefndum af fisksöluaðilum í verðlagsráði, og skal annar tilnefndur úr hópi fulltrúa L.Í.Ú., og má hann ekki eiga aðild að fiskkaupum, vera félagsbundinn eða hafa hagsmuna að gæta í samtökum fiskkaupenda þeirra, sem tilnefna menn í verðlagsráð samkv. B-lið 1. greinar.“
Þetta vill segja, að það er örugglega frá því gengið, að a.m.k. einn af þeim þremur útgerðarmönnum, sem eiga sæti í hópi fisksöluaðila, kemur aldrei til með að eiga þessa mjög svo slæmu hagsmuni, sem þessi hv. þm. talaði um. En það, að við í meiri hl. sjútvn. vildum ekki ganga inn á það, að þetta ákvæði gilti fyrir allt verðlagsráð, það er einfaldlega vegna þess, að það er víða um land þannig skipað málum útgerðarmanna, að þeir eiga lítinn hluta í hinum og þessum fiskvinnslustöðvum, og þarf ekki annað en leita til Vestmannaeyja, en þar er fjöldi útgerðarmanna, sem eiga lítinn hlut í frystihúsum. Hins vegar hefur þessi eignaraðild þeirra í þessum sömu frystihúsum ekki verið meira metin af þeim, þegar hefur átt að ákveða fiskverðið, en það, að þeir hafa verið í róðrarbanni, svo að dögum og jafnvel vikum skiptir, til þess að knýja fram hærra fiskverð hjá þessum sömu frystihúsum, sem þeir eiga að heita eigendur að. Jafnframt má benda á, að víða um land munu útgerðarmenn vera aðilar að kaupfélögum eða þá ýmiss konar samvinnufélögum, sem reka fiskverkun, og satt að segja sé ég ekki eftir þau orð, sem þessir ágætu þm. hafa látið hér fara frá sér, að það sé rétt að vera að meina þeim frá því að láta sín sjónarmið koma þarna fram, ef svo skyldi fara, að þeir yrðu skipaðir í þetta ráð.
Hv. 4. Þm. Austf. kom með till. um, að þessi samtök, sem ættu mann í ráðinu, ættu að geta skipt um hann eftir því, hvar hagsmunirnir væru staðlægir hverju sinni, þannig að það gæti komið inn nýr maður eftir því, hverra hagsmuni væri verið að ræða um. Mér finnst sjálfsagt að taka þetta til nánari yfirvegunar og athugunar, þessa till. hans. En þegar maður horfir á það, að ákvarðanir þessa verðlagsráðs um lágmarksverð á sjávarafla, eins og segir í 7. gr., eiga að vera byggðar á markaðsverði sjávarafurða á erlendum mörkuðum og þeir þar að auki, sem eiga setu í verðlagsráði, ekki aðeins að fylgjast með því verði, heldur og að afla sér margháttaðra upplýsinga hér innanlands um kostnaðarliði útgerðarinnar og sitthvað fleira, sem þeir koma sér saman um, þá geri ég ráð fyrir, að þarna gætu orðið miklir erfiðleikar á, ef ætti að fara oft að skipta um menn í þessu ráði. Ég geri ráð fyrir, að þeir menn, sem koma til með að eiga sæti í ráðinu og eins og ég sagði eru fulltrúar landssamtaka í hér um bil öllum tilfellunum, standi þarna auðvitað ekki sem einstaklingar, þeir hafi sín samtök á bak við sig, sem komi með hagsmuni hinna einstöku byggðarlaga og einstöku kauptúna til þeirra og túlki þá fyrir þeim. En hins vegar held ég, þótt ég skuli fúslega taka þátt í að ræða um þessa till. hv. 4. þm. Austf., að það megi nokkuð vara sig á því að vera að skipta mikið um menn í sjálfu ráðinu, einfaldlega vegna þess, að þetta eru menn, sem verða að fylgjast mjög vel með á ýmsum sviðum, og það gæti tafið fyrir störfum ráðsins, ef oft væri verið að skipta þar um menn. En hins vegar, eins og ég hef þegar bent á, standa á bak við þessa sömu menn landssamtök, sem geta auðvitað gefið þessum ráðsmönnum allar þær upplýsingar, sem þeir þurfa á að halda, um hagsmuni hinna einstöku byggðarlaga eða einstöku hópa. Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þetta.
Ég vil taka undir þá ósk, sem kom fram frá hv. 3. þm. Norðurl. e., að þegar menn hafa lokið umr. um þetta mál, þá verði atkvgr. frestað, þar til tillögum hefur verið útbýtt, sem eru ekki komnar enn, og jafnframt verði þá fundur hjá n., sem ræði þær tillögur, sem nú hafa fram komið.