06.12.1961
Sameinað þing: 19. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í D-deild Alþingistíðinda. (3058)
52. mál, viðurkenning Þýskalands á fiskveiðilögsögu við Ísland
Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Eins og alþjóð er kunnugt, hafði árum saman staðið deila við Breta um rétt til fiskveiða við strendur Íslands upp að 3 sjómílum, eftir að Íslendingar færðu út fisveiðilögsöguna við landið, fyrst í 4 mílur og síðan í 12 mílur. Á meðan þessar deilur voru enn óleystar, beittu Bretar hvoru tveggja í senn, löndunarbanni á íslenzkum fiski í Bretlandi og yfirtroðslum togara við veiðar undir herskipavernd innan hinna nýju landhelgistakmarka. Skapaði þetta ástand á milli þjóða, sem um aldir höfðu átt vinsamleg viðskipti, margvislega örðugleika í viðskiptum, lamaði stórkostlega efnahagsafkomu útvegsins, ekki aðeins með því að banna löndun á fiski á brezkum markaði, heldur og með því að sópa oft og tíðum í burtu veiðarfærum báta, sem voru að veiðum á hinu friðlýsta svæði innan hinnar nýju fiskveiðilögsögu, fiskimönnum og útgerð oft til ómetanlegs tjóns, jafnframt því sem bæði brezkir og íslenzkir sjómenn voru hvað eftir annað settir í hinn mesta háska, þegar árekstrar út af deilunni urðu á sjálfum veiðisvæðunum, svo sem oft varð og fór vaxandi, eftir því sem deilurnar hörðnuðu.
Þegar þessi deila var loks leyst með samningum við Breta hinn 11. marz s.l., var ekki einasta fengin óafturkallanleg viðurkenning á 12 mílna fiskveiðilögsögu við Ísland ásamt verulegri stækkun landgrunnsins á allra þýðingarmestu svæðum umhverfis landið frá þeirri þjóðinni, sem harðasta andstöðu hafði veitt og mestra hagsmuna hafði að gæta í málinu af þeim erlendu þjóðum, sem sóttu veiðar á Íslandsmið, heldur var og með þessum samningi bægt frá voða, sem þúsundir manna innanlands og utan óttuðust að leiða mundi fyrr eða síðar til mikils harmleiks, ef ekkert yrði aðhafzt til þess að sættast á málin. í samningi þessum vorn á ný tryggð hin gömlu, vinsamlegu viðskipti við brezku þjóðina, löndunarbanninu aflétt, áhættu af veiðarfæratjóni af völdum togara á friðlýsta svæðinu bægt frá og það tryggt íslenzkum sjómönnum til veiða. Hefur reynslan þegar sýnt, hversu ómetanlegt þetta er fyrir bátaflotann, sem beinlínis hefur fyrir þessar aðgerðir bætt afkomu sína stórlega.
Það skal viðurkennt hér, að það var síður en svo óeðlilegt, að Íslendingar létu mörg orð og stór falla í garð Breta, meðan á deilunni stóð. Yfirgangur þegna hins voldugasta veldis heims með aðstoð herskipa og fallbyssna gegn varnarlítilli þjóð, sem barðist hugdjörf fyrir rétti sínum til þess ein að mega njóta þeirra lífsgæða, sem henni var lífsnauðsynlegt að eigi væru frá henni tekin eða fyrir henni rýrð, gaf til þess fulla ástæðu. En því meir ber að meta þá afstöðu, sem Íslendingar tóku, er þeir réttu fram bróðurhönd til samninga um svo alvarlegt mál, einmitt á þeirri stundu, sem hitinn var hvað mestur á báða bóga og alveg ósýnt um, til hvers hefði leitt, ef þjóðunum hefði ekki tekizt að sættast á málin.
Afstaða Íslendinga í baráttu þeirra við Breta átti frá upphafi vaxandi samúð og fylgi að fagna frá flestum þjóðum heims. En samúðaraldan með þeim reis þó tvímælalaust hæst, þegar ljóst var, að Íslendingar höfðu með sætt og samlyndi gengið með sigur af hólmi í þessu mikilsverða máli. Hverju svo sem einstakir menn nú reyna að halda fram, þá viðurkennir þjóðin nú, að lausn þessa vandamáls var nauðsynleg og svo farsæl, að enginn vildi nú hverfa aftur til þess ástands, sem hér ríkti, meðan á deilunni stóð, og teyst var með samningnum frá 11. marz s.l.
Það kom engum á óvart, hvorki utan þings né innan, að þegar samþykkt hafði verið að leysa landhelgisdeiluna við Breta, mundi koma um það ósk frá Sambandslýðveldinu Þýzkalandi að mega einnig gerast aðili að þessum samningum, njóta þar sömu réttinda fyrir þegna sína gegn því að inna af hendi sömu skyldur. Var í umr. um málið á Alþingi beinlínis gert ráð fyrir þessu af öllum aðilum. Þjóðverjar höfðu um langan aldur sent togara sína til veiða á Íslandsmið og jafnframt leyft Íslendingum að landa fiski á þýzkum markaði, og þótt þeir mótmæltu á sínum tíma útfærslu landhelginnar hér, þá gerðu þeir þó hvorki að sýna yfirtroðslu á hinu nýja svæði við strendur Íslands né að banna löndun á íslenzkum fiski á þýzkum markaði. Það væru því engin frambærileg rök fyrir því að neita þeim um aðild að þeim samningi, sem gerður var á milli Breta og Íslendinga um veiðar við strendur Íslands.
Samkomulag það, sem lagt er til í þáltill. að staðfest verði og birt er sem fskj. á þskj. 68, er sams konar samkomulag og gert var við Breta 11. marz s.1., skilyrði öll hin sömu á báða bóga, einnig það, að réttindi til veiða á vissum svæðum á milli 6 og 12 mílna falla úr gildi hinn 10. marz 1964 eða á sama tíma og umsamið var við Breta. Ríkisstj. bar málið undir utanrmn., áður en samkomulagið var undirritað í júlí s.1., og klofnaði nefndin þá um afgreiðslu þess. Lagði meiri hl. n. þá til, eins og nú, þeir Gísli Jónsson, Emil Jónsson og Jóhann Hafstein, að ríkisstj. væri heimilt að undirrita samkomulagið, en minni hlutinn, Eysteinn Jónsson, sem mætti þar fyrir Hermann Jónasson, og Finnbogi R. Valdimarsson, lagðist gegn því, að heimildin yrði veitt, og taldi rétt, að Alþingi yrði þegar kvatt saman til að taka ákvörðun um afgreiðslu málsins. Tveir nm., þeir Birgir Kjaran og Þórarinn Þórarinsson, voru fjarstaddir, þegar málið var tekið fyrir á þeim fundi, svo og varamenn þeirra.
Þótt málið hafi þannig verið til umræðu og afgreiðslu í utanrmn. í júlí s.1., þótti rétt að vísa þáltill. til nefndarinnar aftur nú, er málið er tekið til umræðu hér á Alþingi. Hefur nefndin enn klofnað um málið. Vill minni hl., þeir Hermann Jónasson, Þórarinn Þórarinsson og Finnbogi R. Valdimarsson, láta fella tillöguna. Sýnast þeir ekkert hafa lært og engu gleymt þrátt fyrir þá farsælu reynslu sem fengizt hefur af lausn deilunnar með þeim samningi, sem gerður var 11. marz s.l. Meiri hlutinn, Gísli Jónsson, Emil Jónsson, Jóhann Hafstein og Birgir Kjaran, lagði hins vegar til, að þáltill. yrði samþykkt, og væntir þess, að meiri hluti hæstv. Alþingis fallist á það og samþykki þáltill. óbreytta.
Ég sé ekki ástæðu til, nema sérstakt tilefni gefist til þess síðar við þessar umræður, að ræða um hinar einstöku greinar samkomulagsins nánar. Það er, eins og áður er tekið fram, um sams konar ákvæði að ræða og í samkomulagi við Breta frá 11. marz s. 1., sem öllum hv. þm. er kunnugt um og rætt hefur verið hér á Alþingi dögum saman. Ég legg því til f.h. meiri hl. utanrmn., að þáltill. á þskj. 68 verði samþykkt óbreytt.