04.04.1962
Sameinað þing: 48. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í D-deild Alþingistíðinda. (3083)
46. mál, verndun fiskistofna við strendur Íslands
Jón Árnason:
Herra forseti. Ég vildi aðeins með nokkrum orðum þakka allshn. fyrir þá afgreiðslu sem þetta mál hefur fengið hjá henni. Það, sem hér er um að ræða, er, að málið er afgreitt á enn breiðari grundvelli en þáltill. felur í sér. Að vísu vitnaði ég til þess í grg. með þáltill., að ég teldi, að þörf væri á því að athuga hvað ungfiskinn snerti fleiri fisktegundir. T.d. segir í niðurlagi grg., með leyfi hæstv. forseta:
„Er till. þessi flutt með það fyrir augum, að látin verði fram fara nú þegar gagnger athugun á þessum rányrkjuveiðiaðferðum í því skyni, að það ýti undir og flýti fyrir því, að fyrir slíkar veiðar verði tekið. Þá er nokkuð gert að því að stunda smáufsaveiðar inni á höfnum og öðru landvari, þar sem þessi uppfæðingur leitar skjóls að vetrinum. Eru slíkar veiðar vægast sagt varhugaverðar. Ég tel ástæðu til að vekja athygli á því máli hér, þó að ákvæði um það séu ekki beinlínis tekin upp í meginmál tillögunnar.“
Það kemur fram í niðurlagi álits forstjóra fiskideildarinnar, Jóns Jónssonar fiskifræðings, eftir að hann hefur rætt um þau áhrif, sem smásíldveiðin kunni að hafa á fiskstofninn, að með þeirri þróun, sem nú á sér stað, og síaukinni veiði á síldarstofninum megi telja, að frekari aukning smásíldveiðinnar sé óæskileg. Smásíldveiði til bræðslu getur ekki talizt mikilvæg fyrir þjóðarbúskapinn, og er því eðlilegt, að veiðunum sé sett ákveðið hámark frekar en að stofna stofninum í hættu. Fiskideildin getur því fallizt á, að henni verði falið að gera till. um hámarksafla, er taka megi af smásíld árlega, og að stöðva megi algerlega veiðar þessar, ef vísindalegar rannsóknir telja það æskilegt. Vitanlega er það í sambandi við veiðar á smásíld til iðnaðar, eins og átt hefur sér stað á Akureyri. Ef það er gert í því hófi, að veiðarnar séu miðaðar við iðnaðinn sjáifan, getur aldrei verið um að ræða að stofna þessum fiskstofni í neina hættu. En þegar farið er að ganga lengra og með stórvirkum tækjum að ausa upp kræðunni og smásíldinni til þess að flytja hana síðan í bræðslustöðvar, sem hefur þjóðhagslega ákaflega lítið að segja að því leyti til, að það gefur litlar tekjur, þá álít ég, að það sé stefnt í öfuga átt.
Það er rætt um, að það sé fyrst og fremst fyrir Norðurlandi, sem þessi veiði hefur átt sér stað. En nú á síðari árum, eftir að farið var að stunda síldveiðarnar hér við Suðvesturlandið með hinni nýju tækni, með herpinótinni, hefur það orðið nú á seinustu árunum, að það hafa komið tímar á vertiðinni, sem stórir bátar hafa tekið fullfermi af þessari smásíld og komið með í bræðslu, og það segir sig sjálft, að ef slíku heldur áfram, þá muni það segja til sín og hafa áhrif á stofninn.
Ég tel svo ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri, en vænti þess, að þessi till. allshn. hljóti stuðning þm. og verði samþ.