11.04.1962
Sameinað þing: 52. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í D-deild Alþingistíðinda. (3089)

221. mál, samstarfssamningur Norðurlanda

Frsm. (Gísli Jónason):

Herra forseti. Eins og kunnugt er, hafa Íslendingar um aldir haft náið samstarf við Norðurlöndin. Þeir hafa þangað sótt menntun í aldaraðir, einkum hina æðri menntun. Þeir hafa á síðari tímum einnig sótt þangað menntun í vísindum og tæknilegum atriðum. Þeir hafa haft viðskiptasambönd við þessi lönd einnig í aldaraðir og alls konar tengsl verið bundin við löndin í menningarmálum og efnahagsmálum.

Þótt Íslendingar hnikuðu sér nokkuð til annarra þjóða, á meðan tvær síðustu styrjaldir gengu yfir heiminn, þá slitnuðu þessi sambönd að sjálfsögðu aldrei. Þeir hafa jafnan tekið mjög drjúgan þátt í norrænu samstarfi, enda mjög skyldir þeim þjóðum, sem þar búa.

Til Norðurlandanna hafa flutzt fleiri Íslendingar og tekið þar bólfestu en til nokkurra annarra ríkja, að undanteknu Kanada, svo að það er sýnilegt, að þessi lönd hafa áhuga fyrir samstarfi á mörgum sviðum. Því var það, að þegar Norðurlandaráð var sett á stofn fyrir 10 árum, gerðust Íslendingar meðlimir að þeirri stofnun og tóku þátt í því samstarfi og hafa jafnan starfað þar síðan. En það er einmitt Norðurlandaráð, sem hefur undirbúið þann samstarfssamning, sem lagður er hér fyrir hæstv. Alþ. og ætlazt er til að sé staðfestur hér, áður en þingi lýkur.

Forsætisráðherrar allra Norðurlandanna létu undirbúa þennan samning, sem hér um ræðir, að óskum Norðurlandaráðs, og þeir ásamt forsetum Norðurlandaráðs hafa rætt samninginn, fyrst í Svíþjóð 1960 og síðan í Hangö í Finnlandi 1961, og að lokum var gengið frá þessum málum á þingi Norðurlandaráðs í Finnlandi nú í marzmánuði. Örlitlar breytingar voru gerðar á samningnum, og síðan var hann undirritaður þannig af ráðherrum allra Norðurlandaþjóðanna í Helsingfors. Ályktunin á þskj. 637 er um það, að þessi samningur verði staðfestur, eins og hann liggur hér fyrir og er birtur sem fskj. með þáltill.

Utanrmn. hefur tekið málið til meðferðar á fundi sínum 9. apríl. Hún hefur kynnt sér samninginn, og málið hefur verið rætt í nefndinni. Og hún leggur til einróma, að þáltill. verði samþykkt óbreytt, eins og hún liggur fyrir.

Ég sé ekki ástæðu til þess að lýsa hér innihaldi samningsins. Hv. þingmönnum er innihaldið kunnugt, og þar miðar allt að því, eins og ég sagði áðan, að taka upp samstarf á milli þjóðanna í menningar- og viðskiptamálum á sem víðtækustu sviði.

Fyrir hönd nefndarinnar legg ég til, að till. verði samþ. óbreytt.