15.11.1961
Sameinað þing: 15. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í D-deild Alþingistíðinda. (3113)
50. mál, verndun hrygningarsvæða
Flm. (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér á þskj. 61 till. til þál. um verndun hrygningarsvæða við strendur landsins. Till. er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að fela Fiskifélagi Íslands og fiskideild atvinnudeildar Háskóla Íslands að gera tillögur um tímabundna friðun ákveðinna hrygningarsvæða við strendur landsins:
Ég tel rétt að fylgja till. úr hlaði með nokkum orðum.
Þegar svo er komið, eins og nú er, að athafnasvæði vélbátaflotans hefur aukizt til stórra muna við útfærslu grunnlinanna og útfærslu fiskveiðitakmarkanna í 12 mílur frá þeim, getur það ekki talizt nema eðlilegt og sjálfsagt, að Íslendingar fari að gera sér grein fyrir, á hvern hátt landgrunnið út að 12 mílna mörkunum verði bezt nýtt, ekki aðeins með stundarhagsmuni fyrir augum, heldur ber fyrst og fremst að hafa í huga, á hvern hátt veiðisvæðin innan 12 mílna markanna verði gerð sem arðbærust í framtíðinni.
Vitað er, að innan fiskveiðitakmarkanna eru allmörg og sum nokkuð stór hrygningarsvæði aðalfiskistofns okkar, þorsksins. Sækir fiskurinn nokkuð árvisst á þessi svæði, og fer þá að sjálfsögðu fram aðalveiði vélbátaflotans að vetrum til á og við þær hrygningarstöðvar, sem fiskurinn leitar til. Þegar þess nú er gætt, að vélbátafloti landsmanna hefur stóraukizt á síðustu árum, bæði að stærð og tölu til, jafnframt því sem afkastageta hans hefur margfaldazt vegna fisknari veiðarfæra, svo sem nælonneta, svo og vegna aukinnar tækni við veiðarnar, er ekki nema eðlilegt, að gerð sé á því athugun og haft vakandi auga með, hvort ekki sé gengið of nærri fiskistofninum um hrygningartímann og hvort ekki geti verið um ofveiði eða beina rányrkju að ræða. Ég tel, að við verðum að gera okkur ljóst, að veiðarnar eru nú a.m.k. að vetrum til stundaðar á allt annan og árangursríkari hátt en áður var. Það er ekki lengur svo, eins og áður var, að veiðarfærin séu lögð í sjó af handahófi þar, sem menn héldu eða töldu sig hafa reynslu fyrir, að fisks væri von. Og þá var forðazt að leggja veiðarfærin, hvort heldur var um línu eða net að ræða, á hraun, sem fiskurinn helzt heldur sig á um hrygningartímann. Á þessu hefur orðið gerbreyting. Nú er fiskurinn beinlínis eltur uppi með mælitækjum bátanna og fisksjám þeirra og veiðarfæri vart lengur lögð nema þar, sem fyrir fram er vitað, að fisks er von, og það alveg án tillits til botnlags, og fiskinum því engin grið gefin, hvorki á hrygningarsvæðunum né utan þeirra.
Við skulum hafa í huga, hvað veiðar vélbátaflotans eru orðnar stórtækar. Á veiðisvæðunum frá Vestmannaeyjum að Reykjanesi munu um eða yfir 150 stórir vélbátar, vel útbúnir, stunda veiðar að vetrinum til. Innan fiskveiðimarkanna á þessu svæði munu vera einhverjar stærstu hrygningarstöðvar þorsksins. Alls mun þessi bátafloti daglega leggja í sjó um eða yfir 1000 netatrossur, eða um 15 þús. net, og af eðlilegum ástæðum sækjast bátarnir helzt eftir að leggja veiðarfæri sín þar, sem þeir telja helzt von fisks, en það er einmitt á hrygningarsvæðunum, sem þar eru. Ég tel, að veiðarnar á þessu svæði a.m.k. séu komnar á það stig, að fyllilega sé tímabært, að leitað sé álits þeirra, sem sérþekkingu hafa á þessu sviði, jafnt og þeirra, sem áratugareynslu hafa öðlazt við fiskveiðarnar, um það, hvort hér geti ekki verið of langt gengið, hvort geti ekki verið um ofveiði að ræða eða hvort fiskistofninum geti ekki stafað hætta af því ónæði, sem hann verður fyrir á hrygningarstöðvunum af völdum hins gífurlega fjölda veiðarfæra, sem þar eru lögð.
Ég vil í þessu sambandi skírskota til ályktunar skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi í Vestmannaeyjum, sem skírskotað er til í grg. minni með þeirri þáltill., sem hér liggur fyrir. Þeir aðilar, sem þar áttu hlut að máli, höfðu að baki sér áratugareynslu við veiðar í þorskanet. En þeir hikuðu ekki við að leggja til, að friðuð yrðu tímabundið veiðisvæðin, sem þeir einir fram að því höfðu stundað. Tel ég vissulega gott, að slík ályktun skuli einmitt koma fram frá þessum aðilum, og ber hún vott um þegnskap þeirra og fyrirhyggju.
Íslendingar verða að hafa það hugfast, að fiskistofninn við strendur landsins er sú auðlind, sem við byggjum gjaldeyrisöflun okkar á að langmestu leyti, og fiskveiðarnar og fiskvinnslan er sú atvinnugrein, sem þjóðinni gefur mestar tekjur. Það væri því skammsýni mikil og sjálfskaparviti af verstu tegund, ef við létum það ólán henda okkur, að við yggðum ekki að okkur í tíma, en gereyddum hinn þýðingarmesta fiskistofn okkar með ofveiði eða rányrkju. Alþingi verður að vera á verði á þessu sviði ekki siður en á öðrum sviðum, sem snerta afkomu þjóðarheildarinnar.
Veiðar í þorskanet hefur oft borið á góma, bæði hér í sölum Alþingis og utan þess. Hafa í því sambandi heyrzt raddir um, að banna ætti þorskanetaveiðar með öllu. Einnig var hér á síðasta þingi rædd og samþykkt áskorun á hæstv. ríkisstj. að láta athuga möguleika fyrir takmörkun netaveiðifæra. Ég tel hvoruga þessa ábendingu vera þá lausn, sem eðlilegust er. Við getum gert okkur það alveg ljóst, að ef netaveiðarnar væru bannaðar með öllu, væri rekstrargrundvellinum kippt undan stórum hluta vélbátaflotans, a.m.k. hér við Suður- og Suðvesturland, enda alveg ástæðulaust, þar sem víða hagar svo til á þessu veiðisvæði, að hægt er að veiða í net, án þess að það valdi nokkru tjóni. Rétt er að hafa í huga í þessu sambandi, að þann tíma, sem netaveiðarnar standa yfir, veiðist fiskur yfirleitt ekki á línu, og um önnur veiðarfæri er vart að ræða um þennan tíma, eins og aðstöðu vélbátaflotans er nú háttað til veiða á vetrarvertíð. Af þessum ástæðum höfum við hvorki aðstöðu til né efni á að banna það veiðarfæri, þorskanetin, sem óvéfengjanlega gefa bátaflotanum mest aflamagn og eru undirstaðan undir rekstri hans, þó að ég hins vegar viðurkenni, að stunda beri þessar veiðar með eins mikilli gætni og varúð og frekast verður við komið.
Í sambandi við þá þáltill., sem ég minntist hér á um takmörkun á notkun veiðarfæra, vil ég geta þess, að mér er fyllilega ljós sú óheillaþróun, sem því miður víða hefur átt sér stað, með þeim gegndarlausa austri veiðarfæra, sem viðhafður hefur verið og sífellt færist í aukana nú hin síðustu ár. Ég tel þá þróun engum til góðs, nema síður sé. En það, sem ég tel óraunhæft við þessa hugmynd, er, að ég tel útilokað, að nokkru eftirliti verði komið við til að framfylgja lögum eða reglugerðarákvæðum um þetta atriði. Ég tel, að einasta raunhæfa aðgerðin í þessu sambandi sé veruleg verðfelling á þeim fiski, sem fluttur er skemmdur í land, hvort heldur er af völdum ofnotkunar veiðarfæra eða af öðrum ástæðum.
Í framhaldi af þeirri fullyrðingu minni, að ekki verði komið við eftirliti með takmörkun netaveiðarfæra, er ekki óeðlilegt, að ég sé um það spurður, hvernig sé um framkvæmd þeirrar tillögu, sem ég hér hef flutt, ef hún verður samþykkt. Mér finnst það mjög eðlilegt og sanngjarnt. Mér er vel ljóst, að á þessu kunna að verða einhverjir erfiðleikar, a.m.k. í byrjun, en þó ekki meiri en svo, að ég tel þá vel yfirstiganlega og mun minni en ég hygg, að menn almennt ætli. Hin friðuðu svæði yrði að setja inn á sjókort bátanna, og þau yrði að afmarka með ljósbaujum. Hvort tveggja þetta er vel framkvæmanlegt og reynsla fengin fyrir, að slíkt kemur að haldi. Vil ég í þessu sambandi skírskota til þeirrar reynslu, sem fyrir hendi er, Frá því að allstórt netasvæði var á sínum tíma afmarkað suðvestur af Vestmannaeyjum utan landhelgislínunnar, eins og hún þá var. Brezkir togarar, sem mest veiddu á þessu svæði, fengu þetta svæði merkt inn á sjókort sín, og Vestmanneyingar afmörkuðu það með ljósbaujum. Má segja, að algerlega hafi orðið árekstralaust um veiðar á þessu svæði. Hinir brezku togarar héldu sig algerlega utan þess, þar til hin nýju fiskveiðitakmörk voru sett eða tóku gildi 1. sept. 1958, er þeir hófu veiðar hvar sem var inn að 4 mílunum. Í annan stað ber þess að gæta, að landhelgisgæzlan hefur einmitt á þeim tíma, sem hér um ræðir, eftirlit í öryggisskyni með bátaflotanum hér við Suður- og Suðvesturland ekki síður en annars staðar. Væri hún því ávallt til staðar til eftirlits með hinum friðuðu svæðum, eftir því sem með þyrfti. En ég hygg þó, að reynslan eigi eftir að sýna, ef til friðunar kemur, að eftirlit sjómanna sjálfra á bátaflotanum verði það, sem haldbezt reynist í þessum efnum. Það mun sýna sig, að hvorki skipstjórar né áhöfn fiskibátanna muni þola það, að einn skapi sér betri aðstöðu en annar með því að leggja veiðarfæri sín inn á hin friðuðu svæði í von un betri afla. Ég byggi þetta á þeirri reynslu, sem fengin er af framkvæmd þeirra fiskveiðisamþykkta, sem fyrir hendi munu vera í flestum hinum stærri verstöðvum landsins. Framkvæmd þessara samþykkta, sem innihalda bein sektarákvæði, gengur þannig fyrir sig, a.m.k. er það svo, þar sem ég þekki til, að bæjarstjórn kýs árlega hóp valinna starfandi skipstjóra eftir tilnefningu skipstjórafélags til þess að hafa eftirlit með fiskveiðisamþykktinni, sem tekur til bæði róðrartíma, merkingar veiðarfæra og margs fleira. Öllum mun ljóst, að mjög auðvelt er að brjóta þessa samþykkt og raunar áhættulítið fjárhagslega. En það heyrir undantekningum til, ef það er gert. Byggist þetta á því, að skipstjórarnir vita allir, að hópur þeirra eigin félaga hefur vakandi auga á, að ákvæðum samþykktarinnar sé framfylgt, og reynslan hefur sýnt, að svo sterkt almenningsálit hefur skapazt í þessu sambandi, að mönnum finnst það beinlínis niðurlægjandi að vera staðnir að því að brjóta ákvæði samþykktanna, þó að það sé áhættulítið og fjárhagslega séð vafalaust oft freistandi. Ég held, að nákvæmlega eins mundi fara um eftirlit með hinum friðuðu svæðum, sem þáltill. þessi gerir ráð fyrir, og þurfi því ekkert að óttast um framkvæmd hennar, ef til kemur.
Herra forseti. Ég legg til, að umr. um málið verði frestað og till. verði vísað til hv. allshn.