22.11.1961
Sameinað þing: 17. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í D-deild Alþingistíðinda. (3121)

55. mál, jarðboranir við Leirá í Borgarfirði

Flm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. 1. þm. Vesturl. (ÁB) að flytja till. til þál. á þskj. 71 um jarðboranir að Leirá í Borgarfirði, en till. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta fram fara borun eftir heitu vatni að Leirá í Borgarfirði, svo fljótt sem auðið er, í þeim tilgangi, að orkulindir þær, sem þar kunna að vera, verði hagnýttar til hitaveitu fyrir Akranes.“

Í fornum sögum og landlýsingum er frá því skýrt, að heitar vatnsuppsprettur hafi verið að Leirá í Borgarfirði. Yfirborðsvatnsmagn er þarna ekki mikið um að ræða, en rennslið, sem er um 2/3 sekúndulítrar, hefur verið jafnt og stöðugt og hitastigið um 60 gráður. Þessar heitu vatnsuppsprettur að Leirá eru þær einu, sem vitað er um að séu í nágrenni Akraness. Það er því eðlilegt, að vaknað hefur áhugi fyrir því, að umrætt jarðhitasvæði verði athugað nánar. Haustið 1957 fengu landeigendur í samvinnu við Akraneskaupstað herra Gunnar Böðvarsson verkfræðing til þess að athuga svæðið. Var það álit verkfræðingsins, að öll einkenni bentu til þess, að auka mætti vatnsmagnið með því að bora. Tveim árum síðar eða um haustið 1959 er svo hafizt handa um nokkra borun. Það var jarðborunardeild raforkumálaskrifstofunnar, sem hafði framkvæmdina með höndum. Borun þessi gekk ágætlega, og varð borholan 133 m á dýpt. Vatnsmagnið úr holunni er 7–8 sekúndulítrar af 80 gráðu heitu vatni, og hefur hvort tveggja haldizt síðan. Er þetta talinn góður árangur og þó sérstaklega með tilliti til þess, að hér var notazt við lítinn og ófullkominn bor.

Með þessari borun hefur tekizt að tryggja nægilegt vatn fyrir heimavistarbarnaskólann, sem nú er verið að hefja byggingarframkvæmdir á við Leirá, ásamt félagsheimili og fleiri byggingar þar í grennd. Þessi þáltill., ef samþ. verður, ætti að tryggja næsta þátt í þessari nauðsynlegu framkvæmd, en það er að fá úr því skorið, hvort hér er um nægilegt vatnsmagn að ræða, til þess að grundvöllurinn fyrir væntanlegri hitaveitu fyrir Akraneskaupstað sé örugglega tryggður. Það er álit sérfróðra manna, að vatnsmagnið þurfi að auka upp í 65 sekúndulítra, svo að það geti talizt fullnægjandi fyrir Akraneskaupstað og umrætt skólahverfi að Leirá.

Um fjárhagslegan grundvöll fyrir rekstrinum er talið, að hann sé fyrir hendi, þegar íbúatala Akraness hefur náð 6000. En nú er íbúatalan sem næst 4000. Akranes er einn af þeim bæjum, sem á undanförnum árum hafa vaxið hvað örast, og á vafalaust fyrir sér mikla framtíðarmöguleika, bæði til lands og sjávar. Frá þjóðhagslegu sjónarmiði er óþarft að fjölyrða um gildi hitaveitna, enda hafa þær, hvar sem til þeirra hefur verið stofnað, reynzt hin öruggustu fyrirtæki, en auk þess sem þær skapa margvisleg lífsþægindi fyrir íbúana, sparast þjóðinni mikill erlendur gjaldeyrir.

Slíkar framkvæmdir sem hér um ræðir eru mjög kostnaðarsamar. Það leiðir því af sjálfu sér, að nauðsynlegt er, að ríkið komi hér til aðstoðar við byrjunarframkvæmdir, enda hefur það nú þegar á að skipa tveimur stórvirkum jarðborum.

Svo að ég víki aftur að þeim gjaldeyrissparnaði, sem leiðir af aukinni virkjun jarðhitans til upphitunar húsa, þá er þegar um allverulegar upphæðir að ræða. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef getað aflað mér, mun láta nærri, að þær hitaveitur, sem nú eru starfræktar, spari þjóðinni sem næst 30 millj, kr. á ári. Innflutt eldsneyti til upphitunar, sem aðallega er olía, nemur hins vegar eitthvað á milli 90 og 100 millj. kr. árlega.

Íslendingar ráða yfir óvenjumiklum verðmætum, sem búa í fallvötnum og í jarðhitasvæðum, sem eru víðs vegar um landið. Þessi verðmæti bíða þess, að hugvit og hönd beizli aflið til hagsældar fyrir land og þjóð.

Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um málið að sinni. Ég vil leyfa mér, herra forseti, að óska þess, að umr. verði frestað og málinu verði ví sað til hv. fjvn.