11.04.1962
Sameinað þing: 52. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (3133)

67. mál, læknisvitjanasjóðir

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Efni þessarar till., sem fyrir liggur á þskj. 85, er að skora á ríkisstjórnina að láta endurskoða lög um læknisvitjanasjóði, enda verði þeirri endurskoðun lokið fyrir næsta reglulegt Alþingi.

Lögin um læknisvitjanasjóði voru sett fyrir 20 árum eða því sem næst, og var markmið þeirra að greiða fyrir læknissókn í héruðum, þar sem erfitt er að ná til læknis. Tekjur þessara sjóða áttu að koma úr héraði og ríkissjóði allt að þriðjungi, en þó skyldi framlag ríkissjóðs ekki fara fram úr 2 kr. á hvern héraðsbúa, sem heima á utan þess kaupstaðar eða kauptúns, þar sem læknir situr. Miðað við núverandi verðgildi peninga er hér um mjög lágar upphæðir að ræða.

Í grg. till. segja flm., að nú þurfi annað hvort að gera, að auka tekjur læknisvitjanasjóðanna í samræmi við þarfir þeirra og verðgildi peninga eða fela sjúkrasamlögum og Tryggingastofnun ríkisins að láta í té þann stuðning, er læknisvitjanasjóðum hefur verið ætlað að veita, enda væri þá tryggt, að þessar stofnanir hefðu fé til ráðstöfunar í þessu skyni. Allshn. hefur haft till. til athugunar, en hún var flutt á öndverðu þingi, og fengið um hana umsögn landlæknis og Læknafélags Íslands.

Að athuguðu máli telur n., að þörf sé á að endurskoða lögin með hliðsjón af ýmsum öðrum lagaákvæðum, sem sett hafa verið í svipuðum tilgangi, og þá m.a. með það fyrir augum, að þau ákvæði verði samræmd eða sameinuð, ef rétt þykir. Með tilvísun til þessa leggur n. til, að till. verði samþ.