14.02.1962
Sameinað þing: 35. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í D-deild Alþingistíðinda. (3162)
113. mál, útflutningur á dilkakjöti
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Það er vitaskuld eitt af stærstu málum landbúnaðarins, að hægt sé að framleiða landbúnaðarafurðir til útflutnings. Vitaskuld á landbúnaður verulega framtíð við að framleiða landbúnaðarvörur til neyzlu í landinu sjálfu. En því aðeins verður landbúnaðurinn stórfelldur atvinnuvegur framvegis, að hægt sé að framleiða landbúnaðarafurðir til útflutnings. Þá verður það kjötið og þær afurðir, sem framleiddar eru í tengslum við það, sem vekja mestar vonir. Það er þess vegna ekki nema ánægjulegt, að menn hafi áhuga fyrir þessum þætti, þ.e.a.s. að sölu landbúnaðarafurða, kjötvara, úr landinu sé fylgt eftir eins vel og mögulegt er og allt gert, sem hægt er, til að koma kjötvörum og landbúnaðarafurðum yfirleitt í sem allra bezt verð.
Í þessari þáltill., sem hér liggur fyrir, er vikið að þessu máli og stungið upp á, að Álþingi álykti að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir því, að tilraunir verði gerðar með útflutning á dilkakjöti, þar sem reyndar verði nýjar aðferðir með pökkun og verkun á kjötinu og verði kannaðir til þrautar hugsanlegir markaðsmöguleikar fyrir dilkakjötið í hverju því formi, sem gefur hagstæðast verð. Það er gert ráð fyrir þessari áskorun til ríkisstj.
Ég sakna þess í þáltill. og einnig í því, sem hv. frsm. sagði, að nánar sé að því vikið, hvað hæstv. ríkisstj. er ætlað að gera í þessu. Og þá vek ég alveg sérstaka athygli á því, að um þessa þáltill. hefur verið ákveðin ein umr., sem er eingöngu um þær þáltill., sem eiga ekki að hafa nein útgjöld í för með sér. En um þær þáltill., sem eiga að hafa útgjöld í för með sér, eiga að vera tvær umr. Það sýnist því vera skilningurinn, að þessi þáltill. eigi ekki eða megi ekki hafa nein útgjöld í för með sér.
Ef svo er, fer auðvitað að verða vandséð strax, hvaða gagn geti að því orðið að samþykkja slíka till., þótt segja megi, að það geti aldrei orðið að tjóni að skora á yfirvöldin að beita sér fyrir athugun á málum eins og þessu. Mér finnst það þurfi að hugsa þetta skýrar en fram kom hjá hv. 1. flm. og fram kemur í till. og gera sér grein fyrir, hvað það er, sem ætlazt er til, að hæstv. ríkisstj. geri, og hvað hún getur gert. Er það t.d. ætlunin, að hæstv. ríkisstj. setji upp fyrirtæki, sem taki á móti kjötvörum til pökkunar með nýtízku hætti og standi fyrir útflutningi á þeim afurðum, þeim kjötvörum, sem þar eru pakkaðar, og láti þannig reyna á sínum vegum nýjar leiðir? Þetta þarf að koma greinilega fram. Það verður að kryfja til mergjar, hvað ætlunin er að gera málinu til framdráttar og gagns. Er það sem sagt hugsunin hjá hv. flm., að ríkisstj. hafi á sínum vegum slíka tilraunastarfsemi, taki á móti kjöti og kjötvörum og pakki þeim með nýjum hætti í tilraunaskyni og setji upp sölukerfi fyrir kjötvörur á þann hátt?
Ef þetta er ekki ætlun hv. flm„ þá kemur spurningin, hvort þeir ætlast þá til þess, að hæstv. ríkisstj. styðji einhverja aðila til að gera átak í þessu skyni, t.d. hvort það vakir fyrir hv. flm., að ríkisstj. verji fé til þess að styðja einhverja aðila til að leggja í tilraunastarfsemi, sem oft getur verið kostnaðarsöm. En ef það er ætlun hv. flm., að þannig verði á málinu haldið, að veitt verði fé einhverjum aðilum, sem ríkisstj. hefði traust á, til að starfa að þessu máli, þarf að vera heimild til þess að verja fjármunum í því skyni, og sjálfsagt þyrfti það þá að koma fram í sjálfri till., að það væri heimilað að verja fé til stuðnings þessu máli.
Ef nú vekti fyrir hv. flm. eitthvað í þessa átt, að verja almannafé til að greiða verulega fyrir þessu máli, væri líka fróðlegt að vita, ef þeir hefðu gert sér grein fyrir því, hvaða aðila þeir hefðu hugsað sér að ríkisstj. styddi í þessu tilliti, hvort það væri þá t.d. félagsskapur bændanna, samvinnufélögin, sem þeir hugsuðu sér að styðja. En sá félagsskapur hefur haft kjötsöluna með höndum, ekki fyrir það, að það hafi verið einokun á kjötverzluninni eða hún hafi verið skikkuð þessum félagsskap með löggjöf eða hömlum, heldur beinlínis vegna þess, að félagsskapur bændanna, þ.e. samvinnufélögin og Samband ísl. samvinnufélaga, er eini aðilinn í landinu, sem hefur tekið sér fyrir hendur að flytja út kjöt, og eini verzlunaraðilinn í landinu, sem nokkurn minnsta áhuga hefur sýnt fyrir því að flytja út þessar afurðir.
Ef það sem sagt vakir fyrir hv. flm., að hér komi til greina fjárhagsstuðningur við þetta merkilega mál að útbreiða íslenzka dilkakjötið erlendis, þá væri æskilegt, að það væri athugað, hvort það væri þá ætlunin og eðlilegt að styðja þennan félagsskap bændanna til að hafa með höndum og efla tilraunastarfsemi í þessum efnum eða hvort það væri þá hugsun flm. að styðja einhverja aðra aðila, sem áður hafa ekkert komið nálægt þessum málum og engan áhuga á þeim sýnt. Það er talað um í þessu sambandi nýja krafta, sem þurfi að koma til, og má vera, að það vaki þá fyrir flm. og það sé hugsunin, að það verði þá einhverjir studdir, sem engan áhuga hafa haft áður, til þess að sinna þessu máli. Sem sagt, ef ætlunin er, að af opinberri hálfu verði gert hér átak til að greiða fyrir þessu, væri mjög æskilegt, að það yrði rætt og athugað hér í hv. Alþ. og kæmi fram af hálfu flm., hvaða aðila þeir teldu þá rétt að styðja til aukinnar starfsemi í þessari grein.
Ég hlýt að gera ráð fyrir því, að hv. flm. hafi hugleitt þessi atriði, sem ég hef vakið athygli á, og að þeir muni koma inn á það eitthvað í þessum umr., sem um þetta verða, og að þessi atriði verði líka athuguð í nefnd, sem málið fer til. Geri ég einnig ráð fyrir því að sjálfsögðu, að þetta mál verði sent til umsagnar framleiðsluráði landbúnaðarins, sem er aðili beinlínis í þessu máli, þó að það hafi ekki verzlun með höndum, og svo félagsskap bændanna, samvinnufélögunum, Sambandi ísl. samvinnufélaga, sem hefur eitt látið sig þetta mál nokkru varða á undanförnum áratugum a.m.k. rekur mig ekki minni til, að aðrir hafi haft með höndum útflutning á kjöti, en er fús til að leiðrétta, ef það er misminni.
Ef það er á hinn bóginn ætlun hv. flm. einvörðungu með þessari till. að vekja athygli hæstv. landbrh. á málinu, án þess að gera í raun og veru ráð fyrir nokkrum framkvæmdum eða gera mögulegt, að nokkuð verði aðhafzt af opinberri hálfu, þá er ekki um neitt nýtt skref í þessu máli að ræða á nokkurn hátt umfram þau, sem áður hafa verið stigin. Eins og hv. 1. flm. réttilega drap á, hafa ýmsir fundir, sem haldnir hafa verið, bændafundir t.d. og m.a. búnaðarþing, minnt á þetta mál af og til og haldið því vakandi, sent áskoranir til framleiðsluráðs og til Sambandsins um, að þessir aðilar leggi sem allra mesta áherzlu á að leysa þetta mál með sem beztum hætti og að þessir aðilar leggi sig alla fram. Það er vitanlega ekki nema gott um það að segja, að málum eins og þessum sé á þann veg haldið vakandi og þeir, sem hafa þau með höndum, sífellt minntir á, að ætíð þarf að vera í sókn í þessum efnum.
Þetta er um till. sjálfa og það, sem ég vildi sagt hafa um hana. Hún fer til nefndar og verður þar sjálfsagt athuguð gaumgæfilega. En áreiðanlega þarf að breyta till. mikið, ef hún ætti að geta orðið öflugur stuðningur við aukna tilraunastarfsemi í þessari grein, um bæði verkun og sölu. Eins og till. er, getur hún ekki haft, að því er ég bezt fæ séð, neina þýðingu umfram almenna fundarsamþykkt. Ef þetta ætti að koma að gagni, yrði að fara nánar í málið og gera sér grein fyrir, hvað það er, sem raunverulega ætti að aðhafast, og veita þá fjármagn til þess, ef það er ætlunin að auka stuðning við tilraunir í þessu skyni og nýjar verkunar- og söluaðferðir á kjöti.
En til viðbótar þessum fáu orðum um efni till. sjálfrar vil ég taka fram, að ýmislegt, sem komið hefur fram, bæði í sambandi við þessa þáltill. og um svipað leyti og hún var í smíðum, bendir til þess, að þótt hér kunni að vera með í ferðinni áhugi fyrir því að koma á endurbótum í þessum málum, sé það fleira, sem hér kemur til.
Ýmislegt, sem komið hefur fram í sambandi við málið og um þær mundir, sem það var að fæðast, ber þess glöggan vott, að reynt hefur verið að koma af stað ófrægingarherferð á hendur Sambandi ísl. samvinnufélaga fyrir störf þess að kjötsölumálum, og fer þetta ekkert á milli mála. Og það er þrennt, sem hefur komið fram í þessu sambandi og vafalaust hangir allt á sömu spýtunni. Í fyrsta lagi, að aðalmálgagn stjórnarflokkanna var sent út af örkinni til að flytja óhróður um kjötverzlun Sambands ísl. samvinnufélaga, þar sem m.a. var komizt svo smekklega að orði, að SÍS hafi verið aðalútflytjandinn og ekkert gert til þess að gera vöruna vel úr garði, þ.e.a.s. íslenzka dilkakjötið, heldur hafi skrokkarnir verið sendir óhrjálegir til útlanda. Þetta var vitnisburðurinn, sem aðalmálgagn stj. hafði um þessa starfsemi þessa félagsskapar bændanna, sem er eini félagsskapurinn, sem sýnt hefur nokkurn áhuga á því að selja þessa þýðingarmiklu vöru úr landi.
Jafnframt steig hæstv. fjmrh. fram hér á Alþ. í sambandi við fjárlagaumr. og flutti pistil um, í hvílíku ófremdarástandi kjötútflutningurinn væri frá landinu. Allir vita, að hæstv. fjmrh. er þeim málum gersamlega ókunnugur og hefur ekkert hirt um að kynna sér neitt, sem að því lýtur, á einn eða annan hátt. Og tónninn var þessi: að úreltar aðferðir væru hafðar við sölu kjötsins, það hlyti að vera hægt að selja kjötið miklu hærra verði en hingað til.
Loks kemur svo þessi þáltill., sem hér liggur fyrir, og er, eins og ég sagði áðan, auðvitað ekkert nema gott um það að segja, að allt væri gert, sem hægt er, til þess að greiða fyrir því, að hægt væri að gera enn meira en gert hefur verið til að finna nýjar leiðir í sölu á kjötvörum. En í grg. þessarar þáltill. kemur fram að nokkru, en þó vægara, sami andinn og hafði áður komið fram úr þessum sömu herbúðum frá aðalmálgagni stjórnarflokkanna og hæstv. fjmrh. og ég var að greina hér frá. Það er allþung undiralda í því, sem sagt er í grg. um það, að kjötsölumálin séu í miklu ófremdarástandi. Hv. frsm. orðaði þetta mjög vægt áðan, en það var sami tónninn: menn ættu erfitt með að sætta sig við þetta, eins og það væri. Nú er það vitanlegt, að þegar um jafnþýðingarmikið og flókið mál er að ræða og sölu á kjötvörum úr landi, þar sem leita þarf færis að selja í mörgum löndum, er náttúrlega erfitt fyrir okkur, sem störfum ekki daglega að þessum málum, að fella nokkra dóma í þessu sambandi. Það veit ég, að hv. flm. eru mér alveg sammála um inni á sér. Hitt vitum við líka, að það þarf vitanlega sífellt að leita að nýjum leiðum og reyna að gera betur en gert hefur verið. Og frá því sjónarmiði séð eiga menn vitanlega aldrei að sætta sig við það, sem er í sölumálum og framleiðslumálum eða neinu, sem hliðstætt er því. En samt sem áður er í þessu öllu ljótur tónn og ófrægingartónn, — í því, sem aðalmálgagn aðalstjórnarflokksins hefur flutt, og í því, sem hæstv. fjmrh. hefur komið fram með. Og þó að allt sé vægar farið í sakirnar hjá hv. flm. þessa máls, er þó andað í sömu áttina. Þess vegna vildi ég nota þetta tækifæri til að mótmæla þessum órökstuddu fullyrðingum, sem fram hafa komið um þetta, og láta í ljós þá skoðun mína, að þær séu með öllu ósæmilegar. Og þá á ég fyrst og fremst við ummæli blaðsins og hæstv. fjmrh., því að eins og ég sagði, hafa flm. farið vægara í þessu tilliti. Þó að andinn sé sami, þá er þar allt miklu vægar að orði kveðið.
Út af þessum ásökunum vil ég leyfa mér að gefa hv. alþm. nokkrar upplýsingar um þessi mál, sem ég byggi nær eingöngu á aths., sem komið hefur fyrir almenningssjónir um þetta mál frá Helga Péturssyni framkvæmdastjóra hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga, sem um langa hríð hefur haft með höndum einmitt þessi mál hjá Sambandinu, þ.e.a.s. útflutning á kjötvörum. Í því, sem hann segir um þetta, koma fram nokkrar staðreyndir, sem er mjög nauðsynlegt fyrir hv. alþm. að vita og ég vil eiga þátt í, að komist inn í þingtíðindin, út af því, sem um þetta mál hefur verið sagt á hv. Alþingi.
Þá er það fyrst, að ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa hér úr grein Helga Péturssonar dálítinn þátt, sem fjallar um söluna á íslenzku kjöti og samkeppni þess við annað kjöt. Og um það segir Helgi Pétursson, með leyfi hæstv. forseta:
„Dilkakjötið er selt á beztu mörkuðum heims, í Bretlandi, Bandaríkjunum og á Norðurlöndum, í samkeppni við sambærilega vöru, sem er frosna lambakjötið frá Nýja-Sjálandi, Ástralíu og Argentínu. Í upphafi var aðstaða okkar erfið, þar sem við urðum að keppa við vöru, sem áratugum saman hafði unnið sér hefð á mörkuðunum. Þeir, sem fengust til að kaupa íslenzka kjötið, komust þó fljótlega að raun um bragðgæði þess, og svo hafa vinsældir þess vaxið með árunum upp á síðkastið, einkum vegna þess, að það er ekki eins feitt og annað lambakjöt. Nú er svo komið þrátt fyrir vissa annmarka á líkamsbyggingu íslenzku dilkanna, að þeir seljast í Bretlandi (ég bið hv. þm. að taka vel eftir þessu), að þeir seljast í Bretlandi fyrir sama verð og Nýja-Sjálandslömbin, sem þar hafa þó hingað til þótt taka öllu öðru fram, og alls staðar annars staðar seljast okkar dilkar fyrir hærra verð en annað dilkakjöt:
Þetta eru staðreyndir. Helgi Pétursson fer ekki með annað en staðreyndir. Það vita allir, sem hann þekkja. Bendir þetta til þess, að það hafi verið aðaleinkennið á kjötverzlun Sambandsins, að það hafi flutt úr landi óhrjálega dilkskrokka og ekkert skeytt um vöruvöndun, svo að vitnað sé til þeirra smekklegu vitnisburða, sem um þessi efni komu í aðalmálgagni stjórnarinnar og hæstv. fjmrh. tók undir?
Þá er það varðandi það atriði, að of lítið hafi verið sett í neytendapakkningar og of einhæfur hafi verið útflutningurinn, og það er í raun og veru aðalatriði þessarar þáltill. að vekja athygli á þessu atriði. En um þetta atriði segir Helgi Pétursson, með leyfi hæstv. forseta:
„Sambandið hefur gert ýmsar tilraunir á þessu sviði, en á því eru ýmsir annmarkar, sem ekki verða raktir hér, og enn sem komið er hefur ekki tekizt að ná þannig hærra meðalsöluverði, en um það hlýtur þó allt að snúast, hver sem umbjóðandinn er. Það er líka mála sannast, að langmestur hluti milliríkjasölu á frosnu lambakjöti fer fram í heilum skrokkum. Og þegar út af bregður, mun tilgangurinn fremur vera að losna við offramleiðslu en að ná hærra verði. Liggur það ekki í augum uppi, að Ástralíumenn og Nýsjálendingar ættu að vera hættir að flytja „óhrjálega skrokka þriggja vikna sjóleið á markað með miklu meiri flutningskostnaði en við búum við, ef önnur úrræði reyndust betur? Með þessu er þó engu spáð um framtíðina. Að sjálfsögðu þarf stöðugt að fylgjast með þróuninni á þessum sviðum sem öðrum.
Þetta segir Helgi Pétursson um þetta atriði, og fram hjá þessum vitnisburði hans verður ekki gengið, og er því bezt að spara sér allar dylgjur og svigurmæli í þessu sambandi og annað verra, en vinna bara þess í stað að því að vekja athygli á þessu, sem Helgi Pétursson segir síðast: „Að sjálfsögðu þarf stöðugt að fylgjast með þróuninni á þessu sviði sem öðrum.“ Sem sagt, aðalatriðið í þessu máli er ekki að koma áleiðis órökstuddum dylgjum um þá, sem hafa haft þessi mál með höndum, og jafnvel rógi, heldur hitt að reyna að taka jákvætt á málinu. Og það ætla ég, að hefði verið bezt fyrir hv. flm. að gera að öllu leyti. En eins og ég sagði, geri ég mikinn mun á því, sem þeir hafa sagt um þetta og aðrir, sem ég hef hér rætt um.
Þá er hjá hv. flm. mjög eindregið gefið í skyn, að verð það, sem fæst fyrir kjöt okkar, muni vera lakara en tíðkast um annað kjöt, sem selt væri á sömu mörkuðum. Það er sem sagt gefið í skyn, og ekki veit ég hvers vegna, að þetta muni vera þannig. Það er gert í hálfkveðnum vísum, t.d. eins og því, að það geti varla verið með felldu, að verðið sé ekki hærra. Enn fremur, að kjötið muni yfirleitt selt á mun hærra verði til neyzlu í nágrannalöndunum en hér, og nokkuð fleira, sem sagt er í þessa átt og gefa á þennan blæ. En um þetta segir Helgi Pétursson, sem ég efast ekkert um, eins og ég sagði áðan, að greinir nákvæmlega rétt frá, með leyfi hæstv. forseta:
„Þá er ekki úr vegi að gera nokkra grein fyrir söluverði dilkakjötsins ytra og reyna að fá einhvern samanburð við verð sambærilegrar vöru þar. En hér er erfiðara um vik. Ég hef ekki handbær gögn til að gera slíkan samanburð hvað árgangana 1959 og 1960 áhrærir og verð í þess stað að takmarka mig við útflutninginn af haustframleiðslunni 1961. Af henni er búið að flytja út og selja 1838 tonn frosið dilkakjöt, og enn fremur eru seld 307 tonn saltað, sem nú er á förum úr landi. Á tímabilinu frá októberbyrjun til janúarloka hafa því verið seld til útflutnings 2145 tonn dilkakjöt og meðalsöluverð þess er 20.45 kr. kílóið fritt um borð, en það jafngildir 22.70 kr. cif. í London. Til að fá réttan samanburð við heildsöluverð á Smithfieldmarkaði þarf að bæta við cif-verðið uppskipun, flutningi frá skipi til markaðarins, geymslukostnaði og heildsöluálagningu, og nemur sá kostnaður um 10% af cif-verði. Fyrir þennan útflutning fá því Íslendingar verð, sem svarar til 24.97 kr. heildsöluverðs á Smithfieldmarkaði. En meðalheildsöluverð á sambærilegri vöru á umræddu tímabili er fundið með því að fara mitt á milli hæsta og lægsta söluverðs samkv. vikulegum verðlistum markaðarins og er sem hér segir: Nýja-Sjálandslömb 21.35 kr. pr. kg, Ástralíulömb 19.41 kr. pr. kg og Argentínulömb 16.49 kr. pr. kg. Ekki ætlast ég til, að þetta verði tekið sem algildur samanburður, en hann mun þó fara nálægt því rétta, og samkvæmt honum hefur Sambandinu á áðurnefndu tímabili tekizt að ná um 17%, 29% og 51% hærra verði fyrir íslenzka dilkakjötið en Nýsjálendingar, Ástralíumenn og Argentínumenn í sömu röð hafa fengið fyrir sitt lambakjöt á heimsmarkaði. Ég hygg, að þetta ásamt því, sem áður var sagt um útflutningsbætur og niðurgreiðslur, sýni ljóslega“ o.s.frv., „að ummæli fjmrh: því að hann er að svara þeim, „voru bæði ógætileg og ómakleg, að ekki sé meira sagt: En það sýnir hógværð Helga Péturssonar, að hann skuli viðhafa þessi ummæli um það, sem hæstv. fjmrh. sagði. En ég vil segja, að ef hægt væri að segja eitthvað hliðstætt þessu um verðlag á íslenzkum útflutningsvörum í öðrum greinum, að það fengist svo gott verð fyrir þær, samanborið við hliðstæðar vörur annars staðar frá, þá finnst manni, að allvel mætti við una og að þessi niðurstaða gefi sízt ástæðu til árása eða til þess, að reynt sé að koma inn tortryggni í garð þeirra, sem hér hafa unnið að. (Forseti: Má ég spyrja hv. þm., hvort hann á mikið eftir?) Ég er alveg að verða búinn, hæstv. forseti, ég á eftir svo sem 2 mínútur.
Að lokum vildi ég svo aðeins greina frá því, að Helgi Pétursson minnist á eitt atriði í grg. hv. flm. Þeir segja, að kjöt muni yfirleitt selt á mun hærra verði til neyzlu í nágrannalöndunum en hér. En þetta segir Helgi Pétursson að sé byggt á „algerum misskilningi, eins og sá hógværi maður orðar það í sinni grein. Og eftir að hann hefur farið nokkru nánar út í þetta, segir hann: „og er þá sýnt fram á, að upphaf þessarar málsgr., þ.e.a.s. þessi fullyrðing flm., „er hvort tveggja ósatt og villandi. En einmitt sú setning mun hafa átt að vera til að gefa í skyn, að mjög slælega hafi verið að þessum málum unnið á vegum Sambands ísl. samvinnufélaga.
Ég skal nú láta þessum athugasemdum lokið. En ég vil aðeins að lokum minna á það, sem ég sagði í upphafi, að hvað sem þessu líður; þessum þrætum fram og aftur um það, sem gert hefur verið, þá skiptir mestu máli, að kröftuglega sé á þessum málum haldið að öllu leyti, og ekkert nema gott um að segja, að minnt sé á, að það er rík nauðsyn á að sækja fram í þessu eins og öðru. En ef á að verða eitthvert gagn af þessari þáltill., þarf að kryfja þetta mál miklu betur til mergjar en fram kom hjá hv. 1. flm., og vísa ég til þess, sem ég sagði um það í upphafi.