16.12.1961
Efri deild: 35. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í B-deild Alþingistíðinda. (317)
107. mál, verðlagsráð sjávarútvegsins
Frsm. 1. minni hl. (Sigurvin Einarsson):
Herra forseti. Frv. þetta, sem hér er til umr., er sannarlega ekki að ófyrirsynju fram borið, svo alvarlegir hlutir hafa gerzt í sjávarútvegi, þar sem útgerðarstöðvanir hafa átt sér stað hvað eftir annað. En þessar útgerðarstöðvanir eru vegna ósamkomulags um fiskverð milli fiskseljenda og fiskkaupenda. Það átti að vera svo eftir kenningu hæstv. stjórnarflokka, að með efnahagslöggjöfinni væri slíkur vandi leystur, það ætti allt að geta gengið nokkurn veginn af sjálfu sér í atvinnulífi og viðskiptalífi þjóðarinnar, eftir að sú löggjöf komst á. Þessi „viðreisn“ átti að vera nokkurs konar rafeindaheili, sem þurfti ekki annað en setja í gang, og svo þurfti enginn að hafa áhyggjur af neinu. En þetta hefur farið nokkuð á annan veg, og ég ætla, að ástandið í þessum efnum hafi ekki orðið verra áður en það varð á s.l. vetri, þegar langvarandi útgerðarstöðvun varð í stærsta útgerðarbæ landsins vegna ósamkomulags um verðlag á sjávarafurðum.
Það er enginn vafi á því, að það er full þörf á því að setja löggjöf, sem ákveður einhverjar starfsreglur fyrir seljendur og kaupendur að fara eftir, svo að frekar megi vænta samkomulags um fiskverð. Svo mikið er í húfi, að samkomulag takist, að ég tek sannarlega undir ummæli hæstv. ríkisstj. í grg. fyrir þessu frv., að það sé áríðandi að gera nokkrar ráðstafanir til þess að hindra slíkar atvinnustöðvanir. En þýðingarmestu ákvæðin, sem ég tel vera í þessu frv., eru þau, sem mæla fyrir um verðlagsráð og að öðru leyti um þá skipun yfirnefndar, að aðilarnir komi sér saman um oddamann. Hvort tveggja þetta eru tilraunir til þess, að aðilarnir komi sér saman og verðið á vörunni verði ákveðið með samkomulagi. Þetta er að mínum dómi það langmikilsverðasta í frv. og svo mikilsvert, að ég vil leggja mitt lið til þess, að slíkt geti orðið að lögum.
Þessu frv. var útbýtt hér í þessari hv. deild í gær um miðjan dag, líklega eitthvað nálægt því kl. 2. eftir fund í sameinuðu þingi. Síðan voru þingmenn á fundum í sameinuðu þingi og í nefndum, og ég ætla, að flestir hafi verið uppteknir fram undir kvöldmat. Það má nærri geta, hve langan tíma nm. sjútvn. í þessari hv. d. hafa haft til þess að athuga svo mikilsvert vandamál sem þetta frv. fjallar um. En hraðinn, ég vil segja flaustrið, á afgreiðslu málsins var meiri en þetta, því að áður en n. er farin að líta á frv. á fundi sínum, eru nm. boðaðir á fund hér í hv. deild kl. hálftvö í dag um þetta mál, og það ætla ég að sé með óvenjulegum hætti, að þannig sé farið að, að ákveða umr. um mál eftir tæpan sólarhring, þótt nefnd, sem málinu var vísað til, sé ekki farin að líta á málið. Ég veit, að hæstv. ríkisstj. hefur þá afsökun, að það er nauðsynlegt að koma málinu fram fyrir áramót. Ég skal viðurkenna, að það þarf að hafa hraðan á. En að það gangi svona fyrir sig, það tel ég ekki góð vinnubrögð, enda fór það svo, að meiri hluti hv. sjútvn. lagði ekki mikla vinnu í að athuga þetta mál. Ég man ekki, hve margar mínútur fundurinn stóð um málið, þær voru ekki margar. Þar kom fram till. frá einum nm. að samþykkja frv. óbreytt. Ég leitaði eftir því, hvort hægt væri að fá samkomulag um einhverja þá brtt., sem flutt var af hálfu Framsfl. í Nd. við málið, en það varð ekki, svörin voru ósköp greið og fljót og afdráttarlaus, og þar með voru nefndarstörfin búin. En þó að svona gangi fyrir sig í nefnd, verð ég að telja viðeigandi, að nefndarhlutarnir fái einhvern frið til að skila nál. og brtt. Ég tel, að ég hafi gert mitt til þess að hraða þessu eins og ég gat, því að ég skilaði nál. mínu og brtt. hingað til skrifstofunnar kl. 9 í morgun. Fyrr gat ég það ekki, fyrst ég kom ekki heim af fundum hér fyrr en kl. 7 í gærkvöld, svo að ég held, að ég geti ekki talið, að ég hafi hindrað málið. En það er ófært að hafa þessi vinnubrögð um stórmál. Ég verð að vita það. Það verður að haga vinnubrögðum á Alþingi á einhvern annan hátt, svo að þetta þurfi ekki að ganga þannig fyrir sig, að maður nú ekki tali um það, að fyrr í vetur féllu niður fundir í þessari hv. deild dögum saman, af því að það var ekkert að gera. Ég veit ekki, til hvers Ed. er, ef hún á ekki að hafa frið til þess að vinna að málunum, — eða á hún aðeins að taka við öllu athugasemdalaust frá hv. Nd., eins og það kemur fyrir? Ég er hér ekki að saka sérstaklega hæstv. forseta. Ég veit, að hann getur ekki ráðið við þetta, af því að málið kom svo seint fram. Ef á að ljúka þessu fyrir jól, þarf að hafa hraðan á. En samt eru þetta ekki góð vinnubrögð, það verð ég að segla. Skal ég þá ekki ræða meira um það.
Það liggja ekki enn fyrir brtt., sem ég flyt. Hvernig á að fara að því, má ég spyrja, þær eru ekki komnar enn úr prentun? Hæstv. forseti hefur rætt um það við mig, hvort ég treysti mér til þess að ræða málið, þó að brtt. séu ekki komnar fram. Ég vil gera allt, sem ég get, til þess að hraða málinu, ég segi það alveg eins og er, að það stendur ekki á mér að ræða það. En ég veit ekki, hvernig við eigum að afgreiða það, þegar brtt. eru ekki komnar fram enn, þó að ég hafi afhent þær kl. 9 í morgun. Ég býst við, að hæstv. forseti fresti þá fundi, ef þær verða ekki komnar, þegar þessari umr. er lokið, og er það samt vægast sagt hart að þurfa að ræða brtt., sem enginn þm. hefur séð að undanteknum mér. Ég skal samt, til þess að greiða fyrir málinu, skýra eins rækilega og ég get frá þessum brtt., sem ég hef flutt og ekki eru komnar hér fram.
1. brtt., sem ég flyt, er við 1. gr. frv. Ég legg þar til, að einn af þeim þremur fulltrúum. sem Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna á að tilnefna í verðlagsráðið, verði tilnefndur sameiginlega af félögum fiskvinnslustöðva á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi. Ég held, að mönnum sé kunnugt um það, að aðstaða fiskvinnslustöðva í þessum landshlutum er nokkur önnur en hér sunnanlands. Það er öðruvísi fiskur, sem þessar stöðvar fá. Það er oft smærri fiskur. Það er mikill hluti eða a.m.k. verulegur hluti af aflanum handfærafiskur á vissum tímum ársins. Það eru fisktegundir, sem jafnvel þekkjast ekki annars staðar en við Vestfirði, eins og steinbítur. Ég get varla talið, að hann sé veiddur að nokkru ráði annars staðar. Og þá má jafnvel nefna hina virðulegu hámeri, sem farið er að veiða fyrir Vestfjörðum nú, — ég veit ekki til, að hún sé veidd annars staðar við landið, — mjög dýr fiskur. Margt fleira af þessu tagi má nefna og þá ekki sízt aðstöðuna hjá hraðfrystihúsunum víða úti um land og fiskmagnið, sem hver hraðfrystistöð fær. Þetta er mjög ólíkt því, sem er hér við aðalveiðisvæðið sunnan- og suðvestanlands. Það er því ekki óeðlileg ósk, sem hefur borizt bréflega til Alþingis frá félagi fiskvinnslustöðva á Norður- og Austurlandi, að það fái einn fulltrúa í verðlagsráð.
Þá er önnur till. við þessa sömu gr., 1. gr. frv., sem ég flyt. Það er skilyrði um kjörgengi í verðlagsráð og yfirnefnd samkv. frv. Þar er sett það skilyrði í frv., eins og það er nú, að fulltrúi í verðlagsráði má ekki hafa gagnstæðra hagsmuna að gæta við það, sem ætlazt er til samkv. lögunum, t.d. að fulltrúi fyrir fiskseljendur megi ekki bersýnilega hafa hagsmuni sem fiskkaupandi, og gagnkvæmt, að fulltrúi fiskkaupenda hafi ekki bersýnilega hagsmuna að gæta sem fiskseljandi. Nú er það ákvæði komið inn í frv., að þessi skilyrði skuli sett um yfirnefndina, en það er ekkert slíkt skilyrði um að vera fulltrúi í verðlagsráðinu. Nú verð ég að telja, að það sé alveg jafnmikil nauðsyn á því að setja þessi skilyrði til þátttöku í verðlagsráði eins og í yfirnefnd, því að báðar þessar nefndir eiga að vera nokkurs konar sáttanefndir eða samkomulagsnefndir um fiskverðið. Þær eiga að fjalla um alveg sama verkefnið. Og hví ekki að setja þessi skilyrði þá á báðum stöðum?
Því hefur verið haldið fram, að þetta kæmi ekki að sök vegna þess, að það þurfi einróma samþykki fulltrúanna í verðlagsráði til þess að ákveða fiskverðið. Ég held, að einmitt vegna þessa ákvæðis í frv. um, að einróma samþykki þurfi í verðlagsráði til að ákveða fiskverðið, sé enn nauðsynlegra að vanda til fulltrúanna og það séu meiri líkur til þess, að samkomulag geti tekizt í verðlagsráði, ef það er þannig skipað, að þar sé réttur maður á réttum stað, raunverulegur fiskseljandi sé fulltrúi fyrir fiskseljendur og raunverulegur fiskkaupandi fyrir hina. En ef hitt kæmi fyrir, að þarna væri fulltrúi fyrir fiskseljendur, sem væri að miklum meiri hluta fiskkaupandi, þá er það að mínum dómi lakara, að þá skuli þurfa einróma samþykki í þessu verðlagsráði, ef menn ætlast til þess, að það nái samkomulagi. Það er því tillaga mín, ein brtt., að sömu skilyrði um kjörgengi séu sett um verðlagsráðið og yfirnefnd og sömu skilyrði sett um fulltrúa fiskkaupenda og fyrir fulltrúa fiskseljenda, þessi skilyrði nái til beggja þessara hópa, sem þarna eiga fulltrúa í verðlagsráði. Það er að mínum dómi alveg fráleitt, svo að ég taki dæmi, að maður, sem á heilt hraðfrystihús, en á líka hlut í bát, geti verið fulltrúi fyrir fiskseljendur í verðlagsráði. Það sjá allir, að hann hefur fyrst og fremst hagsmuni af því að fá verðið lágt, því að hann er fiskkaupandi og kaupir kannske margfalt magn af fiski móts við það, sem kemur af þessum eina bát, sem hann er ef til vill aðeins hluthafi í. Þó gæti hann eftir ákvæðum frv. verið fulltrúi fyrir fiskseljendur. Þetta tel ég ekki vera viðunandi. Hliðstæð dæmi má nefna um fulltrúa fiskkaupenda, að það getur verið maður, sem er fyrst og fremst útgerðarmaður, þó að hann eigi hluta í hraðfrystihúsi.
Þá kem ég að þriðju brtt., sem ég flyt við 1. gr. Það má segja, að það sé leiðrétting á orðalagi, sem vægast sagt er fljótfærnislegt. Það stendur nefnilega í 1. gr. frv., þar sem taldir eru upp fulltrúarnir af hálfu fiskkaupenda, að síðast er talinn einn fulltrúi tilnefndur af verksmiðjueigendum á Suður- og Vesturlandi. Engin skýring er með þessu, hvað þetta er. Nú eru ákaflega margar tegundir af verksmiðjum til á Suður- og Vesturlandi, og einhver hafði það á orði, hvort það væri dósaverksmiðja, hvort það væri súkkulaðiverksmiðja eða ullarverksmiðja eða nærfataverksmiðja eða hvaða verksmiðjur ættu að tilnefna þennan fulltrúa. Nú skal ég játa, að það er hægt að finna það út úr frv., að það er ekki átt við neinar af þessum verksmiðjum, en fljótfærnislegt er orðalagið, það held ég að sé vægast sagt. Ég held, að það megi sjá það eftir 4. gr., að þarna muni hafa átt að standa síldarverksmiðjueigenda, — ég held, að það hljóti að vera, að þar sé átt við síldarverksmiðjueigendur, og þess vegna hef ég flutt þá leiðréttingu.
Þá flyt ég brtt. við 3. gr., og hún er um það, að af þeim þremur fulltrúum, sem Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna á að tilnefna í verðlagsráð, sé einn tilnefndur sameiginlega af félögum fiskvinnslustöðva á Vestfjörðum og Norður- og Austurlandi, en það er alveg sams konar tillaga og kemur fram við 1. gr. og er því afleiðing af henni, og er ekkert um hana að segja annað hún er til samræmis.
3. brtt., sem ég flyt, er við 9. gr. Eins og mönnum er kunnugt, mælir 9. gr. svo fyrir, hvernig skuli að fara, ef ekki næst einróma samkomulag í verðlagsráði um verð á fiski. Þá skuli þeim ágreiningi vísað til yfirnefndar, sem er skipuð 5 mönnum, tveimur tilnefndum af hvorum aðila, fiskseljendum og fiskkaupendum, og oddamanni, sem þessir aðilar koma sér saman um einróma. Þetta var ekki svo í frv., eins og það var lagt fyrir Nd., en það er orðið svo núna. Þarna eru aftur ákvæði um það, að fulltrúar í verðlagsráði verða að vera sammála. Það verður að vera samþykkt einróma verðlagið í verðlagsráði. Takist það ekki, verður að samþykkja einróma í verðlagsráði oddamann í yfirnefnd. En takist það ekki heldur, á að koma til oddamaður skipaður af hæstarétti. Og þá er ég kominn að því atriði í þessu frv., sem ég ætla að valdi mestum ágreiningi, þ.e. að yfirnefnd úrskurði verðlag á fiski með oddamanni skipuðum frá ríkisstofnun. Þetta er ekkert annað en gerðardómur, — gerðardómur í kjaramálum sjómanna, því að kjör sjómanna skapast annars vegar af aflamagninu og hins vegar af verðinu, sem þeir fá fyrir hlutinn sinn.
Hér er því fyrirmæli um gerðardóm í kjaramálum sjómanna. Auk þess er þetta líka gerðardómur fyrir hraðfrystihúsin eða kaupendur fisksins. Það, sem ég kann ekki við í þessu ákvæði frv., er einmitt þetta. Það er heimtað einróma samþykki í verðlagsráði fyrir verðlaginu. Takist það ekki, er heimtað einróma samþykki verðlagsráðs um oddamanninn í yfirnefnd. Takist það ekki, skal settur oddamaður skipaður af ríkisstofnun, þó að hvorugur aðili í verðlagsráði, fulltrúar fiskkaupenda og fulltrúar fiskseljenda, sé ánægður með þann aðila. Þar er snúið við blaðinu. Ég neita því ekki, að þetta eru ákaflega rúm ákvæði fyrir einstaka fulltrúa, það þurfi einróma samþykkt um verðlagið í verðlagsráði og að það þurfi einróma samþykki verðlagsráðs um oddamann í yfirnefnd. Þetta gefur til kynna, að hverjum einstaklingi er þarna gefið neitunarvald, ef eitthvað það á að gera eða ákveða, sem hann getur ekki fellt sig við. Og meiri rétt er ekki hægt að gefa minni hluta en þetta. Ég skal ekki setja mig upp á móti því, þó að heimtað sé einróma samþykki verðlagsráðs um verðlagið, af því að þá er til annað stig að vísa málinu til, það er yfirnefnd. En ég tel ástæðulaust að heimta einróma samþykki verðlagsráðs um skipun oddamanns í yfirnefndina. Því legg ég til, að aðeins þurfi samþykki meiri hluta fulltrúanna, hvors hópsins um sig, fulltrúa fiskseljenda annars vegar og fulltrúa fiskkaupenda hins vegar, til þess að sá oddamaður verði skipaður, þ.e. að 8 af 12 mönnum í verðlagsráði samþykki oddamanninn. Ég get ómögulega varizt þeirri hugsun, að þessar tillögur um einróma samþykki á tveimur stigum sáttaumleitana kunni að leiða og jafnvel hljóti að leiða til þess, að verðlagið verði venjulega ákveðið af yfirnefnd með oddamanni frá hæstarétti. Það þarf svo sáralítið til að koma því til leiðar. Einn maður af 12 getur neitað verðlaginu í verðlagsráðinu, og einn maður af 12 getur neitað oddamanninum, sem þeir annars hefðu átt að koma sér saman um. Er þá ekki einmitt hætt við því, að þetta verði niðurstaðan, að það verði yfirnefndin með oddamanni frá hæstarétti, sem ákveður verðlagið? Það er þetta, sem ég óttast. Og ég held, að þetta sé það lakasta í þessu frv.
Hæstv. sjútvmrh. talaði um það í gær í framsöguræðu sinni um málið, að hann byggist við, að venjulegast tækist samkomulag í verðlagsráði. Ef það tekst þar venjulega, þá er það ekki fyrir þetta neitunarákvæði í frv. Þá væri það held ég frekar vegna hins, að menn vilja ekki eiga undir þessari yfirnefnd með oddamann frá ríkisstofnun. En það þýðir kannske lítið, hvorki fyrir mig né hæstv. ráðherra, að vera að spá neinu um það. Við vitum sennilega álíka mikið báðir um það fyrir fram.
Þá held ég, að ég muni það rétt, að hæstv. ráðherra hafi í framsöguræðu sinni fyrir þessu máli vitnað í skipan verðlagsráðs bændastéttarinnar og að hér sé um hliðstæður að ræða, verðlagsráð landbúnaðarins og þær tillögur, sem í þessu frv. felast um verðlagsráð og yfirnefnd sjávarútvegsins. Ég held, að þetta sé á misskilningi byggt hjá hæstv. ráðherra: Þetta er mjög á annan veg hjá bændum, þ.e.a.s. uppbygging þessa kerfis gekk allt öðruvísi fyrir sig hjá bændum. Þar gekk það þannig fyrir sig, að málið var rætt á búnaðarþingi, sem er vettvangur bændastéttarinnar, það var rætt á búnaðarþingi 1943 og þá skipuð milliþn. í þetta mál. Síðan gerir þessi milliþn. tillögur um þetta skipulag og leggur það aftur fyrir búnaðarþing. Þannig er undirbúin löggjöfin af hálfu bændanna þá. Síðan samþykkir Alþingi framleiðsluráðslögin 1947. M.ö.o.: bændastéttin samþykkir fyrir fram það skipulag, sem skuli hafa á þessu máli, og það var sætt sig við þá yfirnefnd, sem þar starfar, það var sætt sig við hana, enda hún komin inn í löggjöfina fyrir tilstilli bændanna sjálfra. En hvernig er það með þetta frv.? Eru fiskseljendur sammála um frv.? Ónei, þeir eru það ekki. Þeir eru sammála um, að það þurfi að setja starfsreglur um samkomulagstilraunir um fiskverð, það eru allir sammála um, um það er enginn ágreiningur neins staðar, sem ég veit til. En þeir eru ekki sammála eða voru ekki sammála um tvö atriði, annars vegar skipun verðlagsráðsins, hins vegar um yfirnefnd. Nú er búið að breyta ákvæðum frv. í Nd. um skipan verðlagsráðsins, en það er engu búið að breyta um sjálfa yfirnefndina, þar sem oddamaður á að vera frá hæstarétti. Það mun vera svo, að fulltrúar fiskkaupenda hafa verið sammála um þessi ákvæði frv., en fulltrúar fiskseljenda munu ekki hafa verið sammála. Ég held, að ég muni það rétt, að það hafi verið 4 fulltrúar frá fiskseljendum og 4 frá fiskkaupendum, sem undirbjuggu frv. Af þessum 4 fulltrúum frá fiskkaupendum hafi verið 3, sem má telja fulltrúa sjómanna, einn frá Alþýðusambandinu, einn frá Sjómannasambandinu og einn frá Farmanna- og fiskimannasambandinu. Af þessum þremur fulltrúum sjómanna í undirbúningsnefndinni var aðeins einn samþykkur ákvæðum frv., annar sat hjá við atkvgr., fulltrúi Sjómannasambandsins, þriðji greiddi atkvæði gegn þessu fyrirkomulagi, fulltrúi Alþýðusambands Íslands, og á bak við þann fulltrúa munu hafa verið langflestir sjómennirnir í landinu. Nei, það varð ekki fullt samkomulag og fjarri því um þetta. Beri maður þetta svo saman við undirbúning að framleiðsluráðslögum landbúnaðarins, þá er þar öðruvísi farið að, þar eru það stofnanir bændanna sjálfra, sem samþykkja þetta fyrirkomulag fyrir fram. Í samræmi við þetta er það, að ég flyt þá brtt., að það þurfi meirihlutasamþykki beggja aðila til þess að setja gerðardóm með oddamann frá ríkisstofnun.
4. brtt., sem ég flyt, er við 10. gr. í 10. gr. frv. stendur: „Ákvarðanir verðlagsráðs eru bindandi sem lágmarksverð, og má enginn selja sjávarafla undir því verði, sem ákveðið hefur verið samkvæmt ákvæðum þessara laga.“ Ég vil spyrja: Á þetta þá ekki að vera bindandi fyrir þær ákvarðanir, sem yfirnefndin tekur? Er það tilgangurinn, að ef yfirnefndin úrskurðar verðið, þá sé það ekki bindandi? þannig er það í frv. Það er aðeins verðlagsráð, sem þetta ákvæði nær til. Ég tel, að ef nokkur árangur á að verða, þurfi þetta bindingarákvæði að ná alveg jafnt til yfirnefndar og til verðlagsráðs.
Það er ekki hægt að segja, að verðlagsráð ákvarði neitt um verðlagið, ef það er yfirnefndin, sem gerir það. Hún er ekki verðlagsráð. En samkvæmt frv. á það ekki að vera bindandi, verðlagið, lágmarksverðið, ef það er ákveðið af yfirnefnd. Ég held, að það sé fljótfærnislega frá þessu gengið, en ef þetta er tilgangurinn, þá átta ég mig ekki á þessu.
Í þessari sömu tillögu legg ég til, að ákveðið tímabil skuli standa það verð, sem úrskurðað er eða ákveðið verður af verðlagsráði, en eins og frv. er, þá sé ég ekki, að neinn tími sé nefndur neins staðar um það, hve lengi þetta verð eigi að standa. Það gefur að skilja, að það geta margar þær breytingar orðið, sem þyrftu að valda breytingum á fiskverði, verðfall erlendis, breyttur vinnslukostnaður innanlands og annað þess háttar. Nú býst ég kannske við, að hæstv. ráðherra kunni að svara því, að þessi atriði verði öll ákveðin í reglugerð, en mér hefði fundizt eðlilegra, að þetta stæði beint í lögunum, því að þetta eru allþýðingarmikil ákvæði.
Ég hef farið nokkrum orðum um það atriði þessa frv., sem ég tel einna athugaverðast, þ.e. yfirnefnd með oddamanni frá hæstarétti. Ég hef sýnt fram á, að það hafa ekki staðið allir fulltrúar sjómanna að því ákvæði frv., þeirra sem undirbjuggu frv., og þetta sé mjög varhugaverð ráðstöfun. En ég vil bæta því við, að ef út í þá sálma þarf að fara á annað borð að úrskurða með gerðardómi þannig skipuðum verð á vöru, þá er það tvíeggjað sverð. Það getur farið svo, að árangur af þessu verði minni en til er ætlazt. Það er nefnilega ekki hægt að skylda neinn til þess að kaupa vörur fyrir ákveðið verð, ef kaupandinn treystir sér ekki til þess. Það er ekki hægt að skylda hraðfrystihúsin í landinu til þess að kaupa ferskfisk fyrir eitthvert úrskurðað verð, ef þau treysta sér alls ekki til þess að fá það út úr sinni vinnslu, að þetta geti borgað sig. Það er ekki heldur hægt að fyrirskipa neinum útgerðarmanni að selja fiskinn sinn fyrir ákveðið verð. Og það er ekki hægt að skylda sjómanninn til þess að róa upp á það, að hann fái þetta verð fyrir aflann sinn. Ef slík harka fer í þetta mál, sem getur átt sér stað, að það þurfi að fara að úrskurða þetta með gerðardómi skipuðum eins og ég hef nefnt, þá er ekki víst, að málið leysist með þessu. Það er hægt að fá verðlag á pappírinn, en það er ekki vist, að það verði fyrirbyggðar atvinnustöðvanir, þó að þetta verði gert, og það er þó aðalatriðið og tilgangurinn með frv., það er að koma í veg fyrir þær. Og ég vil nefna eitt enn og það að gefnu tilefni. Ef annar hvor aðilinn í verðlagsráði, fulltrúar fiskkaupenda eða fiskseljenda, vill ekki sætta sig við yfirnefndina með oddamann frá hæstarétti, en finnur upp á því að tilnefna ekki fulltrúa sinn í yfirnefndina, hvað skeður þá? Kom það ekki fyrir einu sinni um verðlagsráð landbúnaðarafurða, að þetta var gert? Ég veit ekki betur en yfirnefndin hafi orðið óstarfhæf. (Gripið fram í.) Hvað segir hæstv. ráðherra? (Gripið fram í: Ég sagði, að það mætti gefa út bráðabirgðalög.) Já, veit ég það, að hæstv. ríkisstj. hefur æfinguna í því, hún hefur mikla þjálfun í því að gefa út brbl., og ég held nefnilega, að í sumum tilfellum sé henni alveg eins kært að gefa út brbl. og að leggja lagafrv. fyrir þingið.
5. brtt., sem ég flyt við frv., er við 11. gr. Í 11. gr. segir, að kostnaðurinn af verðlagsráði sjávarútvegsins skuli greiddur af fiskimálasjóði. Það er kannske af því, að ég er í stjórn fiskimálasjóðs, að ég á lakara með að sætta mig við þetta ákvæði en sumir aðrir. Hæstv. ráðherra sagði eitthvað á þá leið í framsöguræðu sinni í gær, að heimild væri fyrir því, að fiskimálasjóður greiddi slíkt, — ég held ég hafi það rétt eftir, — heimild sé fyrir fiskimálasjóð að greiða þennan kostnað. Hvar er sú heimild? Getur hún verið annars staðar en í lögunum um fiskimálasjóð? Starfsemi fiskimálasjóðs er sú að veita lán til framkvæmda í þágu sjávarútvegsins, til hvers konar fiskvinnslustöðva í landi, og auk þess að veita styrki. Það getur ekki falizt slík heimild í því ákvæði laganna, að fiskimálasjóður láni fé, því að það er ekki að lána neitt fé að borga þennan kostnað, það er ótvírætt. Það getur ekki fallið undir lánveitingar fiskimálasjóðs að taka að sér að greiða allan kostnað af opinberri stofnun, sem nú á að fara að setja á laggirnar. Það verður þá að heyra undir styrkveitingar fiskimálasjóðs, og lögin segja, hvers konar styrkveitingar fiskimálasjóður má hafa með höndum: Til hafrannsókna. Þetta eru ekki hafrannsóknir. Rannsókna á fiskigöngum og fiskistofnum. Ég held það geti ekki heyrt undir þetta, að þetta séu neinar fiskigöngur að borga kostnað verðlagsráðs. Tilrauna til veiða með nýjum aðferðum eða nýjum veiðarfærum. Ekki getur það heyrt undir þetta. Tilrauna með verkun og vinnslu sjávarafurða. Skrifstofukostnaður getur ekki heyrt undir þetta. Til markaðsleitar fyrir sjávarafurðir. Ég held, að þetta sé ekki markaðsleit, að ákvarða verð á ferskfiski hér innanlands. Til annarra rannsókna og nýjunga í þarfir sjávarútvegsins. Og þarna er upp talið. Ja, ég veit ekki, hvort hæstv. ráðherra á við það, að þetta sé nýjung í þarfir sjávarútvegsins. Eða er það rannsókn? Jú, það er rannsókn, það má heita það kannske. Ég vil bara spyrja hann, hvort honum finnist það heyra undir þetta ákvæði, að þetta sé rannsókn eða nýjung í þarfir sjávarútvegsins að borga skrifstofukostnað verðlagsráðs.
Nú er það svo, að þessi kostnaður getur orðið allverulegur fyrir stofnun, sem hefur heldur litlar tekjur, því að í 5. gr. frv. segir, hvað ráðið eigi að gera, og þar með sér maður, hvað það muni verða, sem hefur kostnað í för með sér: Að ákveða lágmarksverð á öllum tegundum fersks sjávarafla, sem seldur er til vinnslu hér í landi eða selja skal í skip eða annað flutningstæki til útflutnings óunnið. Að fylgjast með markaðsverði sjávarafurða á erlendum mörkuðum á hverjum tíma. Það er ekkert smáræðisverkefni. Að safna gögnum um framleiðslukostnað hinna ýmsu framleiðslugreina sjávarútvegsins og að safna öðrum þeim gögnum, sem ákvarðandi kunna að vera um verðlag á sjávarafla. Svo er gert ráð fyrir framkvæmdastjóra með skrifstofufólki og öllu, sem því tilheyrir. Svo er það kostnaðurinn af verðlagsráði, og mig minnir, að það séu 19 í því. Ég held nefnilega, að þessi kostnaður geti orðið allverulegur fyrir ekki stærri sjóð en fiskimálasjóður er. Tekjur fiskimálasjóðs eru: Hluti hans af útflutningsgjaldi af sjávarafurðum og vextir. Aðrar tekjur eru ekki. Og þessar tekjur fiskimálasjóðs hafa orðið síðustu árin þannig: 1957 4½ millj., 1958 5.7 millj., 1959 5.8 millj. og 1960 7.8 millj. Þetta er fiskimálasjóðsgjaldið og vextirnir. Ég held, að þetta geti orðið dálagleg skerðing á tekjum fiskimálasjóðs til þess að sinna venjulegri starfsemi, ef á að taka allan kostnað verðlagsráðs af árlegum tekjum sjóðsins. Og hverjir eru það í raun og veru, sem borga þetta? Það er sjávarútvegurinn. Hver einasti eyrir frá fiskimálasjóði fer til sjávarútvegs, í lán eða styrki. Og það er ekki um það að ræða, að þessi skerðing á tekjum sjóðsins, sem hlýzt af þessu ákvæði laganna, bitnar beint á þeim, sem fjárhagsaðstoðar hafa notið frá sjóðnum. Ég býst fyrst og fremst við, að það bitni á styrkþegum. Og mér þætti ekki ólíklegt, að verulegur hluti af því fé, sem hingað til hefur verið varið til styrkja í þágu sjávarútvegsins, hverfi í þetta. Og þá kemur það niður á þessum greinum, sem ég las upp úr lögunum, sem sjóðsstjórnin hefur styrkt fram að þessu.
Ég kalla það alveg merkilegt, að hæstv. ríkisstj. skuli nú hafa komið auga á fiskimálasjóð í þessu skyni. Það er eins og henni sé áskapað að ráðast á lamb fátæka mannsins, ef hún getur náð til þess. Í flestum tilfellum held ég, að það sé venjan, að slíkur kostnaður sé hreinlega greiddur úr ríkissjóði. En þarna er sjóður með 5, 6 eða 7 millj. kr. árlegar tekjur látinn greiða það, sem ríkissjóður með sínar 1700 millj. kr. í tekjur getur ekki greitt. En það verður, eins og ég sagði, þessi afleiðingin: stofnanir sjávarútvegsins verða að greiða þetta. Það bitnar á þeim. Öðruvísi getur stjórn fiskimálasjóðs ekki að farið.
Hæstv. ráðh. gat þess í framsöguræðu sinni, að þetta væri alveg hliðstætt því, sem væri um greiðslu á kostnaði við yfirnefnd um landbúnaðarverðið. Ég held, að ég fari þar ekki rangt með, ég hafi tekið þar rétt eftir: að þar væri sams konar fyrirkomulag og þetta, að kostnaðurinn væri greiddur af sjóði framleiðsluráðs, og því væri þetta lagt til, að fiskimálasjóður greiddi kostnað af verðlagsráðinu. Þetta er á misskilningi byggt hjá hæstv. ráðh. Kostnaður af sex manna nefnd framleiðsluráðslaganna og kostnaður af yfirnefnd, þegar til hennar þarf að koma, er allur greiddur úr ríkissjóði. Þetta er því þveröfugt, sem þarna er lagt til. Að vísu hefur framleiðsluráð aftur á móti annan kostnað. En um sex manna nefndina, sem er alveg hliðstæð 12 manna nefndinni í þessu frv. — eða verðlagsráðinu — og yfirnefndina um landbúnaðarverðið, sem er alveg hliðstæð yfirnefndinni í þessu frv., þá er það svo, að ríkissjóður greiðir kostnað af þessu hvoru tveggja, en skv. frv. á hann ekki að gera það, heldur á að láta fiskimálasjóð greiða kostnaðinn. Það er því á einhverjum misskilningi byggt hjá hæstv. ráðh., sem hann sagði í gær.
Ég hef þá drepið á þær brtt., sem ég flyt við þetta frv., og skal endurtaka að lokum það, sem ég sagði áður, að ég tel nauðsyn á að setja löggjöf um reglur, til þess að leita samkomulags í verðlagsmálum milli fiskseljenda og fiskkaupenda. En ég er fyrst og fremst andvígur skipun yfirnefndar með þeim hætti, að oddamaður sé skipaður af ríkisstofnun eða nokkrum öðrum en aðilunum sjálfum, sem eiga að semja. Brtt. mínar fengu ekki undirtektir hjá meiri hl. n., og það kann svo að fara, að þessi hv. deild líti eins á og þær nái ekki fram að ganga. En þótt svo fari, vil ég samt eiga minn þátt í því að styðja að löggjöf, sem gerir tilraun til þess að leysa þessi vandamál, og mun því fylgja frv. að lokum, þó að ég fái ekki samþykktar þær brtt., sem ég flyt, því að málið er svo mikils virði fyrir atvinnulífið í landinu og alla aðila, að ef árangur getur orðið með þessu móti, þá vil ég styðja að því, að sá árangur náist.