06.04.1962
Sameinað þing: 50. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í D-deild Alþingistíðinda. (3181)

200. mál, landþurrkun á Fljótsdalshéraði

Flm. (Eysteinn Jónsson):

Hæstv. forseti. Eins og mörgum er kunnugt, er Fljótsdalshérað eitt stærsta samfellda láglendissvæðið á Íslandi. Þar er mikið votlendi enn þá óþurrkað, þó að mikið hafi verið þurrkað.

Það er almennt viðurkennt, að þurrkun landsins hefur áhrif til hækkunar á meðalhita, ef nægilega stór svæði eru þurrkuð. Þannig getur framræsla á landi ein saman orðið til þess að stórauka notagildi landsins til beitar og ræktunar beinlínis og orðið til að gerbreyta skilyrðum til framleiðslu í heilum byggðarlögum. En fram að þessu hefur ekki fengizt í þessu efni reynsla hér á landi, þó að þetta sé reynslan annars staðar, því að enn þá er ekki þannig komið, að nokkurt stórt landssvæði hafi þannig verið þurrkað til hlítar.

Stunduð hefur verið kornrækt á Fljótsdalshéraði síðustu árin og fer vaxandi, og reynslan bendir til, að kornræktarskilyrði muni vera þar með þeim beztu, sem gerast á landinu. Þar eru einnig beztu skilyrði til skógargróðurs, að því er virðist. En það fer vel á því, að kornrækt og skógrækt fari saman og skógur sé hafður til skjóls.

Það er efni þessarar þáltill., sem við stöndum allir að, þm. fyrir Austfirðinga, að það verði rannsakað, hvað mundi kosta að ræsa fram allt ræktanlegt votlendi á Fljótsdalshéraði, og gerð verði áætlun um þá framkvæmd. Það þarf talsverða undirbúningsvinnu í þessu skyni, og fjallar ályktunin um að heimila hæstv. ríkisstj. að láta slíka athugun fara fram og fela henni að gangast fyrir henni.

Það þarf að mæla landið og gera áætlanir um kostnað við þurrkun þess, miðað við beztu vinnuaðferðir og hagfelldustu vinnubrögð. Þegar lægi fyrir, hversu mikið átak þetta væri, kæmi til athugunar fjármála- og framkvæmdahlið málsins.

Málum þarf að koma þannig, að allt þurrkanlegt land á Íslandi verði þurrkað, áður en langt líður, og er það von okkar flm., að ef í þetta væri gengið á þennan hátt varðandi Fljótsdalshérað, þá yrði það upphaf þess, að gerð yrði áætlun um þurrkun alls votlendis á Íslandi á eins stuttum tíma og framkvæmanlegt þætti.

Það er okkar till., að það verði riðið á vaðið með því að láta slíka heildarathugun fara fram á Fljótsdalshéraði.

Þó að hér sé um stórfellt mál að ræða og mikil ástæða væri til að fylgja því úr hlaði með ýtarlegri framsögu, mun ég vegna tímaskorts á fundum í hv. Sþ. og til að tefja ekki fyrir öðrum, sem þurfa að koma sínum málum að, ekki hafa þessi framsöguorð fleiri, en legg til, að málinu verði vísað til hv. fjvn.